Morgunblaðið - 12.10.2005, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.10.2005, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF H úsavíkurbær, Að- aldælahreppur og Þingeyjarsveit vinna nú í sameiningu að uppbyggingu svokall- aðs rafræns samfélags til að stuðla að eflingu þekkingar og menntunar íbúanna sem lið í atvinnuþróun og bættum lífsgæðum í byggðarlaginu til framtíðar. Forsenda fyrir því að þetta samfélagslega verkefni nái markmiðum sínum er að íbúarnir á svæðinu, sem samtals telja um 3.500, taki því opnum örmum og nýti sér ný vinnubrögð með hjálp tölvutækninnar. Til þess að auðvelda fólki fyrstu skrefin, stendur Fræþing, Fræðslu- miðstöð Þingeyinga, fyrir fjölmörg- um fræðslunámskeiðum, ýmist í grunnskólum á svæðinu eða í fjar- námi, sem henta eiga þeim, sem hafa fyrir litla eða enga tölvukunn- áttu. Gefin hefur verið út vegleg níutíu síðna tölvukennslubók, sem dreift hefur verið inn á öll heimili auk þess sem grunnskólanemendur hafa leiðbeint eldri kynslóðum að tileinka sér tölvukunnáttu og færni á Netinu. Samfélagslegt verkefni Að sögn Susan Martin verk- efnastjóra, er hér á ferðinni mjög merkilegt og metnaðarfullt sam- félagslegt verkefni, sem er hugsað sem fyrirmynd fyrir önnur byggð- arlög í landinu. Verkefnið, sem er tilraun til þriggja ára, hlaut sextíu milljóna króna styrk frá Byggðastofnun í fyrra og leggja tilraunasveitar- félögin þrjú fram þrjátíu milljónir og aðrar þrjátíu milljónir eru lagðar til í beinum og óbeinum framlögum frá samstarfsaðilum verkefnisins, sem auk sveitarfélaganna þriggja eru Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Sparisjóður Suður-Þingeyjarsýslu, Auðkenni og ANZA hf., sem sér um tæknilegu hliðar verkefnisins. Markmið verkefnisins er annars vegar að bjóða íbúum upp á fjöl- breytta fræðslu og þjálfun í notkun á tölvum og hinsvegar að færa þjónustu sveitarfélaga í rafrænt form og opna þjónustutorg á vefsíð- unni www.skjalfandi.is. Í byrjun var leitað til breiðs hóps heimamanna til að sitja í vinnuhóp- um verkefnisins til að tryggja að mismunandi sjónarmið og þarfir kæmu fram. Yfir sextíu manns störfuðu í hópunum, sem skiluðu niðurstöðum til að nota við upp- byggingu á þjónustu veftorgana. „Rafrænu samfélagi er ætlað að efla þekkingu og menntun, spara tíma, auka lífsgæði til framtíðar, styðja við atvinnuþróun, vinna gegn einangrun og síðast en ekki síst að jafna aðgang landsmanna að upp- lýsingahraðbrautinni.“ Hagur íbúa af rafrænu samfélagi er mörgum kostum búinn. Fyrir- komulaginu er ekki síst ætlað að auka þægindi íbúanna og stytta þann tíma, sem annars fer í að sækja þjónustu og sinna erindum. Áþreifanlegur árangur Nú er verkefnið komið á þann rekspöl að það hillir undir opnun upplýsinga- og þjónustuveitna í formi svokallaðra veftorga sem markar upphafið að áþreifanlegum árangri verkefnisins, að sögn Sus- an. Til að byrja með verða fimm veftorg opnuð sem gerir íbúum þá loks kleift að eiga til dæmis bein samskipti við stofnanir, fyrirtæki, lækna og kennara á Netinu. Veftorg þessi birtast öll undir vefslóðinni www.skjalfandi.is og verður þeim fjölgað eftir því sem fram líða stundir. Fyrst í stað verða opnuð skjálfandatorg, íbúatorg, fræðslutorg, heilsutorg og sparitorg og gera má ráð fyrir að svo fylgi í kjölfarið rafrænt markaðstorg og byggingar- og skipulagstorg. Íbúatorg er sameiginlegur vett- vangur sveitarfélagana, ríkisins, þjónustustofnana og fyrirtækja sem veita íbúum aðgang að stjórnsýslu- sviðum, upplýsingum og gagnvirkri þjónustu með einföldum hætti. Íbúatorgið er einnig vettvangur fyrir lýðræðislega umræðu, svo sem með opnu samskiptatorgi og við- horfskönnunum um ýmis málefni, sem snerta byggðarlagið. Meðal þess sem boðið verður upp á er raf- ræn meðferð stjórnsýsluerinda, sem gerir íbúum kleift að sinna málum sínum á þeim tíma, sem hentar þeim. Fræðslutorg er sameiginlegur vettvangur fræðslu í byggðarlaginu með áherslu á samvinnu, aðgengi og jafnræði. Fræðslutorgið sam- einar allar fræðslustofnanir í byggðarlaginu fyrir samstarf, ný- sköpun, hugmyndavinnu og þróun- arstarf á sviði rafrænna mennta- kerfa, fjarmenntunar og tækni- lausna. Heilsutorgi í umsjá Heilbrigð- isstofnunar Þingeyinga er ætlað að vera lykill að betri heilbrigðisþjón- ustu, þar sem nýjungar í rafrænum samskiptaleiðum, sem stofnunin hefur þróað, verða nýttar í þágu íbúa svæðisins. Í upphafi verður lögð áhersla á reykingaforvarnir og síðar verður lögð áhersla á aðra þætti svo sem offitu, sykursýki, áfengisneyslu og fleira. Heilsutorgið getur þannig haft áhrif á alla íbúa svæðisins með því að stuðla að bættri þjónustu, að- gengi og fræðslu um heilbrigt líf- erni. Sparitorgi er ætlað að efla íbúa í byggðarlaginu til góðrar fjármála- stjórnunar á heimilis- og fyrir- tækjabókhaldinu. Hér fara saman þarfir fyrirtækja og heimila því traustur fjárhagur er grundvöllur öflugs samfélags á framfarabraut. Sparitorginu er ætlað að útvíkka þá þjónustu, sem íbúum stendur til boða í heimabönkum ásamt því að leggja áherslu á fræðslu og ýmis verkfæri sem auðvelda fólki að skipuleggja útgjöld sín og sparnað, að sögn Susan. Vonir bundnar við tæknilausnir Þrátt fyrir að verkefninu sé ætl- að að tryggja öllum íbúum aðgengi að rafrænni þjónustu, óháð búsetu, menntun, aldri og efnahag, hafa þó nokkur ljón orðið á veginum sem helst má rekja til tæknilausna í dreifðari byggðum Suður-Þing- eyjarsýslu, segir Susan, en megin forsenda fyrir því að hægt sé að byggja upp rafrænt samfélag er að allir íbúar hafi aðgang að öflugum nettengingum. „Nýlega gerðum við samstarfssamning við Símann um að tilraunaprófa dreifingu á þráð- lausu netsambandi með nýrri tækni, sem kallast WiMax. Miklar vonir eru bundnar við að þessi tækni geti leyst úr bráðri þörf fyrir öflugar nettengingar fyrir dreifðar byggðir, sem búa við erfið veður- og landfræðileg skilyrði, svo sem þrönga dali og vetrarhörkur. Þrátt fyrir að vera enn á tilraunastigi er um það rætt að WiMax kunni að vera væntanlegur arftaki WiFi- tækninnar, sem er útbreidd en tak- mörkuð lausn. WiMax hefur meiri drægni og meiri bandbreidd og get- ur þannig þjónað fleiri notendum samtímis án þess að það höggvi nærri gagnaflutningsgetu kerfisins. Síðast en ekki síst býður WiMax upp á þann möguleika í framtíðinni að senda út með svokallaðri „triple play“-tækni, þar sem Netið, síminn og sjónvarpið geta notað sama þráðlausa netið,“ segir Susan. Hún bætir að lokum við að þó verkefn- inu sé ekki ætlað að fara út í beina samkeppni um þjónustulausnir á fjarskiptamarkaði hafi verkefnis- stjórninni verið gert að þrýsta á um lausn mála fyrir íbúa með lélegar nettengingar. „Þar sem WiMax- tæknin er á tilraunastigi hérlendis, var haft samband við Símann og hann hvattur til að gera tilraunir sínar fyrir norðan. Samstarfið hefur nú þróast þannig að ákveðið hefur verið að bjóða fleiri aðilum að sam- starfinu í þeim tilgangi að móta sameiginlegar tillögur að heildar- lausn fyrir grunngerð fjarskipta á verkefnasvæði „Virkjum alla“, sem miklar vonir eru bundnar við að geti flýtt því að íbúar Suður-Þing- eyjarsýslu geti allir notið öflugra nettenginga í starfi, námi og af- þreyingu.“  UPPLÝSINGATÆKNI | Þrjú norðlensk sveitarfélög virkja íbúana í átt að auknum lífsgæðum Nútíminn kallar á raf- ræn samfélög Tilraunaverkefninu „Virkjum alla“ er m.a. ætlað að gera rafræna þjónustu í byggðum landsins jafn sjálfsagða og vatnsveitu. Verkefnastjórinn Susan Martin sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að for- sendan væri að fá sem flesta íbúa til að taka þátt svo unnt væri að einfalda dagleg störf. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Rafrænt samfélag á að efla þekkingu og spara tíma, segir Susan Martin. join@mbl.is TENGLAR .............................................. www.skjalfandi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.