Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 21 NEYTENDUR KAFFI er ekki bara kaffi í huga kaffiáhugamanna því gott kaffi þarf að vera í góðu jafnvægi. Það þarf að hafa sætleika og mýkt og vera í senn kraftmikið og með góðri fyllingu, að mati Jónínu Soffía Tryggvadóttur, starfs- manns Tes og kaffis á Laugavegi, sem bar sigur úr býtum í Íslands- meistarakeppni kaffibarþjóna í marsmánuði og var því fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti kaffibarþjóna í Seattle nýlega þar sem hún hafnaði í fimmta sætinu af 36 mögulegum. Keppendur þurftu að útbúa á fimmtán mínútum samtals fjóra espresso, fjóra cappuccino og fjóra svokallaða frjálsa drykki. Frjálsa drykkinn sinn nefndi Jón- ína Isobel eftir samnefndu lagi Bjarkar Guðmundsdóttur. „Ég hlusta mikið á Björk þegar ég mála á bolla sem ég reyndar not- aði í keppninni. Hún syngur svo- lítið um fjöll og náttúruna og þá kom upp sú hugmynd hjá mér að tengja drykkinn við það. Ég lýsi drykknum sem eldgosi undir jökli og bar ég hann fram í glasi, sem lítur út eins og eldgígur. Ég not- aði ískrem, sem í höfðu legið rist- aðar kakóbaunir svo að hvíti lit- urinn hélst á kreminu, en samt var súkkulaðibragð af því. Þetta krem táknaði jökulinn. Svo bland- aði ég espresso við hrásykur og ferska vanillu og einnig smávegis matarlími og skellti því svo í rjómasprautu og sprautaði svo hrauninu yfir jökulinn.“ Að sögn Jónínu er það ekki á valdi allra að gera þennan annars ágæta drykk heima svo að Ís- landsmeistarinn gefur hér aðra uppskrift af kaffidrykk, sem hún segir að sé auðvelt að gera heima og njóta þar. Hvíti baróninn (fyrir einn) 1 tsk. macadamian-hnetusíróp 3 cl espresso (sterkt lagað) 6–8 cl nýmjólk 15 g hvítt súkkulaði, t.d. frá Caffe Tasse 3–5 cl rjómi 1 stk. macadamian-hneta Sírópið er sett í botninn á glas- inu. Því næst er kaffinu hellt í glasið. Mjólkin og hvíta súkku- laðið er hitað saman og blandað saman. Því er síðan hellt í glasið og svo endað á hálfþeyttum rjóm- anum. Loks er raspaðri hnetunni stráð yfir. Einnig er hægt að nota annað hnetusíróp og aðrar hnetur í þennan drykk. Fallegt er að bera drykkinn fram í koníaks- glasi.  DRYKKIR | Úr smiðju kaffibarþjónsins Mýkt, kraftur, fylling og sætleiki Isobel-drykkurinn var hannaður í takt við samnefnt lag Bjarkar Guð- mundsdóttur og hér sprautar íslenski kaffibarþjónninn kaffinu yfir ísinn á heimsmeistaramóti kaffibarþjóna í Seattle. ÍSLENSKIR sumardagar verða haldnir í Fjarðarkaupum 28. apríl til 7. maí. Lögð er áhersla á að framleiðendur kynni nýjungar í íslenskri fram- leiðslu og áhugaverða framsetn- ingu á vöru og þjónustu. Ís- lenskir sumardagar í Fjarðar- kaupum eru liður í landsátakinu „Þitt val skiptir máli“ sem hófst í ágúst í fyrra. Í Fjarðarkaupum verða vörukynningar og ýmsir viðburðir. Þeir viðskiptavinir, sem velja íslenskt, geta dottið í lukkupottinn með því að skrifa nafn sitt og símanúmer aftan á kassakvittun og stinga henni í kassa í Fjarðarkaupum. Dagana 2.–7. maí geta einhverjir hlust- endur Bylgjunnar unnið vinn- inga með því að svara spurn- ingum auk þess sem dregið verður úr innsendum kassa- kvittunum.  FJARÐARKAUP Íslensk- ir sum- ardagar EFNI sem talið er að valdið geti hormónabreytingum eru í ilmvötn- um eins og Eternity frá Calvin Klein og White Musk frá Body Shop, að því er könnun á vegum Greenpeace leiddi í ljós. Frá því er m.a. greint í sænska neytendatímaritinu Råd och Rön. Það var efnið DEP sem fannst í Eternity og einnig herrailminum La male frá Jean Paul Gaultier. Sam- kvæmt fyrri rannsóknum breiðist efnið auðveldlega um líkamann, seg- ir í frétt tímaritsins. Í White Musk fannst ónáttúrulegt musk sem getur valdið horm- ónabreytingum. Að mati Green- peace er nauðsynlegt að Evrópu- sambandið banni þessi efni.  HEILSA Að mati Greenpeace er nauðsynlegt að banna viss efni í ilmvötnum. Efni í ilmvötnum geta valdið hormónabreytingum Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509 www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Valtýsson, sölufulltrúi Fasteignakaupa, gsm 865 3022, gudmundur@fasteignakaup Fasteignakaup kynna tveggja íbúða einbýlishús í Miðtúni. Efri hæð: Forstofuherbergi, hjónaher- bergi, borðstofa, stofa, eldhús, baðher- bergi, eldhús og hol. Neðri hæð: Tvö svefnherbergi, tölvuher- bergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Garður er í góðri rækt og garðhýsi er á lóðinni. Hér er um sérlega vel staðsetta eign að ræða í góðu hverfi. Opið hús í dag milli kl. 18 og 19 Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali. Opið hús í Miðtúni 3, 105 Reykjavík Heimilisfang: Miðtún 3, 105 Reykjavík Stærð eignar: 138,2 fm Staðsetning í húsi: Allt húsið Bílskúr: 22 fm Byggingarár: 1941 Brunabótamat: 18.592.000 Lóðarmat: 4.868.000 Afhending eignar: Samkomulag Verð: 33 milj. Nánari upplýsingar www.fasteignakaup.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.