Morgunblaðið - 12.10.2005, Side 5

Morgunblaðið - 12.10.2005, Side 5
Rjúpnaveiðar hefjast að nýju þann 15. október n.k eftir tveggja ára veiðibann. Sem kunnugt er var Skotveiðifélag Íslands andsnúið algjöru veiðibanni á rjúpu. Barðist félagið ötullega fyrir því að rjúpnaveiðibanninu yrði aflétt. Benti félagið á að nær væri að grípa til marktækrar veiðistjórnunar til lengri tíma fremur en algjörs rjúpnaveiðibanns. Færði SKOTVÍS margháttuð rök máli sínu til stuðnings. Óhætt er að fullyrða að alþingismenn og umhverfisráðherra hafi tekið mark á markvissum rökum SKOTVÍS, þar sem rjúpnaveiðar hefjast nú að nýju, þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir að veiðarnar hæfust ekki aftur fyrr en haustið 2006. Íslenskir skotveiðimenn geta því, að verulegu leyti, þakkað það baráttu SKOTVÍS að rjúpnaveiðar hefjast nú, laugardaginn 15. október. SKOTVÍS hafnar því ekki að brýnt hafi verið að grípa til einhverra verndaraðgerða þar sem íslenski rjúpnastofninn hefur minnkað talsvert undanfarin ár, eða u.þ.b. um 4% á ári. Ekki liggja fyrir neinar einhlítar skýringar á þessum samdrætti í rjúpnastofninum. Ýmsar ástæður geta þó verið fyrir því, eins og breytingar á veðurfari og gróðri og einhverjar óþekktar ástæður í stofninum sjálfum. Vissulega geta veiðar haft einhver áhrif á þessa minnkun í rjúpnastofninum, en SKOTVÍS telur að veiðarnar séu ekki afgerandi þáttur fækkunarinnar. Þess má geta að sænski fuglafræðingurinn Tomas Willebrand er sammála skoðunum SKOTVÍS í þessum efnum. Dr. Willebrand er einnig sammála SKOTVÍS um að ekki hafi verið nauðsynlegt að grípa til algjörs rjúpnaveiðibanns. SKOTVÍS telur þó að rétt sé að grípa til aðgerða til að draga úr veiðum á rjúpu á meðan verið er að byggja stofninn upp. SKOTVÍS er sammála umhverfisráðherra um þær aðferðir sem nú verður gripið til þ.e.a.s. að bannað verði að selja rjúpur á almennum markaði, í verslunum og á veitingahúsum. Rjúpnaveiðitíminn verður styttur um 3 vikur. Bannað verður að ferðast með skotvopn á vélsleðum, fjórhjólum og sexhjólum. Þessar aðgerðir munu án efa draga talsvert úr veiðum á rjúpu. Þessar aðgerðir miða fyrst og fremst að því að draga úr magnveiðum á rjúpu, eða svokölluðum græðgisveiðum. Mestu máli skiptir þó að rjúpnaveiðimenn gæti hófs við veiðarnar og veiði aðeins fyrir sig og fjölskyldu sína. SKOTVÍS telur ekki raunhæft að nefna neinar tölur í því sambandi. Í siðareglum SKOTVÍS segir m.a: Veiðimaður telur fjölda dýra ekki mælikvarða á góðan veiðimann eða vel heppnaðan veiðidag. Rjúpnaveiðimenn, til hamingju! 15. október 2005 Eftirtalin fyrirtæki heita á íslenska rjúpnaveiðimenn að gæta hófs við veiðarnar, ganga vel um íslenska náttúru, aka ekki utan vega og hirða notuð skothylki sín og annarra. Veiðimenn eru minntir á að gæta fyllstu varúðar við veiðarnar, hafa með sér öryggistæki eins og áttavita og / eða GPS tæki og láta vita um ferðir sínar. Landsamtök um skynsamlega skotveiði www.skotvis.is – Sími 893 4574 Þá er veiðidagur góður þegar hóflega er veitt, með talsverðri líkamlegri áreynslu, vakandi náttúruskyni og sært dýr liggi ekki eftir að kveldi. Góður veiðimaður stærir sig ekki af feng sínum og keppir ekki við aðra um fjölda veiddra dýra. Skotveiðifélag Íslands skorar á alla íslenska veiðimenn að gæta hófs við veiðarnar nú í haust. Skotveiðifélag Íslands vill þakka öllum þeim sem félagið hefur átt samskipti við undanfarin tvö ár á meðan á veiðibanninu hefur staðið. Félagið vill nota tækifærið og nefna nokkra aðila í þessu sambandi og þá fyrst og fremst umhverfisráðherra, Sigríði Önnu Þórðardóttur, þingmennina Gunnar Birgisson, Mörð Árnason og Birki J. Jónsson. Þá viljum við einnig þakka Áka Ármanni Jónssyni og starfsfólki hans hjá veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar, fuglafræðingunum dr. Ólafi K. Nielsen og Kristni Hauki Skarphéðinssyni hjá Náttúrufræðistofnun. Einnig viljum við þakka starfsfólki Umhverfisráðuneytisins, Ingimari Sigurðssyni skrifstofustjóra. Þá viljum við færa Umhverfisnefnd Alþingis þakkir fyrir farsællega afgreiðslu þessa máls; sérstaklega formanni nefndarinnar Guðlaugi Þór Þórðarsyni, alþingismanni. Við viljum nota tækifærið og þakka dýrmætan stuðning OLÍS, Helgu Friðriksdóttur framkvæmdastjóra. Við viljum hvetja íslenska skotveiðimenn til að ganga í Skotveiðifélag Íslands, sem eru einu landssamtök skotveiðimanna. SKOTVÍS berst fyrir hagsmunum íslenskra skotveiðimanna og innir af hendi öflugt fræðslustarf. Eins og reynsla okkar undanfarin tvö ár sýnir, þá hefur aldrei verið brýnna að til séu öflug samtök skotveiðimanna. Besta tryggingin fyrir því að við getum stundað skotveiðar í íslenskri náttúru um ókomin ár er því að efla Skotveiðifélag Íslands með því að skotveiðimenn gangi í félagið, t.d. á vefsíðu okkar, www.skotvis.is eða í síma 893 4574. w w w .d es ig n .is © 20 05

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.