Morgunblaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 11
FRÉTTIR
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Opið alla virka daga í sumar frá kl. 13-17 og um helgar frá kl. 13-18.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
„Andlit Þjórsdæla“ – áhugaverð sýning um mannlífið
í Þjórsárdal í 1100 ár.
Blöndustöð í Húnaþingi
Þorir þú 200 metra niður í jörðina?
Hvað verður í göngum Blöndustöðvar
í sumar? Magnaður viðkomustaður.
Skelltu þér í bíltúr um helgina og skoðaðu áhugaverðar sýningar og virkjanir – við höfum heitt á könnunni.
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
7
3
6
Sumarið er okkar tími! Tilvalið að líta inn
&
Kvennahlaupið er á morgun
Yfirskrift hlaupsins í ár er „Áfram
stelpur!“ en tilgangurinn er sá að
vekja athygli á hversu mikilvægt er
fyrir konur, og þá ekki síst ungar
stúlkur, að eiga sér heilbrigðar og
sterkar fyrirmyndir. Hjá ÍSÍ kemur
fram að karlar séu ekki síður mik-
ilvægur hluti af hlaupinu og sjái m.a.
um framkvæmd, verðlaunaafhend-
ingar og hvatningu á hliðarlínunni.
Þátttökugjald í hlaupinu er kr.
1.000 og er innifalinn bolur og verð-
launapeningur. Í Garðabæ er hlaup-
ið venjulega fjölmennast en þar
verður hlaupið frá Garðatorgi kl. 14.
Hlaupið hefst kl. 11 í Mosfellsbæ og
á Akureyri. Fyrsta Kvennahlaupið í
ár var haldið um síðustu helgi í Eþí-
ópíu.
KVENNAHLAUP ÍSÍ fer fram á
hátt í 100 stöðum á landinu á morgun
en einnig er hlaupið í ýmsum löndum
nær og fjær. Kvennahlaupið er fjöl-
mennasti íþróttaviðburður sem hald-
inn er á Íslandi en árlega taka um
18.000 konur á öllum aldri þátt í því.
ÍSÍ greinir frá því að um 55% ís-
lenskra kvenna á aldrinum 16–75 ára
hafi tekið þátt í hlaupinu samkvæmt
nýlegri Gallup-könnun.
Allar konur eru hvattar til að taka
þátt í hlaupinu og er lögð áhersla á
að hver og ein hlaupi á eigin forsend-
um og óháð aldri og líkamlegri getu.
Meginmarkmið Kvennahlaupsins
eru að hvetja og styðja konur á öllum
aldri til aukinnar hreyfingar og
heilsueflingar.
Í ár var öldrunarheimilum á
höfuðborgarsvæðinu boðið að halda
sitt eigið hlaup, að því er segir í
fréttatilkynningu frá ÍSÍ. Þrír staðir
tóku áskoruninni og ætla konur á
Hrafnistu – DAS í Reykjavík og í
Hafnarfirði að taka forskot á sæluna
og spretta úr spori kl. 13 í dag, föstu-
daginn 10. júní. Í Seljahlíð hefst
hlaupið hins vegar kl. 11 á laugar-
daginn og munu þá að minnsta kosti
50 konur taka þátt. Elsti þátttakand-
inn í Seljahlíð verður 99 ára.
Á Garðatorgi í Garðabæ hefst
hlaupið kl. 14 en kl. 11 í Mosfellsbæ
og á Akureyri.
Upplýsingar um aðra hlaupastaði,
tíma, vegalengdir og forsölu er að
finna á vef Sjóvár (www.sjova.is).
HÓPUR íbúa á Álftanesi hefur síð-
ustu daga gengist fyrir söfnun und-
irskrifta til að skora á skipulags-
yfirvöld Álftaness að efna til
samkeppni meðal arkitekta um
skipulag miðbæjar Álftaness. Í frétt
frá undirbúningshópi segir að eina
tillagan sem meirihluti bæj-
arstjórnar hafi kynnt sé frá arki-
tektastofunni Batteríinu „sem íbú-
ar telja vera í andstöðu við ímynd
Álftaness sem fámennt, friðsælt og
náttúruvænt sveitarfélag.“
Þá kemur fram í frétt hópsins að
undirtektir hafi verið mjög góðar.
Af 620 heimilum í bænum hafi hús-
ráðendur verið heima á 430 og
skrifuðu fulltrúar 340 heimila und-
ir áskorunina.
Áskorunin er svohljóðandi:
„Við undirritaðir Álftnesingar
viljum að efnt verði til arkitekta-
samkeppni um skipulag miðbæjar-
svæðisins á Álftanesi.
Við viljum að hafa nokkra kosti
til að fjalla um á sérstöku íbúaþingi.
Við erum óánægð með þá tillögu
sem kynnt hefur verið, með þjón-
ustugötu umlukta þriggja hæða
húsum á báða vegu, sem jafnframt
á að vera aðkomuleið að skóla og
íþróttahúsi.
Við viljum miðsvæði sem fellur
að landkostum á Álftanesi og hæfir
hugmyndum okkar um „sveit í
bæ“.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, lengst til hægri, afhendir Gunnari V. Gíslasyni, bæjar- og skipulagsstjóra Álftaness,
og Erlu Guðjónsdóttur, formanni skipulagsnefndar, undirskriftalista íbúanna.
Vilja samkeppni um skipu-
lag miðbæjar Álftaness
„ÞESSI niðurstaða
er vonbrigði fyrir
umhverfisráðu-
neytið,“ sagði Sig-
ríður Anna Þórðar-
dóttir
umhverfisráðherra í
samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Hins
vegar ber á það að
líta að þetta mál fell-
ur á algjöru forms-
atriði. Það er byggt
á því að leyfi fyrir
fyrri framkvæmd,
það er að segja
framkvæmd Reyð-
aráls, lá ekki fyrir
áður en þessi fram-
kvæmd [Alcoa] fékk leyfi. Þess
vegna er niðurstaðan sú að það
skuli fara fram nýtt mat á um-
hverfisáhrifum. Það er hins veg-
ar ekki verið að fjalla neitt um
það efnislega í þessum dómi
hvort sú framkvæmd, sem er í
gangi, hafi umtalsverð umhverf-
isáhrif. Það er einnig athygl-
isvert að Hæstiréttur reisir nið-
urstöðu sína ekki á sömu
röksemdum og Héraðsdómur not-
aði í sinni dómsniðurstöðu. Það
eru önnur rök sem Hæstiréttur
fellir sinn dóm á.“
Sigríður Anna segir ljóst að
farið verði í nýtt mat á umhverf-
isáhrifum vegna álvers Alcoa í
Reyðarfirði. Nýtt umhverfismat
myndi fara fram samkvæmt gild-
andi reglum og með lögboðnum
frestum. Hún kvaðst ekki geta
sagt fyrir um nú hvenær nýju
umhverfismati vegna álvers Al-
coa lyki. En þýðir þetta að fram-
kvæmda- og starfsleyfi Alcoa séu
fallin úr gildi?
„Nei, ég tel að það þýði það
ekki. Við höfum farið yfir það
með lögfræðingum. Dómurinn
fjallar ekkert um það. Niður-
staðan fjallar ekki um að starfs-
leyfi sé fallið úr gildi. Ég tel að
þetta hafi ekki áhrif á fram-
kvæmdir. Sú var í raun einnig
niðurstaða héraðsdóms, þrátt fyr-
ir að hann byggði niðurstöðu
sína á öðrum rökum.“
Umhverfisráðuneytið sendi frá
sér fréttatilkynningu í gærkvöldi.
Þar segir að með dómi Hæsta-
réttar í gær í máli nr.
20/2005 vegna álvers
í Reyðarfirði sé
fjallað um tvær
ákvarðanir um-
hverfisráðherra. Önn-
ur hafi verið ógilt en
hin staðfest.
Leyfin eru
í gildi
„Með dómnum er
ógiltur úrskurður um-
hverfisráðherra frá
15. apríl 2003 um að
nýtt mat á umhverfis-
áhrifum álversins
þurfi ekki að fara
fram og mun um-
hverfismat því fara fram lögum
samkvæmt.
Forsendur dómsins eru þær að
ekki hafi verið búið að gefa út
starfsleyfi vegna upphaflegra
áætlana um byggingu álvers
Reyðaráls í Reyðarfirði, sem
fyrra umhverfismat fjallaði um. Í
dómnum er ekki fjallað um um-
hverfisáhrif álversins eða mat
Skipulagsstofnunar, sem ráð-
herra staðfesti í úrskurði sínum,
á því hvort þau væru umtalsverð
eins og gert var í dómi héraðs-
dóms.
Niðurstaða dómsins byggist
hins vegar á því að ekki hafi ver-
ið uppfyllt formskilyrði til að
fara eftir ákvæði 6. gr. laga um
mat á umhverfisáhrifum um það
hvort framkvæmd skuli háð um-
hverfismati og því hafi nýtt um-
hverfismat þurft að fara fram.
Ákvörðun umhverfisráðherra
frá 14. júlí 2003, um að vísa frá
kæru Hjörleifs Guttormssonar
vegna útgáfu starfsleyfis Um-
hverfisstofnunar fyrir álver í
Reyðarfirði, var staðfest í Hæsta-
rétti. Taldist hann ekki hafa sýnt
fram á að hann ætti einstaklegra
og verulegra hagsmuna að gæta
um byggingu álversins og því
ætti hann ekki aðild að málinu.
Í dómnum er ekki fjallað um
gildi þeirra leyfa sem veitt hafa
verið fyrir framkvæmdinni en
fyrir liggja ýmis leyfi stjórn-
valda, eins og starfsleyfi Um-
hverfisstofnunar. Leyfin eru því í
gildi.“
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Dómurinn hef-
ur ekki áhrif á
framkvæmdir