Morgunblaðið - 18.09.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 29
Veiði horn ið - Hafn ar stræti 5 - sími 551 6760 • www.vei di horn id.is • Veiði horn ið - Síðu múla 8 - sími 568 8410
Mun ið gjafa bréf in Send um sam dæg urs
Útsalan er einnig í veiðibúðinni
á netinu – veidihornid.is
g
Neopren vöðlur aðeins frá 7.995
Öndunarvöðlur aðeins frá 12.995
Vatnsheldir veiðijakkar með öndun aðeins frá 7.995
Veiðivesti frá 1.995
Þýsku kasthjólin frá DAM. Aðeins frá 1.795
Okuma kasthjól frá 1.795
Fluguhjól með diskabremsu aðeins frá 2.995
Skotlínur aðeins frá 3.495
Vöðluskór aðeins frá 6.995
Veiðitöskur frá 1.195
Veiðikassar frá 995
Flugustangir aðeins frá 5.395
Kaststangir aðeins frá 1.995
Vandaðir stangarhólkar aðeins 995
Tvíhendusett með hjóli og skotlínu aðeins 29.900
Allir Ron Thompson og DAM spúnar 195 kr. stk.
Allt girni með 50% afslætti
Lítið notaðar leiguvöðlur sumarsins á 5.000 krónur
Misstu ekki af haustútsölu Veiðihornsins
Nýtt kortatímabil
ÚTSALA
Haustútsala Veiðihornsins í fullum gangi - Nú er tíminn til að kaupa jólagjafirnar
Opið í dag frá kl. 12-16
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
Sterkur acidophilus
Hvanneyrarkirkja 100 ára
Hvanneyrarkirkja er 100 ára um þessar
mundir. Af því tilefni auglýsir sóknarnefnd
og sóknarprestur eftir gömlum myndum af
kirkjunni sem fólk kynni að eiga í fórum
sínum. Sömuleiðis eftir myndum af
athöfnum í kirkjunni.
Þeir sem gætu lagt þessu erindi lið eru
vinsamlegast beðnir um, að hafa samband
við sóknarprest í síma 846 2020 eða
Ingibjörgu Jónasdóttur í síma 437 0078.
Reykjavík þar sem allt snýst um
neyslu og að græða peninga. Persón-
ur hennar er fólk sem myndi til dæm-
is seint koma í Séð og heyrt. Eins og
ég sagði lagði ég handritið til hliðar
um stund vegna þess að hún gæti
virst dýr mynd í framleiðslu. Ég er
samt á því að það eigi að vera hægt að
gera hana tiltölulega ódýrt, enda er
tækniþróunin svo ör að það verður sí-
fellt ódýrara að gera myndir.“
Hallgrímur er þeirrar hyggju að
stór gloppa sé í gerð efnis fyrir sjón-
varp.
„Mér finnst sárlega vanta að hér
séu gerðar leiknar sjónvarpsmyndir
sem byggjast á sæmilega unnum
handritum og snúast kannski ekki síst
um ríkidæmi „venjulegs fólks“. Ég er
til dæmis hrifinn af þeim sjónvarps-
verkum sem breska leikskáldið
Stephen Poliakoff hefur skrifað fyrir
BBC og byggjast á innihaldsríkum
handritum og nánd við persónurnar.
Og þar þarf hvorki kynlíf né ofbeldi til
að halda manni við efnið. Það eina
sem okkur er boðið upp á hér núna er
hins vegar einhver menntaskólahúm-
or og amerískar eftirapanir. En við
verðum að reyna að gera eitthvað sem
sækir í raunverulegt líf þjóðarinnar,
enda er af alveg nógu að taka þar.“
Næringin af ólíku fólki
Hallgrímur las bókmenntir hér
heima og í Þýskalandi á sínum tíma,
og hefur síðan auk ritstarfa unnið „við
bókstaflega allt sem nöfnum tjáir að
nefna,“ segir hann. „Ég hef líka starf-
að svolítið í leikhúsi og svo kenndi ég
til dæmis einu sinni úti á landi. Það
var á Borgarfirði eystra, og þar leyst-
ist kennslan iðulega upp í að skrifa
leikþætti og fá krakkana til að leika.
Ég vann t.d. litla leikgerð upp úr
barnabókum Henriks Ottóssonar um
Gvend Jóns, sem gerast upp úr alda-
mótunum 1900. Og það var mjög
magnað að sjá hvernig tíu ára strákar
austur á Borgarfirði, sem voru að
hlusta á Metallica og spila tölvuleiki,
fóru létt með að leika aldamótastráka
í Reykjavík í hnébuxum og með six-
pensara, og það svo vel að manni
fannst að betur yrði naumast gert. Þá
sá maður hvað fólk er alls staðar
drjúgt. Að vísu eru Borgfirðingar
frægir frá fornu fari fyrir menningar-
starfsemi og frumkvæði. Við endur-
vöktum líka leikfélagið á staðnum,
Vöku, sem hafði sofið í nokkur ár. Við
settum upp Hart í bak eftir Jökul
Jakobsson og fengum svo skip frá
Landhelgisgæslunni til að ferja okkur
með leikritið yfir á næstu firði og
sýndum það þar.
En ég vinn semsé við allan fjand-
ann. Stundum dett ég inn í blaða-
mennsku, stundum þýðingar og
stundum föst störf. Það hefur aldrei
hvarflað að mér að geta lifað ein-
göngu af því að skrifa og ég er heldur
ekki viss um að ég kysi það. Ég nærist
mikið á því að kynnast alls kyns fólki
og vera í öðruvísi umhverfi en því sem
ég bý mér til sjálfur.“
pallkristinn@internet.is
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn