Morgunblaðið - 28.04.2005, Síða 33

Morgunblaðið - 28.04.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 33 MINNINGAR Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Það er svo erfitt að þurfa að kveðja hana Ernu Maríu sem er bú- in að vera svo stór hluti af lífi okkar fjölskyld- unnar í Laugalæk. Ég gæti skrifað svo ótal margt sniðugt um þessa einstöku frænku mína en það lýsir henni nokk- uð vel að þótt ég sé yfirbuguð af sorg þá fá flestar minningar mínar um Ernu mig til að hlæja. Þetta skilja þeir sem þekktu hana, því Erna var ein af þeim sem geta séð björtu hlið- arnar á öllu og var stanslaust að fífl- ast. Það breytti engu þótt Erna yrði alvarlega veik, húmorinn var enn til staðar. Það sama má segja um metn- aðinn. Bara núna rétt fyrir páska þeg- ar við vorum að tala um sumarbústað- arferð þá var Erna t.d. að spá í að hún þyrfti að læra fyrir próf, þótt hún væri orðin þetta veik. Mig minnir meira að segja að þetta hafi verið stærðfræðipróf en þess má geta að Erna var með viðskiptavitið í lagi. Þótt ég væri tíu árum eldri en hún var það nú stundum hún sem lét mig vita hvað væri praktískast fyrir mig að gera þegar kom að því að kaupa eitt- hvað. Einu sinni vorum við t.d. úti í sjoppu að leigja vídeóspólu og ég ætl- aði að kaupa gos fyrir hana og Hillu. Ég var búin að biðja afgreiðslukon- una um gosið en þá lætur Erna mig vita að það borgi sig fyrir mig að labba yfir í búð og kaupa gos, gosið sé allt of dýrt í sjoppunni. Svona hugsa unglingar nú sjaldnast held ég, sér- staklega ekki ef þeir þurfa ekki sjálfir að borga, en Erna var að mörgu leyti svo fullorðin í sér. Fyrir rúmum tveimur vikum vor- um við að horfa á sjónvarpið heima og á milli dagskrárliða kíktum við öðru hvoru á útlendu fréttastöðvarnar til að fylgjast með heilsu páfans. Þegar rætt var um að verið væri að gera eitt- hvað til að halda honum á lífi þá segir Erna: „Af hverju fær hann ekki að deyja? Hann er orðinn svo veikur, það væri best fyrir hann.“ Þetta sýndi mér að Erna leit á dauðann sem frels- un en hún hefur örugglega átt auð- veldara með að setja sig í spor manns- ins en við hin. Ekki það að hún hafi verið á því að gefast upp sjálf meðan á hennar veikindum stóð, hún var alltaf að skipuleggja framtíðina. Því miður fáum við samt ekki að sjá þessar áætl- anir rætast hér á jörðinni en ég trúi að Ernu hafi verið ætlað eitthvert mikilvægt hlutverk annars staðar. Við systurnar sofum nú á nóttunni í svefnsófanum sem Erna svaf svo oft í. Það er svo þægilegt að hugsa til þess að hún hafi legið þar ótal sinnum, því manni finnst maður vera aðeins nær henni þá en söknuðurinn er svo mikill og sár. Elsku Gerða, Gummi, Sigrún, amma, afi, Erna og Marinó, megi guð og ykkar góða fjölskylda styrkja ykk- ur í þessari miklu sorg. Auður Þóra Björgúlfsdóttir. Elsku besta Erna María mín, þá er þessu stríði lokið með hetjulegri bar- áttu þinni. Frá því þú veiktist hefur þú aldrei gefist upp en nú er þér ætlað stærra hlutverk og kveð ég þig í dag með miklum söknuði og minnist allra okkar góðu samverustunda. Þær eru svo margar minningarnar sem streyma fram þegar ég sest niður og skrifa þetta. Ég minnist sérstaklega samveru okkar hér á Húsavík, það var alltaf líf og fjör í kringum þig og Hillu. Það voru ófáir dansarnir sem þið sömduð og sýnduð niðri í stofu og vöktuð mig með, njósnaferðirnar ykkar upp til að njósna um mig og gægjast inn í her- bergið til að athuga hvort ég væri vöknuð, sundferðirnar og ekki má ERNA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Erna María Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 1. júlí 1990. Hún lést á heimili sínu 15. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grafarvogs- kirkju 23. apríl. gleyma ferðunum okkar á rúntinn og þú og Hilla voruð stefnuljósin mín og það voru nokkur vel valin orð sem útlending- arnir fengu að heyra aftan úr subbanum, úti- legurnar sem við fórum í Sulti þá sérstaklega í sumar þegar Gerða hélt upp á afmælið sitt, það var yndislegur tími sem við áttum þar. Við áttum góðar stundir nú um páskana og bjóst ég ekki við að það yrði í seinasta skipt- ið sem ég myndi sjá þig en nú ertu farin og við sem eftir sitjum spyrjum okkur stórra spurninga en það er fátt um svör. Ég veit þú vakir yfir okkur og þá sérstaklega mömmu þinni, pabba og Sigrúnu Huld. Það er kalt í fannhvítum garði, um nótt er ég hugsa til þín, þar sem ég stend við steininn þinn, litla legsteininn þinn. Ég kveiki ljós í herbergi hugans sem hýsir minningu um þá litlu stund er átti ég með þér. Það var undur – það var gjöf sem að opnaðist eins og þúsundblaða lótusblóm, titrandi eins og norðurljós, augun þín voru engu – alls engu lík. (Andrea Gylfadóttir.) Ég vil þakka fyrir allt sem þú hefur gefið mér og ég mun ávallt geyma minningu þína í hjarta mínu. Elsku Gerða, Gummi, Sigrún Huld, Hilla, Palli, Erna, Marínó og aðrir að- standendur. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna sem ekki verð- ur fyllt. Megi guð styrkja ykkur við þennan mikla missi. Þín frænka Anna María Þórðardóttir. Ekki skil ég af hverju þú, Erna María, varst hrifin svo fljótt frá okk- ur. Guð einn veit hvaða hlutverk hann ætlar þér, en ætli hann hafi ekki vant- að einn grallara til sín því enginn var meiri grallari en þú. Þegar þið Hilla voruð á Húsavík var alltaf svo gaman hjá ykkur, þið voruð svo frjálsar og alltaf að bralla eitthvað. Ég gleymi aldrei þegar þið Hilla komuð og gistuð hjá okkur. Þá var ekki slæmt að eiga stórt rúm því þar sváfum við allar og þér fannst ekki leiðinlegt að láta Guðna sofa ein- an á stofugólfinu með þunna dýnu. Þar kom grallarinn upp í þér sem var þitt einkenni. Daginn eftir talaði Guðni um að þarna væri manneskja að hans skapi. ,,Erna María er alveg ótrúlega skemmtileg og alltaf til í smástríðni.“ Mér er ofarlega í huga ökukennsl- an í Sultum í sumar, ykkur Hillu fannst þetta ekki mikið mál, að keyra bíl, og tókum við nokkra hringi og auðvitað nauðsynlegar pissuferðir. Við hlógum mikið í þessum ferðum okkar og enginn fékk að koma með því þetta voru prívatferðir, bara við þrjár. Í afmælinu hennar Gerðu syst- ur í sumar sungum við saman lag sem ég mun aldrei gleyma og þá varst þú svo ákveðin og söngst það svo aftur og við allar frænkurnar sungum saman I will survive og þá varstu búin að fá að finna vel fyrir stríðinu sem þú áttir í og ætlaðir að hafa betur. Nú seinast um páskana komum við öll saman heima hjá þér og fórum varla úr her- berginu þínu, það er einhver segull í rúminu þínu því það vilja allir liggja þar og þar lágum við til skiptis í hrúgu og hlógum mikið. Þessi stund gaf mér svo mikið. Guðrúnu Maríu fannst ekki leiðin- legt að koma inn í herbergið þitt því þar var nóg af öllu, fullt af dóti til að skoða og svo lifandi fiskur og hann var líka stór. Elsku Erna María, þú gafst mér, eins og öllum sem þekktu þig, fallegar minningar sem við munum núna gæta sem fjársjóðs. Elsku Sigrún Huld, Gerða, Gummi og fjölskylda. Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum. Ykkar Rannveig Þórðardóttir. Erna, sem var alltaf góð og sæt, er dáin og nú er lífið erfitt án hennar fyr- ir alla sem þekktu hana. Ég varð sorgmædd þegar ég vissi að hún væri dáin. Krabbameinið var svo stórt að ekki var hægt að lækna hana. Nú er hún engill uppi í himni og fylgist með mér að skrifa. Nú eru langömmur okkar með henni og líka hundurinn minn. Nú er hún frísk uppi í himni og líð- ur miklu betur. Allir sakna hennar. Hún er örugglega með hörpu og er að spila á hana. Ég á margar minningar um hana í hjartanu og hún líka um mig og alla sem hún þekkti. Á sumrin þegar ég fer til Húsavíkur horfi ég upp í himininn og sé alla sem eru dán- ir í fjölskyldu minni í skýjunum. Hún var mikil hetja. Gerða, Gummi og Sigrún, ég elska ykkur öll. Unnur Ósk. Það er komið vor. Fuglarnir syngja, trén laufgast og blómin gægj- ast upp úr jörðinni. Erna María Guð- mundsdóttir var á vordögum lífs síns þegar því lauk og hún var kölluð frá okkur til annarra starfa. Erna María var nemandi Folda- skóla í níu vetur. Frá fyrstu tíð var ljóst að þar var á ferð einbeitt stúlka en jafnframt hæglát, jafnvel hlédræg. Hún var alla tíð brosmild og hlýleg í viðmóti og hafði góða nærveru. Erna María veiktist af alvarlegum sjúk- dómi fyrir rúmum tveimur árum, sjúkdómi sem sigraði að lokum þrátt fyrir eindreginn lífsvilja Ernu Maríu. Í veikindunum kom styrkur hennar vel í ljós og vakti virðingu og aðdáun allra sem urðu vitni að baráttu henn- ar. Aldrei lét hún bilbug á sér finna, alltaf átti hún bros handa samferða- fólki sínu og var jafn jákvæð og hlýleg í viðmóti. Um tíma leit út fyrir að sig- ur hefði unnist og því var það mikið áfall þegar sjúkdómurinn tók sig upp aftur en Erna María hélt sínu striki hvað sem á bjátaði. Kæmist hún ekki í skólann vegna sjúkrahúsdvalar stundaði hún námið þar með góðri að- stoð starfsfólks. Hún kallaði eftir verkefnum og gætti þess að dragast ekki aftur úr félögum sínum í náminu. Alla daga sem hún gat kom hún í skól- ann, settist í sætið sitt, tók upp bæk- urnar og lagði sig alla fram við námið. Kennarar, sem oft þurfa að hafa tals- vert fyrir því að halda nemendum að námi, undruðust styrk hennar og sjálfsaga. Það er sjálfsagt leitun að unglingi sem býr yfir jafn miklum styrk og hugarró og Erna María hafði. Við, sem nutum þeirra forréttinda að kynnast og starfa með Ernu Mar- íu, erum auðugri á eftir en jafnframt full sorgar og saknaðar. Nemendur og starfsfólk Foldaskóla sakna bros- mildrar, hlýlegrar og fallegrar stúlku og syrgja þá framtíð sem hún hefði átt að eiga en fékk ekki. Sárust er þó sorgin hjá fjölskyldu og nánum vin- um. Frá Foldaskóla sendum við inni- legar samúðarkveðjur til allra sem eiga um sárt að binda við fráfall Ernu Maríu Guðmundsdóttur. F.h. starfsfólks Foldaskóla, Inga Rósa Þórðardóttir. Í dag kveðjum við okkar kæra nemanda Ernu Maríu. Erna kom til okkar í sjúkrahússkólann á Barna- spítala Hringsins haustið 2002. Var Erna í skólanum hjá okkur meðan á erfiðum sjúkdómi stóð auk þess að sækja sinn skóla meðan kraftar leyfðu. Viðbrögð barna eru mismunandi, Erna María þroskaðist hratt, hún varð fljótt fullorðin, en eftir sem áður var hún hlédræga ljúfa barnið. Hún var alltaf jákvæð og þakklát eins og mjög þroskaður einstaklingur með langa lífsreynslu að baki. Því miður þurfti Erna María að tileinka sér þessa mannkosti á mun skemmri tíma en flestir aðrir. Í minningunni er stúlkan barn, barn sem við sinntum sem nemanda, einnig vinkonan, hin þroskaða sem snæddi með okkur hádegismat og ræddi um lífið og tilveruna, deildi með okkur sínu og við með henni í gleði og sorg. Erna var ötul og með afbrigðum samviskusöm, góður námsmaður að hverju sem hún gekk og vandvirk. Það sem einkenndi Ernu þó mest var hversu ríka samkennd hún hafði, þó að oft væri hún mikið veik fylgdist hún alltaf vel með vinum sínum sem hún hafði kynnst á spítalanum og spurði um líðan þeirra. Erna María, um leið og við kveðj- um þig viljum við trúa því að nýr kafli hefjist í lífi þínu á ókunnum slóðum. Námfýsi þinni voru engin takmörk sett og mun nýtast þér vel í nýjum heimkynnum. Þú kenndir okkur að þakka fyrir það sem maður fær en ekki það sem maður vill fá. Kæra Gerða, Guðmundur og Sig- rún, Jesús gaf okkur þetta stórkost- lega fyrirheit: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Megi Guð styrkja ykkur í sorg og söknuði. Við minnumst þín, Erna María, með þakklæti og virðingu. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira. Drottinn minn gefi dauðum ró en hinum líkn, er lifa. (Úr Eddukvæðum.) Dóra Guðrún og Helga, kennarar við Grunnskóla Barnaspítala Hringsins. Elsku Gummi, Gerða, Sigrún og fjölskylda. Mikið er það erfitt að koma þessum orðum á blað. Hvernig er hægt að skrifa kveðjuorð um 14 ára vinkonu? Hugurinn reikar. Það er eins og við höfum alltaf verið ná- grannar. Þetta hófst allt hér og hér er það sem það endar. Er eins og gerst hafi í gær. Við ófrískar nýbyggingarmæður og fjöl- skyldur árið 1989. Ég á von á frum- burðinum og þú, Gerða mín, átt von á þinni yndislegu yngri dóttur, Ernu Maríu. Og það small. Strax urðu þau miklir vinir, Jón Andri og Erna María, enda ekki hægt að hugsa sér tvö ljúfari börn. Þau tvö með skóflur og þríhjól og samgangurinn mikill. Litla gatan okkar var góður leikvöllur og öll börnin í götunni miklir félagar. Kurteis, prúð og pen en umfram allt heil í gegn var hún Erna María. Hún greiddi úr flækjum og kom á friði ef eitthvað slettist upp á vinskapinn meðal krakkanna. Svo hófst skóla- gangan og börnin okkar urðu bekkj- arfélagar. Mikið var brallað á þeim árum og fjörið var mikið enda líflegur bekkur með meiru. Mér er það minnisstætt eitt sinn er við Gerða sátum yfir kaffibolla og vor- um að spjalla, þá kom upp sú umræða að það versta sem gæti hent í lífinu væri að börnin okkar yrðu alvarlega veik eða eitthvað kæmi fyrir þau. Svo að upplifa sína verstu martröð að kveðja barnið sitt eftir langa þrauta- göngu. Frá því að Erna María greindist með krabbamein í nóvemberlok 2002 hefur maður oft spurt sig: Hvernig er hægt að ganga í gegnum þetta allt? Samhent fjölskylda Ernu Maríu hef- ur tekist á við þennan vágest með ótrúlegum dugnaði og Erna María með sínum dugnaði gengið í gegnum lyfjagjafir, geisla, aðgerðir, aukaverk- anir, stungur, rannsóknir og allt ann- að sem ekki verður upp talið. Algjört æðruleysi. Kúrsinn tekinn á ný eftir strand, ekki skyldi látið undan heldur hafa betur í stríðinu við meinið. Það sýnir bara persónuleika Ernu Maríu að þrátt fyrir veikindi sín lét hún sig ekki vanta á hvaða uppákomur og gleðskap sem var, enda lífsglöð og ljúf stúlka, og hvers manns hugljúfi. En nú er komið að leiðarlokum í lífi hennar Ernu Maríu og eftir situr sorgin og söknuður. Það voru forrétt- indi að fá að kynnast henni. Minning hennar mun ylja okkur ævilangt. Ekki veit ég hvernig þið, Gummi, Gerða, Sigrún og fjölskylda, komist yfir þennan mikla missi, en eins og þið hafið tekist á við lífið frá því að Erna veiktist veit ég að þið munuð lifa á góðum minningum um góða dóttur og systur. Þið gerið það fyrir hana að halda kúrsinum áfram og heiðra þannig minningu hennar. Stefanía, Þórður, Jón Andri og Valgeir, vinir í Fannafold 243. Föstudaginn 15. apríl kvaddi Erna María þennan heim. Við vitum að hún fór ekki langt og hún verður hjá okk- ur meðan við lifum en þetta er sárt, hræðilega sárt. Erna var sterkur karakter. Yfir- vegunin sem hún bjó yfir var slík að maður dáðist að. Yndisleg persóna, dugleg og falleg stelpa. Það hefur ver- ið erfitt að horfa á hana berjast við krabbamein og tapa þeirri orrustu. En nú er hún laus við allar þjáningar. Erna María gat ekki átt betri for- eldra og systur sem hugsuðu vel um hana og gerðu allt til að létta henni líf- ið. Við vitum að það eru erfiðir tímar framundan hjá þeim og fjölskyldum en erfiðari þraut er ekki hægt að leggja á nokkurn mann. Elsku Gerða, Gummi og Sigrún Huld, ykkar missir er mikill og viljum við biðja Guð að gefa ykkur styrk til að læra að lifa með sorginni. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu, gerðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Þórdís, Jóhann, Heiðar, Daníel og Hildur Karen. Elsku Erna mín, ég minnist þín sem þessarar lífsglöðu stelpu sem lét ekkert á sig fá, hvað sem gerðist. Þeg- ar þú varðst veik þá var það eiginlega alltaf þú sem huggaðir okkur með því SJÁ SÍÐU 34

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.