Morgunblaðið - 28.04.2005, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands
Laugardaginn 30. apríl kl.14.00-17.30. Sýningin er á hliðarsvölum
Íslensku óperunnar (gengið er inn um aðalinngang).
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar
Otello eftir Verdi
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20, Lau 21/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Í kvöld kl 20 - Aukasýning
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 30/4 kl 20,
Su 1/5 kl 20 - UPPSELT,
Mi 4/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 5/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 6/5 kl 20 - UPPSELT,
Lau 7/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 8/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 12/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Fö 6/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 20/5 kl 20 - AUKASÝNING,
Fö 27/5 kl 20 - AUKASÝNING
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Lau 30/4 kl 20,
Fö 6/5 kl 20,
Lau 7/5 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Su 1/5 kl 19.09
Síðasta sýning
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Í kvöld kl 20,
Fi 5/5 kl 20,
Fi 12/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 1/5 kl 14 - UPPSELT, Su 1/5 kl 17, Su 5/5 kl 14,
Lau 7/5 kl 14, Su 8/5 kl 14, Lau 14/5 kl 14
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„verulega
vönduð...
og ég
táraðist líka“
H.Ó. Mbl
Pakkið á móti
Eftir Henry Adams
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Örfá sæti laus
Lau. 30.4 kl 20 7. kortas. Örfá sæti laus
SÍMI 545 2500 I WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
STÓRVIÐBURÐUR Í HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 28. APRÍL KL. 19.30
Hector Berlioz ::: Fordæming Fausts
Einsöngvarar ::: Kristinn Sigmundsson, Beatrice Uria-Monzon,
Donald Kaasch og Ólafur Kjartan Sigurðarson
Kórar ::: Óperukórinn í Reykjavík, Karlakórinn Fóstbræður og Unglingadeild Söngskólans í Reykjavík
Kórstjórar ::: Garðar Cortes og Árni Harðarson
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Kaflar úr þessu stórvirki Berlioz hafa áður hljómað á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í áranna
rás, sér í lagi hinn vinsæli Rákóczi-mars, en verkið hefur aldrei fyrr verið flutt í heild sinni. Það er gleðiefni
að í hópi framúrskarandi einsöngvara eru tveir íslenskir stórsöngvarar, Ólafur Kjartan Sigurðarson og
Kristinn Sigmundsson sem ósjaldan hefur glímt við hlutverk hins djöfullega Mefistófelesar.
Fordæming
Fausts
SÝNING sjö listamanna á íslenskri
samtímaglerlist í anddyri Bókasafns
og Náttúrufræðistofu Kópavogs læt-
ur ekki mikið yfir sér en birtist áhorf-
andanum smám saman, að hluta til
innan um og í skemmtilegum tengsl-
um við aðra muni á staðnum. Sum
glerverkanna eru á stöplum eða í
glerkössum eins og aðrir viðkvæmir
og dýrmætir náttúrugripir á safninu.
Það virðist vera fullkomlega eðli-
legt að skoða hálf- eða fullslípaða
glerskúlptúra Jónasar Braga Jónas-
sonar og grófkorna lágmyndir Bryn-
hildar Þorgeirsdóttur á sama hátt og
önnur náttúruundur úr steinaríkinu
sem tilheyra safninu. Áhorfandinn
upplifir sömu tegund hrifningar á
hvoru tveggja sem gerir það að verk-
um að framlag listamannanna er eins
og framlenging af þeim sköpunar-
mætti sem býr í náttúrunni, samlag-
ast sjálfkrafa og áreynslulaust.
Þetta á ekki síst við um sérstæðar
skálar Sigrúnar Ó. Einarsdóttur sem
minna helst á fegurstu marglyttur
eða önnur lífræn form úr sjónum og
kom því ekki á óvart að sjá tvær slík-
ar staðsettar í fiskabúrum. Sigrún er
frumkvöðull í gerð nytjahluta úr heitu
gleri á Íslandi og hefur rekið gler-
verkstæði í Bergvík í yfir tuttugu ár
og skapað því verðugt nafn. Sigrún
sýnir einnig geometrísk verk á vegg
og gólfi sem bera einnig vitni um að
hún fer fremst meðal jafningja á
þessu sviði.
Sigríður Ásgeirsdóttir sýnir tvö
geometrísk einlit veggverk, annað
samsett úr mörgum ferhyrndum
svörtum ógegnsæjum einingum þar
sem áferð glersins dregur að sér at-
hyglina. Hitt verkið er fagurgult og
byggist á fjölda ílangra glerperlna
sem komið er fyrir milli tveggja
glerja. Glerperlurnar, sem reyndust
lýsispillur við nánari eftirgrennslan,
raðast eftir tilviljun milli glerjanna og
skapa eins konar innri áferð sem hef-
ur allt að því dáleiðandi aðdráttarafl
fyrir fagurkera.
Pía Rakel Sverrisdóttur vinnur sín-
ar myndir í gluggagler þar sem hún
tekur skyldu sína að endurvinna iðn-
aðargler alvarlega. Litaskalinn er lág-
stemmdur og hún beitir sandblæstri
til að ná grafískri áferð og blæbrigð-
um í takt við grátónaskala íslenskrar
náttúru. Tveimur mynda hennar er
komið fyrir á gólfi innan um upp-
stoppaða fugla, og þrátt fyrir þröngar
aðstæður verka og fugla þá nýtur
áhorfandinn samspilsins og samsvör-
unarinnar í lit og áferð þeirra.
Verk Jóns Jóhannssonar er af öðr-
um toga og vísar meira í menningu og
innanhússkúltúr. Glerverk hans sem
minnir á veggteppi er enda staðsett
nálægt bókahillum og húsgögnum.
Hann notar ólitað matt gler með inn-
bræddu, þéttriðnu málmneti ásamt
því að hann bróderar í brúnir „gler-
teppisins“ og kögrar það með hross-
hári. Verkið er hreinræktuð stofulist
og þar að auki vel heppnað.
Það þarf síðan að fara upp á þriðju
hæð til að sjá og heyra verk Rakelar
Steinarsdóttur sem er algerlega sér á
parti í þessari sýningu. Á tengibrú
sem er yfirbyggð með gleri heyrist úr
hátalara áhrifamikið hljóðverk sem er
eingöngu gert úr samsettum hljóðum
glers sem brotnar. Hljóðverkið er
mjög í ætt við tónlist og hægt að njóta
þess sem slíks á sama tíma og maður
áttar sig á þeim ytri breytingum sem
listakonan hefur gert á glerrýminu
sem maður er staddur í og tengslum
þeirra við hljóðið.
Sýning sjömenninganna er vel
heppnuð og gefur góða innsýn í heim
íslenskrar glerlistar.
Fjölbreytt glerlist í samhljómi
við undur náttúrunnar
Morgunblaðið/Eyþór
Verk eftir Sigrúnu Ó. Einarsdóttur á sýningunni í Kópavogi.
MYNDLIST
Bókasafn og Náttúrufræðistofn-
un Kópavogs
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 10–
20, föstudaga til sunnudaga kl. 13–17
Sýningin stendur til 1. maí.
Íslensk samtímaglerlist
Sjö listamenn
Þóra Þórisdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Dimma hefur gefið út á hljóðbók tvær
sögur eftir Iðunni Steinsdóttur í lestri
höfundar. Önnur sagan, Drekasaga,
kom út á prenti 1989 og hlaut af-
bragðs viðtökur. Hin sagan, sem er
sjálfstætt framhald Drekasögu og
heitir Leitin að gleðinni, hefur ekki
komið út áður.
Sögurnar gerast í sjávarþorpi undir
háu fjalli, þar sem dreki býr í dimmum
helli. Drekann langar til að kynnast
fólkinu í bænum en allir eru hræddir
við hann, því hann er svo ljótur. Þegar
vandi steðjar að bæjarbúum er það
þó enginn annar en drekinn sem kem-
ur til hjálpar.
Iðunn Steinsdóttir er meðal þekkt-
ustu barnabóka-
höfunda þjóð-
arinnar og hefur
hlotið verðlaun
og viðurkenn-
ingar fyrir verk
sín. Áður hafa
komið út á hljóð-
bók sögur henn-
ar um Snuðru og
Tuðru.
Drekasaga er tæplega ein og hálf
klukkustund á tveimur geisladiskum.
Hljóðvinnslan hljóðritaði, mynd á
kápu er eftir Búa Kristjánsson, en Vil-
borg Anna Björnsdóttir hannaði útlit.
Dimma gefur út, en Smekkleysa dreif-
ir í verslanir.
Leiðbeinandi verð er 1.890 kr.
Hljóðbækur