Morgunblaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 23
MINNSTAÐUR
����� ����� ��� ��
�������� ��� ����������
�� �������� ��� �����
����� ����������
��� ������ ������ ����� ���
�� ���������� � �����
�� ����������� � �����
������� ��� ��� ������
��� ���� � ��������
������
� ���������� � ��� � ���� � � ��� � �����
����������� ��� �����
���
���������
��������
��������
��������������������
SUMARTILBOÐ
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Freyspálmi
með brenninetlu
Fyrir blöðruháls-kirtilinn.
FASTEIGNIR
mbl.is
ÍBÚAR á Akureyri verða vaktir að
morgni þjóðhátíðardagsins, 17. júní,
með því að blómabíllinn mun aka um
götur bæjarins á nýjan leik, en sú
var venjan í eina tíð. Íþróttafélagið
Þór, sem fagnaði 90 ára afmæli sínu
nú í vikunni, sér um hátíðarhöld
þjóðhátíðardagsins að þessu sinni og
fékk Örn Inga Gíslason til liðs við sig
við skipulagningu hans. „Hann er
rétti maðurinn,“ sagði Jón Heiðar
Árnason, formaður Þórs. „Hann er
afskaplega hugmyndaríkur og við
megum eiga von á eftirminnilegum
þjóðhátíðardegi.“ Örn Ingi sagði að
ýmsir gamlir siðir og venjur frá fyrri
þjóðhátíðardögum verði endurvakt-
ir, en jafnframt verði bryddað upp á
fjölmörgum nýjungum. Eflaust mun
vekja athygli að nýtt svið verður sett
upp á Ráðhústorgi, það verður
hringlaga og er fólk hvatt til að taka
með sér stóla og jafnvel borð í
miðbæinn og gera dálitla lautarferð
úr bæjarferðinni þennan hátíðisdag
landsmanna. Þá hvetur Örn Ingi
bæjarbúa til að klæðast sparifötum
sínum í tilefni dagsins. „Ég óska eftir
því að menn verði svolítið þjóðlegir,“
sagði hann.
Meðal nýjunga í dagskránni má
nefna að fólki býðst að skíra börn sín
á sviðinu á Ráðhústorgi og ef pör
vilja ganga í það heilaga stendur það
einnig til boða, „við útvegum prest-
inn og sjáum einnig um skírnar- og
brúðargjafir,“ segir Örn Ingi.
Bæjarlistamenn Akureyrar frá
upphafi taka þátt í dagskránni og
bjóða upp á sýningu, þá verða fluttar
gamanvísur líkt og gert var „í gamla
daga“. Efnt verður til spurninga-
keppni úr Sögu Akureyrar .Gefin
verða út hverfismerki, þ.e. Eyrar-
púkinn, Innbæingurinn, Brekku-
snigillinn og Þorparinn, en fimmta
merkið er tileinkað Aðkomumannin-
um.
Skírn og gifting í boði
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
FÍFILBREKKUHÁTÍÐ verður
haldin öðru sinni nú á sunnudag, 12.
júní að Hrauni í Öxnadal, fæðingar-
stað Jónasar Hallgrímssonar. Hátíð-
in, sem hefst kl. 14, er að þessu sinni
helguð jarðargróða og jarðarbótum.
Þórir Haraldsson líffræðingur
gerir grein fyrir flóru dalsins og sagt
verður frá framtíðarverkefnum að
Hrauni. Þá verður hafist handa við
að tyrfa og prýða umhverfis húsin.
Sjálfboðaliðum sem vinna að jarðar-
bótum að Hrauni þennan dag verður
boðið upp á glóðarsteikt lamb.
Unnið er að því að koma á fót nátt-
úrulegu útivistarsvæði fyrir almenn-
ing í landi Hrauns, en jörðin er um
2.500 ha. Hraun er landnámsjörð og
hét upphaflega Vatnsá. Miklar end-
urbætur hafa verið gerðar á húsum
og jörð. Þá má nefna að þegar er haf-
inn undirbúningur vegna 200 ára af-
mælis Jónasar Hallgrímssonar 16.
nóvember 2007.
Menningarfélagið Hraun í Öxna-
dal ehf. stendur að Fífilbrekkuhátíð,
það hefur keypt jörðina og vinnur að
því að koma þar upp minningarstofu
um skáldið, náttúrufræðinginn,
stjórnmálamanninn og myndlistar-
manninn Jónas Hallgrímsson. Stof-
an verður opnuð næsta vetur ásamt
íbúð sem ætluð er fræðimönnum,
skáldum, rithöfundum, listamönnum
og fólki úr menningar- og atvinnulífi
þjóðarinnar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Séð heim að Hrauni Hraundrang-
arnir og Hraunsvatn verða innan
fólkvangsins sem fyrirhugaður er.
Fífilbrekkuhátíð
FRAMKVÆMDARÁÐ hefur sam-
þykkt að bjóða út allan 2. skipulagsá-
fangann í Naustahverfi þannig að
öllu verkinu verði lokið vorið 2006 og
fyrri áfanga lokið í október 2005 .
Bæjarráð Akureyrar hefur áður
tekið jákvætt í erindi þessa efnis frá
umhverfisráði en í bókun þess frá í
febrúar síðastliðnum kemur fram að
vegna mikillar eftirspurnar eftir lóð-
um beini ráðið því til bæjarráðs að
gatnaframkvæmdum í 2. áfanga
Naustahverfis verði flýtt svo og
gatnaframkvæmdum við Ægisnes
Bæjarráð hefur falið framkvæmda-
ráði að leggja fram framkvæmda- og
kostnaðaráætlun vegna flýtingar
gatnagerðarframkvæmda í 2. áfanga
Naustahverfis.
Flýta gatnagerð