Morgunblaðið - 12.10.2005, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atvinnuástandið aðundanförnu hefureinkennst af nægu
framboði atvinnu og litlu
atvinnuleysi, svipar það því
að miklu leyti til þess
ástands sem ríkti á árun-
um 1999–2000. Því hefur
fólk almennt getað valið
um hvar það vill starfa
enda eftirspurn eftir
starfsfólki umfram fram-
boð. Miklar hræringar
verða gjarnan í lok sumars
og í haustbyrjun þegar skólarnir
hefjast og ungt fólk, sem starfað
hefur við sumarafleysingar, hverf-
ur inn í skólana. Viðmælendur
Morgunblaðsins eru almennt sam-
mála um að erfiðara hefur verið að
manna m.a. slíkar stöður í haust en
undanfarin ár sökum ástandsins á
vinnumarkaði. Því hafa sum fyrir-
tæki gripið til ýmissa ráða til þess
að fá fólk inn til þess að manna
lausar stöður.
Fá gefins iPod
Hjá 10–11 verslununum var
iPod tónhlaða notuð sem hvati til
þess að laða að starfsmenn, en þeir
sem réðu sig til starfa fá slíkan grip
ef þeir starfa áfram næstu fjóra
mánuði. Þeir starfsmenn 10–11
sem höfðu unnið í 6 mánuði eða
lengur fengu einnig gefins iPod ef
þeir gátu bent á einhverja sem
urðu svo ráðnir. Átakið stóð frá
miðjum ágúst og út september og
að sögn Magnúsar Árnasonar,
starfsmannastjóra 10–11, má rekja
um 40 ráðningar beint til átaksins.
Hann bendir á að september sé al-
mennt slæmur mánuður þegar það
kemur að ráðningum en ástandið
hafi þó verið með strembnara móti
í ár. Hann segist finna fyrir því að
fólk horfi mjög á krónutöluna og
hverfi jafnvel fljótt af vettvangi ef
það viti til þess að það geti unnið
sér inn 5.000 kr. meira annars stað-
ar.
Aðspurður segir hann eðlilegt að
eldri starfsmenn verði sárir yfir því
að þeir fái ekkert fyrir sinn snúð,
nema þeir geti fengið nýtt fólk inn í
fyrirtækið eins og áður sagði.
Hann segir ástandið hafa verið
með þeim hætti í ágúst/september
að það hafi þurft að bregða á það
ráð að hafa einhvern hvata til þess
að manna lausar stöður hjá versl-
ununum. Það hafi tekist ágætlega
til og ástandið hafi lagast núna.
Erlent vinnuafl á McDonalds
Björn Ingimarsson, starfs-
mannastjóri McDonalds, tekur í
sama streng og Magnús varðandi
erfitt ástand í ágúst og september.
Hann segir ástandið reyndar enn
vera mjög erfitt og því hafi hann
neyðst til að ráða hingað erlent
vinnuafl til að vinna á stöðunum.
Hann segist sérstaklega vera að
leita eftir fólki í fullt starf og að-
spurður segir hann erlendu starfs-
mennina ekki vinna við afgreiðslu
því nauðsynlegt sé að starfsmenn-
irnir tali íslensku. Um er að ræða
fjóra Pólverja og fjóra Portúgala
en fyrirtækið sér um að útvega
þeim íslenskukennslu. Hann segir
oft hart barist um starfsfólk og
segist vita til þess að ýmsir at-
vinnurekendur séu að bjóða krökk-
um ýmis kaup og kjör sem stand-
ast svo ekki. „Við höfum verið að fá
krakka í hlutastörf sem hreinlega
hafa verið sviknir,“ segir Björn.
Hann segir að hjá McDonalds sé
greiddur 20% dagvinnubónus til
viðbótar dagvinnunni. Auk þess sé
greiddur sérstakur mætingarbón-
us til þess að umbuna fólki sem
mætir vel. „Við erum búnir að vera
með þetta í nokkurn tíma. Það hef-
ur virkað hjá okkur og fólk metur
þetta,“ segir Björn. Hann segir
fyrirtækið vera með hvatakerfi þar
sem starfsmenn fái greiddar 25
þúsund kr. ef þeir geta fengið ein-
stakling í fullt starf sem síðan verði
í starfinu næstu sex mánuðina.
Óvenju mikið auglýst
Hjá Pizza Hut hefur verið
óvenju mikið auglýst eftir starfs-
fólki að undanförnu en þar á bæ er
sérstaklega óskað eftir fólki í fullt
starf. Að auki skal fólkið vera eldra
en 20 ára. Að sögn Þórdísar Lóu
Þórhallsdóttur, framkvæmda-
stjóra Pizza Hut, hafa ráðningar
gengið ágætlega miðað við ástand-
ið á vinnumarkaðnum. „Það er
varla hægt að líkja þessu við
ástandið í fyrra. Það er miklu erf-
iðara að ná í fólk í dag,“ segir Þór-
dís. Hún telur að það gangi betur
að manna stöður hjá veitingahús-
um líkt og Pizza Hut heldur en hjá
skyndibitastöðum eða verslunum.
„En haustið var þungt. Það verður
ekkert af því skafið,“ segir Þórdís.
Hún segir lítið mál að fá starfsfólk í
hlutastörf en erfiðara að fá fólk í
fullt starf.
Ólafur Árnason, starfsmanna-
stjóri Kaupáss sem er m.a. með
11–11 verslanirnar, Krónuna og
Nóatún, segir ástandið hafa batnað
mikið á undanförnum vikum.
Skólakrakkarnir hafi áttað sig á
því að þeir geti unnið nokkrar
aukastundir á dag með skólanum.
Aðspurður segir hann ljóst að
ástandið sé með öðrum hætti mið-
að við í fyrra en í ár hafi t.a.m. mun
færri starfsumsóknir borist fyrir-
tækinu. Því hafi verið meira aug-
lýst og meira reynt að koma til
móts við starfsfólk, t.d. hvað vinnu-
tíma varðar o.fl.
Fréttaskýring | Nægt atvinnuframboð
erfitt atvinnurekendum
„Erfiðara að
ná í fólk í dag“
Fyrirtæki hafa brugðið á ýmis ráð í
haust til þess að laða til sín starfsfólk
iPod leiddi til 40 ráðninga í verslunum 10–11.
Bjóða í eigin starfsmenn til
þess að halda þeim
Að sögn Maríu Jónasdóttur,
framkvæmdastjóra Ráðning-
arþjónustunnar, hefur verið tölu-
verður skortur á fólki í versl-
unarstörf og í lægra launuð
störf. Í flestum tilvikum fáist þó
fólk til að manna flest störfin.
Hún segir mikla hreyfingu vera
á vinnumarkaðinum og dæmi séu
um að fyrirtæki hafi boðið í
starfsmenn ef þeir hafi hugsað
sér til hreyfings og/eða fengið
betra tilboð hjá öðru fyrirtæki.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst
í Laugardalshöllinni í Reykjavík kl. 17.00
á morgun, fimmtudaginn 13. október.
Á setningarfundinum leikur Sinfóníuhljómsveit
Íslands undir stjórn Kurts Kopeckys og
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
flytur ræðu.
Allt sjálfstæðisfólk er velkomið og hvatt til að
mæta við fundarsetninguna.
Sjálfstæðisflokkurinn.
36. landsfundur Sjálfstæðisflokksins
Laugardalshöll
13. – 16. október 2005
STÚLKNAFLOKKURINN Nylon afhenti í gærmorgun
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna tæplega hálfa
milljón króna sem safnast hefur með sölu vinabanda
sem flokkurinn lét framleiða í byrjun sumars í sam-
starfi við Fanta og Select. Stúlkurnar tóku lagið víðs-
vegar um landið í sumar til að kynna þetta framtak og
að sögn Ölmu Guðmundsdóttur úr Nylon hafa viðtökur
farið fram úr björtustu vonum því alls hafa selst tæp-
lega 900 bönd til dagsins í dag.
„Við erum í skýjunum með þetta og yfir að geta af-
hent svona stóra upphæð til þessa framtaks. Við erum
mjög stoltar af þessu,“ sagði Alma. Hún bætti við að
vegna þess hve vel hefur gengið hefur verið ákveðið að
framlengja sölutíma bandanna um hálfan mánuð svo
þeir sem ekki hafi náð sér í vinaband hafi enn tækifæri
til þess.
Morgunblaðið/Ásdís
Alma Guðmundsdóttir, Klara Ósk Elíasdóttir, Steinunn Þóra C. Sigurðardóttir og Emilía Björg Óskarsdóttir úr
Nylon afhenda Rósu Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, ávísunina.
Nylon afhendir ágóða
af sölu vinabanda