Morgunblaðið - 28.04.2005, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Egilsstaðir | „Laxastiginn í Lag-
arfossi lítur í rauninni vel út í aug-
um veiðimanna og hönnuða. Málið
er bara að sálarlíf laxa kann að
vera öðruvísi
heldur en þeirra
sem hönnuðu
stigann, þannig
að það gæti ver-
ið þar eitthvað
sem laxinum lík-
ar ekki við.
Svæðið er ekki
vonlaust, það
þarf bara þolin-
mæði til að finna
út hvað er að og laga það,“ segir
Sigmar Ingason hjá Stangveiði-
félaginu Héraðsmönnum. Félagið
gengst fyrir ráðstefnu um stang-
veiðimöguleika á Lagarfljótssvæð-
inu og úrbætur á laxastiganum við
Lagarfoss nk. laugardag.
Um tildrög ráðstefnunnar segir
Sigmar að fyrir löngu hafi verið
gerð tilraun til þess að fá göngu-
fisk upp í hið stóra vatnasvæði fyr-
ir ofan Lagarfoss. „Í laxastigann
var farið af miklum dugnaði og
sleppt miklu af seiðum í kjölfarið.
Gerður var stór samningur milli
landeigenda við Lagarfljót og
Stangveiðifélags Reykjavíkur en
árangur varð lítill og stiginn þótti
ekki nógu góður. Honum var
breytt síðar og alltaf hafa komið
einhverjir fiskar upp fyrir stiga og
það sannar að þarna getur gengið
fiskur. Þetta hefur þó aldrei borið
þann árangur sem menn vonuðust
til. Þessi tilraun fjaraði því út af
því að menn urðu fyrir svo miklum
vonbrigðum og núna hófst þessi
umræða aftur í sambandi við
stækkun Lagarfossvirkjunar og
mannvirkjagerð samhliða því og
byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Þá datt okkur það snjallræði í hug
að reyna að koma þessu máli á
rekspöl aftur. Við töluðum við
marga menn sem um þetta höfðu
fjallað og komumst fljótlega að því
að menn voru svekktir eftir þessi
vonbrigði og því erfitt að hreyfa
málinu. Svo þegar ég fór að koma
þessu lengra uppgötvaði ég líka að
ýmsir menn höfðu ágætan áhuga,
svo að niðurstaðan varð sú að efna
til ráðstefnu.
Fá á svæðið alla þá fræðinga
sem við teljum að best geti frætt
okkur og kennt og segja okkur
hvar málin standa, hvað helst var
að síðast og í hverju væri helst von
núna. Við viljum stuðla að því að
koma málinu á hreyfingu og að
það yrði þá gert af fullri fag-
mennsku í þetta sinn. Einnig þarf
að nota tækifærið, af því að verið
er að hreyfa við mannvirkjum
þarna út frá, til að tryggja að ekki
verði gert neitt sem kemur í veg
fyrir að auðvelt sé að koma þessu í
það horf síðar sem fræðingar telja
að best geti orðið. Við Stangveiði-
félagsmenn höfum í raun ekki afl
til þess að gera annað en þetta, að
koma mönnum saman og ræða
málið og stuðla að því að næstu
skref verði tekin af skynsemi,“
segir Sigmar.
Framsögumenn á ráðstefnunni
verða m.a. Árni Ísaksson veiði-
málastjóri, Guðni Guðbergsson hjá
Veiðimálastofnun, Jón Kristjáns-
son fiskifræðingur, Þröstur Elliða-
son fiskeldisfræðingur og Sveinn
Agnarson hagfræðingur. Til ráð-
stefnunnar eru boðaðir landeig-
endur við Fljótið, fulltrúar sveitar-
félaga, Landsvirkjunar, RARIK og
Þróunarstofu Austurlands. Ráð-
stefnan verður haldin á Hótel Hér-
aði á Egilsstöðum laugardaginn
30. apríl kl. 13.30 og er öllum opin.
Laxastigi við Lagarfossvirkjun hefur aldrei virkað eins og til stóð
Ljósmynd/H. Hall
Horft yfir Lagarfljót Stangveiðimenn vilja endurbæta ófullburða laxastiga í Lagarfossi.
Leggja laxinum í Lagarfljóti lið
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Sigmar Ingason
AUSTURLAND
AKUREYRI
Í Tívolí | Leikfélag Seyðisfjarðar
frumsýnir á morgun í félagsheimilinu
Herðubreið leikritið Í Tívolí eftir
Guðjón Sigvaldason, Steingrím Guð-
jónsson, Skagaleikhópinn og NFFA.
Guðjón er einnig leikstjóri sýningar-
innar sem og dansahöfundur en tón-
listarstjóri er María Gaskell. Í Tívolí
er söngleikur byggður á Tívolí-plötu
elstu og virtustu unglingahljóm-
sveitar allra tíma, Stuðmanna. Tutt-
ugu og sex leikarar, börn og full-
orðnir, koma fram í sýningunni auk
hljómsveitar. Fjöldi aðstoðarmanna
kemur einnig að sýningunni á ýmsan
hátt. Mikið fjör hefur verið í hópnum
síðustu vikur og mikið lagt á sig til
þess að sýningin megi heppnast sem
best. Frumsýningin hefst kl. 20 í
Herðubreið, en næstu sýningar eru 1.
maí kl. 20 og 5. maí kl. 18. Alls eru
fyrirhugaðar 8 sýningar á verkinu.
Ferðaþjónusta | Málþing um ferða-
þjónustu á Austurlandi verður haldið
í Egilsbúð í Neskaupstað á morgun.
Er málþingið haldið í tengslum við
aðalfund Markaðsstofu Austurlands.
Smári Geirsson er fundarstjóri og
setur þingið, en framsögumenn eru
Stefán Stefánsson, formaður Ferða-
málasamtaka Austurlands, Katla
Steinsson, framkvæmdastjóri Mark-
aðsstofu Austurlands, Arngrímur
Viðar Ásgeirsson frá Ferðaskrifstofu
Austurlands og Arndís Þorvalds-
dóttir frá Héraðsskjalasafni Austur-
lands.
Þingið hefst kl. 15 og stendur fram
undir kl. 17, en þá verður þingfólki
boðið í skoðunarferð.
Slökkvistöð | Í vikunni voru opnuð
tilboð í byggingu nýrrar slökkvi-
stöðvar í Austurbyggð. Fjögur aðal-
tilboð bárust í verkið. Austurverk
ehf. bauð kr. 57.355.500, Saxa ehf.
bauð kr. 57.801.640, Röra- og hellu-
steypan ehf. kr. 59.779.129 og Tré og
steypa ehf. bauð kr. 60.638.937.
Ákvörðunar um hvaða tilboði verður
tekið er að vænta innan 3 vikna frá
opnun tilboða.
GRÍÐARLEG fagnaðarlæti brutust
út á Akureyrarflugvelli um hádeg-
isbil í gær, þegar nýkrýndir sigur-
vegarar í Norrænu KappAbel-
stærðfræðikeppninni komu með
áætlunarflugi Flugfélags Íslands frá
Reykjavík. Fjórmenningarnir sem
sigruðu í keppninni, eru í 9. bekk B í
Lundarskóla og með þeim í för var
kennari þeirra Sigurveig María
Kjartansdóttir. Um 180 nemendur í
unglingadeildum Lundarskóla, Þór-
unn Bergsdóttir skólastjóri, fulltrú-
ar úr skólanefnd bæjarins, Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri og fleiri
tóku á móti hópnum og fögnuðu sig-
urvegurunum vel og innilega. Þór-
unn skólastjóri færði nemendum
sínum og kennara blóm á flugvell-
inum og lýsti jafnframt stolti yfir ár-
angri þeirra. Kristján Þór bæjar-
stjóri sagði að þessi árangur væri
gott dæmi um góðan árangur nem-
enda í skólabænum Akureyri. „For-
eldrar, kennarar og nemendur fá
þarna staðfestingu á góðu starfi og
þetta er skrautfjöður í skólahatt
bæjarins,“ sagði bæjarstjóri.
Nemendurnir fjórir, Kamilla Sól
Baldursdóttir, Auðunn Skúta Snæ-
bjarnarson, Eyþór Gylfason og
Sunna Þorsteinsdóttir, fóru með sig-
ur af hólmi í íslensku undankeppn-
inni fyrr í mánuðinum og tryggðu
sér rétt til þátttöku í norrænu úrslit-
unum, sem fram fóru í Reykjavík.
Norræna KappAbel-stærðfræðikeppnin
Morgunblaðið/Kristján
Glaðbeittir sigurvegarar Nemendum Lundarskóla sem sigruðu í norrænu
stærðfræðikeppninni og kennara þeirra var vel fagnað við komuna til Ak-
ureyrar í gær. Þórunn Bergsdóttir skólastjóri t.h. færði sigurvegurunum
blómvendi framan við flugstöðina á Akureyrarflugvelli.
Sigurvegurunum
var vel fagnað
ÍBÚAR í Lundar-
hverfi, þ.e. þeir sem
búa í námunda við
fyrirhugaða Dals-
braut, frá Þingvalla-
stræti og í Nausta-
hverfi, virðast al-
mennt vera and-
snúnir því að
brautin verði lögð.
Þá hafa kennarar í
Lundarskóla mót-
mælt áformum um
slíkt og forsvars-
menn Knattspyrnu-
félags Akureyrar segja að Dalsbraut
muni skerða félagssvæðið verulega.
Fjölmenni var á fundi þar sem rætt
var um framtíðarlegu tengibrauta að
og við Lundarhverfi í fyrrakvöld, en
bæjarráð Akureyrar hefur samið við
ráðgjafarfyrirtækið Alta um að efna
til samráðs og almennrar kynningar
meðal bæjarbúa á niðurstöðum
vinnuhóps umhverfisráðs um framtíð-
arlegu tengibrauta að og við Lund-
arhverfi. Markmiðið með samráðinu
er að afla upplýsinga og eiga samræð-
ur við íbúana og leita sátta um nið-
urstöðu eins og kostur er.
Aukning umferðar blasir við
Fyrirsjáanlegt er að umferð mun
aukast verulega um Þórunnarstræti
og Mýrarveg á komandi árum í kjöl-
far þess að Naustahverfi er nú óðum
að byggjast upp. Þeir kostir sem til
skoðunar hafa verið eru lagning Dals-
brautar og eða Miðhúsabrautar ofan
bæjarins. Afgerandi andstaða hefur
komið fram við lagningu Dalsbrautar
meðal íbúa hverfisins sem benda m.a.
á að hún muni hafa í för með sér
aukna hættu fyrir gangandi vegfar-
endur í grennd við Lundarskóla og
KA-svæðið. Þannig benti Ólafur
Jónsson, einn íbúanna, á að 80% líkur
væru á dauðaslysi á tengibraut þar
sem umferðarhraðinn væri 50 kíló-
metrar á klukkustund. Stefán Ólafs-
son nefndi á fundinum að Akureyri
væri smábær en sífellt væri verið að
bjóða upp á kostnaðarsamar lausnir.
Báðar tengibrautirnar, Dalsbraut
og Miðhúsabraut, hafa verið á skipu-
lagi í rúm 30 ár, frá árinu 1973, en
ekki orðið af framkvæmdum. Al-
mennt virðist sú skoðun útbreidd að
síðarnefnda brautin sé betri kostur en
Dalsbraut.
Kostnaður við lagningu beggja
brauta er áætlaður um 194 milljónir.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, ráðgjafi
hjá Alta, nefndi á fundinum að málið
væri flókið og vandasamt. Mikilvægt
væri að bæjarbúar ræddu málið og
litu á það sem viðfangsefni, ekki deilu.
Hægt væri að ná góðum árangri ef
menn vönduðu sig.
Andstaða við lagningu Dalsbrautar
Flókið viðfangsefni
að finna góða lausn
Morgunblaðið/Kristján
Kynning Fjöldi fólks lagði leið sína á kynningarfund
um samgöngumál sem haldinn var á Hótel KEA.
BIRTING – ungt fólk gegn ofbeldi,
boðar er til þögullar mótmælastöðu
gegn ofbeldi á Akureyri, á morgun
föstudag, 29. apríl, kl. 17 á Ráðhús-
torgi. Bæjarbúar eru hvattir til að
mæta tímanlega, gefa ofbeldinu rauða
spjaldið og sameinast í stuttri þögn.
Tónlistarmaðurinn KK mun einnig
spila nokkur lög.
Undanfarin misseri hefur aukið of-
beldi í samfélaginu verið mikið í um-
ræðunni. Nú telja bæjarbúar að kom-
ið sé nóg og að þeir geti ekki setið
aðgerðarlausir lengur. Þeir vilja
senda skýr skilaboð bæði til stjórn-
valda og almennings og vekja landann
til umhugsunar um hve stórt vanda-
málið er. Saklaust fólk hefur ítrekað
orðið fyrir barðinu á ofbeldismönnum
sem virðast geta vaðið uppi í sam-
félaginu án þess að gripið sé til nokk-
urra aðgerða. Þetta vilja félagar í
Birtingu og aðrir bæjarbúar stöðva!
„Við skorum því á stjórnvöld jafnt
sem almenning að taka til hendinni í
þessum málum. Vandinn verður ekki
leystur nema allir leggist á eitt. Við
búum til okkar eigið samfélag.
Sýnum samstöðu í verki. Þessum
þöglu mótmælum er beint gegn of-
beldi almennt sem hvorki á að þekkj-
ast í fjölskyldubænum Akureyri né
annars staðar,“ segir m.a. í fréttatil-
kynningu frá Birtingu.
Rauðum spjöldum verður dreift á
staðnum. Einnig eru fyrirhuguð mót-
mæli annars staðar á landinu.
Þögul mótmælastaða
verður á Ráðhústorgi
Gefum
ofbeldinu
rauða
spjaldið