Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 15 ERLENT BRESKI Íhaldsflokkurinn hefur hert mjög persónulegar árásir sínar á Tony Blair, leiðtoga Verkamanna- flokksins og forsætisráðherra, nú þegar vika er eftir til þingkosninga. Fullyrða þeir að hann hafi vísvitandi ýkt hættuna af gereyðingarvopnum Saddams Husseins í aðdraganda Íraksstríðsins 2003 með því að túlka gögn leyniþjónustunnar eftir sínu höfði. Og tvívegis blekkt þjóðina fyr- ir kosningarnar 1997 og 2001 með því að lofa að hækka ekki skatta en gera það samt eftir kosningar. Ný könnun MORI-stofnunarinnar fyrir Financial Times var birt í gær og var Verkamannaflokkurinn í henni með 10% fram yfir Íhalds- flokkinn. En ef eingöngu voru spurð- ir þeir sem sögðust staðráðnir í að kjósa minnkaði munurinn í tvo af hundraði, 36% sögðust myndu kjósa Verkamannaflokkinn en 34% Íhalds- flokkinn. Fram kemur að um 80% kjósenda íhaldsmanna segjast örugglega ætla að kjósa en aðeins 64% stuðningsmanna Verkamanna- flokksins. „Hve mikill sigur Verkamanna- flokksins verður mun algerlega fara eftir kjörsókninni,“ sagði Robert Worcester, stjórnandi MORI sem hefur stundað kjósendakannanir í Bretlandi í 30 ár. Í dagblaðinu Guardian er sagt að sérfræðingar Verkamannaflokksins séu sammála Worcester enda séu niðurstöður í könnunum þeirra áþekkar. Þetta komi fram í innan- hússkýrslu á vegum flokksins og sagt að úrslitin séu tvísýn í um 100 kjördæmum, þar séu yfirburðir Verkamannaflokksins 2% eða minni. Lítil kjörsókn getur að áliti sérfræð- inganna komið sér afar illa fyrir Verkamannaflokkinn í mörgum kjördæmum þar sem allt geti gerst. Nokkrir tugir kjördæma af þessu tagi hafa að jafnaði skipt miklu í breskum kosningum vegna þess að um einmenningskjördæmi er að ræða í öllu Bretlandi. Yfirleitt er ekki meiri hreyfing á kjörfylgi en svo að í langflestum kjördæmum má heita að úrslitin séu ráðin fyrirfram. Baráttan stendur því raunverulega aðeins um 60–80 kjördæmi þar sem línurnar eru ekki ljósar og mæti liðs- menn Blairs og manna hans ekki gæti það dugað annaðhvort íhalds- mönnum eða frjálslyndum til sigurs. Í skýrslunni eru nefnd fjögur dæmigerð vafakjördæmi, sagt að flokkurinn vonist til að halda þeim en nú sé staðan mjög tvísýn. „Það er fjöldi þeirra sem örugglega ætla að kjósa sem mun ráða úrslitum í þess- um kosningum,“ hefur Guardian eft- ir Alan Milburn, yfirmanni kosn- ingabaráttu Verkamannaflokksins. Tvisvar svikið skattaloforð „Ef hann er reiðubúinn að ljúga til að fara með okkur í stríð er hann líka reiðubúinn að ljúga til að vinna kosn- ingar,“ segir á nýju áróðursspjaldi Íhaldsflokksins, að sögn BBC. Michael Howard, leiðtogi Íhalds- flokksins, tekur þó skýrt fram að hann telji enn að rétt hafi verið að fara í stríð og hrekja Saddam frá völdum, hins vegar hefði ekki átt að beita ósannindum til að rökstyðja þá ákvörðun. Howard sagði í gær að Blair hefði tvisvar sinnum hækkað skatta eftir að hafa heitið því áður að hækka þá ekki. Núna neitaði Blair að viðurkenna að hann myndi neyðast aftur til að hækka skattana. „Hann hefur komist upp með þetta tvisvar og heldur að hann geti leikið sama blekkingaleikinn í þriðja sinn,“ sagði Howard. „En hvað held- ur hann að skoskir kjósendur séu, einhverjir bjánar?“ Þegar Howard var spurður hvort hann hefði sjálfur einhvern tíma skrökvað svaraði hann: „Mér er ekki kunnugt um að ég hafi nokkurn tíma markvisst og vísvitandi blekkt fólk en ég saka Blair um að hafa gert það.“ Neikvæð kosningabarátta Blair sakaði íhaldsmenn í gær um neikvæða kosningabaráttu sem ein- kenndist af örvæntingu þeirra. Blair hlaut óvæntan stuðning frá Charles Kennedy, leiðtoga Frjálslyndra demókrata. Hann sagði aðferðir íhaldsmanna sýna að þeir byggjust við að tapa og hefðu gripið til þess ráðs að beita grófum, persónulegum árásum. „Þetta mun ekki gagnast þeim neitt og mun ekki hafa góð áhrif á kosningabaráttuna sem slíka,“ sagði Kennedy. Verkamannaflokkurinn leggur nú áherslu á velferðar- og menntamál í kosningaáróðri sínum og segir að kjósendur geti valið annars vegar „fjárfestingu í menntun eða niður- skurð íhaldsmanna“, þeir geti valið „ókeypis heilsugæslu eða notenda- gjöld íhaldsmanna“. Einnig gagn- rýna talsmenn hans að hugmyndir íhaldsmanna um að leyfa foreldrum að velja sjálfir skóla fyrir börn sín. Leggur Verkamannaflokkurinn áherslu á að veita meira fé til menntakerfisins og að agi verði efld- ur í skólum. Frjálslyndir segja brýn- ast að auka fagmennsku í kennslunni og vilja tryggja að einvörðungu sér- fræðimenntaðir kennarar annist grundvallarfög eins og ensku og stærðfræði. Að auki vilja þeir sjá til þess að nemendafjöldi í hverjum bekk minnki. „Ef hann er reiðubúinn að ljúga“ Íhaldsmenn segja að Blair muni áfram reyna að blekkja kjósendur Reuters Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á skólalóð með nemendum í grunn- skóla í Harwich í gær. Hann flutti þar stefnuræðu sína um menntamál. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ikanar fyrir í næstu þingkosningum á eftir. Sáttatilboði hafnað Sumir fréttaskýrendur telja að deilan nú sé of langt gengin til að deiluaðilar geti farið að draga í land. En forystumenn flokkanna hafa þó haldið áfram að leita sátta og í fyrra- dag buðust demókratar til að hætta málþófi vegna þriggja dómara ef repúblikanar á móti drægju aðrar út- nefningar til baka og hétu því að beita ekki „dómsdagsúrræðinu“. Þetta tók Bill Frist, leiðtogi repúbl- ikana í öldungadeildinni, hins vegar ekki í mál, sagðist engan áhuga hafa á samkomulagi sem ekki tryggði að all- ar útnefningar Bush forseta hlytu brautargengi í þinginu. Eru repúblik- anar sagðir vera með annað og meira í huga en einungis umrædda dómara, líkur eru taldar á að sæti losni í hæsta- rétti Bandaríkjanna í sumar og þeir vilja ekki að demókratar geti tafið eða komið í veg fyrir samþykkt þess er Bush kann að skipa þar. æðinu“ Colombo. AFP. | Að minnsta kosti 35 týndu lífi og 28 slösuðust í gær þeg- ar hraðlest ók á fólksflutningabifreið á gatnamótum um 80 kílómetra norðaustur af Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Rútan mun hafa verið full af fólki þegar slysið varð. Slysið varð í námunda við bæinn Polgahawela. Við áreksturinn kvikn- aði í áætlunarbifreiðinni. „Þetta slys varð vegna kæruleysis ökumanns rútunnar,“ sagði lög- regluforinginn Asoka Ratnaweera í samtali við AFP-fréttastofuna. Öku- maðurinn var handtekinn skömmu eftir slysið sem og lestarstjórinn. Svo virðist sem ökumaður rútunnar hafi reynt að skjótast yfir mót göt- unnar og teinanna um leið og lestina bar að. Sjónarvottar segja að öku- maðurinn hafi hundsað merki um að lestin væri skammt undan. Frétta- ritari BBC á Sri Lanka segir að slys sem tengjast áætlunarbifreiðum séu afar tíð. Rútufyrirtæki hafi verið einkavædd og ríki mikil samkeppni á milli þeirra. Oft komi því fyrir að ökumenn áætlunarvagna stundi kappakstur um hver þeirra nái fyrstur á næstu biðstöð. 35 farast í árekstri á Sri Lanka Osló. AFP, AP. | Tuttugu og þriggja ára gömul norsk kona var í gær dæmd til níu mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa nauðgað 31 árs gömlum manni. Þá var konan dæmd til að greiða fórnarlambinu 40 þúsund norskar krónur, um 400.000 ísl. krónur. Segja fjölmiðlar í Noregi að þetta sé í fyrsta sinn sem kona er sakfelld fyrir nauðgun þar í landi. Atburðurinn átti sér stað í janúar 2004 í Björgvin. Fólkið sat að drykkju ásamt unnusta konunnar. Kom fram í vitnisburði fórnarlambs- ins að hann hefði sofnað en síðan vaknað skyndilega og varð þá var við að konan var að framkvæma á hon- um munnmök. Var kærasti hennar að taka myndir af öllu saman. Konan sagði fyrir rétti að munn- mökin hefðu átt sér stað með vilja beggja aðila og að maðurinn hefði verið vakandi meðan á þeim stóð. Saksóknari hélt því hins vegar fram að skýringar hennar væru ósann- færandi og sagði hann að ekki ætti að veita henni neina sérmeðferð „bara vegna þess að hún er kona“. Fram kom í úrskurði dómara að lagabreyting frá árinu 2000 skil- greindi kynferðislegar athafnir, sem viðkomandi hefði ekki sýnt vilja til, sem nauðgun. Refsa bæri konunni í samræmi við þetta. Dæmd fyrir nauðgun ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.