Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 25

Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 25 MENNING                                       !!" #      "         $      %   &   '           !  " !#   $% %   & ' ( !# )  $%%   ***+  *  D. ? ?    !!. D )3% "' < - 'D '  *  D.  ?    !!. AC )3% $"' < - C' '  * 7 D. ?    !!. C )3. "' < - ' ' Sinfóníuhljómsveit Íslands oghljómsveitarstjórinn PetriSakari voru valin bestu flytj- endur Tónaljóða Sibeliusar sem byggð eru á ævintýrum kappans Lemminkäinens í Kalevalakvæð- unum finnsku, í þættinum CD Re- view á þriðju rás Breska útvarpsins BBC á laugardagsmorguninn. Þar fer þáttarstjórnandinn Andrew McGregor yfir nýjar plötur, ber saman útgáfur ólíkra flytjenda og leyfir hlustendum að heyra. Fastur liður í þættinum er: „How to build a library“, þar sem tónlistargagnrýn- andi er fenginn til að bera saman margar útgáfur eins verks. Á laug- ardag var það Hilary Finch sem bar saman níu útgáfur Lemminkäinen svítunnar. Leikin voru brot úr hverri upptöku og sýnt fram á ólík- ar túlkunarleiðir hljómsveitarstjór- anna og hljómsveita þeirra.    Í samanburðarúrtakinu voru aukSinfóníuhljómsveitar Íslands og Petris Sakari – Osmo Vänskä og Sinfóníuhljómsveitin í Lahti, Mikko Frank og Sænska útvarps- hljómsveitin; eistnesku feðgarnir Neeme Järvi með Sinfóníuhljóm- sveitinni í Gautaborg, og Paavo Järvi með Konunglegu fílharm- óníusveitinni í Stokkhólmi, sir Colin Davis og Sinfóníuhljómsveit Lund- úna, Jukka-Pekka Saraste og Toronto-sinfóníuhljómsveitin, sir Alexander Gibson og Skoska þjóð- arhljómsveitin og loks Leif Seg- erstam og Fílharmóníusveitin í Helsinki.    Eftir miklar vangaveltur komstHilary Finch að því að þrjár útgáfur af níu væru bestar. Það voru þær með Osmo Vänskä og Lahti hljómsveitinni, Mikko Frank og Sænsku útvarpshljómsveitinni og Petri Sakari og Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Hún sagði þær allar fyrsta flokks og myndu sóma sér vel í hvaða plötusafni sem væri. Hún hældi útgáfu Osmo Vänskäs sérstaklega fyrir frábæran flutn- ing, og það hversu trúr hann er upprunalegri gerð Sibeliusar af verkinu. Hún hrósaði Sinfón- íuhljómsveit Íslands fyrir tæran og sindrandi leik, og sagði að þótt strengjadeild hennar jafnaðist ekki í hljómi á við til dæmis Sinfón- íuhljómsveit Lundúna sem Colin Davis stjórnar, þá nýtti Petri Sak- ari sér það til að skapa öðruvísi og einstakan, silfraðan hljóm. Hún hældi líka Daða Kolbeinssyni englahornsleikara og Richard Talkowsky sellóleikara fyrir fal- lega leiknar einleiksstrófur. Hún líkti túlkun Mikkos Franks með Sænsku útvarpshljómsveitinni við Rolls Royce – svo fáguð væri hún í alla staði. Á endanum varð það Sinfón- íuhljómsveit Íslands, sem Hilary Finch fannst bera af með einstakri túlkun Petris Sakaris, sem hún sagði leita yfir mörk raunveruleik- ans, djúpt inn í hrjóstrugt landslag okkar innri frummennsku.    Einar Jóhannesson, fyrsti klar-ínettuleikari í Sinfóníu- hljómsveitinni, heyrði útsendingu þáttarins á laugardagsmorgun. „Þetta var eins og að horfa á Euro- vision, þegar ég fór að gera mér grein fyrir því að Ísland gæti unn- ið,“ segir Einar og hlær. „Þegar líða fór á þáttinn kom gagnrýnand- inn Sinfóníuhljómsveit Íslands æ oftar að, og ég fann æ betur að leik- ur okkar sameinaði það sem henni fannst best í túlkun þessa goð- sögulega efnis. Hún var greinilega hrifin af túlkun Mikkos Franks, en á endanum fannst henni við og Petri Sakari ná betur dulúðinni í verkinu. Hún talaði mikið um silfr- aðan tón í túlkun Petris. Það er mikið um vatnslýsingar í sögunum um Lemminkäinen – það er verið að sigla út í eyju, og atburðir gerast við fljót og Petri náði út úr strengj- unum silfurtón sem Hilary Finch fannst alveg magnaður. Þetta var hörkukeppni, og ég var orðinn dá- lítið meyr undir lokin.“ Á hljómsveitaræfingu í vikunni sagði Einar svo félögum sínum í hljómsveitinni frá þættinum og úr- slitunum. „Ég vildi stappa stálinu í fólk, því júnímánuður verður mjög erfiður hjá okkur. Við verðum lok- uð inni í Háskólabíói í upptökum. Ég vildi benda á að þetta er ekki allt til einskis. Það má ekki gleyma því sem vel er gert.“ Að mati Einars gæti þessi eini út- varpsþáttur þýtt stóraukna sölu á Lemminkäinen plötu Sinfón- íuhljómsveitarinnar. „Rumon Gamba aðalhljómsveitarstjóri sagði mér frá hljómsveit sem fékk topp- einkunn í þessum þætti, og ég man ekki hvað mörg þúsund eintök af diskinum seldust þá helgi – svo það er eftir þessu tekið, enda þátturinn virtur. Mér finnst kominn tími til þess að Sinfóníuhljómsveit Íslands spili á Proms-hátíðinni og ég geri mér vonir um að þetta hjálpi til. Við eigum mikið erindi á Proms og þá með Jón Leifs, í Royal Albert Hall, sem gæti tekið við þeim látum öll- um.“ Þátturinn er aðgengilegur til hlustunar á vef BBC, en aðeins í viku frá útsendingardegi. Slóðin er: http://www.bbc.co.uk/radio/ noscript.shtml?/radio/aod/ radio3_aod.shtml?radio3/cdreview Sakari, Sinfó og silfraði tónninn ’Rumon Gamba sagði mér frá hljómsveit sem fékk toppeinkunn í þessum þætti, og ég m AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir begga@mbl.is Petri Sakari einbeittur á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Morgunblaðið/Brynjar Gauti En er djöfsi einn og samur alls staðar, eða skyldi hann vera ólíkur eftir verkum og höfundum? „Mér finnst hann vera að leika sér. Það er bara sport hjá honum að spilla fólki. Hann er ekki vondur – eða honum finnst það að minnsta kosti ekki sjálfum. Hann er hissa á mannfólkinu sem honum finnst fyr- irlitlegt og hlægilegt, og finnst ekk- ert sér að kenna. Það er gaman að því að hann fær alls staðar mjög skemmtilega tónlist, þótt ólík sé. Þegar Óli er búinn að syngja um rotturæfilinn sem lendir inni í ofni og stiknar þar, kemur djöfsi inn á krána og segir: „Þetta var flott hjá þér“ og vill syngja eitt lag í viðbót, lagið um flóna sem gekk í þjónustu kóngsins. Kóngsi lét sauma hirðföt á flóna og kallaði í stórfjölskyldu sína frá Province til að koma og dást að henni. En svo fór hirðin að kvarta undan flónni – fékk kláða af henni, og á endanum var hún bara kramin. Þetta er skemmtisöngur, en svo get- ur djöfsi líka verið elegant, eins og þegar hann syngur serenöðuna til Margaretu, þar sem hann reynir að lokka hana til lags við Fást. Önnur serenaða – þar sem hann svæfir Fást er líka óhemju falleg. Hún er kölluð rósasöngurinn. Þannig eru margar hliðar á djöfsa. Það væri heldur ekkert gaman að honum ef hann væri bara vondur. Þessar ólíku hliðar hans gera hann líka svo hættulegan. Hann er kannski und- urgóður, en áður en þú veist af, er hann búinn að láta þig afsala þér öll- um rétti, þannig að þú ert eign hans – og það gerist á augabragði,“ segir Kristinn og glottir ísmeygilega. Kristinn segist afar stoltur af Sin- fóníuhljómsveitinni og segist heyra liti í henni núna sem hann hafi ekki heyrt áður. „Rumon vinnur svo vel – hann er hreint frábær; mjög ná- kvæmur og vinnur hratt. Hljóm- sveitin tekur svo vel við að það er ótrúlegt að sjá og heyra.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.