Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 342. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Tvífarar
fræga fólksins
Fjöldi fólks hefur lifibrauð
af að líkjast öðrum | 90
Lesbók | Kyrrðin í hreyfingunni: Í Kína Rithöfundurinn Cormac McCarthy Thor
Heyerdahl Börn | Jólasveinar í Þjóðminjasafninu Verðlaunaleikur Teikningar barna
Íþróttir | Önnur orrusta Chelsea og Barcelona Vieira sárt saknað HK lagði Val
NÁTTHRAFNAR gátu í fyrrinótt
barið augum stóran og skýran baug
í kringum tunglið.
Hér var um svonefndan rosabaug
að ræða en slíkir baugar myndast
þegar ljósbrot verður í ískrist-
öllum, sem eru einsleitir að formi,
og sést baugurinn vel í tæru lofti.
Óvenju tunglbjart hefur verið
undanfarna daga og hefur máninn
sést á himni allan sólarhringinn.
Þorsteinn Sæmundsson stjörnu-
fræðingur segir það stafa af því að
braut tunglsins hallist miðað við
jarðbrautina. „Þessa dagana geng-
ur það hringinn en sest aldrei hér á
Íslandi. Í Reykjavík kom það síðast
upp 13. desember kl. 13.32 en sest
svo ekki aftur fyrr en kl. 14.37 hinn
18. desember,“ segir Þorsteinn.
Ljósmynd/Helgi J. Hauksson
Rosabaugur um tunglið
Bagdad. AFP, AP. | Íraskar öryggis-
sveitir handtóku Jórdanann Abu
Musab al-Zarqawi, meintan höfuð-
paur hryðjuverkamanna í Írak, á síð-
asta ári en slepptu honum eftir yf-
irheyrslur vegna þess að þeir gerðu
sér ekki grein fyrir því hvaða mann
þeir höfðu á sínu valdi. Aðstoðarinn-
anríkisráðherra Íraks, Hussain
Kamal, greindi frá þessu í gær.
Kamal sagði að öryggissveitir í
Fallujah hefðu talið al-Zarqawi, sem
sagður er bera ábyrgð á ótalmörgum
hryðjuverkum í Írak undanfarin
misseri, grunsamlegan og var hann í
þeirra haldi í þrjár til fjórar klukku-
stundir. „Íraskar lögreglusveitir
sem voru í Fallujah bjuggu ekki yfir
tækjabúnaði til að geta tekið af hon-
um ljósmyndir eða fingraför,“ sagði
Kamal.
Mun þetta hafa verið áður en
Bandaríkjaher
réðst til atlögu
gegn uppreisnar-
mönnum í Fall-
ujah í nóvember á
síðasta ári.
Kamal greindi
ekki frekar frá til-
drögum þess að
al-Zarqawi var
handtekinn en í
frétt CNN sagði
að írösku lög-
reglumennirnir hefðu ekki borið
kennsl á hann sökum þess að al-Zar-
qawi hefði verið holdugri en á mynd-
um sem til eru af honum, hann bar
alskegg, hafði fjarlægt húðflúr af lík-
ama sínum og framvísaði kúrdísku
vegabréfi.
Bandarískir stjórnarerindrekar
sögðu ekki útilokað að það væri rétt,
að al-Zarqawi hefði um tíma verið á
valdi írösku lögreglunnar. Heitið er
25 milljónum bandaríkjadala fyrir
upplýsingar er leitt gætu til hand-
töku al-Zarqawi. „Hann er mannleg-
ur, hann býr ekki yfir hæfileikum
guðs almáttugs,“ sagði Kamal. „Við
munum hafa hendur í hári hans.“
Handtóku al-Zarqawi
en slepptu honum aftur
Íraskir lögreglumenn báru ekki kennsl á Jórdanann
Abu Musab
al-Zarqawi
Samstarf/26
Moskvu. AP. | Saksóknaraembættið í
Tétsníu hefur ákveðið að efna til lög-
reglurannsóknar eftir að í ljós kom að
geislavirkni í efnaverksmiðju einni í
Grosní er á mörkum þess að valda
„stórslysi“.
Hættan stafar af geislavirkum úr-
gangi en fullyrt er að geislavirknin sé
á sumum svæðum 58.000 sinnum
meiri en eðlilegt má teljast og að íbú-
um Grosníu stafi mikil hætta af þessu,
en verksmiðjan mun vera í útjaðri
borgarinnar.
Verksmiðjan er sögð hafa skemmst
í loftárásum rússneska hersins á
Grosní 1999 og hefur lítið eftirlit verið
haft með henni síðan þá. Lúta áhyggj-
ur manna einmitt ekki síst að þeim
möguleika að öfgamenn í Tétsníu
kynnu að reyna að ræna hinum
geislavirka úrgangi í því skyni að búa
til geislavirka sprengju, eða svokall-
aða „skítuga sprengju“.
Hættulega
mikil geisla-
virkni
Eyrarbakki | Alpan hf. hefur ákveðið
að flytja álpönnuverksmiðju sína frá
Eyrarbakka til bæjarins Targoviste í
Rúmeníu. Framleiðslu hér verður
hætt í mars og hún hafin aftur í maí í
húsnæði sem keypt hefur verið í
Rúmeníu. Ástæða flutningsins er að
sögn framkvæmdastjórans óhag-
stætt rekstrarumhverfi framleiðsl-
unnar hér á landi. Nú vinna 25
manns hjá Alpan.
Alpan hf. hefur starfað á Eyrar-
bakka síðastliðin 20 ár og framleitt
hágæða eldunaráhöld sem næstum
öll fara á erlendan markað og hafa
verið seld í yfir tuttugu löndum víðs-
vegar um heim. Þegar flest var hjá
fyrirtækinu voru starfsmenn um 50.
Erfitt rekstrarumhverfi
Þórður Bachmann framkvæmda-
stjóri segir að fyrirtækið keppi á al-
þjóðlegum mörkuðum og þar hafi
samkeppnin harðnað á undanförnum
árum, á sama tíma og rekstrarum-
hverfi fyrirtækja í útflutningi hafi
versnað stórlega, bæði vegna aukins
innlends kostnaðar, skorts á vinnu-
afli og mjög hás gengis krónunnar.
Ekki er við því að búast að starfs-
umhverfið batni á næstunni, að mati
Þórðar, því auk álversframkvæmda
og virkjana sem þeim fylgja, hafi hið
opinbera miklar framkvæmdir á
prjónunum næstu ár. Því telja eig-
endur fyrirtækisins sig ekki eiga
annan kost en fara með framleiðsl-
una þangað sem skilyrðin eru betri.
Targoviste er 100 þúsund manna
bær í nágrenni Búkarest, höfuðborg-
ar Rúmeníu. Móðurfélag Alpan,
Look Cookware Íslands hf., hefur
fest kaup á 4.800 fermetra húsnæði í
Targoviste og verður framleiðsla
fyrirtækisins flutt þangað í maí.
Að sögn Þórðar eru flestir kostn-
aðarliðir mun lægri í Rúmeníu en
hér á landi og nefnir hann orku og
vinnuafl í því sambandi, auk þess
sem flutningsleiðir verði styttri til
aðal-markaðslandanna.
Skortur á vinnuafli hefur valdið
því að ekki hefur verið unnt að full-
nægja eftirspurn eftir framleiðslu
Alpan. Síðustu ár hefur verksmiðjan
að mestu stuðst við innflutt vinnuafl
og nú er svo komið að hagkvæmara
er að fara með reksturinn til fólksins
sem vill vinna þessi störf.
Framleiðslan verður stöðvuð hér á
landi í lok marsmánaðar og þá verð-
ur farið í að taka niður vélarnar og
búa til flutnings, sem verður í maí.
Starfsfólkinu hjálpað
Næstu mánuði munu allt að átján
Rúmenar verða hér við þjálfun í hin-
um ýmsu störfum. Sá háttur var
einnig hafður á þegar Alpan hf. fór af
stað með rekstur eftir kaup á verk-
smiðju Look í Danmörku.
Fyrirhugað er að ráða 50 manns
til vinnu þegar verksmiðjan tekur til
starfa í Rúmeníu og stefnt að því að
innan tveggja ára verði starfsmenn
orðnir allt að eitt hundrað.
Stjórn Alpan hf. mun í samvinnu
við verkalýðsfélögin á staðnum vinna
að því að hjálpa þeim, sem sagt hefur
verið upp, að fá önnur störf.
Alpan hættir starfsemi á Eyrarbakka
Álpönnuverk-
smiðjan flutt
til Rúmeníu
Eftir Óskar Magnússon
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
NÚ er unnið að
gerð teikni-
myndar eftir Að-
ventu Gunnars
Gunnarssonar.
Sjón skrifar
handritið og að
sögn Gunnars
Björns Gunn-
arssonar, barna-
barnabarns
skáldsins, er stefnt að „stórmynd á
heimsmælikvarða“. Einnig er
ákveðið að Edda útgáfa gefi út ævi-
sögu skáldsins.
Gunnar Björn segir að Walt Disn-
ey hafi á sínum tíma hringt í lang-
afa hans og viljað gera teiknimynd
eftir Aðventu, en vegna ágreinings
um höfundarrétt varð ekkert af því.
Þá segir Gunnar Björn að það
hafi verið búið að tilkynna Gunnari
ákveðið að hann fengi bókmennta-
verðlaun Nóbels 1955. | 50
Teiknimynd
eftir Aðventu
Gunnar Gunnarsson
♦♦♦