Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 6
6 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
■ Lögreglufréttir
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72.5 -0.08%
Sterlingspund 128.11 0.03%
Dönsk króna 12.09 -0.20%
Evra 89.95 -0.22%
Gengisvísitala krónu 124,09 -0,25%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 235
Velta 3.948 milljónir
ICEX-15 2.059 -0,01%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 160.793.170
Landsbanki Íslands hf. 111.274.388
Bakkavör Group hf. 38.095.700
Mesta hækkun
Vaki-DNG hf. 25,00%
Jarðboranir hf. 3,06%
Medcare Flaga hf. 0,79%
Mesta lækkun
Sláturfélag Suðurlands svf. -4,76%
Kögun hf. -3,03%
Vinnslustöðin hf. -2,78%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.250,4 0,0%
Nasdaq* 1.943,2 -0,7%
FTSE 4.412,3 0,3%
DAX 3.898,4 0,7%
NK50 1.306,1 0,5%
S&P* 1.086,3 -0,3%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Við hvaða sendiráð í Reykjavík erbúið að byggja tennisvöll og 2.70
metra háa girðingu?
2Hvað heitir breski barnaníðingurinnsem hlaut tvöfaldan lífstíðardóm fyrir
morð á tveimur stúlkum?
3Páfinn hefur séð kvikmynd sem MelGibson leikstýrir. Um hvern fjallar
myndin?
Svörin eru á bls. 90
ÍSRAEL Bandarísk stjórnvöld hafa
varað Ísraelsmenn við einhliða
aðgerðum við að girða sig af frá
Palestínumönnum á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu. Tilefnið
er svonefnd „lausnaráætlun“ sem
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, kynnti í stefnuræðu sinni
í fyrradag. Hún gerir ráð fyrir því
að komið verði upp bráðabirgða-
landamærum ef Palestínumenn
standa ekki við skuldbindingar
sínar og einnig að byggingu
varnarmúra verði hraðað auk
þess sem sumar landnemabyggðir
verði færðar til að tryggja öryggi
þeirra.
Bæði Palestínumenn og land-
nemar á heimastjórnarsvæðunum
hafa fordæmt þessa áætlun Shar-
ons og Scott McClellan, talsmaður
Hvíta hússins, sagði að bandarísk
stjórnvöld byggðu afstöðu sína á
gerðu samkomulagi um land-
nemabyggðir samkvæmt alþjóð-
lega vegvísinum til friðar. „Við
munum hafna öllum einhliða að-
gerðum sem hindra framgöngu
friðarviðræðna,“ sagði McClellan.
Ahmed Qurei, forsætisráð-
herra Palestínumanna, gagnrýndi
áætlunina harðlega og sagði að
hótanir Sharons í garð Palestínu-
manna hefðu valdið sér vonbrigð-
um. „Við stöndum við okkar hluta
vegvísisins,“ sagði Qurei.
Nabil Abu Rudeina, ráðgjafi
Yassers Arafats, sagði að áætlunin
væri atlaga að vegvísinum og að
Sharon væri að tæta hann niður. ■
Samþykkt eftir
maraþonfund
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var samþykkt eftir fjórtán klukku-
stunda langan fund sem stóð langt fram á nótt. 18 breytingartillögur
meirihlutans voru samþykktar en tillögur minnihlutans felldar.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Það var komið
langt fram yfir venjulegan hátta-
tíma þegar fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar var loks af-
greidd í fyrrinótt. Borgarfulltrú-
ar sem mættu til fundar klukkan
tvö á fimmtudag tókust á um fjár-
hagsáætlunina fram á nótt áður
en niðurstaða fékkst og var fund-
urinn orðinn nær fjórtán tíma
langur þegar
honum lauk á
fjórða tímanum
um nóttina.
F j á r h a g s -
áætlunin var
samþykkt með
18 breytingum
meir ih lutans ,
þar sem er
meðal annars
gert ráð fyrir
lækkun leik-
s k ó l a g j a l d a
fimm ára barna
og að boðið verði
upp á heitar máltíðir í öllum
grunnskólum borgarinnar frá
næsta hausti. Útgjöld borgarinnar
eru um 38 milljarðar en tekjur
nokkuð minni. Breytingartillögur
minnihlutans voru felldar.
„Það er margt vel gert hjá
borginni en engu að síður getur
ekki verið eðlilegt að stjórnkerfi
borgarinnar hafi þanist út um
100% í valdatíð R-listans,“ segir
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi Frjálslyndra og óháðra. Hann
segir margar framkvæmdir hafa
farið úr böndunum og vísar sér-
staklega til byggingar húss Orku-
veitunnar og átelur að hver fer-
metri skólahúsnæðis sé dýrari
hér en í nágrannasveitarfélögum.
„Það sem ég lít alvarlegustum
augum er að verið er að taka fé úr
sjóðum Orkuveitunnar og setja í
pólitísk gæluverkefni á borð við
Línu.Net og risarækjueldi. Það er
hættumerki að sjóðir sterkasta og
dýrmætasta fyrirtækis borgar-
innar séu notaðir í pólitísk gælu-
verkefni. Það getur veikt fyrir-
tækið það mikið að sjálfstæðis-
menn sjái sér leik á borði, komist
þeir til valda, og selji einkavinum
sínum Orkuveituna,“ segir Ólafur.
„Miðað við þær talnalegu stað-
reyndir sem blasa við í þessari
nýju fjárhagsáætlun er full
ástæða til að hafa verulegar
áhyggjur af stöðu fjármála borg-
arinnar og sívaxandi skuldasöfn-
um á nánast öllum stöðum í borg-
arkerfinu,“ segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn.
„Það að R-listinn skuli kynna
þessa fjárhagsáætlun, þar sem
skuldir vaxa á öllum stöðum og
kostnaðarþensla í kerfinu er
mikil, undir fyrirsögninni aðhald
og bætt stjórnsýsla eru hrein öf-
ugmæli.“
brynjolfur@frettabladid.is
ÞORSKUR
Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins
fóru ekki að tilmælum fiskifræðinga um
bann við veiðum á þorski á ákveðnum
svæðum.
Sjávarútvegsráðherrar
ESB:
Samkomu-
lag um kvóta
BRUSSEL, AP Leiðtogar aðildarríkja
Evrópusambandsins fögnuðu nýju
samkomulagi um úthlutun fisk-
kvóta og áætlun um uppbyggingu
þorsk- og lýsingsstofna.
Eftir 30 klukkustunda samn-
ingaviðræður tókst sjávarútvegs-
ráðherrum Evrópusambandsins að
ná samkomulagi um kvótaúthlutun
ársins 2004. Ákveðið var að halda
þorskkvótanum nánast óbreyttum
frá síðasta ári. Þó að sjávarútvegs-
ráðherrarnir hafi haft það að mark-
miði að koma í veg fyrir útrýmingu
fiskistofna ákváðu þeir að fara
ekki að tilmælum fiskifræðinga
um bann við veiðum á ákveðnum
tegundum. ■
Aflagrandi:
Eldur á
elleftu hæð
BRUNI Eldur logaði og mikill reyk-
ur myndaðist vegna potts á elda-
vél á elleftu hæð á Aflagranda í
Reykjavík rétt eftir miðnætti á
fimmtudag.
Eldur logaði í eldhúsinnrétt-
ingunni og mikill reykur var í
íbúðinni allri. Einn var fluttur á
sjúkrahús með snert af reyk-
eitrun. Vel gekk að slökkva eldinn
og ekki þurfti að rýma stiga-
ganginn. Íbúðin er tölvert
skemmd sökum elds og reyks. ■
Sjóferðin sem breyttist
í martröð.
Flosi Arnórsson stýri-
maður segir söguna alla.
Af harðræði fangavistar-
innar í Dubaí. Gatslitnu
dómskerfi. Hrikalegum
tvískinnungi í afstöðu araba
til lýðréttinda, áfengis og
vændis. Dagbók frá Dubaí
er skyldulesning allra sem
vilja fræðast um arabískt
samfélag.
Dagbók frá Dubaí er
einstaklega fræðandi og
skemmtileg.
„BRÁÐSKEMMTILEG...
FRÓÐLEG...VEL SKRIFUГ
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Jón Þ. Þór Morgunblaðinu 2. des. 2003
MÚRINN KLIFINN
Palestínumaður klífur hér yfir múrinn sem skilur Jerúsalem frá Vesturbakkanum.
Lausnaráætlun Sharons gagnrýnd:
Sögð atlaga
að vegvísinum
ÚR BORGARSTJÓRN
Tillögur sjálfstæðismanna um niðurfellingu holræsagjalds í áföngum og hærri tekjumið
fyrir fasteignagjöld öryrkja og eldri borgara voru felldar.
„Það sem
ég lít alvar-
legustum
augum er að
verið er að
taka fé úr
sjóðum Orku-
veitunnar og
setja í pólitísk
gæluverkefni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
EKIÐ Á GAMLA KONU Ekið var á
konu á níræðisaldri á Fjarðar-
götu til móts við verslunar-
miðstöðina Fjörð í Hafnarfirði í
gærdag. Konan var flutt fótbrot-
in á sjúkrahús.
ÖLVUNARAKSTUR Þrír voru
stöðvaðir í Kópavogi í fyrrinótt
grunaðir um ölvun við akstur.
Tveir voru yfir leyfilegum mörk-
um en einn reyndist undir mörk-
um og var bíll hans tekinn þar til
runnið var af honum.