Morgunblaðið - 23.11.2005, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tillaga að Aðalskipulagi
Innri-Akraneshrepps
2002—2014
Hreppsnefnd Innri-Akraneshrepps hefur tekið
aðalskipulag Innri-Akraneshrepps til fyrri um-
ræðu sbr. 2. mgr. 17. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997.
Hreppsnefnd Innri-Akraneshrepps auglýsir
hér með tillögu að Aðalskipulagi Innri-Akranes-
hrepps 2002-2014 samkvæmt 18. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997.
Greinargerð og skipulagsuppdrættir verða til
sýnis frá og með 23. nóvember 2005 til og með
21. desember 2005 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofu sveitarfélagsins í Miðgarði.
Á heimasíðu sveitarfélagsins,
www.hvalfjörður.is.
Hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,
105 Reykjavík.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir við skipulagstillöguna. Athuga-
semdir skulu hafa borist eigi síðar en 6. janúar
2006.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfé-
lagsins, Miðgarði, 301 Akranes. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir við skipulagstillöguna fyrir
tilskilinn frest, teljast samþykkja hana.
Innri-Akraneshreppi,
15. nóvember 2005,
Ása Helgadóttir, oddviti.
Fundir/Mannfagnaðir
Fundur
Efnahagur og búseta
aldraðra
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 26. nóv-
ember kl. 13.30 að Bjargi, Akureyri.
Fundarstjóri: Björg Finnbogadóttir, formaður
félags eldri borgara Akureyri.
Ávarp: Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri.
Lífskjör og búseta: Ólafur Ólafsson formaður
eldri borgara og Benedikt Davíðsson fv. for-
maður Landssambands eldri borgara.
Þingmönnum er boðið að mæta á fundinn.
Kaffi og meðlæti í boði bæjarstjórnar.
LEB, félag eldri borgara,
Akureyri og Eyjafirði
ásamt bæjarstjórn Akueryrar.
Félagslíf
Njörður 6005112319
HELGAFELL 6005112319 VI
GLITNIR 6005112319 I
EDDA 6005112320 I Frf. Kl 20
I.O.O.F. 7 18611237½
ET.I.III
I.O.O.F.1818611238E.T.I
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna vill að íslensk stjórnvöld
krefji bandarísk stjórnvöld skýrra
svara um hvort fangar, sem sætt
hafa pyntingum og ómannúðlegri
meðferð, hafi verið fluttir með flug-
vélum bandarísku leyniþjónust-
unnar, CIA, eða annarra aðila á
vegum Bandaríkjastjórnar, um ís-
lenska lögsögu. Afar mikilvægt sé
að öll tvímæli verði tekin af um
þetta mál.
„Ef í ljós kemur að slíkir fanga-
flutningar hafi átt sér stað um ís-
lenska lögsögu ber íslenskum
stjórnvöldum að fordæma slíkt og
fá fyrir því fullvissu hjá bandarísk-
um stjórnvöldum að slíkt muni ekki
endurtaka sig,“ segir í ályktun
stjórnar SUS.
SUS krefst
svara um
fangaflug
Í TILEFNI af 35 ára afmæli Raf-
iðnaðarsambandsins 28. nóvember
nk. hefur sambandið í samstarfi við
margmiðlunarfyrirtækið Gagarín
útbúið víðtæka kynningu á námi og
störfum rafiðnaðarmanna. Kynn-
ingarefnið er í formi margmiðlunar-
disks sem kynntur var við hátíðlega
athöfn sl. fimmtudag og fengu Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, menntamála-
ráðherra, afhent fyrstu eintökin.
Diskurinn skiptist í þrennt, fyrst
og fremst er hann kynning á fjöl-
breyttum störfum rafiðnaðar-
manna, en einnig á þeim náms-
möguleikum sem í boði eru eftir
grunnskóla, s.s. hvaða skólar bjóða
upp á kennslu og brautirnar sem
velja má um. Einnig er kynning á
Rafiðnaðarsambandinu og störfum
innan þess, lífeyrissjóðsins, rafiðn-
aðarskólans, samtaka atvinnurek-
enda í raf- og tölvuiðnaði.
Björn Ágúst Sigurjónsson, for-
maður Félags íslenskra rafvirkja,
segir í raun allt sviðið vera tekið
fyrir en margir geri sér ekki grein
fyrir því hversu mikið greinin hefur
stækkað undanfarin ár og hversu
fjölbreytt störf rafiðnaðarmanna
eru í dag, allt okkar líf byggist á
rafmagni og rafmagnstækjum.
Björn segir hugmyndina vera að
dreifa kynningarefninu í grunn-
skóla, til þeirra sem áhuga hafa á
og í bígerð sé sérstakt kynningará-
tak þar sem farið verður í skóla og
krökkum kynntur sá valkostur að
fara í starfsnám þegar grunnskóla
lýkur.
Aðspurður hvort nauðsyn sé á
slíkri kynningu nú segir Björn að
ekki séu vandamál í rafiðnaðinum í
dag og „varðandi sveinspróf til
dæmis eru margir að læra þannig
að styrkurinn er sá að við erum
ekki í nauðvörn eins og kannski
margar aðrar iðngreinar. Hins veg-
ar þarf að viðhalda áhuganum og
kynna fjölbreytnina.“
Björn benti ennfremur á að fjölg-
un í rafiðnaðarnámi sé aðeins af
hinu góða og hljóti að gefa af sér
betri nemendur.
Fleiri stelpur í starfsnám
Þorgerður Katrín menntamála-
ráðherra gerði það að umtalsefni í
ræðu sinni hversu fáar stúlkur
sækja í starfsnám og sagðist vilja
breyta því, meðal annars með öfl-
ugu kynningarstarfi.
Þorgerður sagðist hafa orðið
áþreifanlega vör við þörfina á
markvissari kynningu á starfs-
menntun og þeim kostum sem í
boði eru. „Á framhaldsskólastigi er
í boði starfsnám á um 80 náms-
brautum. Mikill minnihluti, eða
færri en þrjátíu af hundraði, nýtir
sér þetta fjölbreytta framboð
starfsmenntunar. Sé hlutfall
kynjanna skoðað með tilliti til
námsvals skekkist myndin enn
frekar,“ sagði Þorgerður og er full-
viss um að til þurfi hugarfarsbreyt-
ingu á þjóðinni. Hún segir að við-
horf foreldra og nemenda verði að
breytast svo að fleiri ungir Íslend-
ingar velji sér iðn- og starfsnám
eftir grunnskóla. Í ljósi þess benti
hún á að náms- og starfsráðgjöf
þyrfti að hefjast fyrr til að aðstoða
nemendur að skynja styrkleika sína
á hönd og bók.
Að endingu fagnaði Þorgerður
því frumkvæði Rafiðnaðarsam-
bandsins að gefa út kynningarefnið
og sagði það vera gott fordæmi,
öðrum fagfélögum og hagsmuna-
samtökum til eftirbreytni.
Rafiðnaðarsambandið gefur út kynningarefni um nám og störf
Þörf á að viðhalda áhuganum
og kynna fjölbreytni rafiðnaðar
Morgunblaðið/Golli
Kuldinn var þessum rafvirkjum
engin hindrun við vinnu sína enda
klæddir eftir veðri.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞEGAR upp er staðið held ég að
við höfum verið með alveg frábæra
sýningu,“ segir Dagmar Haralds-
dóttir, framkvæmdastjóri sýning-
arinnar Hönnun & heimili, sem
haldin var í Laugardalshöllinni um
helgina. Dagmar segir aðsóknina
hafa farið fram úr björtustu vonum
en á milli 25 og 30 þúsund manns
mættu í Höllina. Þar að auki voru
fimm til sex þúsund gestir við-
staddir kaupstefnu sem haldin var
á fimmtudag og föstudag en þá var
jafnframt ráðstefna, og fyrir-
lestraröð, á vegum Hönnunar-
vettvangs.
Stefnt verður að því að halda
sýninguna annað hvert ár og segir
Dagmar það liggja fyrir að næsta
sýning verði enn stærri og veg-
legri. Margir þeirra sem nú tóku
þátt hafa ákveðið að vera með að
nýju ásamt því að mikið hafi verið
spurt út í næstu sýningu.
Sýningin var sú fyrsta sem hald-
in er í nýrri viðbyggingu Laug-
ardalshallar og segir Dagmar alla
aðstöðu til fyrirmyndar. „Loks
höfum við eignast okkar sýning-
arhöll, þar sem hugsað er fyr-
irfram um hlutina þ.e. hvernig þeir
henta til sýningarhalds, tengi, raf-
magn og aðgengi að öllu er til fyr-
irmyndar.“
Á milli 25 og 30 þúsund gestir sóttu sýningu um hönnun um helgina
Loks höfum við eignast sýningarhöll
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar sýndu vörur sínar í nýrri viðbyggingu
Laugardalshallar um helgina. 25–30 þúsund manns skoðuðu sýninguna.
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ segir
í ályktun að ráðamenn eigi að hætta
að styrkja óhagkvæman fyrirtækja-
rekstur í landinu með starfrækslu
opinberra lánastofnana á borð við
Byggðastofnun. Byggðastofnun hef-
ur hætt útlánum og er eigið fé stofn-
unarinnar komið niður fyrir það sem
leyfilegt er.
„Með því að ýta undir rekstur og
stofnun fyrirtækja, sem hefðu ekki
hlotið brautargengi á frjálsum mark-
aði, eykur ríkið á vanda landsbyggð-
arinnar – vanda sem felst fyrst og
fremst í því að halda heilbrigðum
fyrirtækjum gangandi. Með opinber-
um lánum og fyrirgreiðslum veitir
ríkið óskynsamlegum hugmyndum
og taprekstri brautargengi. Það
skapar falskar vonir sem munu á
endanum bresta, auk þess sem það
skaðar heilbrigðan fyrirtækjarekst-
ur í samkeppni.
Frjálshyggjufélagið leggur til að
Byggðastofnun verði lögð niður í
heild sinni og starfsemi hennar með
öllu felld niður. Ekki er ráðlegt að
færa sóun fjármuna til annarra emb-
ætta líkt og nefnt hefur verið. Hætta
þarf allri sóun og afskiptum ríkisins
af markaði sem fyrst,“ segir í álykt-
un félagsins.
Vill leggja
Byggða-
stofnun
niður
♦♦♦