Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 33

Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 33 MINNSTAÐUR – stæði fyrir alla ... svo í borg sé leggjandi Nú er einnig hægt að greiða fyrir stæði við stöðu- og miða- mæla í gegnum gsm-síma. Upplýsingar um skráningu á www.rvk.is/bilast Á bíl í jólaösinni í miðborg Reykjavíkur. Hvað má bjóða þér? Miðastæði, stöðumæli eða bílahús. Viltu greiða með korti eða krónum, eða kannski gsm símanum þínum? Tímamiðar úr miðamælum gilda áfram þegar lagt er við stöðumæli innan sama gjaldsvæðis. Ótakmarkaður tími býðst á stöðu- mælum í miðborginni. N æ st Ertu að leita að gjöf? Bílahúsin eru nú opin tveimur klukkustundum lengur en verslanir í miðborginni en frá 15. desember og fram til jóla verða þau opin til kl. 24:00. Gleðilega aðventu! SUÐURNES Reykjanesbær | Barnajól í Duus-húsum eru orðin fastur liður á aðventunni í Reykja- nesbæ. Þá bjóða listasafnið, byggðasafnið og bókasafnið elstu leikskólabörnum bæjarins og yngstu grunnskólabörnunum upp á skemmtidagskrá í listasafninu. Í ár kom Hallveig Thorlacius íklædd sögusvuntunni og sagði börnunum ævintýrið „Súpan hennar Grýlu“. Grýla ætl- ar að fara að leggja litlu ósýnilegu trölla- stelpuna sér til munns en með aðstoð barnanna tekst sögumanni og músinni að bjarga stelpunni frá þeim illu örlögum. Þegar Hallveig ætlaði að fljúga burt á ferðaregnhlífinni í lokin bað hún börnin að loka augunum, halda í stóru tá og telja upp að tíu. Á meðfylgjandi mynd sést að börnin tóku vel í þá beiðni, þótt einstaka rauð augu komi upp um nokkra. Börnin skemmtu sér hið besta og fengu að taka mikinn þátt í sýningunni. Sum meira en aðrir, eins og Sóley, leikskóla- stelpa á Hjallatúni, sem aðstoðaði tröll- astelpuna ósýnilegu við að halda á sér hita í upphafi leikritsins. Allir vildu hjálpa litlu tröllastelpunni Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær | Bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Húsavíkur- bæjar hafa undirritað yfirlýsingu um samstarf söguverkefna í bæj- arfélögunum. Annars vegar er um að ræða Garðarshólma á Húsavík og hins vegar Víkingaheim í Reykja- nesbæ. Kemur þetta fram á vef Húsavíkurbæjar. Um er að ræða gerð margmiðl- unarefnis sem unnið verður fyrir hinar væntanlegu sýningar og gagn- kvæmar kynningar í sýningarhús- unum. Undanfarin ár hafa verið undirbúin metnaðarfull verkefni, hvort í sínu bæjarfélagi sem m.a. fjalla um þá miklu siglingarkunnáttu sem lá til grundvallar útrás nor- rænna manna til Færeyja, Íslands, Grænlands og að lokum til Vínlands. Sýningin á Reykjanesi hefur að þungamiðju varðveislu Íslendings, í miðju sýningar frá Smithsonian- safninu í Bandaríkjunum. Um er að ræða heildarkynningu á sögu vík- inga Norður-Atlantshafsins. Þar verður jafnframt boðin söguslóða- kynning þar sem áhugaverðir sögu- staðir á landinu eru kynntir. Á Húsavík er í undirbúningi að koma á fót fræðasetri sem tileinkað er sænska landkönnuðinum Garðari Svavarssyni og samferðamanni hans, Náttfara, sem sigldu til Ís- lands árið 870. Þar verður fjallað um samspil vistfræði og menningar á landnámsöld og siglingaafrek þeirra manna sem fyrstir námu hér land. Það er markmið samstarfsins að stuðla að hagkvæmri úrvinnslu kynningarefnis, sérstaklega marg- miðlunarefnis, sem getur um margt verið svipað að grunnefni. Vinna saman að gerð marg- miðlunarefnis Reykjanesbær | Unnið er að því að setja upp skíða- og sleða- brekku fyrir börn á útivistar- svæði í hinu nýja Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. Áhersla er lögð á það að nýta alla mold sem til fellur við framkvæmdir í Tjarnahverfi. Efnið er flutt að Brennuhólnum við körtubrautina í Innri- Njarðvík og hleðst þar upp. Að sögn Viðars Más Aðalsteins- sonar, framkvæmdastjóra um- hverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar, verður þarna útivistarsvæði fyrir nýju hverf- in, meðal annars skíðabrekka. Hóllinn fer í að minnsta kosti fimmtán metra hæð. Áhersla verður lögð á að ganga frá svæðinu, meðal ann- ars með gróðursetningu, næsta sumar. Skíða- og sleðabrekkan verður þá tilbúin til notkunar fyrir börnin næsta haust ef það skyldi festa snjó, en því treystir Viðar Már sér ekki til að lofa. Skíða- brekka í Tjarna- hverfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.