Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
ÞAÐ lá eftirvænting í loftinu enda
voru bara tveir dagar til stefnu síð-
astliðinn þriðjudag þegar Daglegt
líf brá sér í heimsókn í Snælands-
skóla til að fylgjast með æfingu fyrir
Stóru upplestrarkeppnina sem verð-
ur í Salnum í kvöld. Krakkarnir eru
harðákveðin í að gera sitt besta og
æfa sig af kappi fyrir framan púlt
við ljóðalestur og sögutúlkun. Þegar
spurt er hvað þau þurfi fyrst og
fremst að hafa í huga í sjálfri keppn-
inni, stendur ekki á svari: „Við þurf-
um auðvitað fyrst og síðast að skilja
samhengið í textanum og svo þurf-
um við að lesa hátt og skýrt og við
þurfum að túlka textann vel og lifa
okkur inn í efniviðinn,“ segja þau
Rósa Björnsdóttir og Björn Hjörvar
Harðarson, sem verða fulltrúar
Snælandsskóla í Salnum í Kópavogi
í dag, en þar etja þau kappi við jafn-
aldra sína úr öðrum grunnskólum
Kópavogs. Jafnaldri þeirra, Stefán
Ingi Stefánsson, æfir af kappi með
þeim, en hann er varamaður og þarf
að mæta ef annar hvor keppandinn
forfallast. Krakkarnir hafa verið
þjálfaðir af kennurunum sínum frá
því í nóvember, en þessa síðustu
daga sér Unnur Sólrún Bragadóttir,
kennari og rithöfundur í frí-
stundum, um þjálfunina, en hún hef-
ur nokkrum sinnum verið dómari í
lokakeppnum.
Upplestrarkeppnin er haldin að
frumkvæði Radda, áhugafólks um
eflingu tungunnar, í samvinnu við
ýmsa styrktaraðila.
Lokahnykkir keppninnar í ár
Keppnin hefst á ári hverju á Degi
íslenskrar tungu 16. nóvember og
lýkur í hverju héraði við hátíðlega
athöfn í aprílmánuði. Auk keppn-
innar í Salnum kl. 16.30 í dag, verð-
ur haldin keppni í Gerðaskóla í
Garði og síðan verður lokahnykkur
keppninnar haldinn í Safnahúsinu á
Húsavík á morgun, föstudag, kl.
14.00. Að aflokinni Húsavíkurhátíð-
inni á morgun hafa samtals 32
lokahátíðir verið haldnar um allt
land.
Keppnin, sem nú er haldin í 9.
sinn, á rætur sínar að rekja til nokk-
urra skóla í Hafnarfirði og á Álfta-
nesi árið 1996, en hefur síðan vaxið
mjög að umfangi. Í ár hafa 4.516
nemendur í 243 bekkjardeildum frá
143 skólum tekið þátt í keppninni.
Aðstandendur keppninnar halda
utan um hana og velja texta til upp-
lestrar, en kennarar sjá um und-
irbúning í hverjum skóla fyrir sig.
Þó að meginmarkmið keppninnar sé
að efla upplestur, benda aðstand-
endur keppninnar á það á heimasíðu
sinni að reynslan hafi sýnt að verk-
efnið þjóni mun fleiri markmiðum.
Hún efli sjálfsvirðingu nemenda og
virðingu fyrir öðrum og sé jafn-
framt hvetjandi fyrir nemendur
með lestrarörðugleika. Keppnin
þjálfi því og efli hvers kyns lífs-
leikni.
Að þessu sinni eru það ljóð Jó-
hannesar úr Kötlum og bók Guð-
rúnar Helgadóttur „Öðruvísi dagar“
sem krakkarnir þurfa að æfa, en
auk þess þurfa þau að lesa sjálfvalið
ljóð.
Skilningur á efni boðskaparins
„Keppnin fer fram í þremur um-
ferðum. Hver keppandi þarf að lesa
eina blaðsíðu úr bók Guðrúnar, sem
þau fá vitneskju um tveimur dögum
fyrir keppni og eitt ljóð eftir Jó-
hannes. Að lokum lesa þau svo sjálf-
valið ljóð,“ segir Unnur Sólrún.
„Aðalatriðið er að koma tilfinn-
ingunum úr textanum til skila til
áheyrenda. Til þess að svo megi
verða, þurfa þau að skilja efnið, sem
þau eiga að túlka. Ég reyni að fá þau
til þess að hugsa myndrænt um text-
ann, líkt og þau séu að mála mynd,
enda skiptir það öllu máli í svona
keppni að fanga áheyrendur þannig
að þú náir athygli þeirra. Fari efni
textans algjörlega framhjá áheyr-
endum er flutningurinn ekki góður.
Maður fangar áheyrendur með því
að setja sínar eigin tilfinningar í
flutninginn. Framkoman þarf auð-
vitað líka að vera til fyrirmyndar,
hraðinn mátulegur og þagnir þurfa
að njóta sín. Það er ótrúlega gaman
að þjálfa upplestur, sér í lagi þegar
maður sér krakkana allt í einu opn-
ast upp á gátt,“ segir Unnur Sólrún.
Mátuleg spenna í loftinu
Þau Rósa, Björn og Stefán segjast
lesa þó nokkuð heima og þá verði
spennu-, ævintýra- og vísindasögur
gjarnan fyrir valinu. Áhugamálin
sækja þau að öðru leyti í ýmsa geira.
Fyrir utan það að hafa gaman af því
að „tsjilla“ með vinunum og vinkon-
unum, segist Rósa vera mikil hesta-
kona, Stefán handboltastrákur með
HK og Björn segist hafa sérstakt
dálæti á sjálfsvarnaríþróttinni
„crappling“ sem sé eitt form af
karate, en mun nytsamlegra ef á
mann yrði ráðist.
Og þegar spurt er hvort þau hafi
ákveðið hvað þau vilji verða á full-
orðinsárum, stendur ekki á svari og
virðist sem lækningar séu sameig-
inlegt áhugamál þeirra allra. Rósa
segist annaðhvort ætla sér í lækninn
eða dýralækninn. Stefán Ingi tekur í
sama streng og bætir við að kannski
sé líka svolítið gaman að vera kokk-
ur. Björn Hjörvar telur líklegt að
hann endi í læknisfræði líkt og báðir
foreldrarnir. „Ég ætla allavegana
að flýta mér svolítið í gegnum
grunn- og menntaskóla því ég stefni
á langtímanám,“ segir Björn, sem er
nánast ári á undan í skóla.
– Að lokum, kvíðið þið fyrir
keppninni?
„Nei, nei. Það er bara mátuleg
spenna í loftinu og gaman að vera
komin svona langt.“
MENNTUN | Alls hafa 4.516 nemendur í 143 skólum tekið þátt í Stóru upplestrarkeppninni
Bætir lesskiln-
ing og eflir
sjálfsvirðingu
TENGLAR
.....................................................
www.ismennt.is/vefir/upplestur/
join@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Fulltrúar Snælandsskóla í Stóru upplestrarkeppninni, þau Rósa Björnsdóttir, Björn Hjörvar Harðarson og Stefán
Ingi Stefánsson, ásamt þjálfaranum Unni Sólrúnu Bragadóttur.
Stefán Ingi æfir sig á ljóðinu Véný
séní eftir Þórarin Eldjárn.
Rósa ætlar að velja sér ljóðið Vax-
litir eftir ókunnan höfund.
Björn Hjörvar ætlar að velja ljóð
Davíðs Stefánssonar, Konan sem
kyndir ofninn minn.
Stóra upplestrar-
keppnin er eitt um-
fangsmesta þróunar-
verkefni, sem á sér
stað í grunnskólum
landsins. Jóhanna
Ingvarsdóttir hlustaði
á ljóðaflutning fulltrúa
Snælandsskóla sem
verið hafa í þjálf-
unarbúðum hjá Unni
Sólrúnu Bragadóttur.
Síðustu keppnirnar
fara fram í dag og á
morgun.
sími: 566 6103
isfugl@isfugl.is • www.isfugl.is
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Granít borðplötur og flísar