Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 8
8 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Íslensku jólatrén, semhér eru á markaðifyrir jólin, koma að-
allega frá Skógrækt ríkis-
ins og skógræktarfélögun-
um, að sögn Þrastar
Eysteinssonar, fagmála-
stjóra og sviðstjóra þróun-
arsviðs Skógræktar ríkis-
ins. Íslensku jólatrén eru
aðallega úr skógum sem
ekki eru sérstaklega
ræktaðir til að framleiða
jólatré heldur er um grisj-
un skóganna að ræða. Að
sögn Þrastar eru nokkrir
skógræktendur komnir með sér-
staka reiti til ræktunar jólatráa,
þeirra á meðal Skógrækt ríkisins,
nokkur skógræktarfélög og skóg-
arbændur. Jólatrjárækt tekur 10–
20 ár áður en hún fer að skila jóla-
trjám.
Betur komið hjá einkaaðilum
Íslendingar eiga talsvert langt í
land með að verða sjálfum sér
nógir í framleiðslu lifandi jóla-
trjáa. „Við erum með um 20% af
markaðnum og höfum verið alla-
vega tvo undanfarna áratugi.
Jólatrjáaframleiðsla hjá Skóg-
rækt ríkisins hefur verið að dala.
Við teljum að hún sé betur komin
hjá einstaklingum. Það þarf að
rækta jólatrén á stöðum sem
henta vel, bæði hvað varðar veð-
urfar og skjól og nálægð við vegi.
Eins þarf að sinna trjánum í upp-
eldinu, snyrta þau og klippa, jafn-
vel formklippa og allt á réttum
tíma. Þá þarf að bera hæfilega á
þau til að þau fái góðan lit og haldi
barrinu vel. Þetta er ræktun og
meira í ætt við garðyrkju en skóg-
rækt,“ sagði Þröstur.
Jólatrjáaframleiðslan hér hefur
aðallega byggst á grisjun skóga í
uppvexti. Þegar t.d. stafafura er
gróðursett hjá Skógræktinni er
gert ráð fyrir því að á fimm ára
tímabili, t.d. frá 12–17 ára, sé
hægt að ná jólatrjám úr reitnum
sem samsvara ef til vill 10–15% af
gróðursetningunni. Í rauðgreni er
hlutfallið 20–30%. Með meiri um-
hirðu er hægt að ná þessu nýting-
arhlutfalli upp í um 50%.
Danir hafa náð miklum árangri
í ræktun jólatrjáa og „eiga“ þeir
Evrópumarkaðinn í stofutrjám,
að sögn Þrastar. Þeir flytja jafn-
vel út jólatré til skógræktarlanda
á borð við Noreg, Svíþjóð og Finn-
land auk þess að sitja nær einir að
Þýskalandsmarkaði.
„Danir eru með mikla jólatrjáa-
akra og stunda þetta eins og land-
búnað. Þeir formklippa trén, bera
á þau, bæla illgresi með eitri og
úða þau með skordýraeitri. Þann-
ig fá þeir þessa söluvöru sem Nor-
mannsþinurinn er og flestir Ís-
lendingar kaupa sem jólatré,“
sagði Þröstur.
Það þarf ekki að vera á bratt-
ann að sækja að keppa við inn-
flutninginn, að mati Þrastar, en
það kostar þó vinnu. Það ættu
fremur að vera einstaklingar og
skógræktarfélög sem fást við
ræktun jólatrjáa en Skógrækt rík-
isins, að hans mati. Jólatrjáarækt
ætti að vera hluti af landbúnaðar-
framleiðslu Íslendinga.
Hæstu trén 14 metra há
Þröstur segir að lifandi jólatré
séu sett upp á minna en helmingi
heimila í landinu. Aðallega eru
það fjölskyldur með börn sem
hafa lifandi jólatré. Barnlausar
fjölskyldur, bæði eldra fólk þar
sem börn eru flutt að heiman og
yngra fólk sem ekki er með börn,
eru ýmist með gervitré eða ekkert
jólatré.
Útitrén eru langflest innlend,
en af þeim seljast um 200 tré á ári,
að sögn Þrastar. Aðallega eru það
bæjarfélög, fyrirtæki og stofnanir
sem kaupa þau. Einnig kaupa
verslunareigendur „hálftré“, en
greinarnar eru klipptar af annarri
hlið þeirra, til að setja utan á
veggi. Skógræktarmenn geta nýtt
í þá framleiðslu tré sem eru mis-
vaxin á einhvern hátt. Auk inn-
lendu trjánna eru reist nokkur
vinabæjartré fyrir hver jól.
Nokkur metingur hefur verið
meðal skógarvarða í hinum ýmsu
landshlutum um hver getur út-
vegað hæsta jólatréð á hverju ári.
Þröstur segir að það hafi verið
kappsmál Kaupfélags Héraðsbúa
að vera með hæsta jólatréð fyrir
framan sína verslun. Flest undan-
farin ár hefur það tekist og í ár er
tréð úr Hallormsstaðaskógi 12,8
m hátt. Nú eru skógar á Suður- og
Vesturlandi farnir að veita Hall-
ormsstaðaskógi harða samkeppni.
Þröstur sagði að sala jólatrjáa
hjá Skógrækt ríkisins næmi 10–11
milljónum króna á ári. Skógrækt-
arfélögin selja eitthvað svipað svo
íslenski markaðurinn gæti numið
um 20 milljónum. Þröstur sagði að
innfluttu stofujólatrén væru yfir-
leitt dýrari en þau innlendu svo
varlega áætlað nemur sala jóla-
trjáa hér á landi um 100 milljónum
króna á ári. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofu Íslands nam
innflutningur jólatrjáa, án rótar,
233 tonnum í fyrra og var inn-
kaupsverð þeirra með flutningi
(Cif) 25,6 milljónir króna.
Birgir Hauksson, skógarvörður
á Vesturlandi, sagði að tvö 14
metra há jólatré hefðu verið
höggvin á Stálpastöðum í Skorra-
dal nú í haust. Þau voru sett upp
við Húsgagnahöllina í Reykjavík
og hjá verslun BYKO í Breiddinni
í Kópavogi.
Fréttaskýring | Um 40 þúsund lifandi jólatré
Um 80% jóla-
trjáa innflutt
Skógrækt ríkisins telur að ræktun jóla-
trjáa sé betur komin hjá einkaaðilum
Flest torgtré eru íslensk að uppruna.
Lifandi jólatré eru seld
fyrir um 100 milljónir
Um 40 þúsund lifandi jólatré
seljast hér á landi á ári og má
áætla að markaðurinn velti um
100 milljónum króna. Fimmt-
ungur stofutrjáa, 8.000 tré, kem-
ur úr innlendum skógum, en um
80% eru flutt inn. Stærri jólatré,
svonefnd torgtré , sem sett eru
upp á vegum bæjarfélaga og
stofnana og eins hálftré, sem sett
eru utan á byggingar, eru flest
íslensk. Á hverju ári eru einnig
flutt inn nokkur vinabæjartré.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HRÍMÞOKA lagðist yfir Eskifjörð á dögunum og var
sama hvaða nafni hlutirnir nefndust, allir voru þeir ís-
aðir, jafnvel trén. Þar hefur gengið á með hlýindum og
frosti til skiptis og nokkrum umhleypingum í veðrinu.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hrímþoka á Eskifirði
Fréttir í tölvupósti Fréttir á SMS