Morgunblaðið - 23.11.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 19
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐ
Keflavík | „Ég hef alla tíð verið bæði mikill mús-
íkmaður og íþróttamaður og ég held að hvort
tveggja hafi gert mér mjög gott. Það er eiginlega
með ólíkindum að maður geti sungið svona gam-
all,“ sagði Þórólfur Sæmundsson í samtali við
Morgunblaðið en Þórólfur kvaddi fyrir skömmu
Karlakór Keflavíkur eftir tæp 40 ár í kórnum.
Litlu áður var hann sæmdur titlinum Elsti kór-
maður á Íslandi, en Þórólfur er komin á tíræð-
isaldur og gerir íþróttaæfingar á hverjum degi.
Það er mikil reisn yfir Þórólfi Sæmundssyni og
þegar blaðamaður hélt að hann hefði klætt sig upp
fyrir hann sagðist hann alltaf klæða sig svona. Það
var ekki með minni reisn sem Þórólfur kvaddi
Karlakór Keflavíkur eftir að hafa sungið með
þeim í tæp 40 ár. Hann bakaði vöfflur með kaffinu
en eftir kaffihlé tók hann dótið sitt og labbaði út í
miðju lagi. Þórólfur er hins vegar langt frá því að
vera búinn að syngja sitt síðasta, enda ótrúlega
hress og röddin enn svo tær og skýr.
„Já, það er eiginlega með ólíkindum að maður
geti sungið svona gamall. Ég hef eiginlega sungið
alla mína tíð. Ég byrjaði að syngja í barnakór á
Ólafsfirði þar sem ég ólst upp, söng með íþrótta-
kennaranáminu á Laugum og síðan í Karlakór
Keflavíkur eftir að ég flutti hingað og hætti á
sjónum. Mér telst til að ég hafi sungið undir stjórn
15 kórstjórnenda um ævina.“ Þórólfur hefur alltaf
sungið 2. bassa og var lengi elsti kórmaður á Ís-
landi. Hann var sæmdur þeim titli skömmu á ný-
liðnu kóramóti í Hafnarfirði.
Söngnum fylgir gleði
Eftir að Þórólfur hafði unnið sem íþróttakenn-
ari við Laugaskóla í nokkur ár æxluðust hlutirnir
þannig að hann fór á vertíð. Söngurinn vék þó
aldrei og sjálfsagt hafa margir slagararnir verið
teknir um borð, en þegar hann kom alfarinn í land
árið 1968 gekk hann til liðs við Karlakór Keflavík-
ur. Þeir eru því ófáir tónleikarnir sem Þórólfur
hefur komið fram á og hann sagði að ef minnið
hefði brugðist í söngnum, hefði hann áttað sig á
laginu og textanum um leið og forspilið var leikið.
Hann viðurkennir að minnið sé ekki eins gott og
það var en mæðin hafi hins vegar verið aðal-
ástæðan fyrir því að hann hætti í kórnum. „Ég
verð svo móður þegar ég er að syngja. Ég skadd-
aðist á lungum eftir að ég datt um árið og lækn-
irinn minn hvatti mig í og með til að hætta.“
Þegar Þórólfur var spurður að því hvað fengi
mann til að syngja í kór í tæp 40 ár og fara á tvær
æfingar í viku, stendur ekki á svari. „Ég er bæði
tónelskur og mikill músíkmaður og ég finn að tón-
listin hefur gert mér mjög gott. Ég hef alltaf verið
glaðvær og fer aldrei í fýlu. Það þakka ég söngn-
um. Svo er líka mjög fullorðið fólk í móðurætt
minni,“ sagði Þórólfur og bætti við að söngurinn
hefði alltaf verið stór hluti af hans lífi með íþrótt-
unum og að söngurinn hefði hjálpað honum í
gegnum margar raunir í lífinu. Hann vildi hins
vegar ekki fara nánar út í þá sálma enda glað-
værðin hans leiðarljós, að ekki sé minnst á grall-
araganginn og öðruvísi þekkja vinir og kunn-
ingjar hann ekki. „Já, ég hef alltaf verið mikill
grallari og er enn,“ sagði Þórólfur og hélt að við-
tali loknu í matsal dvalarheimilisins Hlévangs
með grallaraglampa í augum.
Elsti kórmaður á Íslandi hættir eftir tæp fjörutíu ár í Karlakór Keflavíkur
Hef alltaf verið mikill grallari
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Elsti kórmaðurinn Þórólfur Sæmundsson hefur lengi verið elsti kórmaður á Íslandi. Hann er nú sest-
ur í helgan stein, eftir mörg góð ár í kórum, en tekur fram að hann hafi ekki sungið sitt síðasta.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Varmahlíð | Þrjátíu ára afmælis
Varmahlíðarskóla í Skagafirði
var minnst um síðustu helgi með
veglegri sýningu.
Páll Dagbjartsson, sem verið
hefur skólastjóri í Varmahlíð frá
1974, að tveimur árum und-
anskildum, sagði forsöguna þá að
um allmörg ár hefði verið í
Varmahlíð rekinn unglingaskóli.
Þá voru uppi hugmyndir um að
byggja héraðsskóla í Skagafirði,
en vegna ágreinings um staðarval
varð ekki af því. Síðar á sjöunda
áratugnum var ákveðið að reisa í
Varmahlíð skyldunámsskóla sem
tæki yfir barna- og unglingastigið
og af stórhug sameinuðust hrepp-
arnir í Skagafirði um byggingu
skólans, sem tekinn var í notkun í
nóvember 1975, en meðan á
byggingu stóð fór kennslan að
mestu fram í félagsheimilinu Mið-
garði.
Á afmælissýningunni voru með-
al annars sýndir ýmsir gripir sem
nemendur skólans höfði gert, svo
og skólabækur og kennslugögn
frá fyrstu árunum.
Fjöldi gesta, eldri kennarar og
nemendur heimsóttu sinn gamla
skóla í tilefni dagsins, en á þeim
þrjátíu árum sem skólinn hefur
starfað hafa rúmlega átta hundr-
uð nemendur lokið sínu grunn-
skólanámi þar.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Minningar Páll Dagbjartsson skoðar gamlar myndir úr skólalífinu.
Sýning í tilefni
afmælis skólans
Eftir Björn Björnsson
Handavinna Silfurdrifið drykkjar-
horn og kistill, verk nemenda.
Nýr formaður | Jón Gunnarsson,
oddviti Vatnsleysustrandarhrepps,
verður formaður stjórnar Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum á kom-
andi starfsári. Öll stjórnin var end-
urkjörin. Sveitarfélögin skipast á um
formennsku og nú er komið að
Vatnsleysustrandarhreppi.
Í stjórninni eru, auk Jóns, Böðvar
Jónsson úr Reykjanesbæ sem var
formaður á síðasta ári, Hörður Guð-
brandsson úr Grindavík, Óskar
Gunnarsson úr Sandgerði og Sig-
urður Jónsson úr Garði.
Staðið verði við stefnu | Aðal-
fundur SSS skorar á heilbrigð-
isráðherra og fjárlaganefnd Alþingis
að standa við viljayfirlýsingu ráð-
herra og framtíðarsýn Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja sem und-
irrituð var í júní á síðasta ári.
Áformin hafa ekki gengið eftir
vegna skorts á fjárveitingum.
Fram kemur það álit að nauðsyn-
legt sé að grípa til aðgerða til að
unnt verði að ljúka framkvæmdum
innan þess tíma sem yfirlýsingin
gerði ráð fyrir.
Fagna sameiningu lögreglu |
Sveitarstjórnarmenn á Suð-
urnesjum fagna þeim breytingum
sem áformaðar eru á skipan lög-
gæslumála á Suðurnesjum, með
sameiningu sýslumannsembættanna
í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli.
Í ályktun aðalfundar þeirra um
helgina kemur fram að til verður öfl-
ugt lögreglulið sem geri það kleift að
bæta grenndargæslu og gera lög-
gæsluna sýnilegri á svæðinu öllu,
meðal annars til að halda niðri um-
ferðarhraða og stytta þann tíma sem
tekur lögregluna að komast á vett-
vang. Þá er skorað á ríkisvaldið að
láta kanna kosti þess að flytja al-
þjóðadeild ríkislögreglustjóraemb-
ættisins til Suðurnesja.