Morgunblaðið - 12.10.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 12.10.2005, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is James Dean og spænskar pífur Tíska | Tískuvika í París: Vor/sumar 2006 Y V E S S A IN T L A U R E N T ALLS fóru um hundrað sýningar fram á tískuvikunni í París sem lauk á mánudaginn. Þeirra á meðal voru sýningar Stefanos Pilati hjá Yves Saint Laurent og Karls Lag- erfeld hjá Chanel. Sú síðarnefnda þótti mjög vel heppnuð og er það hrós á tískuviku sem þykir einhver sú best heppnaða í París í áratugi, að mati Didiers Grumbach, for- manns Samtaka fatahönnuða í Frakklandi. Sýning Chanel fór fram í nýopnaðri Grand Palais og þótti nýta rýmið vel. Þemað var samruni Coco Chanel og James Dean og í þeim anda mátti sjá unglegar útgáfur af sígildum fatnaði Chanel. Til dæmis sáust tvíddragtirnar hefðbundnu í nokkrum litum við stuttar buxur. Lagerfeld hefur hannað fyrir Chanel í meira en tuttugu ár og ætti að vita hvað Chanel-konan vill. Þeirra á meðal eru föt í svörtu og hvítu, perlur, blóm og keðjubelti. Sumarlína Yves Saint Laurent var einnig sýnd í Grand Palais og var spænskt þema ráðandi. Mikil ánægja hefur verið með störf Pilati hjá tískuhúsinu og biðu því margir spenntir eftir nýju línunni. Hún sveik ekki en Pilati leitaði til fortíðar og fékk inn- blástur hjá meistaranum sjálfum, þeim sem tískuhúsið heitir eftir. Einkennandi fyrir sýninguna voru einlitir efnismiklir kjólar, belti í mittið, rykkingar og pífur. Aðdáendur tískuhússins úr hinum ýmsu áttum voru á staðnum, m.a. leikkonurnar Catherine Deneuve og Kristin Scott-Thomas og sjokkrokkarinn Marilyn Manson. Reuters AP C H A N E L

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.