Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 49
Hetja.
Þjóðsögn.
Svampur
Svampur Sveinsson og félagar eru
komnir með sína fyrstu bíómynd.
Með íslensku og ensku tali.
Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann!
ÁLFABAKKI
BOOGEYMAN KL. 8
SAHARA KL. 8
HOLE IN MY HEART KL. 10.30
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLAN
Kvikmyndir.is
SAHARA kl. 6 - 8 - 10.20
BOOGEY MAN kl.10 B.I. 16
SVAMPUR SVEINSSON kl 6
Garden state kl 8
The Motorcycle Diaries kl. 10
THE ICE PRINCESS kl. 6 - 8 - 10
SAHARA kl. 6 - 8 - 10.30
BOOGEY MAN kl. 8.30 - 10.30 B.i. 16.
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 6
Og þið sem hélduð að þetta væri bara einhver draugasaga
Frá framleiðendum
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 - 6
SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 6 - 8.30 - 10.30
MRS. CONGENIAL. 2 kl. 8 - 10.30
SAHARA kl. 3.30 - 6 - 8 - 10.30
SAHARA VIP kl. 4.45 - 8 - 10.30
THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE PACIFIER kl. 4 - 6 - 8 - 10
Toppmyndin í USA
Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi
Ice Princess
Sýningatímar
Frá þeim sem
færðu okkur
Princess Diaries
og Freaky Friday.
Nú fer hver að verða síðastur tilað skella sér á einhverja af
þeim gæðamyndum sem í boði eru
á Kvikmyndahátíð Íslands. Sam-
kvæmt fyrirfram ákveðinni dag-
skrá átti hátíðinni að ljúka á laug-
ardag, en hefur nú verið framlengd
fram yfir helgi, til mánudags.
Ljóst er að nokkrar þeirra
mynda sem fengið hafa mesta að-
sókn munu verða sýndar eitthvað
áfram. Þar ber fyrst að nefna vin-
sælustu myndir hátíðarinnar, Mot-
orcycle Diaries
og Der Unter-
gang, en einnig
verða m.a. sýnd-
ar áfram Almo-
dóvar-myndin La
mala educación,
Hotel Rúanda,
House of Flying
Daggers og
Woody Allen-myndin Melinda og
Melinda. Þeir sem hins vegar
höfðu í huga að sjá hinar umdeildu
Et hål i mit hjärta eftir Lukas
Moodysson og 9 Songs eftir Micha-
el Winterbottom ættu að drífa sig
á næstu sýningu því þær myndir
hafa ekki hlotið leyfi fyrir því að
vera sýndar áfram á almennum
kvikmyndasýningum. Það sem
meira er þá er talið ólíklegt að
leyfi fáist fyrir útgáfu þeirra á
leigu- og sölumynddiskum og
-böndum. Hátíðinni lýkur form-
lega, eftir sem áður, á laugardag
með sýningu lokamyndarinnar
Gargandi snilld eftir Ara Alexand-
er Ergis. Þá mun einnig verða til-
kynnt hverjir hljóta Jökulinn,
áhorfendaverðlaunin, sem valin eru
í netkosningu á heimasíðu hátíð-
arinnar www.icelandfilmfestival.is.
Heimilda- og stuttmyndahátíð íReykjavík – Reykjavik
Shorts&Docs
verður haldin dag-
ana 25.–29. maí
nk. Hátíðin verður
haldin í Tjarn-
arbíói – gamla
kvikmyndahúsinu sem sýndi marg-
ar góðar myndir á sínum tíma – því
hún fær ekki inni í kvikmyndahús
höfuðborgarsvæðisins.
Það liggur nú fyrir að stutt- ogheimildarmyndahátíðin Nor-
disk Panorama 2005 verður haldin
í Bergen í Noregi dagana 23.–28.
september nk. Hægt er að nálgast
upplýsingar um skilafrest vegna
mynda og annarrar þátttöku í há-
tíðinni á vef hátíðarinnar,
www.nordiskpanorama.com.
Bíó folk@mbl.is
R
agnheiður Gröndal söng sig inn í
hjarta þjóðarinnar með laginu
„Ást“ fyrir tveimur árum, en
það var á safnplötu íslenskra
ástarljóða. Það ár sendi hún
einnig frá sér sólóskífu með djasslummum og
svo aðra sólóplötu á síðasta ári, Vetrarljóð,
sem seldist metsölu.
Nú stendur hún svo á tímamótum í lífinu,
er að ljúka tónlistarnámi og með í smíðum
fyrstu plötuna sem innihalda mun hennar eig-
in tónlist eingöngu, en 12 tónar munu gefa
plötuna út.
Ragnheiður segist vera búin að semja lög
nokkur undanfarin ár, og reyndar eru fjögur
dæmi um það á Vetrarljóðum. Hún hefur þó
samið meira, á nokkuð af lögum sem hún hef-
ur ekki leyft neinum að heyra, en átta lög
koma fyrir eyru manna í fyrsta sinn á út-
skriftartónleikum hennar í FÍH 6. maí næst-
komandi.
Samið við 12 tóna
Undirbúningur fyrir tónleikana er í fullum
gangi að því Ragnheiður segir, enda er hún
búin að ráða mannskap í spilamennsku; Guð-
mundur Pétursson leikur á gítar, Birgir
Bragason á bassa, Birgir Baldursson á
trommur og slagverk og Kjartan Valdemars-
son á hljóðgervil en sjálf segist Ragnheiður
glamra á píanó eins og hún orðar það.
Þessi mannaskipan er ekki hefðbundin
blanda fyrir djass og ekki heldur fyrir popp,
en Ragnheiður segir að þetta sé einmitt það
sem passi fyrir músíkina hennar, enda sé hún
beggja blands.
„Það er ekki rétt að kalla lögin djass þó það
sé djass í þeim og ekki heldur popp, þó þau
séu poppuð, en svo blandast í þetta alls konar
tónlist sem ég hef gaman af eins og klezmer
og alls konar tónlist.“
Lögin á útskriftartónleikunum, sem eiga
síðar eftir að rata á sólóplötuna, verða átta
eins og getið er, en einnig verður flutt sem
inngangur verk sem Ragnheiður setti saman
á tölvu.
„Ég vann það úr umhverfishljóðum, alls
konar hljóð sem ég tók upp sjálf, úti og
heima, og notaði í það forrit sem ég fann á
Netinu. Svo verður líka flutt myndbandsverk
sem vinkona mín samdi við tónlistina.“
Fyrstu sólóplötuna, sem hét einfaldlega
Ragnheiður Gröndal, gaf Ragnheiður út sjálf
en síðan hefur hún unnið með Steinari Berg
sem gaf út safnplötuna vinsælu Íslensk ást-
arljóð og svo Vetrarljóð. Nú söðlar Ragnheið-
ur aftur á móti um er hún semur í dag við 12
tóna um útgáfu á næstu plötum.
Hún segir að samstarfið við Steinar hafi
verið frábært, lærdómsríkt og skemmtilegt.
„Hann hefur aftur á móti öðruvísi áherslur
sem útgefandi, tekur meiri þátt í þróuninni á
verkefninu og tónlistinni, en hjá 12 tónum fæ
ég fullkomið frelsi, ræð öllu, og það verður
gaman að prófa það.“
Næsti vetur verður óvenjulegur fyrir
Ragnheiði, enda er hún því vön undanfarin ár
að það sé alltaf eitthvað prógramm í gangi;
þegar skólinn hefst að hausti er búið að plana
veturinn. Hún tekur óvissunni vel, segist
hlakka til að geta sest við píanóið án þess að
fá samviskubit yfir því að vera ekki að æfa
sig.
Útsetur sjálf
Í sumar verður líka nóg við að vera fyrir
hana, því upptökur eru fram undan á vænt-
anlegri plötu. Lögin átta sem spiluð verða á
útskriftartónleikunum í næstu viku verða á
þeirri plötu og síðan eru nokkur lög til við-
bótar sem eftir á að vinna með hljómsveit.
Ragnheiður segist ætla að taka plötuna upp
með sömu mönnum og spila með henni á tón-
leikunum, enda hafi allt gengið svo vel að það
sé um að gera að halda áfram.
„Ég útset þetta sjálf að mestu leyti í sam-
vinnu við hljómsveitina en Haukur bróðir ætl-
ar líka að útsetja fyrir mig strengi og tré-
blástur og það verður gaman að heyra hvað
kemur út úr því enda hefur hann ekki útsett
popp áður,“ útskýrir hún en þess má geta að
Haukur, sem býr í Danmörku, er útlærður
djassspilari og heldur einnig úti klezmersveit-
inni mögnuðu Schpilkas. Hann lék einnig inn
á djassplötu Ragnheiðar, fyrstu sólóplötunni.
Þó Ragnheiður taki sér frí frá náminu um
stund, ætli að vinna að eigin músík á næstu
mánuðum, hyggst hún þó halda áfram í skóla,
ætlaði að læra tónsmíðar í Listaháskólanum
en gleymdi að sækja um, en svo veltir hún því
líka fyrir sér að fara út í nám.
Tónlist | Ragnheiður Gröndal útskrifast frá FÍH og undirbýr sólóplötu fyrir nýtt útgáfufyrirtæki
Fullkomið
frelsi
Ragnheiður Gröndal, söng-
konan vinsæla, stendur nú
á tímamótum í lífi sínu,
lýkur tónlistarnámi á næstu
dögum og býr sig undir að
gefa út fyrstu plötuna sem
eingöngu verður með henn-
ar tónlist. Hún sagði Árna
Matthíassyni frá
þessum spennandi
framtíðaráformum sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
„Það er ekki rétt að kalla lögin djass þó að það sé djass í þeim og ekki heldur popp þó að þau séu poppuð, “ segir Ragnheiður um nýju lögin sín.
arnim@mbl.is