Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 11 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 15% afsláttur af sumarúlpum og kápum í 3 daga ÍSLENSKIR friðargæsluliðar fóru með sigur af hólmi ásamt Svíum í alþjóðlegri kraftakeppni frið- argæsluliða í Kabúl 23. apríl síðast- liðinn. Átta fjögurra manna lið kepptu og náði íslenska sveitin 35 stigum eins og sú sænska, en í þriðja sæti varð finnsk sveit með 31 stig. Þýsk- ar sveitir lentu í 4. og 5. sæti, Kan- adamenn í 6. sæti og Norðmenn í því sjöunda. Spánverjar lentu í síð- asta sæti með 6,5 stig. Keppt var í fimm greinum sem oft sjást í keppni um sterkasta mann í heimi, s.s. trukkadrátt, bekkpressu og dekkjatog en auk þess var keppt í boðhlaupi og hleðslu níðþungra sandpoka og fleira á pallbíl. Íslendingarnir höfðu yfirburði í boðhlaupinu og trukkadrættinum en voru einnig ofarlega í hinum greinunum. Frá verðlaunaafhendingu að lokinni keppninni í Kabúl. Íslenska og sænska sveitin voru sterkastar Íslenska sveitin á fullri keyrslu í trukkadrættinum. SKIPULAGSSTOFNUN hefur átt viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðuneytið um viðbrögð sveitarfélaga og stjórn- valda við dómi Hæstaréttar, þar sem fallist var á kröfur fjölskyldu um að eiga lögheimili í sumarhúsabyggð í sveitarfélaginu Bláskógabyggð. Sömuleiðis hafa viðræður átt sér stað milli umhverfisráðuneytisins og fé- lagsmálaráðuneytisins, m.a. um hvort breyta þurfi lögum. Stefán Thors skipulagsstjóri segir að rætt hafi verið um framhald máls- ins þar sem dómur Hæstaréttar hafi mikil áhrif á gildi og framkvæmd skipulagsáætlana sveitarfélaga. Nið- urstaðan setji skipulagsmál sveitarfé- laga í erfiða stöðu ef haldið verði áfram að vinna eftir gildandi skipu- lags- og lögheimilislögum. Stefán segir engar ákvarðanir liggja fyrir um hvernig brugðist verði við. Auk laga um lögheimili þurfi að skoða lög um skipulagsmál. Við deili- skipulag sveitarfélaga sé miðað við að skipuleggja byggð eftir notkun og þörfum íbúa og fyrirtækja. Ef ekki séu nægar heimildir í lögum til að fylgja þeirri stefnu eftir sé full ástæða til að skoða málin í samhengi. Við skil- greiningu á frístundabyggð hafi verið gengið út frá því sem vísu að hún stæðist allar aðrar lagakröfur. „Það er nauðsynlegt fyrir alla aðila að vita hvar þeir standa,“ segir Stefán. Stjórnvöld ræða viðbrögð við dómi um lögheimili í frístundabyggð Setur skipulags- mál í erfiða stöðu STJÓRNVÖLD í Jemen áforma að taka Ísland sér til fyrirmyndar við uppsetningu á rafrænu stjórn- sýslukerfi. Bjarni Guðmundsson markaðsstjóri hjá Hugviti, sem fór til Jemen fyrir skömmu, segir að stjórnvöld í Jemen séu ekki síst hrifin af þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan íslenskrar stjórnsýslu og góðrar reynslu stjórnsýslunnar og fyrirtækja hér á landi af GoPro mála- og skjala- stjórnunarhugbúnaðinum. Greint er frá áhuga stjórnvalda í Yemen á vefsíðunni yementimes- .com. Þar segir að það kerfi sem notað sé hjá stjórnarráði Íslands hafi mikla hagnýta kosti og sé skil- virkt. Rafræn stjórnsýsla á Íslandi var fyrir skömmu kynnt fyrir fulltrú- um stjórnvalda í Jemen. Bjarni segir að Jemen horfi til Íslands sem leiðandi lands í uppbyggingu rafrænnar stjórnsýslu og því hafi Hugviti verið boðið til landsins. GoPro kerfi Hugvits bjóði m.a. upp á góða lausn varðandi sam- tengingu allra sendiráð Jemen, rétt eins og íslensk sendiráð um allan heim eru tengd saman með kerfinu. Bjarni segir að ekki sé búið að ganga frá samningum við Jemen, en áhugi sé fyrir hendi af hálfu beggja að ila. Hann segir að áhugi Jemena hafi komið á óvart og ljóst sé að þarna séu mikil tækifæri. Þá segir hann að aðstoð Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins hafi skipt miklu máli. Samræming milli ráðuneyta til fyrirmyndar Guðbjörg Sigurðardóttir, skrif- stofustjóri hjá skrifstofu upplýs- ingasamfélagsins, sagði það ekki nýtt að erlendir aðilar sýndu raf- rænni stjórnsýslu á Íslandi áhuga. Eitt af því sem vekti athygli þeirra væri sú samræming sem væri milli ráðuneytananna á Íslandi. Eins væru margir hrifnir af innra kerfi ráðuneytanna. Kostir þess væru m.a. að öll skjöl væru skráð raf- rænt, sem flýtti leit starfsmanna hins opinbera. Einnig auðveldaði þetta frekari þróun kerfisins í átt til gagnvirkari miðlunar. Guðbjörg sagði að rafræn stjórnsýsla einstakra stofnana væri einnig til fyrirmyndar og vekti athygli erlendis. Hún benti sérstaklega á vef ríkisskattstjóra, en tollurinn, Fiskistofa og Lána- sjóður íslenskra námsmanna væru einnig til fyrirmyndar. Jemenar leita fyrirmyndar í rafrænni stjórnsýslu á Íslandi KOSTNAÐUR við það að lækka Reykjanesbrautina í Garðabæ nem- ur 600–650 milljónum króna, sam- kvæmt nýrri skýrslu Línuhönnunar þar að lútandi, en skýrslan er nú til skoðunar í samgönguráðuneytinu. Um er að ræða vegarkaflann frá Smáralind og að gatnamótum Vífils- staðavegar og Reykjanesbrautar. Til hefur staðið að tvöfalda brautina, en framkvæmdaleyfi ekki fengist frá bæjaryfirvöldum í Garðabæ. Kópa- vogur hefur veitt framkvæmdaleyfi fyrir sitt leyti. Greindi bæjarstjórn Garðabæjar frá því í bréfi til sam- gönguráðuneytisins í lok síðasta árs að hún teldi ekki unnt að svo komnu að fallast á beiðni Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir þennan tiltekna kafla og var óskað eftir því við ráðuneytið að það léti fara fram nýtt mat á kostnaði við lækkun brautarinnar. Var Línuhönnun falið það verkefni í framhaldinu. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er í skýrslu Línuhönnunar talið að kostnaður við lækkun sé 600–650 milljónir króna. Áður hafa komið fram tölur um kostnað af lækkun allt frá 500 milljónum króna og upp í allt að 1.200 milljónir króna eftir því hver útfærslan er. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að skýrslan hefði verið að koma í hús og unnið væri að því að fara yfir hana í ráðuneytinu. Kostnaður við lækkun 600–650 milljónir                      

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.