Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 19

Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 19 MINNSTAÐUR 5 0 0 2 b eF/n aJ re pap lla W* Wallpaper* The Design Awards D U X 70 07 : B es ta R úm ið * E I N S T A K T K Y N N I N G A R T I L B O Ð Þú pan tar DUX 70 07 rúm og fæ rð n ýju BM 70 07 luxu s yf irdý nun a m eð í ka upb æti (ve rðm æti 15 3.3 00 í st ærð 18 0x2 00c m) • G ildi r að ein s í 4 d aga : 27 /04 -30 /04 -05 Sér fræ ðin gur frá DU X í Sví þjó ð ve rðu r í v ers lun inn i. Ármúla 10 • 108 Reykjavík Sími: 5689950 Blómlegt menningarlíf | Menn- ingar- og listalíf Húsvíkinga hefur blómstrað nú í vetur sem endranær. Settar hafa verið upp leiksýningar og þar ber hæst sýningu Leikfélags Húsavíkur á Sambýlingunum og hef- ur hún fengið mjög góðar viðtökur. Þá hafa myndlistarsýningar verið í Safnahúsinu og meðal þeirra sem sýnt hafa verk sín að undanförnu eru þeir Ingvar Þorvaldsson og Frímann Sveinsson. Listmálarinn þjóðþekkti, Tryggvi Ólafsson, er væntanlegur í bæinn en hann mun opna sýningu á verkum sínum í Safnahúsinu 1. maí nk. Sýn- ingin er samstarf Safnahússins og stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Hátíðardagskrá stéttarfélaganna í tilefni 1. maí er að venju glæsileg. Meðal þeirra sem koma þar fram eru Óskar Pétursson stórsöngvari, Jó- hannes Kristjánsson eftirherma, Lúðrasveit Þingeyinga, Stúlknakór Húsavíkur og söngkonan Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Finnbjörn Her- mannsson, formaður Samiðnar, mun flytja hátíðarræðu dagsins. Tónlistarlíf hefur einnig verið öfl- ugt og er söngurinn þá ekki undan- skilinn. Stúlknakórinn, sem áður er nefndur, hefur t.a.m. æft stíft fyrir söngferð sem farin verður nú í maí og er ferðinni heitið á alþjóðlegt kóramót í Feneyjum. Hellissandur | Ný vatnsaflsvirkjun, Múlavirkjun, sem verður með um 2ja megawatta grunnafl, er í byggingu við Straumfjarðará á Snæfellsnesi. Þrír bændur í Staðarsveit og Eyja- og Mikla- holtshreppi stofnsettu einkahlutafélag, Múlavirkjun ehf., og það fyrirtæki er framkvæmdaraðili. Vatnið er tekið við upptök Straumfjarðarár þar sem áin fellur úr Baulárvallavatni. Mannvirkja- gerð var í gangi í allan síðastliðinn vet- ur. Nú er stöðvarhús virkjunarinnar að rísa, komin myndarleg göngubrú yfir Straumfjarðará við stöðvarhúsið. Brúin kom fullgerð á staðinn frá Límtré – Vír- neti hf. í Borgarnesi. Uppsteypa inn- taksmannvirkja uppi við Baulárvalla- vatn er einnig í fullum gangi. Framkvæmdir við Múlavirkjun Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Hellnar | Minnisvarði hefur verið reistur í landi Brekkubæjar á Helln- um um Guðlaug heitinn Bergmann. Var það gert á alþjóðlegum degi jarðar. Ekkja Guðlaugs, Guðrún G. Bergmann, synir hans og fjöl- skyldur þeirra reistu honum minn- isvarðann sem hefur Snæfellsjökul sem baksvið. Eftir afhjúpun lögðu viðstaddir sextíu og sex rauðar rósir í kringum minnisvarðann, en Guðlaugur var 66 ára þegar hann lést. Í lok athafn- arinnar var Ísland er land þitt sung- ið, en Guðlaugur unni landi sínu mjög heitt og taldi að ekki væri til betra land í heimi en Ísland. Stofnaður var minningarsjóður um Guðlaug skömmu eftir að hann lést og er hægt að finna nánari upp- lýsingar um hann undir www.helln- ar.is/minningarsjodur. Hefur þegar safnast veruleg upphæð í hann og er gert ráð fyrir því að úthlutað verði styrkjum úr honum á þessu ári. Markmið sjóðsins er að styðja verk- efni í umhverfismálum sem byggjast á hugmyndafræði sjálfbærrar þró- unar. Afhjúpun Guðrún G. Bergmann afhjúpar minnisvarða um Guðlaug. Minnis- varði um Guðlaug Bergmann LANDIÐ Kítínverksmiðja | Bæjarráð Húsavíkur hefur samþykkt að leggja fram allt að 7 milljónum króna í hlutafé, vegna fjármögnunar kítín- verksmiðju á Húsavík og er það í samræmi við erindi félagsins, Navamedic, þar um. Samþykktin er háð því skilyrði að tímasettar áætlanir félagsins um framkvæmdir og framleiðslu, sem fram koma í erindinu, gangi eftir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.