Morgunblaðið - 23.11.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!"#
$%%&$
' () *(#&
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÍSLANDSBANKA var veitt við-
urkenning fyrir mikla söluaukningu í
kröfukaupum á aðalfundi Int-
ernational Factoring Group í Lissa-
bon en það eru alþjóðleg samtök að-
ila sem stunda kröfukaup. Erlend
kröfukaup eru orðinn vinsæll og vax-
andi kostur hjá þeim sem stunda
viðskipti á milli landa og hefur Ís-
landsbanki um skeið boðið við-
skiptamönnum sínum að selja er-
lendar viðskiptakröfur með
kröfutryggingu.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
Ratings hefur hækkað einkunn fyrir
fjárhagslegan styrkleika Íslands-
banka í B/C en hún var áður C. Fitch
Ratings staðfestir lánshæfismat sitt
fyrir Íslandsbanka, lánshæf-
iseinkunnir eru A fyrir skuldbind-
ingar til langs tíma, F1 fyrir skamm-
tímaskuldbindingar og 2 fyrir
stuðningseinkunn. Horfur lánshæf-
ismatsins eru stöðugar að mati Fitch
Ratings, að því er fram kemur í til-
kynningu til Kauphallar Íslands.
Íslandsbanki
fær viðurkenningu
● AX hugbúnaðarhús stendur fyrir
morgunverðarfundi í dag á Nordica
hóteli um Cognos 8 stjórnenda-
hugbúnaðinn. Erlendir sérfræðingar
flytja fyrirlestra þar sem kynntar
verða helstu nýjungar í þessum bún-
aði, sem gerir fyrirtækjum kleift að
greina lykiltölur úr upplýsingakerfum
sínum. Cognos hefur verið á markaði
hér á landi frá árinu 1997 og er m.a.
í notkun hjá Flugleiðum, Sam-
skipum, Sjóvá-Almennum, Heklu og
Húsasmiðjunni. Í tilkynningu frá Ax
segir að mörg stærstu fyrirtæki
heims noti hugbúnaðinn, s.s. bank-
ar, tryggingafélög og lyfjafyrirtæki.
Morgunfundur um
Cognos
● GYLFI Magnússon, deildarforseti
viðskipta- og hagfræðideildar Há-
skóla Íslands, heldur í dag fyrirlestur
í skólaum sem ber heitið „Hvar eru
piltarnir? Kynjaskipting í sér-
fræðistéttum á 21. öld á Íslandi.“
Málstofan, sem er öllum opin, fer
fram í stofu 101 í Odda og hefst kl.
12.20.
Hvar eru piltarnir?
● HLUTABRÉF hækkuðu að nýju í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði þannig um 0,6%
og var 5009 stig við lok viðskipta.
Bréf FL Group hækkuðu um 4,67%,
bréf Bakkavarar um 1,52% og bréf
Össurar um 1,4%. Bréf Jarðborana
lækkuðu um 2,13% og bréf Mosaic
Fashions um 0,59%. Viðskipti með
hlutabréf námu 4,9 milljörðum
króna, þar af 1,7 milljarðar með bréf
Landsbankans.
FL Group hækkar
um 4,67%
● KYNNT verður í dag hverjir hljóta
verðlaun í Nýsköpun 2005, sam-
keppni um viðskiptaáætlanir. Hall-
dór Ásgrímsson, forsætisráðherra,
mun afhenda verðlaunin við athöfn í
Húsi atvinnulífsins. Að Nýsköpun
2005 standa Íslandsbanki, Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins, Háskólinn
í Reykjavík, Framleiðnisjóður land-
búnaðarins, Iðntæknistofnun og
Morgunblaðið. Þetta er fimmta sam-
keppnin um viðskiptaáætlanir en sú
fyrsta var haldið árið 1999.
Nýsköpunarverðlaun
afhent í dag
! "# #
+,- ./01
2
3-/ ./01
2
45 ./01
2
6 ./01
2
73 ./
2
849
2
/:9//
2 01;5 3
2
50
2
69 84
2
/ 4
2
8
2
,/0<0/=30/:/>
?>/
29
2
@0/
2
,/ ./01
2
</:0/ 84
2
7<1:?
2
+ 4+ ./01
2
+
2
A /?
2
59/B
2
C
,4,+ ,/4 0<
/D555<:,:
2
E40,:
2
!
4 D?
?/:/
2
4>,0/
F45 0:0/4 -
2
G
G/
2 "# $
H
I:,
-:2- /:
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
3/ D,5
/>
D// -:2- /:
=
= =
=
=
= =
=
=
=
= =
= =
=
=
=
=
=
=
J K
J K
=
J K
J K
J K
J =K
=
=
=
J K
J =K
J K
J K
=
=
=
=
J =K
=
J =K
=
=
=
=
=
=
=
7 4/-:1,
5
49: I 4 01 4
2
2 =
2
2
2
2 =
2
2 2 2 2 2 2 =
=
=
2
2 =
2
=
=
=
=
=
=
=
E:1, I ;B2 /2
72 M , 050/4,
?4
-:1,
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
EFTIR 44 milljarða króna hlutafjár-
aukningu FL Group er Oddaflug,
eignarhaldsfélag Hannesar Smár-
sonar, forstjóra félagsins, stærsti
einstaki hluthafinn með 25,14% hlut.
Landsbankinn er skráður fyrir
25,12% hlut en þar af mun Baugur
eiga í gegnum framvirka samninga
24,55% hlut. Íslandsbanki á 9,4% og
Arion, félag í eigu KB banka, þar
sem vistuð eru hlutabréf í mismun-
andi eigu, á 8,13%. Materia Invest-
ment, félag í eigu þeirra Magnúsar
Ármann, Þorsteins M. Jónssonar og
Kevin Stanford á 7% hlut.
2
2
2
405
69 842
849
/
/ 2
, / - 01;5 9
,/0<0/ = 30/:/>
.4=4I
D/?N:0/
O9D55
?>/
29
:// 40,
<,4
- /:
<2/2 740,0/
740,
2 N-2 %&"
Með tæp 50%
í FL Group
Mikill vöxtur í úttekt-
um á kreditkortum
MIKILL vöxtur í neyslu heimil-
anna sést glögglega í kreditkort-
areikningum þeirra en í heild var
kreditkortareikningur íslenskra
heimila 14,3 milljarðar í október
eða um 17% hærri en í sama mán-
uði í fyrra og endurspeglar mikinn
vöxt einkaneyslunnar á árinu, að
því er fram kemur í Morgunkorni
Íslandsbanka. Fjöldi færslna jókst
þó minna milli ára eða um tæplega
12% sem þýðir hærri úttekt í hvert
skipti að því er fram kemur í tölum
Seðlabankans. „Mest hefur hinn
erlendi hluti kreditkortareiknings
heimilanna aukist. Hann var 3,0
ma.kr. í október og jókst um 22%
frá sama mánuði í fyrra. Innlendi
hlutinn jókst hins vegar um ríflega
16% á milli ára. Ljóst er að há-
gengi krónunnar hefur beint eft-
irspurn heimila frá innlendum
markaði yfir á erlendan,“ segir í
Morgunkorni.
HAGNAÐUR easyJet á síðasta
rekstrarári, sem lauk hinn 30. sept-
ember síðastliðinn, nam 68 milljón-
um punda fyrir skatta, jafngildi um
6,7 milljarða króna miðað við skráð
gengi sterlingspundsins í gær og
jókst um 9,1% frá rekstrarárinu
2003–2004. Rekstrartekjur félagsins
jukust um 23% í 1,34 milljarða
punda.
2,8 milljarða hagnaður
FL Group
Uppgjörið var örlítið yfir með-
alspá erlendra markaðsrýna en
markaðurinn virðist hafa tekið upp-
gjörinu opnum örmum og hækkaði
gengi bréfa easyJet strax verulega í
gærmorgun. Við lokun markaða í
gær var það 340 pens og hafði hækk-
að 10,93% eða 33,5 pens frá deginum
áður.
FL Group er næststærsti eigandi
félagsins með 16,18% eða tæpa 65
milljónir hluta. Gengishagnaður FL
Group af eignarhlutanum í easyJet á
einum sólarhring nam því um 2,35
milljörðum króna, eða hátt í 100
milljónum króna á klukkustund, en
gengi pundsins hækkaði reyndar um
hátt í tvær krónur, fór úr 106,26 í
108,08 krónur þannig að verðmætið
jókst enn meira eða um 2,86 milljarð.
Nærri 30 milljónir farþega
Farþegum, sem easyJet flaug
með, fjölgaði um rúman fimmtung
milli rekstrarára í 29,6 milljónir en
félagið bætti við 72 nýjum flugleið-
um á tímabilinu og flýgur nú á 212
áfangastaði. Sætanýting easyJet
batnaði milli ára, var 85,2% á móti
84,5% árið áður. Mikill vöxtur var
hjá félaginu á meginlandi Evrópu á
tímabilinu og nam aukning tekna
þar 78% frá fyrra ári en vöxturinn er
einkum til kominn vegna góðs ár-
angurs easyJet í Þýskalandi.
Í frétt á vef The Times er sagt að
með niðurskurði á kostnaði og mik-
illi vaxtarstefnu hafi easyJet tekist
að mæta hækkandi eldsneytisverði
og ná að auka hagnað á milli ára.
Eldsneytisverð hækkaði um 47%
milli rekstrarára að því er kemur
fram í tilkynningu easyJet. Engu að
síður jukust meðaltekjur á hvern
farþega um 2%, í 38,66 pund og aðr-
ar tekjur af hverju sæti jukust um
17%.
Gengi bréfa easyJet
hækkar um 11%
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SJÓNVARPSSTÖÐIN Big TV í
Skandinavíu, sem er í eigu þeirra
Sigurjóns Sighvatssonar og Bjarn-
ar Steinbekk Kristjánssonar og ís-
lenskra fjárfesta, hefur verið valin
í lokaval sænska ríkisins vegna út-
hlutunar á þremur stafrænum
sjónvarpsrásum en tíu stöðvar
keppa nú um þrjár rásir sem gætu
þó orðið fleiri ef ekki kemur til
endurnýjunar leyfa á eldri rásum.
Leyfisveiting tekur bæði til gjald-
frjáls sjónvarps og sjónvarps þar
sem innheimt er
fyrir notkun. Bú-
ist er við að
ákvörðun um
hvaða stöðvum
verður úthlutað
sjónvarpsleyfum
liggi fyrir
snemma á næsta
ári. Á meðal
stöðva sem Big
TV keppir við
eru BBC Worldwide (BBC Prime),
Kanal 5 AB, Dagens Industri, Af-
tonbladet Hierta AB og Turner
Broadcasting System Europe
(CNN).
Big TV sérhæfir sig í fram-
leiðslu sjónvarpsefnis fyrir aldurs-
hópinn 12 til 25 ára og er áætlað
að reyna að ná til átta milljón
heimila í Finnlandi, Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku fyrir árslok
2006.
Sigurjón Sighvatsson, segir
þetta vera mikla traustyfirlýsingu
við hugmyndina á bak við Big TV
sem sé ein af fyrstu sjónvarps-
stöðvum í heimi sem mun sjón-
varpa á rauntíma bæði á Netinu og
í sjónvarpi á sama tíma í 24 fjóra
tíma á dag. „Við erum komnir með
fullt af kapaldreifingu en þetta, að
við vorum valdir, er í viðbót við
það. Við erum eina sjónvarpsstöðin
sem höfðar til ungs fólks, sem var
valin, en nokkrir keppinautar okk-
ar sóttu um en komust ekki áfram.
Þetta er því verulega jákvætt.“
Big TV komið í lokaval í Svíþjóð
Sigurjón
Sighvatsson