Morgunblaðið - 12.10.2005, Side 19

Morgunblaðið - 12.10.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 19 ERLENT Karlar, konur og ofbeldi Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Málþing í tilefni af norrænu rannsóknaverkefni á Grand Hótel Hvammi fimmtudaginn 13. október. Dagskrá Kl. 8:45-9:00 Morgunverður Kl. 9:00-9:15 Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri Jafnréttisstofu: Norræna rannsóknaverkefnið Kyn og ofbeldi. Kl. 9:15-10:15 Peter Edward Gill, prófessor við Háskólann í Gävle í Svíþjóð: „Gender Experiences and the Scripting of Androgynous Violence.“ Kl. 10:15-10:30 Kaffihlé. Kl. 10:30-11:00 Jónína Einarsdóttir, lektor í mannfræði við Háskóla Íslands: „Það mælti mín móðir ...“ Ofbeldi gegn börnum á Íslandi í ljósi sögunnar. Kl. 11:00-11:30 Freydís Jóna Freysteinsdóttir, lektor í félagsráððgjöf við Háskóla Íslands: Börn sem hafa orðið vitni að ofbeldi milli foreldra: Niðurstöður íslenskrar rannsóknar. Kl. 11:30-12:00 Guðrún Agnarsdóttir, læknir: Kynferðisofbeldi - meinvættur ungra kvenna? Fundarstjóri er Hans Kristján Guðmundsson, forstöðumaður Rannís. NÍTJÁN manns voru handteknir eftir áhlaup lögreglu í London og Lincolnshire á Englandi í gærmorg- un. Hér var um að ræða lið í herferð til að stemma stigu við meintu smygli á tyrkneskum Kúrdum til Bretlands. Þetta er ein viðamesta lögregluaðgerð af þessu tagi í Bret- landi í langan tíma, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisút- varpsins, BBC. Talið er að um 200 þúsund ólögleg- ir innflytjendur hafi komist inn í Bretland á undanförnum misserum með aðstoð smyglhrings, sem lög- reglan gerir sér nú vonir um að hafa upprætt. Átta af þeim sem hand- teknir voru eru taldir hafa átt aðild að því að aðstoða fólkið við að komast með ólöglegum hætti inn í landið. Arðbær starfsemi Með þessum aðgerðum telur lög- reglan sig hafa náð að rjúfa skarð í smyglhringinn, sem sagður er teygja anga sína víða um Evrópu. Auk bresku lögreglunnar tóku lögreglu- menn frá fimm Evrópulöndum: Ítal- íu, Hollandi, Frakklandi, Belgíu og Danmörku, þátt í aðgerðinni. Smygl- hringurinn er talinn hafa flutt fólk til Bretlands í mörgum hópum, um það bil 20 manns í hverjum hópi. Smygl á fólki frá þróunarlöndum, Austur-Evrópu og arabaríkjum til landa í Vestur-Evrópu, einkum til Bretlands, færist stöðugt í vöxt enda um arðbæra starfsemi að ræða, sem jafnvel er talin gefa meira af sér en eiturlyfjasmygl. Ólöglegir innflytj- endur frá hinum kúrdíska hluta Tyrklands greiða til dæmis milli 3.000 og 5.000 sterlingspund, (um 320 þúsund til 540 þúsund krónur) fyrir ferðalagið, sem oft tekur marga mánuði, að sögn lögreglu. Eftir komuna til Bretlands safnast þetta fólk yfirleitt saman í tyrkneska samfélaginu í Norður-London, vinn- ur láglaunavinnu eða stundar svarta- markaðsbrask og lendir oft í útistöð- um við yfirvöld vegna glæpsamlegs athæfis. Þeir sem stjórna aðgerðum eru hins vegar taldir græða á tá og fingri. Er jafnvel talað um milljónir sterlingspunda í því sambandi, en gróðann hafa þeir meðal annars not- að til að fjárfesta í ýmsum löglegum viðskiptum, svo sem rekstri veitinga- húsa og keilusala, svo eitthvað sé nefnt. Nítján handteknir í áhlaupi lögreglu Reuters Lögreglumenn í London handtaka einn af nítján mönnum sem handsam- aðir voru í aðgerðum gegn smygli á tyrkneskum Kúrdum til Bretlands. Hertar aðgerðir gegn smygli á fólki til Bretlands Peking. AP, AFP. | Kínverjar hugðust skjóta mönnuðu geimfari á loft í nótt og er gert ráð fyrir því að það verði á braut um jörðu í fimm daga. Þetta er í annað sinn sem Kínverj- ar senda menn í geiminn. Kína varð þriðja landið á eftir Bandaríkjunum og Sovétríkjunum til að senda mann í geiminn fyrir tveimur árum. Sú ferð stóð aðeins í tæpar 22 klukku- stundir. Geimferðin sem átti að hefjast í nótt er metnaðarfyllri. Hún átti að hefjast frá geimskotamiðstöð á Góbí-eyðimörkinni í norðvesturhluta Kína. Kínverska ríkissjónvarpið til- kynnti að það hygðist sýna geim- skotið í beinni útsendingu og bendir það til þess að kínversk yfirvöld telji víst að ekkert fari úrskeiðis. Kínverska fréttastofan Xinhua sagði að erlendum fjölmiðlum yrði gert kleift að fylgjast með allri ferð- inni í beinni útsendingu. Geimferð- inni fyrir tveimur árum var ekki sjónvarpað beint. Tveir menn verða í geimfarinu og fregnir herma að þeir eigi að fara úr geimbúningunum, sem vega tíu kíló, og vera í tveimur hlutum geimfars- ins, heimfararhylki og brautarhylki sem verður eftir á braut um jörðu þegar geimfararnir snúa aftur til jarðar.  /          ( 8 5 ,75 P"& : &< 545K" 5K OQ.." 5K 7, ! /        ! "  ! #  $ %% &"! '""   "(  6B 0 - / 0 / ) ) 3  C #- D$% #- =, #- #-; 'G$) @ N  ) ! $$ @ .1    $ -/ $6   2) 3    ,,  0    C  , $ # % $%   ,  $  -   ,     E $  F   ,F  , ">  !- / $ .-$R < -/   ;  >$-  !- /$$ 1 ' / 2) ;  - / 1/ $ ?) Kínverjar senda menn í geiminn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.