Morgunblaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 27
því að léttsteikja ferska sveppi í
smjöri, svo var piparostur bræddur í
rjóma og kjötkraftur settur út í.
Ferskt salat, rjómasveppasósa og
bakaðar kartöflur var framreitt
með lambinu.
Morgunblaðið/Golli
Hjónin Eiríkur Guðbjartur Guð-
mundsson og Ragna Óladóttir
ásamt aðstoðarkokkunum Þór
Þráinssyni, Sigurði Karlssyni og
Karli Ómari Jónssyni.
join@mbl.is
Vantar fleiri söngmenn
Karlakór Kópavogs hefur aðeins
starfað í þrjá vetur, en kórinn stofn-
aði Natalía Chow, sem stjórnar hon-
um ásamt manni sínum Julian Hewl-
ett. „Þetta er mjög skemmtilegur
félagsskapur og stemmningin er fín,
en okkur vantar fleiri söngmenn. Það
er alltaf pláss fyrir nýja kórfélaga og
við stefnum að því að fjölga um helm-
ing í hópnum. Það þarf enginn að
vera hræddur við að mæta því hér
eru engir atvinnusöngmenn," segir
Eiríkur og Þór Þráinsson bætir við
að kórstarfið liggi ávallt niðri yfir
sumartímann. „Við ætlum hinsvegar
að byrja æfingar snemma í haust því
við stefnum að því að taka þátt í
Landsmóti Sambands íslenskra
karlakóra sem haldið verður í Hafn-
arfirði þann 29. október nk., en síðast
var slíkt landsmót haldið fyrir ald-
arfjórðungi. Allir kórarnir verða svo
í lokin settir saman í einn sem mynda
mun eitt þúsund manna karlakór."
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 27
DAGLEGT LÍF | MATARKISTAN
ÞAÐ skiptir máli að velja alltaf
besta fáanlega grænmetið hverju
sinni. Það er hægt að tryggja
með ýmsum hætti að maður kaupi
það ferskasta hverju sinni.
Leitið að litríku grænmeti.
Besta grænmetið er freistandi í
útliti, það er blettalaust, stinnt og
heldur lögun sinni.
Þegar heim er komið skoðið
þá vel grænmetið ef mörg stykki
hafa verið keypt í poka. Hendið
út því sem er útlitsgallað því það
kann að mygla og skemma út frá
sér allt annað sem í pokanum er.
Hendið líka blöðum af salati sem
ekki er litríkt og stökkt.
Veljið grænmeti árstíðabundið
því þá er verið að kaupa ferska
vöru. Hikið ekki við að spyrjast
fyrir ef engar upplýsingar um
þetta liggja frammi í versluninni.
Kaupið bara grænmeti til
nokkurra daga. Langur geymslu-
tími rýrir næringargildið og
bragðið líka.
Stundum er næringargildið í
frosnu grænmeti meira en í
„fersku“ grænmeti sem orðið er
gamalt.
Ef niðursoðið grænmeti verð-
ur fyrir valinu ætti að velja teg-
undir þar sem engu salti er bætt
við.
MATUR
Morgunblaðið/Þorkell
Paprikur eiga að vera litsterkar og stinnar viðkomu. Ef þær eru orðnar of
gamlar verða þær linar og hrukkóttar.
Stundum borgar
sig að kaupa frosið
grænmeti