Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 4
4 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Hvað verður í matinn hjá þér
á aðfangadagskvöld?
Spurning dagsins í dag:
Telurðu að Michael Jackson sé sekur
um misnotkun á börnum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
9,7%
3,7%
Rjúpur
28,4%Annað
Hreindýrasteik
47,5%
4,5%
Hamborgarhryggur
6%Önd
Hangikjöt
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Ríkisábyrgð Íslenskrar erfðagreiningar í almenna kynningu:
Auglýst eftir athugasemdum
RÍKISÁBYRGÐ Eftirlitsstofnun EFTA
hefur birt álit sitt á fyrirhugaðri
ríkisábyrgð til handa Íslenskri
erfðagreiningu í stjórnartíðindum
Evrópusambandsins. Þar með
hafa áhugasamir aðilar mánuð til
að koma athugasemdum sínum á
framfæri. Eftir það hafa íslensk
stjórnvöld mánuð til að svara fyr-
ir sig áður en Eftirlitsstofnunin
ákvarðar hvort ríkisábyrgðin
uppfylli reglur Evrópska efna-
hagssvæðisins um styrki til rann-
sóknarstarfsemi eða hvort hún sé
á skjön við þær og því óheimilt að
veita hana.
„Þetta er bara eitthvað sem
verður að hafa sinn gang. Við sitj-
um ekki með hendur í skauti og
bíðum,“ segir Páll Magnússon,
framkvæmdastjóri samskipta- og
upplýsingasviðs Íslenskrar erfða-
greiningar, og segir þann tíma
sem Eftirlitsstofnun tekur í að
skoða ríkisábyrgðina ekki hafa
nein áhrif á starfsemi og fyrirætl-
anir fyrirtækisins. „Við höfum
aldrei gert ráð fyrir þessu í okkar
rekstraráætlunum.“ ■
Geta ekki varpað
ábyrgðinni frá sér
Konu, sem slasaðist alvarlega í ævintýraferð í Glymsgili, voru úrskurð-
aðar 6,5 milljónir króna í bætur. Sýnir að þeir sem bjóða upp á slíkar
ferðir verða að taka ábyrgð á þeim, segir lögmaður konunnar.
DÓMSMÁL „Þetta eru fagaðilar sem
selja í þessar ferðir og þeir verða
að hegða sér í samræmi við það,“
segir Herdís Hallmarsdóttir lög-
maður um þann úrskurð Héraðs-
dóms Reykja-
víkur að kona
sem slasaðist al-
varlega í ferð
með Íslenskum
ævintýraferð-
um, þannig að
taka varð af
hluta fótar henn-
ar, eigi bóta-
kröfu á hendur
þrotabús fyrirtækisins.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að fyrirtækið hefði
ekki kannað aðstæður nægilega
vel og ferðalangar hefðu ekki ver-
ið upplýstir um þá hættu sem för-
in hafði í för með sér. Starfsmenn
fyrirtækisins og makar fóru í
göngu inn í Glymsgil í Botnsdal
síðla í september 2001. Gilið er
erfitt yfirferðar og rigningarveð-
ur næstu daga á undan hafði gert
aðstæður erfiðari en ella. Átján
manna hópur fór í ferðina sem var
hvort tveggja hugsaður sem
skemmtiferð og til að kynna slík-
ar ferðir fyrir starfsmönnum fyr-
irtækisins sem ætlaði að bjóða
upp á þær næsta sumar. Þrír
ferðalangar treystu sér fljótt ekki
til að halda áfram og urðu eftir,
nokkru síðar hættu fimm til við-
bótar við að halda lengra. Í báðum
tilfellum var fólkið skilið eftir og
ætlunin að hitta það á bakaleið-
inni. Fimm leiðsögumenn sem
voru í ferðinni héldu henni allir
áfram. Eftir að aðalhópurinn hélt
áfram féll grjót á fimmmenning-
anna. Konan sem kærði varð verst
úti og mölbrotnaði hluti fótar
hennar þannig að taka varð hann
af.
„Hingað til hefur aldrei reynt á
ábyrgð ferðaþjónustuaðila, og eftir
atvikum leiðsögumanna, í ferðum
af þessu tagi,“ segir Herdís. Hún
bendir á að mikið sé um ævintýra-
ferðir, svo sem klettaklifur og flúða-
siglingar. „Niðurstaðan er einfald-
lega að þeir sem bjóða upp á slíkar
ferðir verða að tryggja að aðstæður
séu með besta móti og að þátttak-
endum sé tilkynnt um áhættu,“ seg-
ir Herdís. „Þeir sem bjóða upp á
ferðirnar verða að taka ábyrgð á
þeim.“ Að auki er sönnunarbyrðin
sett á herðar seljanda ferðanna sem
verður að sýna fram á að rétt hafi
verið staðið að undirbúningi.
Konan sem slasaðist í Glymsgili
á forgangskröfu í þrotabú fyrirtæk-
isins.
brynjolfur@frettabladid.is
LANDSTJÓRINN
L. Paul Bremer slapp ómeiddur þegar
íraskir uppreisnarmenn gerðu bílalest
bandaríska hernámsliðsins fyrirsát skammt
vestur af Bagdad.
Tilræði við Bremer:
Slapp
naumlega
BAGDAD, AP L. Paul Bremer, land-
stjóri Bandaríkjanna í Írak, slapp
naumlega þegar íraskir uppreisn-
armenn réðust á bílalest banda-
ríska hernámsliðsins skammt
vestur af Bagdad 6. desember síð-
astliðinn.
Talsmaður Bremers segir að
uppreisnarmennirnir hafi gert
bílalest landstjórans fyrirsát
sama dag og Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, kom í stutta heimsókn til
Írak. Eftir að sprengja hafði
sprungið við vegkantinn tóku
vopnaðir menn að skjóta á bryn-
varinn bíl Bremers. Bandaríska
hernámsliðið gaf í og tókst að
sleppa undan skothríðinni án telj-
andi meiðsla. ■
Árásirnar í Istanbul:
Höfuðpaur
ákærður
TYRKLAND, AP Yfirvöld í Tyrklandi
hafa ákært tyrkneskan karlmann
sem talinn er hafa átt stóran þátt í
að skipuleggja fjórar sprengju-
árásir í Istanbul í nóvember.
Adnan Ersoz hefur játað að
hafa dvalið í þjálfunarbúðum
hryðjuverkasamtakanna al-Kaída
í Afganistan og átt fund með
Osama bin Laden. Hann neitar
hins vegar aðild að árásunum en
segist vera reiðubúinn að láta lög-
reglunni í té upplýsingar um þá
sem stóðu á bak við voðaverkin. ■
TAÍLENSK DAGBLÖÐ
Handtaka Saddams Hussein, fyrrum Íraks-
forseta, var á forsíðu allra taílenskra dag-
blaða í byrjun vikunnar.
Börn skírð eftir Saddam:
Hetja og
harðstjóri
BANGKOK Fjöldi múslima í Taílandi
hefur skírt börn sín í höfuðið á
Saddam Hussein í kjölfar handtöku
íraska leiðtogans síðustu helgi.
„Hann er bæði hetja og harð-
stjóri en við kjósum að minnast
hans góðu hliða. Ein leið til þess er
að láta börnin okkar bera nafn
hans,“ sagði Rohcidee Lertariya-
pongkul, formaður Ungliðahreyf-
ingar múslima í Taílandi, í viðtali
við Bangkok Post.
Navi Tohyor, 36 ára fjölskyldu-
faðir í Narathiwat-héraði, skírði son
sinn í höfuðið á Saddam. „Það sem
Saddam gerði er rétt og lögmætt,“
segir Navi. „Hann stóð upp í hárinu
á Bandaríkjunum, erlenda innrásar-
liðinu. Hann er baráttumaður, ekki
glæpamaður.“ ■
Ástrali ákærður hér á landi:
Saman í Svíþjóð
DÓMSMÁL Málsmeðferð gegn Ástr-
ala, sem tekinn var á Keflavíkur-
flugvelli með tvær kínverskar
stúlkur í fylgd með sér, hófst í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Hann er ákærður fyrir ólöglegan
flutning fólks á milli landa og fyr-
ir að framvísa fölsuðu vegabréfi.
Upphaflega var maðurinn
grunaður um mansal.
Í framhaldi af upplýsingum af
rannsókn málsins var Breti hand-
tekinn í Svíþjóð ásamt þremur
hugsanlegum fórnarlömbum.
Sækjandi málsins lagði fram
gögn fyrir dómi í gær til að sýna
fram á að kínversku stúlkurnar
hafi verið í fylgd Ástralans og til
að sýna fram á tengsl hans við
Bretann. Hið rétta vegabréf Ástr-
alans beið hans á gistiheimili í
Svíþjóð sem bæði hann og Bret-
inn höfðu gist á. Þá voru sýndar
myndir af Ástralanum og kín-
versku stúlkunum sem teknar
höfðu verið af þeim í Svíþjóð.
Myndirnar fundust í tölvu Bret-
ans. ■
Eignarhald fjölmiðla:
Ráðherra
skipar nefnd
FJÖLMIÐLAR Davíð Þór Björgvins-
son, prófessor við Háskólann í
Reykjavík, stýrir fjögurra manna
nefnd Tómasar Inga Olrich,
menntamálaráðherra um eignar-
hald í fjölmiðlun. Auk Davíðs eru
í nefndinni Karl Axelsson hæsta-
réttarlögmaður, Guðmundur Frí-
mannsson, deildarforseti kenn-
aradeildar Háskólans á Akureyri,
og Pétur Gunnarsson, skrifstofu-
stjóri þingflokks Framsóknar-
flokksins og forstöðumaður al-
mannatengsla flokksins, titlaður
blaðamaður í tilkynningu mennta-
málaráðherra.
Nefndinni er ætlað að skila
greinargerð til ráðherra um það,
hvort tilefni sé til að setja sér-
staka löggjöf um eignarhald á
fjölmiðlum. Ennfremur er nefnd-
inni falið að semja frumvarp að
slíkri löggjöf, verði það niður-
staða ráðherra að hennar sé þörf.
Nefndin á að ljúka störfum fyr-
ir 1. mars 2004. ■
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Hyggst byggja upp lyfjaþróunardeild með
ríkisábyrgð á lánum.
BJÖRGUNARMENN Á VETTVANGI
Fjölmennt björgunarlið sótti slasaða einstaklinga enda svæðið erfitt yfirferðar
og aðstæður slæmar.
„Þeir sem
bjóða upp á
ferðirnar
verða að taka
ábyrgð á
þeim.
Fyrrum forsætisráðherra:
Ákærur
gefnar út
HELSINKI, AP Ríkissaksóknarinn í
Finnlandi hefur ákært Anneli
Jaatteenmaki, fyrrum forsætisráð-
herra, fyrir að nýta sér trúnaðar-
upplýsingar sem hún fékk hjá ráð-
gjafa forsetans. Ráðgjafinn, Martti
Manninen, er ákærður fyrir að hafa
látið upplýsingarnar af hendi.
Jäätteenmäki sagði af sér emb-
ætti í júní í kjölfar ásakana þess
efnis að hún hefði logið að þing-
mönnum. Því var haldið fram að
Jäätteenmäki hefði lekið upplýsing-
unum í fjölmiðla til að sýna fram á
að Pavo Lipponen, forveri hennar í
starfi, hefði skipt um skoðun varð-
andi innrásina í Írak. ■
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Málsmeðferð gegn Ástralanum hófst í gær.
■ Lögreglufréttir
EKIÐ Á GAMLA KONU
Ekið var á konu á níræðisaldri á
Fjarðargötu á móts við verslun-
armiðstöðina Fjörð í Hafnarfirði
í gærdag. Konan var flutt fót-
brotin á sjúkrahús.