Morgunblaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björgvin Bjarna-son, plötu- og ketilsmiður, fæddist í Reykjavík 15. októ- ber 1916. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 2. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Bjarni Sig- tryggur Jónsson, f. í Ási í Rípurhreppi í Skagafirði 28. des- ember 1890, d. 12. apríl 1969, og Ragn- hildur Einarsdóttir, f. í Norður-Vík í Mýr- dal í V-Skaftafellssýslu 9. febrúar 1893, d. 3. ágúst 1973. Systkini Björgvins eru fimm: Einar Val- garð, f. 26. september 1918, d. 12. mars 1993, Ragnar, f. 13. júní 1920, Fjóla Valdís, f. 23. desember 1922, d. 12. mars 1993, Jón, f. 20. júní 1924, d. 2. janúar 1999, og Hólm- fríður Sigríður, f. 19. maí 1928. Fyrir hjónaband átti Björgvin son, Björn Thomsen, f. 6. septem- ber 1938. Börn hans eru Lars Björn, f. 15. janúar 1968, Anders Björn, f. 12. apríl 1969, d. 1. júlí 1997, og Tue Björn, f. 25. desember 1972. Hinn 7. nóvember 1938 kvæntist Björgvin Ingibjörgu Árnadóttur hárgreiðslumeistara, f. 4. septem- ber 1916. Foreldrar hennar voru Árni Björnsson, f. í Höfnum í Vind- hælishreppi í A-Hún. 1. ágúst 1863, d. 26. mars 1932, og Líney Sigur- Pétur, f. 22. maí 1988. 4) Líney, f. 16. febrúar 1949. 5) Guðný, f. 12. mars 1952, gift Antoni Erni Guð- mundssyni, f. 3. desember 1951. Börn þeirra eru Guðmundur Örn, f. 19. mars 1974, Björgvin Örn, f. 2. september 1977, og Sigríður, f. 7. október 1982. 6) Páll, f. 5. septem- ber 1953, kvæntur Áslaugu Þor- móðsdóttur, f. 14. mars 1953. Börn þeirra eru Þormóður Ingi, f. 8. des- ember 1975, og Steinunn Björk, f. 3. júlí 1985. Björgvin ólst upp í föðurhúsum, lengst af á Skólavörðustíg 27, Framnesvegi 13, og í Hamarshús- inu við Norðurstíg í Reykjarvík. Hann nam plötu- og ketilsmíði í Vélsmiðjunni Hamri og í Iðnskól- anum í Reykjavík og starfaði í Hamri til ársins 1944. Þar hafði Björgvin meðal annars þann starfa að gera við skip sem sigldu í skipa- lestunum á milli Evrópu og Banda- ríkjanna. Bjarni, faðir Björgvins, var þá yfirverkstjóri í Hamri og sendi hann son sinn út í skipin sem lágu í þurrkvínni í Hvalfirði. Árið 1944 hóf Björgvin störf hjá Lands- smiðjunni í Reykjavík. Á vegum Landssmiðjunnar stjórnaði Björg- vin uppsetningum á síldarmjöls- verksmiðjum og virkjunum víða um landið til ársins 1966, en það ár hóf hann störf hjá Kópavogsbæ, þar sem hann tók m.a. þátt í að stofnsetja Vinnuskólann og Birgðastöð bæjarins. Hann starf- aði síðan hjá Kópavogsbæ allt til starfsloka, árið 1986. Björgvin var einn af stofnendum glímudeildar Breiðabliks og var formaður deildarinnar um árabil. Björgvin verður jarðsunginn frá Digraneskirkju í dag hefst athöfn- in klukkan 13. jónsdóttir, f. á Laxa- mýri í Reykjahreppi í S-Þing. 6. október 1873, d. 8. október 1953. Björgvin og Ingi- björg stofnuðu heimili á Skólavörðustíg 27 í Reykjavík. Foreldrar Björgvins, Bjarni og Ragnhildur, voru með- al frumbyggja í Kópa- vogi og börn þeirra öll settust þar að þegar bærinn var enn sumarbústaðabyggð. Björgvin og Ingibjörg byggðu sér hús, Hlíðarveg 33, sem í dag er Hlíðarvegur 57 og ólu þar upp börnin sín 6 frá árinu 1953. Börn þeirra eru: 1) Árni, f. 10. mars 1939. Dóttir hans er Jónína Ingibjörg, f. 6. sept. 1957. Árna er kvæntur Jennýju Bergljótu Sig- mundsdóttur, f. 8. maí 1940. Fósturbörn Árna eru Soffía Mich- iko Gústafsdóttir, f. 8. maí 1960, Silvía Bergljót Gústafsdóttir, f. 22. febrúar 1963, og Davíð Örn Guð- jónsson, f. 29. maí 1977. 2) Ragn- hildur, f. 11. júlí 1942, gift Stein- grími Bjarna Björnssyni, f. 5. maí 1928. Börn þeirra eru Björn, f. 6. nóvember 1962, og Ingibjörg Lí- ney, f. 27. mars 1968. 3) Bjarni, f. 16. desember 1946, kvæntur Láru Magnúsdóttur, f. 11. nóvember 1952. Börn þeirra eru Björgvin, f. 25. desember 1972, Sigurlaug Helga, f. 29. júní 1975, og Stefán Elskulegi faðir minn, nú ert þú bú- inn að fá hvíldina og kominn yfir móðuna miklu. Himneski faðir okkar hefur tekið á móti þér. Þú varst yndislegur faðir og sterk- ur persónuleiki. Stutt var alltaf í glettnina hjá þér. Þú varst mikið náttúrubarn og veiðiferðirnar þínar á sumrin í Ölfusá voru þér ómetanleg- ar. Þangað fóruð þið mamma oft sam- an og áttuð góðar stundir. Þakka þér allar okkar samverustundir, pabbi minn. Nú ert þú Guði falinn og líður vel. Elsku móðir mín, Guð styrki þig og verndi. Ragnhildur Björgvinsdóttir. Tengdafaðir minn Björgvin Bjarnason er fallinn frá eftir langa og farsæla ævi. Komið að leiðarlokum og hinstu kveðjustund. Í hugann koma margar hlýjar og góðar minningar allt frá fyrstu kynn- um. Glaður og brosmildur tók hann ávallt á móti mér og sýndi mikinn áhuga á hugðarefnum mínum. Hann var jákvæður og æðrulaus í eðli sínu, svolítið stríðinn og skein þá glettnin ávallt úr augum hans, þægilegur í framkomu og velviljaður í garð ann- arra. Laxveiðar voru hans yndi og helsta áhugamál. Margar voru ferðirnar farnar í litla veiðikofann við ána. Þar átti hann sér ljúfar stundir með veiði- stönginni sem dró til sín vænan fisk og ekki var það leiðinlegt að fá að njóta aflans með honum. Ingibjörg og Björgvin voru afar samhent hjón. Oft datt mér í hug þegar við fyrirvaralaust kíktum í heimsókn að þau hlytu að eiga sér töfrasprota, slíkar voru kræsingarn- ar sem þau framreiddu á engri stundu. Ógleymanleg er stund sem við móðir mín heitin og systir áttum með þeim í sumarhúsi í Munaðarnesi en þar höfðu þau dvalið í nokkra daga. Við mæðgurnar höfðum verið að þvælast um Borgarfjörðinn í sunnu- dagsbíltúr og var komið að kveldi, við ætluðum aðeins að heilsa upp á þau áður en við brunuðum í bæinn en eins og alltaf var töfrasprotinn komin á fleygiferð og ekki við það komandi annað en að stoppa í dágóða stund. Alsælar og óþreyttar héldum við út í sumarnóttina heim á leið eftir dýr- mæta samverustund sem móðir mín og systir þreyttust aldrei á að rifja upp. Þannig voru Björgvin og Ingi- björg, ávallt hlý og höfðingjar heim að sækja hvort sem það var á Hlíðar- veginum eða að heiman. Fyrir rúmu ári síðan tók heilsu Björgvins að hraka og í kjölfar þess dvaldi hann á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Það var aðdáunarvert hvernig hann tók þessum erfiðu um- skiptum að þurfa að dvelja fjarri Boggu sinni og heimili en með æðru- leysi sínu sýndi hann sína sterku skapgerð og tók okkur fagnandi og jákvæður er við komum til hans og gerði um leið okkur hinum allt létt- ara. Hugurinn var þó ávallt hjá Boggu sinni. Ég kveð Björgvin tengdaföður minn með þakklæti, bið góðan guð að styrkja og blessa elskulega tengda- móður mína og alla hans nánustu. Jenny. Með virðingu og eftirsjá kveð ég vin minn, tengdaföður og veiðifélaga Björgvin Bjarnason. Ég var svo lán- samur að fá hann sem tengdaföður fyrir rúmum 30 árum þegar ég giftist Guðnýju dóttur hans. Urðum við snemma góðir félagar sem áttu sam- eiginlegt áhugamál: Við vorum báðir með veiðidelluna. Efst í huga mínum eru allar veiðiferðirnar okkar við Ölfusá og hinar ýmsu ár og vötn víða um landið, þar áttum við margar góð- ar stundir saman. Hann hafði alveg sérstaklega góða frásagnarhæfileika, þegar glettið bros kom á varir hans kom alltaf góð saga á eftir, ýmist skemmtisaga eða fróðleikur því hann var hafsjór af fróðleik. Þessar stundir geymi ég til minningar um góðan vin. Þegar við hjónin ákváðum að byggja okkur hús þá mjög ung og óreynd hvatti hann okkur áfram með elju atorkumannsins: Bara byrja, þetta klárast að lokum, hálfnað verk þá hafið er. Þetta lýsir vel hve bjart- sýnn hann var og erum við honum ævinlega þakklát. Á heimili þeirra hjóna Björgvins og Ingibjargar á Hlíðarvegi 57 í Kópavogi var gott að koma og njóta nærveru þeirra, hlýhugar og gest- risni. Síðasta eitt og hálfa árið dvaldi Björgvin á Sunnuhlíð í Kópavogi. Þar áttum við saman góðar stundir. Starfsfólki Sunnuhlíðar þakka ég fyr- ir góða umönnun og sendi þeim hlýj- ar kveðjur. Kveðjustundin er alltaf sár, þegar lagt er upp í ferðina miklu yfir landa- mæri lífs og dauða. Björgvini fylgja góðar fyrirbænir og þakklæti vanda- manna og vina. Öll eigum við þessa ferð fyrir höndum og þá ber okkur til sama lands. Þar munum við hittast að nýju og gleðjast við þá endurfundi. En þangað til yljum við okkur við góðar minningar um ljúfan mann. Ingibjörgu, börnum hennar, fjöl- skyldum þeirra og systkinum Björg- vins sendi ég og fjölskylda mín inni- legar samúðarkveðjur. Guð geymi þig kæri vinur. Anton Örn Guðmundsson. BJÖRGVIN BJARNASON LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og barnabarnabarn, KRISTÓFER BIRGIR ÓLAFSSON, Rørmose 71, Roskilde, Danmörku, lést af slysförum laugardaginn 4. júní sl. í Danmörku. Hann verður jarðsettur í Øster- kirkegård í Danmörku föstudaginn 10. júní. Kolbrún Björnsdóttir, Ólafur Birgisson, Alexandra Líf, Ronja Sigrún Tryggvadóttir, Björn Jóhannsson, Elín Þorbergsdóttir, Birgir Þormóðsson, Svava Hjögaard, Þorbergur Skagfjörð og aðrir aðstandendur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SIGURJÓNSSON f. 8. september 1913, lést á heimili sínu, Hvammi, dvalarheimili aldraðra á Húsavík, aðfaranótt föstudagsins 3. júní. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugar- daginn 11. júní kl. 14:00. Jósep Sigurðsson, Guðrún Árný Guðmundsdóttir. Sigurjón Sigurðsson, Elín Hildur Jónsdóttir, Örn Sigurðsson, Sólveig Guðmundsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengda- föður afa og langafa, KRISTJÁNS ÞORLEIFSSONAR, Hrauntungu 20, Hafnarfirði. Arndís Jónasdóttir, Þorleifur Kristjánsson, Hlíðar Kristjánsson, Björk Arnardóttir, Fjóla Kristjánsdóttir, Jón Tryggvi Jóhannsson, Jónas Sigurðsson, Elísabet Óladóttir, Stefanía Sigurðardóttir, Snorri Rafn Snorrason, Kristrún Ásta Sigurðardóttir, Snorri Þórsson, Bjarni Sigurðsson, Helga Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Maðurinn minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, VIKAR DAVÍÐSSON, Hátúni 8, Reykjavík, lést í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, mánudag- inn 6. júní. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 15. júní kl. 15. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á Hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar. Ólína Sæmundsdóttir, Davíð Vikarsson, Magnea Jónasdóttir, Andrea Vikarsdóttir, Óskar Ævarsson, Hrafn Þór Hákonarson, Snjólaug Soffía Óskarsdóttir, afabörn og langafabörn. Kæri bróðir okkar, KRISTINN SIGURÐUR HELGI JÓHANNESSON, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi mánu- daginn 23. maí síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fanney Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Benedikt Jóhannesson, og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.