Morgunblaðið - 28.04.2005, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
! "#$ % &#
% "' ( # )% * + ,
! "! # # !+ " *+ -"! +&+ .
!+ # %+ /!!# ' +% &+ # #!
% & +% &+# * * 0- $ 1
* 2% % ! 3 2## -! +3+ 4 *+
"/ - ' * % !*3+ # +$ 4 *+ 3 2##,
4 + "% +$ ! + %' * %3#
& +% &+'
5 & +% &+ 6 " ) # )3 + * #
6 # % % %03!2$ " *
, * 7' 8 -%+ 6 # #! *
# / ! )*+ 4 *+ + 9 % ' 7!+
4 +. *3!*1 *, # +$ 4 1 +.
: )! %+
+ : )03% ! ;8 )+ 4 ! * '
<2 /9 =;8 !)2!!*3 . &. 6-,
*3 . %$1 + 3+ #!1 # >?@ #
04%* ! )+ 0% . 3* 1 + %!&# . ),
1 # # %) ! %+. ) +. %1 + ",
!!0 # ++ * ) *$4 # !1 ! 3% *# 3 2##.
#&+ # /&#$ %2 # # %03!2$ ' $ 9'
! ++ !! A )% *9 + % /0366 ' * ++B
+ % 4 ! ' C'D'' E+ ++
+ + + !+ " #,
$ " !0 # *+ *
' * # 3+ "! . ) 66%2 / %
/" # ! 3% 6 # # 3 ## %03!2$ "
4 !2# * + 4 / + / % + %- #&+ #
/&#$ F "' $ * G %& + %2 * +' 2 !
++ * %& + * + 3!
!) 6!! > @ 4 * + / & !! % )04
/9 % ' 6 + 4+#0% * 4 H$ ' < $
" : #'
7
! "
#
#$# #
! #% #&
'( )
* D. ?
!!. A )3% "'
< - C'D' * D. ?
!!. DA )3% "'
< - 'CC'
SÖGUNA um Fást þekkja margir; –
söguna um menntamanninn ljóngáf-
aða, sem lætur til leiðast að selja
kölska sál sína fyrir visku, nautn og
velsæld. Saga Göthes af Fást er sú
þekktasta, en hana má þó rekja enn
lengra aftur – allt til læknisins Jó-
hannesar Fásts sem var uppi í byrj-
un 16. aldar, og margir töldu hafa
selt sál sína djöflinum.
Tónverkin sem samin hafa verið
um samskipti Fásts og djöfsa skipta
tugum – ef ekki hundruðum – en í
sögunni heitir sá illi því mik-
ilfenglega nafni Mefistófeles. Meðal
þessara verka eru Fást forleikurinn
eftir Wagner, Fást sinfónían og
Mefistóvalsinn eftir tengdaföður
hans, Franz Liszt, óperurnar Fást
eftir Gounod og Mefistófeles eftir
Boito, söngur Mússorgskís um flóna
og sviðstónverkið Fordæming Fásts
eftir Hector Berlioz, svo fátt eitt sé
nefnt. Það er einmitt síðasttalda
verkið, Fordæming Fásts, sem flutt
verður á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Háskólabíói í
kvöld kl. 19.30. Sviðstónverk er
kannski það orð sem lýsir verkinu
best, því þótt það sé stundum svið-
sett eins og ópera, leit tónskáldið
ekki á það sem óperu í hefðbundnum
skilningi. Reyndar er verkið oftar
flutt í konsertuppfærslu en í fullri
sviðsgerð.
Fordæming Fásts er talin meðal
merkustu tónverka rómantíska tím-
ans og einn af hápunktunum í þeim
ríkulegu tónbókmenntum sem
byggðar eru á meistaraverki Goeth-
es.
Fjórir einsöngvarar og fjöldi
söngvara taka þátt í flutningi verks-
ins í kvöld. Kristinn Sigmundsson
fer með burðarhlutverk sjálfs
Mefistófelesar, en hann er því hreint
ekki ókunnugur, hefur leyst það af
hendi með glæsibrag víða um heim.
Ólafur Kjartan Sigurðarson er einn-
ig meðal einsöngvara ásamt þeim
Beatrice Uria-Monzon og Donald
Kaasch. Karlakórinn Fóstbræður
kemur fram undir stjórn Árna Harð-
arsonar, Óperukórinn í Reykjavík og
unglingakór Söngskólans einnig og
þar heldur Garðar Cortes um stjórn-
artauma. Hljómsveitarstjóri er
Rumon Gamba, aðalhljómsveitar-
stjóri. Flutningur verksins er heil-
mikill viðburður, því það hefur aldrei
fyrr hljómað í heild sinni hér á landi.
Óskaplega mikið litskrúð
Þeir Ólafur Kjartan og Kristinn
eru sammála um að Fordæming
Fásts sé magnað og fallegt verk.
Ólafur Kjartan þekkti það ekki áður
en hann var beðinn um að syngja í
því, en Kristinn hefur sem fyrr segir
margoft sungið í því og þekkir það
því vel. „Það er óskaplega mikið lit-
skrúð í tónlist Berlioz, þetta er allt
öðru vísi en önnur verk byggð á
sömu sögu,“ segir Kristinn. „Sumir
þættir eru þeir sömu að efni til og í
óperu Gounods, en sumt diktar
Berlioz upp sjálfur. Þannig er þetta
ekki allt komið frá Goethe.
Ég var svo heppinn að vinna að
sviðsetningu á verkinu í San Franc-
isco fyrir tveimur árum, og hann
þekkti sögu Goethes um Fást svo í
hörgul, að hann gat vitnað í hana og
farið með langa mónólóga ef því var
að skipta. Þá varð mér ljóst að Fást
er ekki sama og Fást – sagan er svo
óhemju stór af hendi Goethes, að það
eru ekki nema einstaka senur sem
hægt er að setja í óperu.“
Æfði með píanista Maríu Callas
Fordæming Fásts var fyrsta verk-
ið sem Kristinn söng í Bastilluóper-
unni í París fyrir einum tíu árum, en
þar hefur hann sungið margoft síð-
an. „Það sýnir nú hvað maður getur
verið óhemju heimskur og með háar
hugmyndir um sjálfan sig. Ég gat
varla keypt mér brauð úti í búð – og
ætlaði svo að syngja þetta fyrir Par-
ísarbúa sem eru eitthvert svæsnasta
públikum sem til er. Það tókst þó, en
með góðri hjálp. Það var háöldruð
kona sem hafði verið æfingapíanisti
Maríu Callas sem hjálpaði mér. Ég
var í tímum hjá henni í klukkutíma á
dag, allt æfingatímabilið, sem mig
minnir að hafi verið um mánuður –
eða einn og hálfur. Hún hamraði á
öllum fínu blæbrigðunum í málinu,
sem endaði með því að nokkrum
dögum fyrir frumsýningu sagði hún,
að nú heyrði enginn muninn, ég
hljómaði eins og Frakki. En þá söng
ég einmitt með Beatrice sem syngur
með okkur núna. Hún er söngkona
sem fær mann til að gráta – alveg
ótrúleg. Hún var góð þá, en hún er
enn þá betri núna.“
Rulla til að nýta sér í botn
Ólafur Kjartan segir að hlutverk
sitt í verkinu sé lítið – en lúmskt.
„Ég hef lengi bullað um það að það
séu ekki til lítil hlutverk, bara litlir
söngvarar. Nú er ég reyndar lítill
söngvari, og þarf að sanna að lítið
hlutverk geti verið stórt! Þetta er
ein sena í Auerbach kjallaranum,
aría og samsöngur með kórnum.
Þetta er fyllerí og persóna mín,
Brander, er fullur og flottur, og er
manaður til að syngja gamansöng
um ákveðna rottu. Sumir gætu litið á
svona hlutverk sem svo að það tæki
því varla að syngja það, en ég ítreka
að þetta er lítið EN lúmskt. Þetta er
rulla til að nýta sér í botn.“ Og Ólaf-
ur Kjartan segir skemmtilega sögu
af því hvernig litlu hlutverkin geta
orðið stór:
„Ég fékk einu sinni tölvupóst frá
vini mínum sem var þá í óperu-
stúdíói Bastilluóperunnar, og í póst-
inum stóð: „Who is this mr. Sig-
mundsson guy?“ Mig minnir að
þetta hafi verið Rakarinn í Sevilla,
og Kristinn að syngja Basilio. Vin-
urinn taldi upp fyrir mig hlutverka-
listann og það voru frægir og flottir
söngvarar í öllum hlutverkum. En
svo kom það … hann sagði að í upp-
klappinu í lokin hefði verið eins og
þessi mr. Sigmundsson hefði verið
með einsöngstónleika. Basilio er
ekki stærsta rullan í bókmennt-
unum, en engu að síður tækifæri til
að gera vel. Ég ætla mér ekki að
stela senunni í Fást, en gera þetta
eins vel og ég get.“
Kölski hissa á mannfólkinu
Kristinn Sigmundsson er ekki
óvanur því að vera í hlutverki kölska
og við spurningunni um það hvernig
sé að vinna að persónusköpun og
túlkun á ljóta kallinum er bara til
eitt svar: „Það er djöfulli gaman.“
Tónlist | Sinfóníuhljómsveit Íslands með Íslandsfrumflutning á Fordæmingu Fásts eftir Berlioz
Ekkert gaman ef
Kölski væri bara vondur
Morgunblaðið/Eyþór
Árni Harðarson, Donald Kaasch, Beatrice Uria-Monzon, Kristinn Sig-
mundsson, Rumon Gamba og Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is