Fréttablaðið - 20.12.2003, Síða 24

Fréttablaðið - 20.12.2003, Síða 24
24 20. desember 2003 LAUGARDAGUR ■ Nýjar bækur Atlantshafsbandalagið, Nató,tók við friðargæslu í Bosníu þennan dag árið 1995. Eftir stutta athöfn í Sarajevó tók bandaríski flotaforinginn Leighton Smith formlega við frið- argæsluhlutverkinu, fyrir hönd Nató, af franska herforingjanum Bernard Janvier, yfirmanni frið- argæslusveita Sameinuðu þjóð- anna. Friðargæsla Sameinuðu þjóð- anna í Bosníu hófst í byrjun árs 1992 eftir að Bosníu-Serbar vildu fá sjálfstæði frá Bosníu- Hersegóvínu og sameinast Serbíu. Þótt friðargæslusveitir Samein- uðu þjóðanna hefðu reynt allt sem í þeirra valdi stóð tókst þeim ekki að koma í veg fyrir stríð. Um 25 þúsund manns tóku þátt í friðar- gæslu Sameinuðu þjóðanna í þau þrjú og hálft ár sem hún stóð. Rúmlega hundrað þeirra biðu bana, 831 særðist og hundruð voru tekin til fanga. Meira en 200 þúsund íbúar fyrrum Júgóslavíu létu lífið á meðan á stríðinu stóð. Þegar Nató tók við friðargæsl- unni komu um 60 þúsund her- menn til Bosníu til að knýja fram Dayton-samkomulagið sem leið- togar fyrrum Júgóslavíu höfðu skrifað undir. ■ PETER CRISS Úr rokkhljómsveitinni Kiss fæddist þennan dag árið 1945. 20. desember ■ Þetta gerðist 1699 Pétur mikli skipar svo fyrir að ára- mót í Rússlandi verði flutt frá 1. september til 1. janúar. 1790 Fyrsta bómullarverksmiðjan í Bandaríkjunum tekur til starfa. 1946 Kvikmyndin It’s a Wonderful Life eftir Frank Capra er forsýnd, degi fyrir frumsýninguna. James Stewart og Donna Reed fóru með aðalhlutverkin. 1963 Berlínarmúrinn er opnaður í fyrsta sinn fyrir íbúa í Vestur-Berlín. Múr- inn var aðeins opinn yfir hátíðarn- ar en lokað aftur 6. janúar 1964. 1968 Rithöfundurinn John Steinbeck deyr, 66 ára að aldri. 1991 Kvikmyndin JFK eftir Oliver Stone er frumsýnd. 1996 Læknar tilkynna að kona frá Kýp- ur gangi með ellefubura. Hún hafði tekið inn frjósemislyf. 2001 Fernando De la Rua, forseti Argentínu, segir af sér eftir að hafa verið tvö ár við völd. ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ ■ tók við friðargæslu í Bosníu til að reyna að binda enda á stríðið sem geisað hafði þar í fjögur ár. 20. desember 1995 SUNNA BORG Afmælið hefur stundum farið fyrir ofan garð og neðan þetta stuttu fyrir jól. Út er kom-in bókin Jóhann Helgason 25 vinsæl lög. Bókin er vönduð nótnabók með laglínu og hljómum fyrir píanó og gítar. Bók- in hefur að geyma mörg af lands- þekktum lögum Jóhanns Helga- sonar s.s. Söknuður, Í Reykjavík- urborg, Karen, Ástarsorg, Mary Jane, Yakkety Yak, o.fl. Í bókinni er einnig að finna sérkafla með textum/ljóðum við öll lögin, ásamt skrá yfir upprunalegan plötutitil, flytjanda, útgáfuár og útgefanda. Þá er í bókinni fjöldi ljósmynda af þeim hljómsveitum og flytjendum sem Jóhann hefur starfað með. Geisladiskur með einu nýju lagi, „I Believe“, fylgir bókinni frítt. Hugverkaútgáfan gefur bókina út. Í BOSNÍU Nató tók við friðargæslu í Bosníu þennan dag árið 1995. Nató tekur við friðargæslu í Bosníu Ég er svo mikið barn í mér enn-þá að ég hlakka alltaf til þegar ég á afmæli,“ segir Sunna Borg leikkona sem er 57 ára í dag. Hvað verður gert í dag er þó óvíst. „Ein- hver úr fjölskyldunni verður að koma mér á óvart.“ Sunna segir að það hafi ekki alltaf verið gaman að eiga afmæli svona stuttu fyrir jólin, enda hafi afmælið stundum farið fyrir ofan garð og neðan. „Það hafði enginn tíma til að hugsa um afmælisboð því það var svo mikill undirbún- ingur fyrir jólin,“ segir Sunna, sem er sjálf komin langt á veg með jólaundirbúninginn. Henni líkar heldur ekki að vera útkeyrð þegar jólin loks koma. Minnisstæðasta afmæli Sunnu er frá hennar yngri árum. „Ég fékk dúkkulísur að gjöf, en stelp- an var búin að klippa þær út sjálf. Þá var grátið allan daginn því það var aðal sportið að klippa þær út.“ Sunna er fædd og uppalin í Reykjavík, en býr nú á Akureyri þar sem hún var lengi leikkona hjá Leikfélagi Akureyrar. Hún sagði upp samningnum við leik- húsið og sneri sér að fjögurra ára fjarnámi í smáskammtalækning- um og þarf því að ferðast reglu- lega til Reykjavíkur. „Þetta er al- veg ótrúlega skemmtilegt og ég hefði ekki getað ímyndað mér hvað ég fæ mikið út úr þessu. Áhugi fyrir þessari tegund með- ferðar hefur aukist, því fólk er farið að kynna sér þetta og þetta er svo gott með öðrum aðferðum. Ég hef notað þetta á mig og mína og þetta er alveg skothellt,“ segir Sunna, sem á ár eftir í náminu. Hún á þó ekki von á að hverfa al- veg frá leiklistinni að námi loknu. „Leiklistin er búin að vera mitt lífsstarf og ég á ekki von á að gefa hana alveg upp á bátinn.“ Það voru nokkur viðbrigði að setjast aftur á skólabekk, enda felst í því mikill lærdómur í líf- fræði og lífeðlisfræði á latínu. „Það sögðu allir að þetta yrði ekk- ert mál að læra þetta utan að, því ég væri svo vön slíku. Það var bara ekki rétt og þetta var mikil áskorun,“ segir Sunna Borg af- mælisbarn. ■ Afmæli SUNNA BORG LEIKKONA ■ Er 57 ára í dag. Hún er í hléi frá leikhúsinu til að læra smáskammta- lækningar. Af fjölunum í hómópatíu Magnús Ólafsson ljósmyndari „Magnús var ljósmyndari Reykjavíkur og hann veitti okkur fjölþættari sýn á Reykjavík heldur en aðrir ljósmyndarar.“ Inga Lára Baldvinsdóttir, Magnús Ólafsson og framlag hans til íslenskrar ljósmyndunar, 2000. „...grein Eiríks um ljósmyndarann og heim hans heyrir til tíðinda í íslenskri menningarrýni. ... Hann dregur saman ólíka þræði tilvísana og kenninga, undirbyggir hugmyndir sínar jafnt á vísunum í Gröndal, Barthes og Sontag, og spinnur úr listavel skrifaðan vef.“ Einar Falur Ingólfsson, Mbl. „...tvímælalaust einn merkasti þátttakandinn í íslenskri ljósmyndasögu“ Einar Falur Ingólfsson, Mbl. Yfir 100 myndir af gömlu Reykjavík er að finna í bókinni ásamt vönduðum greinum á íslensku og ensku eftir Eirík Guðmundsson útvarpsmann og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.