Morgunblaðið - 23.11.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 37
DAGBÓK
Við vonumst til að geta farið að æfa ínýja hluta Laugardalshallarinnar ámánudaginn kemur og þó svo maðurgeri sér ekki alveg grein fyrir hversu
mikil áhrif tilkoma þessarar nýju aðstöðu hefur
á frjálsíþróttir þá vitum við að þetta verður al-
gjör bylting,“ segir Egill Eiðsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsíþróttasambands Íslands,
um aðstöðu fyrir frjálsíþróttir í nýjum sal í
Laugardalshöll.
Stefnt er að því að opna formlega nýjan hluta
Hallarinnar á þriðjudaginn en æfingar hefjast á
mánudaginn og fyrsta mótið í nýja salnum verð-
ur í janúar. Í húsinu verður 200 metra hlaupa-
braut þar sem fjórar brautir eru og er hægt að
lyfta gólfinu aðeins upp í beygjunum. „Þessu er
lyft með vökvatjökkum og tekur ekki langan
tíma þannig að það þarf ekki að bíða neitt á
meðan beygjunum er lyft upp eða þær settar
niður aftur,“ segir Egill, en til stóð að taka að-
stöðuna í notkun nokkru fyrr og stefnan var sett
á lok síðasta sumars. Nýi hluti Hallarinnar er
líka hugsaður sem sýningarhöll og á að geta
nýst vel sem slík og eins fyrir frjálsíþróttir.
„Aðstaðan þarna stenst fyllilega samanburð
við það besta sem gerist í Evrópu hvað frjáls-
íþróttaaðstöðuna varðar. Stærstu hallir hafa
reyndar sex hringbrautir en það eru fjórar
brautir hér. Það eina sem er kannski ekki eins
og í þessum stóru höllum er áhorfendaaðstaðan.
Ég veit ekki hvað komast margir áhorfendur
þegar mót er haldið þarna en það á að vera
hægt að tylla bláu bekkjunum sem eru í gamla
salnum yfir í þennan nýja og setja þá upp við
vegg þar. Ég gæti trúað að það mætti koma ríf-
lega 1.000 áhorfendum í þá,“ segir Egill.
FRÍ stefnir að því að halda hér á landi ein-
hver stórmót í frjálsum. „Já, nú er aðstaðan til
staðar og það er næst á dagskrá hjá okkur að fá
eitthvert mót hingað. Hvort það verður strax í
vetur veit ég ekki ennþá en trúlega reynum við
að læra á aðstöðuna fyrst áður en við tökum að
okkur stórmót. Þróunin hin síðari ár hefur verið
þannig í Evrópu að innanhússmótin eru orðin
mun meira áberandi. hér áður fyrr voru þetta
aukamót en nú mæta allir þeir bestu og EM og
HM inni eru orðin stórmót.
Upphaflega stóð til að opna aðstöðuna með
móti 15. október í tengslum við mótaþing Evr-
ópusambandsins. Það var því miður ekki hægt
en við fórum með alla þingfulltrúana, 280
manns, og sýndum þeim Höllina og það var
mjög gott að geta sýnt þeim að við erum komin
með fína aðstöðu. Menn vita þá að hverju þeir
ganga þegar við sækjum um að halda alþjóðlegt
mót hér,“ sagði Egill Eiðsson, framkvæmda-
stjóri FRÍ.
Íþróttir | Nýr salur í Laugardalshöllinni með frábærri aðstöðu fyrir frjálsíþróttir
Sambærilegt við það besta
Egill Eiðsson er
fæddur og uppalinn á
Borgarfirði eystra en
kom á mölina í mennta-
skóla sautján ára gam-
all og hefur búið meira
og minna í Reykjavík
síðan. Hann fór í nám til
Þýskalands 1984 og
dvaldi þar í fjögur ár við
nám í íþróttafræðum.
Hann byrjaði sem ung-
lingalandsliðsþjálfari hjá FRÍ árið 1997 og var
það fram til ársins 2000 þegar hann tók við
starfi framkvæmdastjóra sambandsins og því
starfi gegnir hann enn. Egill er giftur og
þriggja barna faðir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Óli „litli“ Tynes
LAUGARDAGINN 12. nóvember
hlustaði ég á þá félaga Eirík Jóns-
son og Reyni Traustason á Talstöð-
inni, hjá þeim var Óli Tynes, frétta-
maður og formaður hjóla-
brettafélags. Tilefnið var að Óli
hafði í grein í Morgunblaðinu notað
orðið „hjólabrettagengi“ yfir óvand-
aða blaðamenn DV.
Margítrekað reyndu þeir að fá
Óla til að biðjast afsökunar á um-
mælum sínum, en það var sama
hvernig þeir létu í honum, hann
fékkst alls ekki til þess, heldur tal-
aði hann bara um óvönduð vinnu-
brögð blaðamanna DV. Ekki dettur
mér í hug að verja þá blaða-
mennsku sem stunduð er á DV, síð-
ur en svo, en hvers á hjóla-
brettafólk að gjalda? Hann hefði
auðveldlega getað lýst vanþóknun
sinni á fréttamönnunum á DV án
þess að hreyta ónotum í aðra í leið-
inni.
Mér fannst Eiríkur og Reynir í
rauninni vera að gefa Óla frábært
tækifæri til að bæta fyrir þessi mis-
tök sín og hann hefði átt að grípa
það og segja „fyrirgefðu, mér urðu
á mistök, þetta var vanhugsað af
mér“. En nei, það gat hann bara
alls ekki, ekki frekar en svo margir
aðrir litlir kallar. Sumum virðist
bara vera lífsins ómögulegt að játa
á sig mistök, hvað þá að biðjast af-
sökunar á þeim.
Svo las ég þessa grein hans Óla
og viti menn, hann hafði fengið
þessa „snilldar“hugmynd hjá Össuri
Skarphéðinssyni, ég man ekki betur
en að það hafi einmitt verið Össur
sem með ógætilegu orðalagi móðg-
aði okkar ágætu öskukalla, sagði að
þeir sem ekki stæðu sig í starfi
ættu bara að fara í öskuna.
Svo er það auðvitað möguleiki að
Óla finnist hjólabrettafólk bara al-
mennt vera pakk.
Þóra Guðmundsdóttir.
Bókatíðindi
ÉG var um daginn hjá vinkonu
minni og var hún þá búin að fá
Bókatíðindi heim til sín en hún býr
við Kleppsveg.
Þegar ég kom heim til mín (bý í
Álfheimum sem er rétt hjá), tilbúin
að merkja við þær bækur sem mig
langar í í Bókatíðindum, þá voru
þau ekki komin.
Svo sá ég auglýsingu þar sem
sagt var að Bókatíðindi myndu
koma „heim“ í nóvember. En af
hverju ekki til allra á sama tíma?
Jojo.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ára afmæli. Á morgun, fimmtu-daginn 24. nóvember, verður
sextug Anna Lóa Marinósdóttir,
Holtsbúð 22, Garðabæ. Eiginmaður
hennar er Pálmi Sigurðsson. Þau hjón-
in munu taka á móti gestum í tilefni
dagsins í Golfskálanum í Grafarholti
frá kl. 18 til 22 hinn 24. nóvember.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 23. nóv-ember, er áttræð Guðrún Jóns-
dóttir frá Hítardal, Borgarbraut 65a,
Borgarnesi. Í tilefni dagsins tekur hún
á móti gestum frá kl. 15 laugardaginn
26. nóvember í sal eldri borgara á efstu
hæð að Borgarbraut 65a, Borgarnesi.
Hnitmiðuð vörn.
Norður
♠K865432
♥96 S/NS
♦94
♣K4
Vestur Austur
♠97 ♠ÁD10
♥105 ♥42
♦ÁKG8765 ♦1032
♣82 ♣DG1093
Suður
♠G
♥ÁKDG873
♦D
♣Á765
Vestur Norður Austur Suður
Manoppo Debonnaire Lasut Teixeira
– – – 2 hjörtu
3 tíglar 3 spaðar Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Lasut og Manoppo eru vafalítið
þekktustu spilarar Indónesa á heims-
vísu. Þeir hafa áratugum saman verið
akkerispar þjóðar sinnar í opna flokkn-
um, en tíminn líður og menn eldast, og
í ár spiluðu þeir í öldungadeildinni. Þar
komust þeir alla leið í úrslitaleikinn, en
lutu þá í lægra haldi fyrir Bandaríkja-
mönnum.
Spilið að ofan er frá leik Indónesíu
og Portúgal í fjórðungsúrslitum. Opn-
un Teixeira á tveimur hjörtum er sterk
(Acol) og síðan kaupir hann samning-
inn í fjórum hjörtum (á hinu borðinu
fórnuðu AV í fimm tígla).
Manoppo kom út með tígulás og La-
sut sýndi þrílit. Nú er aðeins ein vörn
til og þeir félagar fundu hana fyr-
irhafnarlaust: Manoppo skipti yfir í
smátt hjarta í öðrum slag. Sagnhafi
spilaði laufi þrisvar, en Manoppo
trompaði með tíunni, spilaði Lasut inn
á spaða, sem aftur trompaði út. Þar
með komst Teixeira ekki hjá því að
gefa fjórða slaginn á lauf.
Góð nýting á tromphundum varn-
arinnar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
TINNA Gunnarsdóttir iðnhönn-
uður hlaut Hönnunarverðlaunin
2005 en þau voru veitt á Hönn-
unardögum sem Hönnunarvett-
vangur efndi til í fyrsta sinn um
liðna helgi. Verðlaunafé var 500.000
kr. og tók Tinna við viðurkenningu
sinni úr hendi Steinunnar Valdísar
Óskarsdóttur borgarstjóra og Ás-
rúnar Kristjánsdóttur, formanns
dómnefndar.
Í rökstuðningi dómnefndar segir:
„Tinna Gunnarsdóttir fær Hönn-
unarverðlaunin 2005 fyrir nýstár-
lega hönnun á gangstéttarhellum
úr áli, og framleiðslu á gúmmídúk-
um og gólfmottum þar sem frum-
leg notkun efnis og listræn úr-
vinnsla í munsturgerð fer saman.
Á síðasta ári hefur hönnun Tinnu
vakið athygli á sýningum víða um
heim. Dómnefnd var sammála um
að hér væri um framúrskarandi
hönnun að ræða sem vekti athygli
á góðri íslenskri hönnun langt út
fyrir landsteinana.“
Í dómnefnd sátu Guðbjörg
Ingvadóttir skartgripahönnuður í
Aurum, Egill Kalevi iðnhönnuður,
Stefán Snæbjörnsson innanhús-
arkitekt, og Ásrún Kristjánsdóttir
hönnuður sem var formaður dóm-
nefndar.
Tinna Gunnarsdóttir hlaut
Hönnunarverðlaunin
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Höfum trausta kaupendur að atvinnuhúsnæði, allt frá 200
fm til 10.000 fm. Sérstök eftirspurn er eftir atvinnuhúsnæði
sem er í útleigu. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS
ATHUGIÐ - STAÐGREIÐSLA