Morgunblaðið - 12.10.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 12.10.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 21 MINNSTAÐUR Mörgu að sinna | María Stein- grímsdóttir, lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri, flytur erindi sem hún kallar: Margt er að læra og mörgu að sinna, á fræðslufundi skólaþróunarsviðs kennaradeildar í dag, miðvikudag. Hún gerir grein fyrir rannsókn sinni á upplifun ný- brautskráðra grunnskólakennara á fyrsta starfsári á starfi sínu og að- stæðum. Fundurinn verður í stofu 14 í húsnæði kennaradeildar, Þingvall- astræti 23, og hefst kl. 17. Geðheilbrigði | Sigursteinn Más- son flytur erindi í dag um skóla- stefnu í geðheilbrigðismálum kl. 16.30 í dag á Sólborg. Í erindi sínu ræðir hann um for- varnir og viðbrögð við veikindum nemenda og kennara í menntastofn- unum. Einnig fjallar hann um áfeng- isveitingar tengdar félagslífi skóla- fólks. UM 45 starfsmenn Slippsins Ak- ureyri ehf. mættu til starfa í gær- morgun og þar með hófst starfsemi að nýju á athafnasvæði Slippstöðv- arinnar, sem lýst var gjaldþrota í síðustu viku. Þetta er tæplega helmingur þeirra starfsmanna sem misstu vinnuna í byrjun síðustu viku. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu gær, hefur Slippurinn Akureyri ehf. gert samning við skiptastjóra þrotabús Slippstöðvar- innar um leigu á húsnæði, vélum og tækjum og jafnframt yfirtekið leigusamning á upptökumannvirkj- um á svæðinu, sem eru í eigu Hafnasamlags Norðurlands. Þeir starfsmenn, sem rætt var við í gær, voru að vonum ánægðir með að starfsemi væri hafin í slippnum á ný og þeir eru bjartsýn- ir fyrir hönd nýrra rekstraraðila. Björn Júlíusson stálsmiður var að vinna í ryðfríudeild fyrirtækisins í gær en hann starfaði sem flokks- stjóri fyrir gjaldþrot Slippstöðvar- innar. Hann sagði það vissulega slæmt að einhverjir starfsmenn, sem misstu vinnuna við gjaldþrot Slippstöðvarinnar, hefðu róið á önn- ur mið. Því væri mikilvægt að missa ekki fleiri í burtu. Sjálfur sagðist Björn hafa fengið fjögur at- vinnutilboð fyrsta daginn sem hann var atvinnulaus, bæði frá aðilum á Akureyri og annars staðar á land- inu. „Það er mikil vinna í boði fyrir járniðnaðarmenn en það þarf ekki endilega að þýða að menn hafi það eitthvað betra en hér,“ sagði Björn. Hann sagði það vissulega jákvætt að reksturinn í slippnum væri kom- inn í hendur heimamanna en að ýmislegt væri þó óljóst ennþá. „Ég er bjartsýnn á framhaldið og maður verður að trúa því að þetta eigi eft- ir að ganga vel.“ Starfsmenn Slippsins mættu til starfa í gærmorgun Ánægðir með að vera komnir til vinnu á ný Morgunblaðið/Kristján Viðgerðir Eggert Benjamínsson og Tómas Þorgrímsson voru að undirbúa vinnu við viðgerðarverkefni í Þorsteini. Morgunblaðið/Kristján Vinna hafin Björn Júlíusson við vinnu sína í ryðfríu deildinni í Slippnum. SKÓLANEFND Akureyrarbæjar hefur samþykkt, með þremur atkvæðum gegn tveimur, að taka tilboði Hjalla- stefnunnar ehf. í rekstur leikskólans Hólmasólar sem verið er að byggja við Helgamagrastræti. Hermann Tómasson, fulltrúi Samfylkingarinnar, og Tryggvi Gunnarsson, fulltrúi L-listans í skólanefnd, sendu frá sér sameiginlega bókun þar sem segir að þegar tilboð í reksturinn séu skoðuð og bornar saman tölur um rekstrarkostnað sambærilegra leikskóla bæjarins „virð- ist ljóst að það felur í sér verulegan kostnað fyrir bæj- arsjóð umfram það sem yrði ef reksturinn væri á hendi bæjarins“. Með tilboðinu sýni tilboðsgjafinn í raun fram á að leikskólar bæjarins eru vel reknir. „Tilboðið felur þannig í sér sterk fjárhagsleg rök fyrir því að leikskólinn Hólmasól verði rekinn af Akureyrarbæ,“ segir í bókun Hermanns og Tryggva. „Ákvörðun meirihluta skóla- nefndar um að taka þessu tilboði hlýtur að þýða að meiri- hlutinn ætli að endurskoða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og hækka framlög til leikskóla Akureyrarbæjar til samræmis við þær greiðslur sem hér er samþykkt að greiða fyrir rekstur leikskólans Hólmasólar. Að öðrum kosti er sveitarfélagið að mismuna íbúum sínum.“ Skólanefnd um rekstur Hólmasólar Tilboði Hjallastefnunnar tekið Sýning| Stefán Boulter opnaði sýn- ingu á verkum sínum í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu á Akureyri á laugardag. Á sýningunni verða nýleg olíumálverk. Sýningin er opin um helgar og stendur til 22. október. Hræringar á íslenskum vinnumarkaði Mikið hefur gengið á í íslensku efnahagslífi á tiltölulega skömmum tíma. Hefur ekki farið framhjá neinum þær miklu sviptingar sem átt hafa sér stað og þá sérstaklega á vinnumarkaðnum. Skortur virðist nú vera á vinnuafli sem áður var umframframboð af. Fyrirlesarar: Svali Björgvinsson, starfsmannastjóri KB-banka. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Gunnar Haugen, forstöðumaður ráðningastofa IMG. Fundarstjóri: Gunnar Páll Pálsson, formaður VR. Umræður að loknum erindum. Sv al i H . Bj ör gv in ss on A ri Ed w al d G un na r H au ge n G un na r Pá ll Hádegisverðarfundur - FVH miðvikudaginn 12. október kl. 12.00–13.30 á Grand Hótel Fundurinn er öllum opinn! Verð með hádegisverði er 3.000 kr. fyrir félagsmenn og 4.800 fyrir aðra. Skráning á www.fvh.is, í síma 551 1317 eða á fvh@fvh.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.