Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 47
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
f r i til r !
a a r r llv kj tryllir frá s rav !
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!I
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
Heimsfrumsýnd 29. apríl
- BARA LÚXUS553 2075☎
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND
FRÁ SÖMU OG GERÐU
LÉON OG LA FEMME
NIKITA Hann var alinn
upp sem skepna og
þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann
að berjast fyrir lífi
sínu!
Sýnd kl. 6 m. ísl. taliSýnd kl. 8 og 10 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 6 m. íslensku tali
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina sem getur fundið morðingjann
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 8 og 10
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000
Sýnd kl. 6 og 9
Túlkun
Bruno Ganz
á Hitler
er
stórkostleg.
Ein besta
stríðsmynd
allra tíma.
Magnþrungið
meistaraverk
um síðustu
dagana í lífi
Hitlers séð með
augum Traudl
Junge sem var
einkaritari
Hitlers
Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 5.50 og 8
Every family could use a little translation
S.K. DV
Sýnd kl. 8 síðasta sýning
Nýjasta mynd eins
allra virtasti
leikstjóri heims
Pedro Almódavar
sem hefur fengið lof
gagnrýnenda og
verðlaun um allan
heim.
„Sterkasta mynd
Almódavar í tvo
áratugi.“
(Village Voice).
Í aðalhlutverki er
latneska súperstjarnan
Gabriel Garcia Bernal
og Fele Martinez.
Myndin er byggð á
sönnum atburðum
er áttu sér stað
árið 1994 í
þjóðarmorðunum í
Rwanda þegar ein
milljón manns lét
lífið á 100 dögum!
Tilnefnd til 3
Óskarsverðlauna,
7 meiriháttar
alþjóðlegra
verðlauna og var á
yfir 120 topp 10
listum síðasta árs.
Einnig fékk hún
áhorfendaverðlau
nin á Toronto
hátíðinni.
Sýnd kl. 3.40, 8 og 10.15
Er hægt að fyrirgefa hið ófyrirgefanlega?
Kevin Bacon sýnir stórleik sem dæmdur
barnaníðingur er reynir að koma lífi sínu
í eðlilegan farveg eftir 12 ára fangelsisvist.
Tilnefnd til fjölda verðlauna.
Frá framleiðendum Monsters ball
Kevin Bacon
What the Bleeb do we Know Sýnd kl. 5.50
Bomb the System Sýnd kl. 6
Kinsey Sýnd kl. 3.40
Door in the Floor Sýnd kl. 4
Darkness Sýnd kl. 10.40
HJ. MBL
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM UM HELGINAMiðasala opnar kl. 15.003
Í fjölskyldu þar
sem enginn
skilur neinn
mun hún
smellpassa
í hópinn
F R Á L E I K S T J Ó R A
AS GOOD AS IT GETS
House of the
Flying Daggers
Frá leikstjóra "Hero" kemur nýtt þrekvirki;
epísk bardagamynd og ástarsaga, sem á
sér engan líka og "setur ný viðmið á
mörgum sviðum kvikmyndagerðar".
r l i tj r r r tt r ir i;
í r t r ,
r lí t r i i
r i i r r .
Sýnd kl. 3.40 og 10.15
SV. MBL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 47
EINN dáðasti tónlistarmaður Dana fyrr og síðar,
Kim Larsen, er á leið til Íslands til tónleikahalds.
Hann heldur tvenna tónleika ásamt hljómsveit
sinni Kjukken á Nasa við Austurvöll 26. ágúst og
27. ágúst nk.
Verða þetta lokatónleikar á sumartónleikaferð
hans um Danmörku og Færeyjar en hún hófst í
Lundúnum 23. apríl sl. Kim Larsen hefir verið
þekktasta nafnið í danskri dægurtónlist síðustu
þrjá áratugi eða svo. Eftir að hafa lent í svolítilli
lægð á síðasta áratug þá hafa vinsældir hans í
Danmörku og Skandinavíu sjaldan verið meiri en
sl. fimm árin, eða síðan hann setti saman nýja
hljómsveit, Kjukken. Á síðasta ári átti hann
þannig tvær metsöluplötur í Danmörku sem báð-
ar náðu margfaldri platínusölu. Þetta voru plöt-
urnar 7-9-13 sem kom út fyrir jólin 2003 og
Glemmebogen – Jul og nyt år sem kom út fyrir
jólin 2004.
Sívinsæll
Larsen á að baki glæstan og fjölbreyttan feril
og er án efa söluhæsti dægurtónlistarmaður í
Danmörku fyrr og síðar. Fyrst náði hann al-
mannahylli á 8. áratugnum sem leiðtogi hljóm-
sveitarinnar Gasolin. Sveitin naut mikilla vin-
sælda og eru löngu orðin sígild lög með sveitinni
á borð við „Kvinde min“ og „Rabalderstræde“.
Kim Larsen hafði hafið sólóferil samhliða Gasolin
en eftir að hann sagði skilið við sveitina gaf hann
út plötur undir eigin nafni og með hljómsveitinni
Bellami sem nutu fádæma vinsælda á 9. áratugn-
um. Kannast margir við lög frá því skeiði á borð
við „Rita“, „Midt om natten“, „Susanne himmel-
blå“, „Smukke unge mennesker“, „Familien skal
I skoven“, „Den Allersidste dans“ og „Jutlandia“
og er platan Midt om natten ennþá mest selda
breiðskífa Danmerkur allra tíma.
Skömmu eftir að Larsen fluttist frá Kaup-
mannahöfn til Óðinsvéa 1994 þá stofnaði hann
hljómsveitina Kjukken og hefur leikið með henni
síðan. Hljómsveitina skipa auk Kims þeir
Karsten Skovgaard, gítar, hljómborð og raddir,
Jesper Rosenqvist á trommur og raddir og
Jesper Haugaard á bassa.
Til Íslands í annað sinn
Larsen hefur löngum notið mikillar hylli meðal
Íslendinga og ekki hvað síst hinna fjölmörgu Ís-
lendinga sem búsettir hafa verið í Danmörku í
lengri eða skemmri tíma og fengið tækifæri til að
kynnast og skilja tónlistina og hina sérstæðu
kímnigáfu sem Larsen er þekktur fyrir. Þessar
vinsældir hans hérlendis komu berlega í ljós er
hann hélt ferna velheppnaða tónleika á Broad-
way, sem þá gekk undir nafninu Hótel Ísland, í
nóvember árið 1988 ásamt þáverandi hljómsveit
sinni Bellami. Það er Austur Þýskaland sem
stendur að komu Kims Larsens til Íslands. Miða-
sala hefst föstudaginn 13. maí nk. kl. 10 í verslun
12 Tóna við Skólavörðustíg og á midi.is.
Tónlist | Kim Larsen
til Íslands
Kim og
Kjukken á
Nasa í ágúst
Kim Larsen og hljómsveitin hans Kjukken.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Eftir Skarphéðin Guðmundsson
skarpi@mbl.is
Kim Larsen þenur
raddböndin við góðar
undirtektir íslenskra
áhorfenda á Hótel Ís-
landi árið 1988.
HLJÓMSVEITIN Santiago
hefur fengið til liðs við sig
nýja söngkonu, Berglindi
Ósk Guðgeirsdóttur, sem er
23 ára og ættuð frá Reyð-
arfirði. Hljómborðsleikara
hefur einnig verið bætt í
hópinn, sá heitir Ólafur
Ágúst Haraldsson. Fyrstu
tónleikarnir með nýrri
mannaskipan verða á Café
Rosenberg í kvöld.
Santiago hefur nýverið
sent frá sér plötu, sem ber
nafið Chase the bird, en Girl,
fyrsta plata sveitarinnar,
kom út fyrir tveimur árum
og var tilnefnd til Íslensku
tónlistarverðlaunanna.
Meðlimir segja að mikil
bjartsýni ríki innan hópsins
en efni á þriðju plötu sveit-
arinnar er langt komið. Enn-
fremur hefur lag af nýjustu
plötu Santiago, „His sweet
smile“, fengið nokkra spilun
í útvarpi síðustu mánuði.
Tónlist | Santiago með tónleika á Café Rosenberg
Hljómsveitin Santiago er komin með tvo nýja liðsmenn og heldur
sína fyrstu tónleika í nýrri mynd í kvöld.
Fyrstu tónleikar hinnar end-
urbættu Santiago verða á
Café Rosenberg við Lækjar-
götu í kvöld kl. 21.30.
Ný
söngkona PIERCE Brosnan mun leika James Bond í nýj-
ustu kvikmyndinni, Casino Royale, sem hefja á
tökur á síðar á árinu, að því er
Judi Dench, sem leikur yfir-
mann Bond, M, hefur greint
frá. „Þrátt fyrir að það sé búið
að prófa hvern einasta mann á
jarðríki í hlutverkið í staðinn
fyrir [Brosnan] mun hann
mæta aftur á tjaldið,“ missti
hún út úr sér í viðtali við
breskt blað.
Ekki er langt síðan fullyrt
var að búið væri að finna ann-
an leikara í stað Brosnans,
þannig að allar fregnir af hinni örvæntingarfullu
leit að nýjum Bond hljóta að vera sagðar með fyr-
irvara núorðið.
„Þetta verður tilkynnt opinberlega í sumar,“
bætti Dench við en framleiðendur hafa enn og aft-
ur neitað að tjá sig um málið. Martin Campbell,
sem gerði Goldeneye, verður leikstjóri mynd-
arinnar en hann vinnur nú að gerð myndarinnar
The Legend of Zorro.
Judi Dench talar af sér
Brosnan
áfram Bond
Verður Brosnan þá
Bond eftir allt saman?
Það þurfti ungan og upprennandi ís-lenskan gítarleikara til að fá Ro-
bert Plant til að syngja „Stairway To
Heaven“ aftur eftir að hafa harðneitað
því í ein 15 ár eins og greint var frá á
baksíðu Morgun-
blaðsins í gær.
Örnólfur Þórsson
heitir gítarleik-
arinn, 12 ára að
aldri, en hann
fékk að fara bak-
sviðs ásamt vini
sínum Hrafnkatli
Flóka Einarssyni, að afloknum tón-
leikum Roberts Plants í Laugardals-
höllinni á föstudag. Ekki fylgdi þó sög-
unni að Örnólfur og Hrafnkell Flóki
eru af mætu tónlistarfólki komnir.
Örnólfur er sonur Þórs Eldon og Mar-
grétar Örnólfsdóttur, sem voru m.a.
saman í Sykurmolunum, og Hrafnkell
Flóki er sonur Einars Arnar Bene-
diktssonar sem einnig var m.a. í Syk-
urmolunum. Svo vill til að Smekkleysa,
útgáfan sem Sykurmolarnir stofnuðu
ásamt Ásmundi Jónssyni og fleirum,
var samstarfsaðili að tónleikunum en
útgáfan sér um dreifingu hér á landi á
nýjustu plötu Plants og sveitar hans
The Strange Sensation, sem heitir
Mighty Rearranger, og stekkur með
látum inn á nýjasta plötusölulistann,
Tónlistann. Skýrir það væntanlega
hvers vegna þeir Smekkleysu-
erfingjar Örnólfur og Hrafnkell Flóki
voru svo heppnir að fá að virða fyrir
sér goðið baksviðs.
Tónleikarnir með Plant voru hinirsíðustu í Laugardalshöll fyrir lok-
un, því í sumar standa þar yfir fram-
kvæmdir vegna viðbyggingarinnar.
Höllin verður ekki aftur nothæf fyrr
en í haust en fyrstu tónleikarnir eftir
opnun verða
haldnir 1. sept-
ember. Þá mun
annar sögufrægur
söngvari halda
sína fyrstu tón-
leika á Íslandi,
enski söngvarinn
Joe Cocker. Miðasala á tónleika hans
hefst 10. maí nk. og fer fram í versl-
unum Skífunnar, BT á Akureyri og
Selfossi og á www.concert.is. Cocker
hefur notið mikillar hylli allt frá því að
hann sló í gegn á Woodstock árið 1969
er hann tók kraftmikla sálarskotna út-
gáfu af Bítlalaginu „With a Little Help
From My Friends“. Hann hefur sent
frá sér fjölmörg lög sem orðið hafa
fræg, lög sem vafalaust munu hljóma í
Höllinni í bland við lög af nýjustu plötu
Cockers, sem heitir Heart & Soul. Þar
er hann við sama heygarðshornið og
syngur kunna slagara með sínu nefi,
lög eins og „One“ eftir U2, „Every-
body Hurts“ eftir R.E.M., Marvin
Gaye-lagið „What’s Goin’ On“, „Jeal-
ous Guy“ eftir Lennon og „Maybe
I’m Amazed“ eftir McCartney.
Fólk folk@mbl.is