Fréttablaðið - 20.12.2003, Síða 8
8 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
■ Evrópa
Hvað á að gera við Saddam?
„Það á að mála hann bleikan og
setja hann í galtarbúning og
láta hann dansa fyrir almenning
á hátíðisdögum um alla heims-
byggðina.“
Þorsteinn Örn Gunnarsson, 12 ára nemi í
Austurbæjarskóla í DV 19. desember.
Jólaskreytingar á húsum
„Ég hef alltaf verið mikill
ljósamaður og svo er bara gam-
an að hitta fólk hér úti á götu
sem slær á öxlina á manni af
því að því finnst þetta svo flott.“
Magnús Sigurðsson í Morgunblaðinu
19. desember.
Eftirlaunafrumvarpið
„Flest bendir til að það sem
stjórnarliðar kalla „ys og þys út
af engu“ hafi breytt framvindu
stjórnmálanna á Íslandi það
sem eftir er kjötímabilsins.“
Birgir Guðmundsson í Fréttablaðinu
19. desember.
Orðrétt
Kristinn H. vegna ummæla sjávarútvegsráðherra:
Ég vinn ekki óþinglega
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég hafna því al-
farið að það hafi verið óþinglegt
af mér að leggja fram tillögu um
línuívilnun í sjávarútvegs-
nefnd,“ segir Kristinn H. Gunn-
arsson, sitjandi formaður sjáv-
arútvegsnefndar, vegna þeirra
ummæla Árna M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra í Frétta-
blaðinu að þessi aðferð Kristins
hefði verið óþingleg. Kristinn
bendir á að Grétar Mar Jónsson,
alþingismaður Frjálslynda
flokksins, hefði lagt fram breyt-
ingartillögu við frumvarp
sjávarútvegsráðherra um línu-
ívilnun. Sú tillaga hefði verið
óskyld frumvarpinu þar sem
hún sneri að úthaldi dagabáta.
„Það var ekkert athugavert
við tillögu Grétars Mars og ég
bendi á að þá gerði sjávarút-
vegsráðherra ekki athugasemd
fremur en aðrir og tillagan var
samþykkt,“ segir Kristinn.
Hann segist ekki eiga von á
öðru en heimildir til að nota
byggðakvóta, sem ráðherra hef-
ur boðað að farið verði sparlega
með, verði nýttar að fullu.
„Það er rétt hjá ráðherra að
hann hefur heimild til að úthluta
en ég minni á að skipuð hefur
verið nefnd til þess að fara yfir
málið og gera tillögur til hans,“
segir Kristinn. ■
Gæti sparað 75%
í stórum kúrsum
Stúdentaráð vinnur að tillögum sem geta sparað Háskólanum stórfé. Formaður ráðsins
segir að forysta stúdenta verði að „hugsa í lausnum“. Hann leggur áherslu á að skólagjöld
og fjöldatakmarkanir komi ekki til greina.
MENNTUN Forysta Stúdentaráðs
Háskóla Íslands vinnur að tillög-
um um stjórfellda hagræðingu í
rekstri skólans. Davíð Gunnars-
son, formaður SHÍ, segir að ver-
ið sé að skoða hagræðingar-
aðgerðir sem borið hafa mikinn
árangur í Bandaríkjunum.
Hann segir að lagt verði til að
farið verði að fordæmi banda-
rískra háskóla þar sem tekist
hafi að draga úr kostnaði við
fjölmenn námskeið um allt að
75%.
„Við viljum
hugsa í lausn-
um og þess
vegna vinnum
við nú að upp-
b y g g i l e g u m
leiðum til þess
að bæta starfið
í skólanum en
jafnframt hag-
ræða í rekstri. Þessar hugmynd-
ir munum við leggja fram í byrj-
un næsta árs og kynna þær há-
skólayfirvöldum, menntamála-
ráðherra og fjármálaráðherra,“
segir Davíð. Hann segir hug-
myndirnar unnar í samvinnu við
prófessor við Háskóla Íslands.
Davíð segir ástand fjármála
Háskóla Íslands vera mjög al-
varlegt. „Deildirnar munu þurfa
að taka erfiðar ákvarðanir um
hvernig hægt sé að mæta því
misræmi sem er á milli fjölda
nemenda og þeirra greiðslna
sem skólinn fær frá ríkissjóði,“
segir Davíð. Hann segir að það
sé mjög hættulegt ef stefnu-
markandi ákvarðanir um Há-
skóla Íslands þurfi að taka
vegna skammtímavandamála.
Stúdentaráð vill leggja áher-
slu á að leitað verði að langtíma-
lausnum í fjármálum Háskól-
ans.
„Við stöndum vörð um jafnt
aðgengi fólks til náms í Háskóla
Íslands. Þetta teljum við vera
mikið réttlætismál í samfélag-
inu en jafnframt teljum við að
þetta opna aðgengi, og aukin
ásókn fólks í háskólanám, vera
verðmæta auðlind fyrir Háskóla
Íslands,“ segir hann.
„Við höfnum
því að tekin
verði upp
skólagjöld og
við höfnum
einnig þessum
fjöldatakmörk-
unum. Við telj-
um hvorugt
s a m r æ m a s t
h a g s m u n u m
Háskólans til
langs tíma. Við
lítum hins veg-
ar svo á að það
sé skylda okk-
ar að taka þátt í uppbyggilegri
vinnu við að leysa þau vandamál
sem að skólanum steðja,“ segir
Davíð. Hann segir að hugmynd-
ir Stúdentaráðs um hagkvæmari
kennslu séu hluti af þeirri
vinnu.
thkjart@frettabladid.is
UMFERÐARÓHÖPP
282 óhöpp hafa þegar verið tilkynnt í
desember.
Mörg umferðaróhöpp:
Mikið
eignatjón
UMFERÐARÓHÖPP Fyrstu átján daga
desember hafa verið tilkynnd 282
umferðaróhöpp til lögreglunnar í
Reykjavík. Á sama tíma í fyrra
voru þau 265.
Mörg umferðaróhöpp hafa ver-
ið síðustu daga þrátt fyrir að að-
stæður hafi verið ágætar, hálku-
laust að mestu en þó nokkuð
dimmt yfir. Á næstu dögum mun
lögreglan reyna að greiða fyrir
umferð eins og kostur er en vill
biðja ökumenn að vera tillitsama
og haga akstri í samræmi við að-
stæður. Einnig vill lögreglan
beina þeim tilmælum til fólks að
fara varlega og halda einbeitingu
í jólaumferðinni. ■
Tilboð á nýjum íslenskum bókum
Fram til jóla bjóðum við nýjar íslenskar bækur á sérstöku tilboðsverði.
Líttu við á heimasíðu okkar eða í versluninni og kynntu þér hið margrómaða
Bóksöluverð sem oftar en ekki er hagstæðasta bókaverðið í boði.
Opið í dag kl. 12-18 og á morgun kl. 12-16
Bóksala stúdenta, v/Hringbrautwww.boksala.is s: 5 700 777
KRISTINN H. GUNNARSSON
Bendir á að fleiri hafi beitt sömu aðferð og
hann til að koma málum fram.
ÁRNI M. MATHIESEN
Telur að Kristinn H. hafi unnið óþinglega
með því að koma tillögu um línuívilnun
beint inn í sjávarútvegsnefnd.
„Við teljum
hvorugt sam-
ræmast hags-
munum
Háskólans til
langs tíma.
EINBEITTIR NEMENDUR
Stúdentaráð mun í byrjun næsta árs setja fram tillögur um hvernig hægt er að hagræða
stórlega í kennslu við Háskólann. Unnið er að tillögunum í samstarfi við prófessor við HÍ.
DAVÍÐ
GUNNARSSON
Segir stúdenta
hugsa í lausnum.
NEW YORK Byggingin sem reist
verður á grunni World Trade Cent-
er í New York verður sú hæsta í
heimi. Endurskoðuð teikning af
mannvirkinu var kynnt almenningi
í gær.
Miklar deilur höfðu staðið um
hönnun byggingarinnar á milli arki-
tektsins Daniels Libeskinds og eig-
enda byggingarréttarins sem töldu
að í verðlaunatillögunni væri ekki
gert ráð fyrir nægilegu skrifstofu-
rými. The Freedom Tower, eða
Frelsisturninn, er því afrakstur
margra mánaða samninga-
viðræðna.
Turninn verður 1.776 fet á hæð,
eða 541,4 metrar, en það var einmitt
árið 1776 sem Bandaríkjamenn
lýstu yfir sjálfstæði frá Bretum. Á
71. og 72. hæð verða veitingastaðir
og útsýnispallur á 73. hæð. ■
FRELSISTURNINN
Nýi turninn mun teygja sig 541,4 metra til
himins og verður hann því hæsta bygging
heims.
Gleraugnasalan • Laugavegi 65 • Sími 551 8780
HÁTÍÐARGLERAUGU
KHODORKOVSKY ÁFRAM Í HALDI
Saksóknarar í Rússlandi hafa
farið fram á framlengingu
gæsluvarðhalds yfir rússneska
auðkýfingnum Mikhail Khodor-
kovsky. Héraðsdómur í
Basmanny mun taka málið fyrir
á mánudag. Khodorkovsky, sem
er fyrrum forstjóri olíufyrirtæk-
isins Yukos, hefur verið í haldi
síðan í október ákærður fyrir
fjársvik.
Hæsta bygging heims:
Frelsisturninn
í New York
■ Evrópa
LAGT HALD Á 1,8 TONN AF HASSI
Portúgalska lögreglan lagði hald
á 1,8 tonn af hassi og handtók
þrjá menn eftir að hafa stöðvað
bifreið á hraðbraut í Algarve.
Hassið kom frá Norður-Afríku og
átti að fara á markað í Evrópu.
Áætlað söluverðmæti efnisins
nemur um 630 milljónum ís-
lenskra króna.