Morgunblaðið - 28.04.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 45
MENNING
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
FJÓRAR sýningar tileinkaðar gler-
list eru nú opnar á vegum Gerð-
arsafns í Kópavogi í tengslum við al-
þjóðlegt glerlistaþing sem þar fór
nýverið fram. Hér verður fjallað um
sýningar á verkum Gerðar Helga-
dóttur og Caroline Swash í Gerð-
arsafni, en sýningu Leifs Breiðfjörð
í Salnum og sýningu sjö íslenskara
glerlistamanna í Bókasafni og Nátt-
úrufræðistofnun Kópavogs verða
gerð skil í öðrum greinum.
Skúlptúrar og glerverk
Vestur- og austursalur Gerð-
arsafns eru helgaðir verkum Gerðar
Helgadóttur þar sem megináhersla
er lögð á glerverk hennar hvort
heldur sem eru steindir gluggar eða
teikningar af slíkum, lágmyndir og
skúlptúrar, sumir með innfelldu
gleri. Sýningin lítur ákaflega vel út í
rýminu og niðurröðun verka í salinn
nær vel að skapa tengsl og sýna
skyldleika með skúlptúrum Gerðar
og glerlistaverkum hennar. Fyr-
irferðarmestar eru teikningar í fullri
stærð af steindum kirkjugluggum,
fyrir kirkjur í Essen og Herkenrath
í Þýskalandi, en þessir gluggar eru
meðal stórvirkja frá hendi listakon-
unnar. Gluggarnir fyrir kirkjuna í
Essen eru mjög áhrifamiklir og lita-
spilið í litlu gluggunum sérstaklega
hrífandi.
Gerður var sem kunnugt er í röð
framsækinna skúlptúrlistamanna í
Evrópu um miðja síðustu öld og fór
á hátindi ferils síns að vinna glugga
úr steindu gleri, fyrst að því er virð-
ist af einskærum áhuga en seinna
sem hliðarverk í list sinni, ætlaða til
að vinna inn tekjur svo hún gæti lif-
að af listinni og komið sér upp skúlp-
túrvinnustofu. Glerlistin tók hins
vegar miklu stærri toll af tíma Gerð-
ar en hún ætlaði og að hennar mati á
kostnað skúlptúranna. Gerður lagði
þó ekki síður listrænan metnað við
gerð glerverkanna en skúlptúranna,
fylgdi vinnuferli þeirra eftir alla leið
þótt faglegt glerverkstæði sæi um
að skera, lita og blýleggja stærstu
gluggana. Þetta minnir óneitanlega
á Júlíönu Sveinsdóttur sem leit ekki
á vefi sína sem myndlist þótt ekki
þyki sá þáttur listsköpunar hennar
ómerkari málverkunum á okkar tím-
um. Það má segja að Júlíana og
Gerður hafi skipt sér á milli tveggja
starfsferla sem á endanum varð þó
einn og hinn sami í reynd. Þá eins og
nú var gerður greinarmunur á fag-
urlistum annars vegar og skreyti-
eða nytjalist hins vegar þótt mörkin
þar á milli sköruðust oft eða væru
óljós enda greinar af sama meiði.
Hinar „frjálsu“ fagurlistir trónuðu
efst í virðingarstiganum, þá kom
skreyti- og nytjalistin og þar fyrir
neðan alþýðulist, handverk og fönd-
ur. Á síðustu áratugum hafa mark-
visst verið brotin niður skil svokall-
aðrar há- og lágmenningar hvað
varðar stigveldi mikilvægis þeirra.
Það ásamt enn flóknari skörun milli
listgreina en áður hefur valdið rugl-
ingi og vandamálum í umræðu um
listir, og ekki síst þar sem fag-
urlistin (fine art) er nú oft nefnd
framsækin myndlist en skreytilistin
(decorative art) vill losna við þá
nafngift og vera skilgreind sem
myndlist á meðan nytjalistin hefur
haldið stolti sínu og er sátt við sína
skilgreiningu. Hver listgrein hefur
sinn innri metnað og allt það frelsi
sem hún tekur sér, elur af sér mis-
góða og misfræga listamenn innan
sinnar greinar, en eins og áður skar-
ast þessar greinar oft, mörkin eru
stundum óljós og listamenn geta
unnið fleiri en eina grein samtímis.
Stundum fer það einungis eftir því á
hvaða forsendum listaverk er sett
fram, sem segir til um hvaða list-
grein það tilheyrir. Góð eða fram-
sækin nytjalist er ekki sjálfkrafa sú
sama og framsækin myndist, né
heldur er góð eða framsækin mynd-
list sjálfkrafa falleg eða nytsöm í
sama skilningi og nytjalistin, þó að
þetta geti vissulega stundum farið
saman. Að baki hverrar listgreinar
liggja mismunandi forsendur, en
þessar forsendur taka þó stöðugum
breytingum í takt við tímann.
Samtal við Ísland
Verk bresku glerlistakonunnar
Caroline Swash prýða alla neðri hæð
safnsins. Þar má finna myndir úr
steindu gleri, teiknaðar og málaðar
myndir og ljósmyndir.
Caroline Swash sýnir myndir af
kirkjugluggum sem hún hefur gert
fyrir dómkirkjuna í Gloucester þar
sem tónlist er meginþema annarra
skreytinga þar enda kirkjan þekkt
fyrir tónlist. Þessar myndir leiða
hugann að kirkjugluggum Gerðar í
Essen, en þær bera ekki síður í sér
línulega hrynjandi tónlistar í sínum
óhlutbundnu formum sem minna þó
á einhvers konar leturskrift, ekki
ólíkt höfðaletri. En höfðaletur er eitt
af þeim íslensku elementum sem
Caroline hefur teiknað upp eftir ís-
lenskum fornminjum í London, og í
meðförum hennar verða stafirnir
hver um sig vart þekkjanlegir og
líkjast myndmáli Gerðar þeim mun
meira. Myndir Swash eru m.a. af
gömlum íslenskum munum á við út-
skornar skeiðar, gamlar dúkkur og
tóbakshorn ásamt öðrum útskurði
og handritslýsingum. Einnig notar
hún handskrifaðan íslenskan texta
sem þétt bakgrunnsmunstur í marg-
ar myndir, texta sem er að mestu
óskiljanlegur þótt greina megi eitt
og eitt íslenskt orð. Þessa aðferð
(kennd við lettrisma Isidoru Isou) að
nota letur eða skriftarígildi á mynd-
rænum forsendum má einnig finna í
verkum Leifs Breiðfjörð í Salnum.
Glermyndir Swash eru ekki stórar í
sniðum og eru hengdar bæði beint á
vegg og í glugga þar sem ljósgjafinn
kemur aftan frá. Blýteikningin í
verkunum byggist upp á lífrænum
óhlutbundnum óreglulegum form-
um, ásamt fígúratífri teikningu að
hluta en áferð glersins og efn-
iskennd minnir á textíl ýmiskonar.
Tilfinningin fyrir textíláferðinni
tengir verkin við hugmyndir um
bútasaum og veggteppi, ekki ósvip-
að og verk Jóns Jóhannssonar sem á
verk á sýningunni Íslensk samtíma-
glerlist. Eitt form er gegnumgang-
andi í mörgum af teikningum og
glerverkum Swash á þessari sýn-
ingu, en það er af gömlum íslenskum
skeiðum, ýmist með útskornum eða
einfaldari sköftum, stundum við-
gerðum. Með því að stilla skeiðinni
ávallt í miðju myndar þannig að
skaftið vísar upp þá vísar hún sterk-
lega til fallískrar táknmyndar á
sama tíma og skeiðin getur staðið
fyrir skeið í merkingunni sköp konu.
Stundum er áherslan lögð á fag-
urlega skreytt skaftið en skeiðin
sjálf skiptir minna máli, í öðrum
myndum er skaftið ekki í kastljósinu
heldur skeiðin sem glóir eins og gull
og svo má lengi telja. Táknmynd
Yggdrasils, tré Óðins, kemur oft fyr-
ir og er plantan sú ekki ólík íslensk-
um fífli í myndunum og oftast nið-
urgrafin eins og undir yfirborðinu.
Þessi verk sýna ólíka og skemmti-
lega nálgun við menningararf okkar
sem og glermyndahefðina.
Allar fjórar sýningarnar skapa
innbyrðis skemmtilega samræðu,
ekki síst vegna framlags Caroline
Swash sem kemur meðvituð til
þessa leiks til að skapa samræður
við íslenska glerlist, bæði með verk-
unum sem og samskiptunum öllum
ásamt þeirri orðræðu sem fór fram á
glerlistaþinginu.
Glerlist í Gerðarsafni
Eitt af verkum Gerðar Helgadóttur á sýningunni.
MYNDLIST
Gerðarsafn Kópavogi
Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 11–17.
Sýningin stendur til 1. maí.
Gerður Helgadóttir
Verk úr eigu safnsins
Caroline Swash
Dialogues
Þóra Þórisdóttir
Caroline Swash: Mended Spoon – version 2.
UM ÞESSAR mundir er haldin heims-
sýningin Aichi World Expo 2005 í
borginni Nagoya í Japan. Meðal
fjöldamargra viðburða á henni er
textílhátíðin World Quilt Carneval
sem stendur yfir dagana 20. til 22.
maí nk.
Þar verður boðið upp á námskeið
og kynningar af öllu tagi en mik-
ilvægasti þáttur World Quilt Carneval
er þó sýningin sjálf. Þema hennar er
„Umhverfið og ástin“ og ekkert verk
má vera minna en 1 metri á kant.
Völdum listamönnum frá alls 21
landi var boðið að vera með og í þeim
hópi eru þrír íslenskir þátttakendur,
þær Heidi Strand, Jóna S. Krist-
insdóttir og Sigríður Valgerður Ingi-
marsdóttir. Heidi sýnir þrjú verk en
þær Jóna og Sigríður Valgerður eitt
verk hvor.
Íslendingar á textílhátíð í Japan
Morgunblaðið/Ómar
Heidi Strand verður fulltrúi Íslands við opnun sýningarinnar 20. maí.