Morgunblaðið - 23.11.2005, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
AUSTURBÆJARSKÓLI bar sigur úr býtum í
Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykja-
víkur og Íþrótta- og tómstundaráðs, á úr-
slitakvöldi keppninnar sem fram fór í Borg-
arleikhúsinu í gærkvöldi. Álftamýrarskóli var
í öðru sæti og Hagaskóli í því þriðja. Gríðarleg
stemning myndaðist þegar þeir sex skólar sem
kepptu til úrslita fluttu verk sín fyrir fullu húsi
af áhorfendum. Allt ætlaði svo um koll að
keyra þegar ein vinsælasta hljómsveit á Ís-
landi um árabil, Sálin hans Jóns míns, lék
nokkur lög á meðan úrslita var beðið. Skrekk-
ur hefur fyrir löngu unnið sér fastan sess í
skólastarfi í Reykjavík en keppnin var nú
haldin í fimmtánda skipti.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Austurbæjarskóli sigraði í Skrekk
EKKI hefur tekist að opna nýja hæð hjúkrunar-
heimilisins Droplaugarstaða við Snorrabraut í
Reykjavík að fullu vegna skorts á starfsfólki, en
hæðin var tekin í notkun í síðasta mánuði. Enn
vantar fólk í 15 stöðugildi, en hægt væri að halda
uppi þjónustu ef 10 starfsmenn fengjust til starfa.
Ingibjörg Þórarinsdóttir, talsmaður hjúkrun-
arforstjóra, segir að sem stendur sé ekki tekið við
neinum nýjum innlögnum á Droplaugarstaði
vegna manneklunnar. „Við vorum nokkuð vel
stödd framan af sumri en um leið og við ætlum að
auka starfsemina þá strandar á skorti á fólki.“
Ástandið á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða er
víða slæmt á höfuðborgarsvæðinu, og hafa
mannaráðningar gengið illa frá því í haust, og
ástandið lítið lagast. Ástandið hefur batnað að-
eins frá því í ágúst á hjúkrunarheimilinu Eiri,
segir Birna Svavarsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Hún segir þó álag á starfsfólk mikið við að kenna
nýju starfsfólki að komast inn í störfin.
Staðan er áþekk og hún var í sumar á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli við Kleppsveg. Fólk hefur
horfið til betur launaðra starfa annars staðar á
vinnumarkaðinum, segir Aðalheiður Vilhjálms-
dóttir hjúkrunarforstjóri. „Vinna á hjúkrunar-
heimilum er kannski ekki framtíðarvinna sem
margur vill leggja sig niður við. Auðvitað er sleg-
ist um faglært fólk líka en í heild er staðan ekki
verri en hún var í sumar,“ segir Aðalheiður.
Gríðarlegt álag á starfsfólk
„En ég get aldrei fullþakkað hvað starfsfólkið
mitt stendur vel með okkur í þessu stríði, hvort
heldur sem eru hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar
eða ófaglærða fólkið okkar,“ segir Aðalheiður.
Hún segir álag á starfsfólk gríðarlegt, og enginn
haldi út viku eftir viku án þess að fá hvíldartíma.
Enn erfitt að manna störf á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu
Ekki hægt að opna nýja
deild vegna manneklu
Eftir Örlyg Sigurjónsson og Brján Jónsson
Hagnaðist um
2,86 milljarða
á easyJet
GENGISHAGNAÐUR FL Group af hlut
félagsins í lággjaldaflugfélaginu easyJet
nam um 2,35 milljörðum króna í gær eftir
að bréf í easyJet hækkuðu um tæp 11% á
markaði í gær. Þegar við bætist að gengi
breska pundsins hækkaði um tæpar 2 krón-
ur jókst verðmætið um samtals 2,86 millj-
arða króna.
EasyJet birti í gær uppgjör sem var yfir
meðalspá erlendra markaðsrýna, og tók
markaðurinn uppgjörinu opnum örmum og
hækkaði gengi í félaginu strax. Hagnaður
easyJet nam 68 milljónum punda fyrir skatt
á síðasta rekstrarári, sem lauk 30. septem-
ber sl., sem jafngildir um 6,7 milljörðum
króna miðað við gengi pundsins í gær. FL
Group er næststærsti eigandi félagsins með
16,18% hlut.
Gengi bréfa | 13
ALLAR líkur eru á því að
bræðslum, fiskimjölsverksmiðjum,
hér á landi fækki um helming á
næstu árum. Þær eru nú 18 alls.
Skýringin á því er sú að nú má
segja að öll síld fari í vinnslu til
manneldis, aðeins afskurður í
bræðslu. Líklegt er að byrjað
verði að vinna kolmunna á svip-
aðan hátt í auknum mæli á næsta
ári og óvissa ríkir um loðnuveiðar.
Þetta gerist á sama tíma og
heimsmarkaðsverð á fiskimjöli og
lýsi er í sögulegu hámarki. Engu
að síður skilar vinnsla uppsjáv-
arfiska til manneldis mun meiri
tekjum.
Fyrirsjáanlegt er að framleiðsla
á fiskimjöli og lýsi hérlendis mun
dragast saman á næstu árum.
Framleiðslan nú er mun minni en
í fyrra, enda hefur engin loðna
veiðzt í sumar og haust, botninn
datt úr kolmunnaveiðunum seinni
hluta sumars og nær engin kol-
munnaveiði hefur verið í haust. Þá
fer nú nánast hver einasta síld til
manneldis, aðeins afskurðurinn
fer í bræðslu.
„Allt þetta mun óhjákvæmilega
leiða til þess að fiskimjölsverk-
smiðjum, sem nú eru um 18, muni
fækka um helming á næstu fimm
árum. Verksmiðjurnar eru þegar
allt of margar og má í því efni
benda á að samanlagt í Noregi og
Danmörku eru verksmiðjur um
helmingi færri en hér á landi en
þessi lönd vinna árlega nánast
tvöfalt meira af hráefni en Ísland
eitt og sér,“ segir Finnbogi Jóns-
son, framkvæmdastjóri SR mjöls.
Helmingi færri bræðslur?
Verð | B2
Framleiðsla á fiskimjöli og lýsi dregst saman þrátt fyrir mjög hátt verð
MJÓLKURBÍLL Mjólku kom að bænum
Brúarreykjum í Borgarfirði í gær og sótti
um 400 lítra af mjólk sem notaðir verða
við fyrstu framleiðsluvöru fyrirtækisins,
fetaost, á næstunni. Að sögn Ólafs
Magnússonar, framkvæmdastjóra Mjólku,
markaði gærdagurinn viss tímamót, lík-
lega sé um hálf öld síðan annar aðili en
mjólkursamlögin sæki mjólk til bænda í
landinu.
Mjólka mun borga bændum 48,88 krón-
ur fyrir lítrann af fyrsta flokks mjólk, að
því tilskildu að meðaltals próteinhluti sé
a.m.k. 3,1 yfir árið, en að sögn Ólafs er
það rúmlega 10% hærra verð en af-
urðastöðvar bjóða fyrir innankvóta mjólk
og 48% hærra en þær bjóða fyrir umfram
mjólkina. Einnig býður Mjólka að sögn
Ólafs ódýrari flutning á mjólkinni, 1,55
krónur fyrir hvern lítra á meðan bændur
borga mjólkurstöðvunum a.m.k. 2,30
krónur á lítrann.
Ólafur segir að verið sé að leggja loka-
hönd á þrjá samninga við bændur um að
skaffa mjólk fyrir Mjólku en vonast er til
að búið verða að semja við 10–15 bændur
fyrir áramót. Bændur hafa að sögn Ólafs
tekið Mjólku vel og það hafi einmitt átt við
bændur að Brúarreykjum, þau Bryndísi
Haraldsdóttur og Bjarna Bæringsson, sem
sendu fyrsta innlegg sitt af mjólk til
Mjólku í gær.
Osturinn á markað í vikunni
Stefnt er að því að setja fetaost Mjólku,
Léttfeta, á markað fyrir lok þessarar viku
og verður hann seldur í öllum helstu mat-
vöruverslunum. Þá verður osturinn einnig
seldur beint til stærri kaupenda eins og
veitingahúsa og stóreldhúsa. Mjólka er
með fjórar aðrar afurðir á teikniborðinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Bjarni Bæringsson, bóndi á Brúarreykj-
um, fylgist með því þegar Haraldur Magn-
ússon mjólkurbílstjóri dælir mjólkinni.
Mjólka
sótti mjólk
í Borgar-
fjörðinn
♦♦♦