Morgunblaðið - 23.11.2005, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Upplestur | Þráinn Bertelsson og
Solveig Einarsdóttir kynna bækur
sínar á Amtsbókasafninu á Ak-
ureyri í dag kl. 17.15.
Ungir | Stofnfundur Ungra vinstri
grænna á Akureyri verður haldinn
í kvöld, 23. nóvember, kl. 20 í húsi
VG, Hafnarstræti 98.
ORKUSETUR Orkustofnunar tekur
formlega til starfa á Akureyri á morg-
un fimmtudag. Sigurður Ingi Frið-
leifsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri en hann hefur verið
búsettur í Svíþjóð í rúm tvö ár, þar
sem hann var að ljúka námi í um-
hverfisfræðum. Að auki er hann líf-
fræðingur og kennaramenntaður. Í
tengslum við formlega opnun Orku-
setursins verður haldin ráðstefna um
orkunotkun og orkusparnað á Hótel
KEA á morgun.
Þá hefur Ágústa Loftsdóttir eðlis-
fræðingur einnig hafið störf hjá Orku-
stofnun á Akureyri en hún mun hafa
með höndum verkefnið Vettvangur
um vistvænt eldsneyti. Auk Orkustof-
unar koma iðnaðarráðuneytið, Sam-
orka og Kaupfélag Eyfirðinga að
rekstri Orkusetursins. Þá er starf-
semin einnig styrkt af Evrópusam-
bandinu. Með þessari viðbót fjölgar
starfsmönnum Orkustofnunar á Ak-
ureyri um ríflega helming.
Sigurður sagði að starfsemi Orku-
setursins gengi út á skilvirka orku-
notkun, betri orkunýtingu og orku-
sparnað, hjá heimilum, fyrirtækjum, í
tengslum við samgöngur og einnig
hvað varðar nýja orkugjafa. „Það er
mikið að gerast í orkugeiranum, m.a.
breytingar á raforkulögum nú um
áramótin, sem munu hreyfa við mörg-
um. Vonandi verður hægt að nýta það
tækifæri til að leggja meiri áherslu á
orkusparnað, bæði í orði og verki. Við
erum að bruðla með orkuna og það
græðir enginn á því. Allt snýst þetta
um hagkvæmari orkunotkun, hvort
sem er hjá einstaklingum eða fyrir-
tækjum. Það skiptir miklu máli að
fara vel þessi auðæfi sem við eigum og
möguleikarnir eru miklir,“
Of fáir vita hvað orkan kostar
Sigurður sagði að stór hluti af sínu
starfi sneri að fræðslumálum. Hann
sagði að stærsta vandamálið sem við
blasti væri hversu litla innsýn fólk
hefði í eigin orkunotkun. „Á Norður-
löndunum þar sem ég þekki til eru
menn mun betur að sér í þessum mál-
um. Hér á landi eru það allt of fáir
sem vita hvað orkan kostar, hvað þeir
nota mikla orku og hvað þeir eru að
borga í orkukostnað. Oft er hægt að
bregðast við orkureikningunum, með
því að skoða eigin notkun, ekki síst ef
menn sjá einhverjar breytingar.“
Sigurður sagði að þótt við Íslend-
ingar værum svo heppnir að búa við
endurnýjanlega orku, þegar kemur
að húshitun og rafmagni, væri ekki
þar með sagt að við þyrftum að bruðla
með hana. „Því betur sem nýtum
þessi auðæfi, því meira fáum við út úr
þeim.“
Þetta á þó ekki við hvað varðar
samgöngur og sagði Sigurður Ingi að
orkusparnaður á þeim vettvangi væri
ekki síður mikilvægur og þá frá um-
hverfislegu sjónarmiði. Hann sagði
ýmsar leiðir til, t.d. með því að kaupa
sparneytnari bíla, með breyttu akst-
urslagi, eða með því að draga úr bíl-
notkun.
Orkusetur Orkustofnunar mun
taka yfir ákveðin orkusparnaðarverk-
efni sem þegar eru í gangi. Þar nefnir
Sigurður verkefni sem tengist orku-
sparnaði í fiskeldi, sem unnið er í sam-
starfi við Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins. „Einnig verkefni þar sem er
verið að gera úttekt á húshitun á svo-
kölluðum köldum svæðum, í sam-
starfi við Rannsóknadeild byggingar-
iðnaðarins og verkfræðideild Háskóla
Íslands. Niðurstöður verkefnsins
verða kynntar á ráðstefnunni á Hótel
KEA. „Húshitun á köldum svæðum
er niðurgreidd og það er því tvöfaldur
ávinningur ef hægt er að ná fram
sparnaði á þeim svæðum, bæði fyrir
notendur og ríkið,“ sagði Sigurður.
Á ráðstefnunni á Hótel KEA á
morgun, verða flutt fjölmörg erindi
um orkunotkun og orkusparnað. Ráð-
stefnan sem er öllum opin og stendur
frá kl. 9.30-14.30. Þeir sem vilja nýta
sér hádegisverðartilboð og kaffi
greiða 2.000 krónur. Að lokinni ráð-
stefnu verður móttaka í nýrri starfs-
stöð Orkuseturs og Vettvangs um
vistvænt eldsneyti, að Borgum. Þar
verður m.a. skrifað undir samstarfs-
samninginn við KEA.
Ráðstefna um orkunotkun og orkusparnað á Hótel KEA
Aukin starfsemi Orku-
stofnunar á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður Ingi Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
KEA efnir til Kaupdaga
KAUPFÉLAG Eyfirðinga efnir til
svonefndra Kaupdaga, þeir hefjast í
dag og standa til 18. desember næst-
komandi. Þeir fela í sér að á áttunda
þúsund félagsmenn KEA fá senda
inneignarmiða að andvirði 6.000
krónur auk þess sem þeim bjóðast
góð afsláttarkjör af vöru og þjónustu
fyrirtækja á félagssvæðinu.
Félagið ver allt að 50 milljónum
króna í þetta verkefni og sagði Hall-
dór Jóhannsson framkvæmdastjóri
að ákveðið hafði verið að félagsmenn
nytu góðs af góðu gengi félagsins á
liðnu ári. Stjórn KEA hafi því ákveð-
ið að verja þessum peningum til að
leita hagstæðra viðskiptakjara fyrir
félagsmenn sína. Að hluta kemur
verkefnið til framkvæmda nú, með
inneignarmiðunum en í framhaldi af
Kaupdögum hefst vinna við útgáfu
Fríðindakorts fyrir félagsmenn. Það
verður þeim að kostnaðarlausu og er
stefnt að því að það komi út í febrúar
á næsta ári.
Félagsmenn fá nú í vikunni sent
heim hefti, sem hvert inniheldur þrjá
inneignarmiða að verðmæti 2.000
krónur en jafnframt er í heftinu get-
ið um þá sem eru í samstarfi við
KEA vegna verkefnisins og þau kjör
sem þeir bjóða á vörum og þjónustu.
Markmiðið er að fjölga félags-
mönnum segir Ingibjörg Ösp Stef-
ánsdóttir markaðs- og kynningar-
stjóri KEA og er átakið nú liður í því
verkefni. Því fleiri félagsmenn, þess
öflugra yrði félagið. Hún sagði að
vissulega væri bróðurpartur fé-
lagsmanna kominn yfir miðjan aldur
og endurnýjunar væri þörf.
Félagsmenn fá 6
þúsund krónur
Kaupdagar Halldór Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA, og Ingibjörg Ösp
Stefánsdóttir, kynningar- og markaðsstjóri, kynntu Kaupdaga KEA.
Morgunblaðið/Kristján
Seltjarnarnes | Útsvar á Seltjarnar-
nesi lækkar úr 12,46 í 12,35% og fast-
eignaskattur úr 0,32% af fasteigna-
mati í 0,30%. Þá lækkar vatnsskattur
úr 0,13% af fasteignamati í 0,115%.
Enginn holræsaskattur verður lagð-
ur á Seltirninga frekar en fyrri ár og
þjónustugjöld hækka ekki. Þetta er
meðal tillagna í fjárhagsáætlun bæj-
arins, sem lögð verður fyrir bæjar-
stjórn Seltjarnarness í dag til fyrri
umræðu.
Í tillögunum kemur fram að
rekstrarhlutfall bæjarsjóðs er 85,4%.
Engar lántökur eru fyrirhugaðar
árinu og verða skuldir bæjarsjóðs
áfram greiddar niður. Þá nemur
veltufé frá rekstri um 230 milljónum
króna.
Fasteignaskattur af íbúðarhús-
næði var lækkaður í janúar sl. úr
0,365% í 0,32% og lækkar nú enn.
Engar hækkanir eru ráðgerðar á
gjaldskrám sveitarfélagsins á næsta
ári þrátt fyrir verðlagsbreytingar, en
engin skerðing verður þó á þjónustu-
stigi. Þannig munu leikskólagjöld,
gjaldskrá skólamötuneyta og önnur
þjónustugjöld haldast óbreytt en
ekki hækka í takt við verðbólgu.
Samkvæmt árlegri greinargerð
Grant Thornton endurskoðunar um
fjármál Seltjarnarnesbæjar er fjár-
hagsstaða Seltjarnarnesbæjar sterk
og hefur styrkst jafnt og þétt síðustu
ár, hvort sem litið er til afkomu bæj-
arsjóðs, veltufjár frá rekstri, veltu-
fjárhlutfalls eða skuldastöðu. Unnt er
að nálgast greinargerð Grant Thorn-
ton í heild sinni á vef Seltjarnarnes-
bæjar www.seltjarnarnes.is
Seltirningar njóti góðs reksturs
Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri Seltjarnarness, segist afar
stoltur yfir því að hafa svigrúm til
þess í rekstri bæjarins að lækka álög-
ur. „Það hlýtur að vera markmið og
metnaður allra sveitarfélaga að veita
samkeppnisfæra þjónustu með hóf-
legri gjaldtöku á íbúa,“ segir Jón-
mundur. „Rekstur bæjarins hefur
gengið afar vel á þessu kjörtímabili
og fjárhagur bæjarins styrkst ár frá
ári. Því fannst okkur bæði tilefni og
full ástæða til að láta bæjarbúa, bæði
fasteignaeigendur og skattgreiðend-
ur njóta þess að vel hefur tekist til og
vel árað í okkar búskap.“
Jónmundur segir bæjaryfirvöld
ennfremur vera að bregðast við
væntanlegri hækkun á fasteignamati
fasteigna á Seltjarnarnesi. „Þetta er í
annað sinn sem kemur fram tillaga í
bæjarstjórn Seltjarnarnes um að
lækka fasteignagjöld, einmitt til þess
að kostnaði vegna hækkunar fast-
eignamats verði ekki velt beint yfir á
fasteignaeigendur í bænum,“ segir
Jónmundur.
Aðspurður hversu mikið hver Sel-
tirningur græði á þessum lækkunum
í krónum segir Jónmundur það mis-
jafnt eftir því hvernig viðkomandi er í
sveit settur, en ljóst sé að gjalda-
stefna Seltjarnarnesbæjar, hvort
sem litið er til útsvars, fasteigna-
gjalda eða þjónustugjalda, spari hin-
um venjulega bæjarbúa umtalsverða
fjármuni ef mið er tekið af því sem
gerist í nágrannasveitarfélögum. Það
að þjónustugjöld hækki ekki í takt við
verðbólgu hljóti að hafa umtalsverð
áhrif á kaupmátt fjölskyldna. „Ég
minni á að Seltjarnarnes er eina
sveitarfélagið á landinu sem ekki tek-
ur holræsagjöld, en kostnaður vegna
þess gjalds eins getur numið tugum
þúsunda fyrir hvert heimili á ári.“
Seltjarnarnes lækkar útsvar og fasteignagjöld
Með lægsta útsvar á
höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Þorkell
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Mosfellsbær | Róttækar breyting-
ar verða á fuglalífi á Blikastaðanes-
inu vestast í Mosfellsbænum þegar
golfvöllur Mosfellsbæinga þar verð-
ur stækkaður. Á milli mynnis Úlf-
arsár í suðri og Leirvogs í Norðri
hefur lengi verið mikið fuglalíf, þar
sem bændur á Blikastöðum höfðu
m.a. æðavarp áður fyrr. Þurfa æð-
arfugl, tjaldur, kría, sílamávur og
aðrir fuglar að þoka fyrir golfbraut-
um við stækkun golfvallarins. Þetta
kemur fram í opnu bréfi sem Guð-
jón Jensson, íbúi í Mosfellsbæ, hef-
ur sent Umhverfisnefnd Mosfells-
bæjar.
Í bréfinu bendir Guðjón einnig á
það sem hann kallar dauðagildru í
grjótnámi á nesinu, en grafinn hef-
ur verið djúpur skurður á Blika-
staðanesinu norðanverðu og allt út í
fjöru. Þar hefur verið lagt stutt
plaströr og fyllt upp í til að reiðleið,
sem lögð var fyrir nokkrum árum,
verði áfram greið. Ræsið virðist þó
hafa stíflast, svo vatnið í gryfjunni
nær ekki að renna eðlilega niður í
fjöruna og út í Leirvoginn. Því er
skurðurinn fullur af vatni og beggja
vegna hans snarbrattir bakkar sem
geta reynst afar hættulegir, ef ein-
hver skyldi falla niður í vatnið af
bökkunum. Segir Guðjón engar
girðingar eða hindranir þar og
merkingar „ákaflega sparlegar,“ en
einungis frumstæðu skilti hafi verið
komið sem vari við sprengingum en
engri annarri hættu á svæðinu.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæj-
arstjóri Mosfellsbæjar, segir ekki
nauðsynlegt að fuglalíf þoki fyrir
golfbrautum. „Það var einfaldlega
skoðað þegar þessi golfvöllur var
hannaður,“ segir Ragnheiður og
bendir á að fleiri golfvellir séu á
landinu þar sem fuglalíf er ágætt,
t.d. á Seltjarnarnesi og Akranesi.
„Stærstur hluti nessins verður
áfram ósnertur. Efnistakan verður
undir tveimur brautum. Menn hafa
riðið um nesið árum saman og það
hefur ekki truflað fuglalífið, svo ég
efast um að golfið trufli það.“
Varðandi efnistökuna og hættuna
vegna skurðsins segir Ragnheiður
alveg ljóst í samningum sem Mos-
fellsbær hefur gert við verktakana
vegna efnistökunnar að allar fram-
kvæmdir eigi að vera innan girð-
ingar og merkingar eigi að vera
skýrar, sem vara bæði við hættu og
sprengingum. „Ef ástandið er eins
og Guðjón lýsir munum við ganga
eftir því við verktakana að eftir
samningum verði farið,“ segir
Ragnheiður.
Stækka golfvellir á
kostnað fuglalífs?
Morgunblaðið/Sverrir