Morgunblaðið - 28.04.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 41
DAGBÓK
Íslandsmótið í tvímenningi.
Norður
♠106
♥D53
♦K10653
♣943
Vestur Austur
♠8743 ♠K
♥K82 ♥Á64
♦D8 ♦G9742
♣KG107 ♣D865
Suður
♠ÁDG952
♥G1097
♦Á
♣Á2
Segjum sem svo að lesandinn hafi
meldað af bjartsýni upp í fjóra spaða í
suður og fái út laufgosa. Hvernig lítur
það dæmi út?
Vel, ekki satt, þegar allar hendur
sjást. Kóngurinn í spaða er blankur og
kemur í ásinn og það er tveggja slaga
virði – spaðatían verður nefnilega inn-
koma, sem hægt er að nota til að henda
niður laufi í tígulkóng. Vörnin fær þá
aðeins tvo slagi á ÁK í hjarta.
Spilið er frá úrslitum Íslandsmótsins
í tvímenningi og þau voru fleiri pörin
sem spiluðu bút en geim. Sumir sagn-
hafar voru svo „óheppnir“ að fá út
tíguldrottningu. Eftir þá byrjun er
besta spilamennskan að spila litlu
trompi á tíuna í borði. Ef vestur á
trompkónginn, verður tían innkoma og
aðgangur að tígulkóngnum. En þessi
spilamennska gerði enga lukku eins og
legan var og skilaði sínum mönnum að-
eins níu slögum.
Íslandsmeistarinn, Ásmundur Páls-
son, fékk út tromp í fjórum spöðum.
Hann stakk upp tíunni og tók trompin
af vestri. Spilaði síðan hjartagosa.
Vestur vissi ekkert um skiptingu suð-
urs og ákvað að drepa með kóng og
spila aftur hjarta. Austur tók á ásinn
og skipti yfir í lauf, en nú var vörnin
búin að missa frumkvæðið. Ásmundur
drap, tók tígulás, læddi sér inn á
hjartadrottningu og henti laufi í tíg-
ulkóng. Ellefu slagir og hreinn toppur.
„Þú ert lúmskur skratti, Ásmund-
ur,“ sögðu þeir í kór, Vignir Hauksson
og Guðjón Bragason, sem voru í vörn-
inni.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
„Svona eru Íslendingar“
ÉG KOM til Íslands 1957 og enn
þann dag í dag segja Íslendingar við
mig um leið og ég opna munninn: „Þú
ert ekki Íslendingur.“
Aðeins menntað fólk þegir eða spyr
mig kurteislega: „Hvaðan ertu? Þú
talar með hreim. Ertu frá Noregi?“
Einu sinni hitti ég gamla konu á
stoppistöð SVR og við byrjuðum að
tala saman. Þá sagði hún við mig: „Ég
er búin að ala upp börnin mín, er
komin með barnabörn og mun verða
grafin hér á Íslandi. En ég er ennþá
þessi danska kerling. Hérna verður
maður aldrei Íslendingur.“ Og hún
grét þegar hún sagði þetta við mig.
„Já, svona eru Íslendingar,“ sagði
Snæbjörg alltaf við mig. „Það dugar
því miður ekki að læra íslensku, því
við verðum alltaf útlendingar til
dauðadags. Svo ætla ég ekki að láta
jarða mig í þessu landi, af því að ég er
ekki Íslendingur.“
Fyrir nokkrum dögum hitti ég
yndislega konu sem er að selja harð-
fisk í Mjóddinni. Og þegar ég sagði
við hana að ég hefði búið í þessu landi
síðan 1957 sagði hún við mig: „Þá
ertu orðin Íslendingur.“ Ég fór að
hlæja og svaraði: „Þú ert fyrsta
manneskjan í 48 ár sem hefur sagt
þetta við mig.“ Og þegar ég útskýrði
þetta fyrir henni var hún aldeilis
hissa og sagði. „Hvílíkur dónaskap-
ur!“ Já, svona eru Íslendingar.
Helga Jóhannsdóttir,
Reykjavík.
Leggjum niður Umferðarstofu
ALDREI hef ég hitt nokkurn mann
sem telur að starf Umferðarstofu
skili árangri í bættri umferðarmenn-
ingu og færri slysum. Að tuðið í
starfsmönnum stofunnar í fjölmiðlum
veki bílstjóra og aðra vegfarendur til
umhugsunar og fái þá til þess að gæta
varúðar.
Starfsmenn Umferðarstofu virðast
telja þetta líka því upp á síðkastið hef-
ur ómældum fjármunum og fyrirhöfn
verið varið í að búa til auglýsingar
sem eru vægast sagt sjokkerandi.
Ekki að þær séu hvetjandi fyrir bíl-
stjóra til þess að aka hægar – nei,
heldur vekja þær vonda tilfinningu –
og ekki síst fyrir starfsmönnum Um-
ferðarstofu sem virðast hafa kastað
frá sér allri siðferðisvitund og leyfa
hvað sem er í auglýsingum sínum.
Nú tekur steininn úr með þessum
nýjustu auglýsingum þar sem verstu
formælingar eru látnar í munn lítilla
barna og látið að því liggja að þetta
hafi foreldrar þeirra fyrir þeim.
Ég geri það að tillögu minni að
Umferðarstofa verði lögð niður og
þeir fjármunir sem þar sparast fari í
aukna löggæslu.
Bílstjóri.
Fyrirmyndin Umferðarstofa
ÞAÐ ER dapurlegt að horfa á auglýs-
ingarnar á strætóstöðvunum þessa
dagana. Umferðarstofa að misnota
ungan dreng til ótuktarskapar og
ósæmilegrar hegðunar í eigin þágu.
Er m.ö.o. að þykjast minna fólk á að
vera góðar fyrirmyndir í umferðinni
en snýr svo öllu við og er þessi líka
hroðalega fyrirmynd um hegðun
barna. Hvílík mistök og misskiln-
ingur og siðblinda að leyfa sér þetta.
Er öllum virkilega sama um að börn
séu notuð til að sýna fokkmerki,
steyta hnefa, sýna hatursfullt tillit og
fara með munnsöfnuð sem fullorðna
þarf til að skálda upp?
Er foreldrum sama? Er prestum
sama? Er skólastjórum og kennurum
sama? Skilur fólk ekki grunntóninn
og afleiðingarnar? Þetta er bara lítið
barn.
Hann er svo góður leikari, segja
sumir. Ja, svei attan.
ÓÁ.
Úr fannst í Frostaskjóli
KVENMANNSGULLÚR fannst í
Frostaskjóli sl. sunnudag. Eigandi
má hringja í síma 551-7196 eftir
klukkan 17.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Kvennakór Hafnarfjarðar stendur fyrirsjötta landsmóti íslenskra kvennakóraum næstu helgi en mótið er haldiðþriðja hvert ár. Fimmtán kórar hvað-
anæva af landinu og einn frá Kaupmannahöfn,
rúmlega 400 konur, taka þátt í mótinu.
Mótið verður sett í Hafnarfirði á föstudags-
kvöldið með ávarpi Lúðvíks Geirssonar bæj-
arstjóra. Á laugardaginn verður kórunum skipt
upp í fjóra vinnuhópa þar sem ýmis tónverk
verða æfð. Um er að ræða verk bæði eftir ís-
lensk og erlend tónskáld og koma margir þjóð-
kunnir listamenn að því. Þar má nefna Elínu
Ósk Óskarsdóttur söngkonu, Björgvin Þ. Valdi-
marsson tónskáld, Aðalheiði Ragnarsdóttur
danskennara, Antoniu Hevesi píanóleikara, Ósk-
ar Einarsson kórstjóra, Edit Molnar kórstjóra
og hinn þekkta ungverska kórstjóra Gabriellu
Thész. Tónleikar verða í Víðistaðakirkju kl. 16 á
laugardaginn þar sem almenningi gefst kostur á
að hlýða á fallegan kórsöng en hver kóranna
tekur tvö lög. Opið hús verður á meðan á tón-
leikum stendur.
Á sunnudag halda kóræfingar áfram og lýkur
mótinu með tónleikum í íþróttahúsinu við
Strandgötu þar sem allir kórarnir syngja saman.
Tónleikarnir hefjast kl. 14 og er aðgangur
ókeypis. Mótinu verður síðan slitið kl. 16.
Konurnar gera ýmislegt sér til skemmtunar á
mótinu. Á föstudagskvöldið verður farið í óvissu-
ferð undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar með
þátttöku Stuðningsmannaklúbbs Kvennakórs
Hafnarfjarðar en á laugardagskvöldið verður há-
tíðarkvöldverður með ýmsum skemmtiatriðum.
Mótsstjóri er Hrafnhildur Blomsterberg en
hún stjórnar bæði Kvennakór Hafnarfjarðar og
kór Flensborgarskóla. Hún segir mótið svipað að
stærð og síðasta mót en það var stærsta mót
sem haldið hefur verið.
Er ekki mikið fjör þegar svona margar konur
safnast saman?
Þetta er mikið gaman, bæði fyrir kórkonurnar
og kórstjóra að hittast og skiptast á skoðunum
og hugmyndum.
Hvaða þýðingu hefur svona mót?
Þetta hefur gífurlega mikla þýðingu. Fyrst og
fremst er þetta vettvangur fyrir konur til að
hittast og hlusta hver á aðra og hafa gaman af
og njóta þess að syngja saman. Í öðru lagi er
það mjög spennandi og þroskandi að fá að vinna
með öðrum kórstjórum. Það getur gefið kórmeð-
limum nýja vídd inn í kórtónlistina.
Hvernig er þetta starf?
Þetta er gífurlega skemmtilegt starf. Ég er
mjög lánsöm að fá að starfa við það sem veitir
mér hvað mesta ánægju. Það er mikill kostur í
tilverunni
Tónlist | Sjötta landsmót íslenskra kvennakóra haldið í Hafnarfirði um helgina
Fimmtán kórar með 400 konum
Hrafnhildur Blomst-
erberg hefur stjórnað
Kvennakór Hafnar-
fjarðar í fimm ár og
stjórnaði kór Flens-
borgarskóla í fjögur ár
til 1987 og tók aftur við
stjórn kórsins 1996.
Hún er með meistara-
gráðu í kórstjórn frá
UCSB, Kaliforníuhá-
skóla í Santa Barbara,
jafnframt því að hafa stundað framhaldsnám í
tónlistarfræðum. Hrafnhildur, sem er nýorðin
amma, er gift Birgi Finnbogasyni, og saman
eiga þau tvær dætur. Sameiginlega eiga þau og
reka tvö kaffihús og kaffibrennslu Súfistans.70 ÁRA afmæli Í dag fimmtudag-inn 28. apríl er sjötíu ára Gyða
Þórarinsdóttir frá Stórahrauni.
40 ÁRA afmæli Í dag fimmtudag-inn 28. apríl er fjörutíu ára
Böðvar Guðmundsson bílasmiður og
hestakall, Grænatúni 22, Kópavogi.
Böðvar verður í vinnunni í dag.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Smáragata
Stórglæsilegt 280 fm einbýlishús auk 33 fm stakstæðs bílskúrs á þessum eftir-
sótta stað í hjarta miðborgarinnar, teiknað af Gunnlaugi Halldórssyni. Eignin
hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum á vandaðan og smekklegan hátt
og skiptist m.a. í stórt hol með arni, samliggjandi, rúmgóðar stofur, eldhús með
innréttingum úr peruviði, sjónvarpshol, þrjú herbergi auk fataherbergis, stórt
vinnu- og fjölskylduherbergi með arni og tvö baðherbergi auk gestasnyrtingar.
Mjög góðar geymslur. Þrennar svalir. Ræktuð lóð, hiti í innkeyrslu og stéttum
að hluta.
Óskað er eftir tilboðum í eignina
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið fyrir börn.
Einkatímar/taltímar.
Franska fyrir ferðamenn.
Kennum í fyrirtækjum.
Frönskunámskeið
hefjast 2. maí
Tryggvagötu 8,
101 Reykjavík, fax 562 3820.
Veffang: http://af.ismennt.is
Netfang: alliance@simnet.is
Innritunn til 29. apríl
í síma 552 3870✆
SÖRLASKJÓL - OPIÐ HÚS
Sýnum í kvöld á
milli kl. 18 og 20
þessa glæsilegu
3ja-4ra herbergja
rishæð við Sörla-
skjól 62, með óvið-
jafnanlegu útsýni
bæði til fjalla aust-
an og norðan, út á
sjó og yfir Álftanes-
ið. Húsið er klætt
að utan með fín-
steinaðri klæðn-
ingu, þakjárn gott ,
nýlegur sólpallur og
snyrtileg lóð. Íbúðin er öll endurnýjuð þ.m.t. eldhús, bað og gólfefni,
hluti glers og opnanlegra faga, stærsti hluti lagna o.fl. Laus og tilbúin til
afhendingar strax. TILBOÐ ÓSKAST.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Húsakaupa.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is