Morgunblaðið - 23.11.2005, Side 44

Morgunblaðið - 23.11.2005, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Nýjasta stafræna teiknimyndaundrið frá Disney . Toppmyndin í USA. Þegar maður er þetta lítill verður maður að hugsa stórt. Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði. Þar sem er vilji, eru vopn. Þar sem er vilji, eru vopn. Með Óskarsverðlaunahafanum og hinum skothelda Nico- las Cage. Heimur vopnasala hefur aldrei verið eins fl ókinn. Tvær frábærar á dönsku Drabet (morðið) - opnunarmynd oktober- bíófest sem Hlaut kvikmynda verðlaun Norður- landaráðs SÝND KL. 8 og 10 M. ÍSL. TEXTA Voksne Mennesker sigurvegari eddu verðlaunanna! frábærlega skemmtileg mynd eftir Dag Kára SÝND KL. 6 M. ÍSL. TEXTA Mörgæsirnar slá í gegn á Íslandi! Þriðja vinsælasta mynd landsins eftir 3 vikur í sýningu! Forsala hafi n „Meistarastykki!“ -F.G.G., Fréttablaðið „Tilvalin fjölskylduskemmtun sem auðgar andann!“ -S.P., Rás 1 S.V. MBL Lord of War kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16 ára March of the Penguins kl. 6 - 8 og 10 Litli Kjúllinn kl. 6 íslenskt tal Elizabeth Town kl. 8 - 10.30 Wallace & Gromit kl. 6 enskt tal Corpse Bride kl. 8 - 10 „Sjón er sögu ríkari!“ -H.J., Mbl  S.V. MBL Þau eru góðu vondu gæjarnir.  H.J. Mbl. V.J.V. topp5.is  H.J. Mbl. V.J.V. Topp5.is  H.J. Mbl. Nýjasta stafræna teiknimyndaundrið frá Disney. Vinsælasta myndin á íslandi í dag SJÓNVARPSÞÁTTARÖÐIN Örninn, sem Danska ríkisútvarpið framleiðir í samvinnu við aðrar norrænar ríkissjónvarpsstöðvar, þar á með- al Ríkisútvarpið, hreppti aðfaranótt þriðjudags al- þjóðlegu Emmy-verðlaunin sem besta alþjóðlega dramaþáttaröðin. Þær Elva Ósk Ólafsdóttir og María Ellingsen eru meðal leikara í þáttaröðinni, sem sýnd hefur verið í Sjónvarpinu. Elva Ósk fer með hlutverk Jóhönnu, systur að- alpersónunnar Hallgríms Arnar, sem er hálfur Ís- lendingur. Elva var viðstödd verðlaunaafhend- inguna þar vestra. „Þetta var auðvitað þvílíkt kvöld,“ sagði Elva Ósk í samtali við Morgunblaðið. „Við vorum þessi skemmtilegi hópur í okkar fín- asta pússi. Við byrjuðum á að skála í kampavíni á hótelinu okkar þar sem yfirmaður DR1 hélt smá- tölu. Svo var lagt af stað í grenjandi rigningu og okkur var því fylgt um allt með regnhlífum. Þetta var allt saman allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér. Rauði dregillinn var ekkert mjög langur en þar stóðu hundruð ljósmyndara og tóku myndir.“ Verðlaunin fyrir besta dramaþáttinn voru fyrstu verðlaun kvöldsins en Elva segir að hóp- urinn hafi orðið mjög hissa þegar ljóst var að verð- launin rynnu þeim í skaut. „Ég held að flestir hafi spáð því að Spooks myndu vinna verðlaunin,“ segir hún. „En það brutust auðvitað út mikil fagnaðarlæti og við vor- um strax tekin afsíðis í miklar myndatökur fyrir dönsku blöðin.“ Elva segist sannfærð um að verðlaunin hafi mikla þýðingu fyrir bæði íslenskt og danskt sjón- varp. „Þetta hlýtur að beina athyglinni í auknum mæli að okkar menningu, eins og hefur nú verið að gerast í kvikmyndagerð að undanförnu,“ segir hún. Elva var stórglæsileg við verðlaunaafhend- inguna en hún klæddist hvítum síðkjól úr smiðju Þórunnar Maríu Jónsdóttur sem samanstendur meðal annars af laxaroði. „Um leið og ég vissi að ég ætti að vera viðstödd hátíðina ákvað ég að klæðast einhverri flottri ís- lenskri hönnun,“ sagði hún. „Mér finnst kjóllinn rosalega fínn og það voru margir sem spurðu mig úr hverju hann væri. Mér fannst líka gaman að klæðast hvítu því það eru svo margir svartklæddir á svona hátíðum.“ Þetta er í þriðja skiptið á síðustu fjórum árum sem danska ríkisútvarpið hreppir verðlaunin fyrir bestu alþjóðlegu dramaþáttaröðina. Áður hafa þættirnir Nikolai og Julie og Rejseholdet hlotið þessi verðlaun og einnig hefur þáttaröðin Krønik- en verið tilnefnd til verðlaunanna. Að þessu sinni kepptu fjórar þáttaraðir til úr- slita. Auk Arnarins voru það rússnesk þáttaröð um lífið í hernum og bresku þáttaraðirnar Spooks eða Njósnadeildin, sem sýnd hefur verið í Sjón- varpinu, og New Tricks, sem sýnd er á Skjá ein- um. Danska ríkisútvarpið fékk önnur Emmy- verðlaun á verðlaunahátíðinni í New York, en þáttaröðin Unge Andersson var valin besta sjón- varpsmyndin. Sjónvarp | Alþjóðlegu Emmy-verðlaunin afhent Reuters Leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir er þriðja frá vinstri á myndinni en hún er hér í félagsskap sam- starfsmanna sinna í Erninum á Emmy-verðlaunahátíðinni sem haldin var í New York. Örninn besti dramaþátturinn Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is HLJÓMSVEITIRNAR Ampop og Worm is Green halda saman útgáfutónleika í kvöld á NASA við Austurvöll. Ampop kynnir plötu sína My Delusions en Worm is Green plötuna Push Play. Fyrir utan að standa í plötuútgáfu þessa dagana eiga hljómsveitirnar það sameig- inlegt að hafa verið að reyna fyrir sér á er- lendum mörkuðum. Fyrsta smáskífa Am- pop mun koma út á vegum útgáfu- fyrirtækisins Stimulus Records í Bretlandi sem hefur áður gefið út tónlistarmann á borð við KT Tunstall og Josh Stone en plata Worm is Green, Push Play er vænt- anleg til útgáfu í Bandaríkjunum af út- gáfufyrirtækinu Rock Arena Recordings. Ampop heldur til Bretlandseyja strax Ampop er á góðri siglingu í Bretlandi um þessar mundir. Í eina sæng Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 22. Aðgangseyrir er 700 kr. Tónlist | Ampop og Worm is Green á NASA eftir tónleikana til að kynna smáskífuna sem þegar hefur vakið athygli þungavigt- arútvarpsmanna þar í landi. STUTTMYNDIN Síðasti bærinn í dalnum eftir Rúnar Rúnarsson vann til verðlauna á árlegri stuttmyndahátíð í Teheran í Íran um helgina. Rúnar sagðist í samtali við Morg- unblaðið hæstánægður með viðurkenn- inguna en henni deilir hann með kollega sínum Tanon Sattarujawong frá Taílandi sem gerði myndina Enlightenment. Að sögn Rúnars eru veitt tvenns konar verðlaun fyrir bestu stuttmyndina og hlaut Síðasti bærinn í dalnum verðlaun í flokknum Spiritual Awards sem þykir mikill heiður auk þess sem vinningshafar hljóta 10 þúsund bandaríkjadali í verð- laun. „Ég var því miður ekki viðstaddur verð- launaafhendinguna,“ sagði Rúnar en bætti við að verðlaunin væru mikill heiður fyrir sig og hvatning til áframhaldandi starfa. Rúnar er búsettur í Danmörku þar sem hann stundar nám við danska kvikmynda- gerðarskólann. Hann segir erfitt að vinna að myndum með skólanum en komandi sumar muni hann líklega byrja að vinna í næstu mynd. Síðasti bærinn í dalnum var valin besta stuttmyndin á Eddu-verðlaunahátíðinni hér á landi í fyrra. Hún var auk þess valin besta stuttmyndin á kvikmyndahátíðunum Nordisk Panorama og Kiev International og Huesca-kvikmyndahátíðinni í fyrra. Kvikmyndir | Kvikmyndahátíð í Íran um helgina Morgunblaðið/Sverrir Jón Sigurbjörnsson, aðalleikari myndarinnar, og Rúnar Rúnarsson leikstjóri. Síðasti bærinn hans Rúnars verðlaunaður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.