Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 28
28 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Hrúturinn
Hinn dæmigerði hrútur vill
áskorun, sækir í keppni og
hreyfingu. „Hrútar vilja berjast,“
segir Gunnlaugur. „Þeir þurfa ak-
sjón.“ Hvað er hægt að gefa manni eins og Kára
Stefánssyni? Veiðigræjur gætu hentað, eða
hlaupaskór. „Hrúturinn á
í vandræðum með óþol-
inmæðina,“ segir Gunn-
laugur. „Það er spurning
hvort jólagjöfin eigi þá
nokkuð að vera innpökk-
uð. Í öllu falli verður það að vera
eitthvað sem hann er fljótur að taka utan af.“
Konur í hrútsmerki eru ákaflega sjálfstæðar
og þær vilja áskorun. Karatenámskeið hjá Þórs-
hamri gæti hentað eða bókin Sun Tzu -
The Art of War. Þær
vilja geta svarað fyrir sig,
eins og Valgerður
Sverrisdóttir. „Kon-
urnar eru grófar og
töff,“ segir Gunn-
laugur. „Þær gætu
fallið fyrir grófum,
stórum skargrip-
um.“
Nautið
Nautið er nautnaseggur
og er mikið fyrir þægindi.
Lúxuskonfekt
frá Belgíu
myndi henta öllum nautum eða
gott rauðvín. „Þú gefur naut-
inu mat eða pen-
inga,“ gantast
Gunnlaugur. „Og
svo er nautið mjög
íhaldssamt.“ Sam-
kvæmt þessu
myndi það til
dæmis ganga upp
að konan gæfi
manninum jakka sem er alveg
eins og hinir jakkarnir. Annað sem karlar í
nauti gætu fallið fyrir er
Lazyboy-hægindastóll.
Konur í nautsmerki vilja
líka lúxus og þægindi.
Nuddolíur og góður,
þægilegur sloppur
myndu falla vel í kramið,
svo ekki sé talað um
árskort í Nordica Spa.
Tvíburinn
„Tvíburinn talar ofsalega mikið,“
segir Gunnlaugur. „Hann er
alltaf með hundrað járn í eldin-
um.“ Það er því ljóst að það
ætti að vera hægur vandi að
velja gjöf fyrir tvíbura af
báðum kynjum: Nýjustu
tegundina af farsíma. Tví-
burar eru mjög ginkeyptir
fyrir nýjum tækjum.
„Dæmigerður tvíburi er líka
allur í markaðsfræðum og
sölumennsku,“ segir Gunn-
laugur. Og hvað hentar
slíkum? Jú, námskeið eða
bók með Dale Carnegie.
Annað einkenni á
tvíburum er það að þeir standa
ekkert sérstaklega fast á skoðun-
um sínum, og eru alltaf til í að
breyta. Einn þeirra, Össur
Skarphéðinsson, var kallaður
vindhani í pólitísku debatti á
árum áður, við kröftug mót-
mæli. Hugsanlega gæti það
einmitt hentað: fallegur
vindhani á húsið.
Krabbinn
Krabbar eru mikið fyrir úti-
vist og náttúruvernd. „Þeir
eru alltaf að byggja eitthvað
upp eða hlúa að einhverju,“
segir Gunnlaugur. „Allt sem hann
getur verndað myndi slá í
gegn.“ Samkvæmt þessu
má leiða að því líkum að
gæludýr henti kröbbum, til
dæmis hundur, eða eitt-
hvað í garðinn eins og tré.
„Krabbinn vill líka vera mik-
ið í vatni,“ segir Gunnlaug-
ur. Árskort í sundlaugarn-
ar væri því fín lausn.
Yngri krabbar eru oft mjög kúl og þó þeir séu
tilfinningaverur, þá hafa þeir líka þykka skel.
Gaddabelti gæti hentað yngri kröbbum. Konur í
krabba eru mikið fyrir sól, enda er krabbinn
fæddur um sumar. Íhaldssemi og rómantík
fara þar saman. Gunnlaugur stingur
upp á rómantískri
tónlist handa
konunum. Til
dæmis Dúet
með Björgvini
Halldórsssyni.
Ljónið
Gunnlaugur er í engum vafa
hér: „Ljón vilja spegil. Þau er
svo hrifin af sjálfu sér. Helst
speglasett, sem þau geta notað
við öll tækifæri. „ Ef fólk vill
virkilega gleðja ljónið má taka
skrefið alla leið og kaupa risa-
spegil í loftið á
svefnherberginu „til
að ljónið geti horft
á sig sofa,“ eins og
Gunnlaugur orðar
það.
Hið sjálfhverfa ljón myndi jafnframt
verða himinlifandi með málverk af
sjálfu sér og í rauninni allt sem fjallar
um það sjálft. Því má yrkja til þess
ljóð og líka gefa því fegrunarvörur.
Ljónið vill líta vel út, sem er einmitt
önnur hlið á ljóninu. Það vill föt í
skærum litum og skartgripi úr gulli.
„Ljón eru miklir skemmtikraftar, fædd
um hásumar, með stórt bros og mikla
útgeislun,“ segir Gunnlaugur. Bara
eitthvað skrautlegt nægir því ljóninu.
Rauð skykkja myndi nægja. „Bara ef
það vekur athygli. Þá er ljónið sátt.“
Meyjan
Sjálfsstyrkingarspóla frá Guð-
jóni Bergmann myndi henta
meyjum. „Eitthvað sem fengi
meyjuna til að endurtaka að hún
væri best,“ segir Gunnlaugur. „Hún þarf styrk-
ingu.“ Konur í meyju eru mikið í fegrunarpæling-
um. Þær vilja föt sem passa saman. „Dragt,
slæða, naglalakk og skór í stíl gæti verið
málið,“ segir Gunnlaugur. „Meyj-
an er haldin fullkomnunar-
áráttu.“ Vandað snyrti-
dót myndi vekja
lukku eða fín-
legt silfur-
hálsmen.
Karlarnir
eru jafnan
smámuna-
samir og tens.
„Þeir eru alltaf að
hlaupa fram og aft-
ur. Dálítið eirðarlausir.“
Svona dálítið eins og Ómar Ragnarsson, sem er
meyja. Í ljósi þessa gæti róandi tónlist slegið í
gegn, eða eitthvað föndurdót. Orðaspilið
Scrabble er líka gott fyrir meyjur. Ef meyjan er
fyrir hljóðfæraleik þá á að gefa henni saxófón.
Vogin
Vogin er alltaf að vega og meta,
og þess vegna liggur hin ein-
falda lausn í augum uppi: Falleg
vog í eldhúsið. „En vogin er líka
ákaflega félagslynd,“ segir
Gunnlaugur. „Þetta er félags-
og menningarmerki.“ Þess
vegna myndi áskriftarmiði í
leikhúsin smellpassa fyrir vog-
ir, af báðum kynjum, en Gunn-
laugur tekur fram að það yrði
helst að vera frumsýningar-
kort, þar sem kokteill væri
innifalinn. Vogin vill blanda
geði. Einnig passar að gefa vog-
inni listmuni, en jafnframt er það einkenni á
vogum, eins og Jóhönnu Sigurðardóttur og Guð-
rúnu Ögmunds, að þær eru fullar af réttlætis-
kennd. Og hvað hentar fólki með ríka réttlætis-
kennd? Jú, til
dæmis einhver
átakasaga. Bókin
Ambáttin gæti
virkað, eða Fólk
í fjötrum - bar-
áttusaga ís-
lenskrar alþýðu.
Sporðdrekinn.
Gunnlaugur hefur ekki
mörg orð um hinn dular-
fulla sporðdreka. Þeir eru erf-
iðir, en samt ekki svo. „Þeir
hafa mjög ríka kynhneigð,“
segir hann. „Það á að gefa
þeim hjálpartæki ástarlífs-
ins úr Rómeó og Júlíu. Kon-
urnar eiga að fá rauð und-
irföt eða svartan kjól.“ Karl-
kyns sporðdrekar myndu
glotta ánægðir við tönn ef
þeir fengju svartan leður-
jakka. En vegna þess hvað
sporð-
drekar
eru dulir
og samt
miklar til-
finninga-
verur, þá gæti líka hentað
körlum, og jafnvel konum, í
merki sporðdrekans eitthvað
sem veitir útrás. Boxpoki
steinliggur. Láta sporð-
drekann berjast einan út í
bílskúr.
Bogmaðurinn
„Bogmenn þrá frelsi og
fróðleik,“ segir Gunnlaugur.
„Þeir eru opnir og hressir“.
Gjafakort frá Flugleiðum hentar bogmönnum,
hvert á land sem er. Hann þarf að
komast burt. Þá væri heldur ekki
slæmt ef næðist að sameina ferða-
lög og fróðleik. Í því skyni má
gefa bogmönnum, eins og til
dæmis Ara Trausta
jarðfræðingi – sem
er einmitt alltaf á
fleygiferð – góða
ferðabók eða bara
Íslandshandbókina. En
hressileiki bogmannsins og þörf hans fyrir hreyf-
ingu gæti líka leitt til þess að bogmenn af báð-
um kynjum yrðu afskaplega sátt við góð íþrótta-
eða útivistarföt. Eða bara
gönguskó.
Steingeitin
„Steingeitin er jarðbundin,
ábyrg, samviskusöm og al-
vörugefin,“ segir Gunnlaugur.
„Og þau eru á tindinum.
Vinna mjög mikið.“ Og
vegna þess hvað þau
vinna mikið, þá myndi
gott nudd slá gjör-
samlega í gegn hjá
steingeitum, eins og
Davíð Oddssyni og
Ingibjörgu Sólrúnu.
Nuddkrem myndi
henta konunum.
Annað sem stein-
geitin kann mjög vel
að meta er gott úr.
„En það verður að
vera gæðaúr,“ segir
Gunnlaugur. „Stein-
geitur eru sam-
viskusöm vinnudýr.
Eins og Alex Fergu-
son. Hann er alltaf
að horfa á úrið.“
Vatnsberinn
Gunnlaugur bendir á að
nánast allir skákmenn Ís-
lands eru vatnsberar. Friðrik
Ólafs, Jóhann Hjartarson, Margeir Péturs og
fleiri. Vegna þess hvað vatnsberinn er mikill heili
myndu
karlarnir í
merkinu
örugglega
ekki fúlsa
við nýju
skáksetti
frá
Hrókn-
um. „Og
þeir eru
líka mikið
fyrir tækni,“ segir Gunnlaugur. „Ný tölva, eða
eitthvað tölvutengt, myndi falla í kramið.“
Konur í vatnsbera eru mikið fyrir alls kyns
hönnun. Sérstakt listaverk eftir Koggu gæti
verið málið. „Þær vilja sérhannaða skartgripi,“
segir Gunnlaugur. „Þess vegna er Skólavörðu-
stígur vatnsberagatan.“ Konurnar, eins og Andrea
Róberts, eru spes týpur og þær gætu fallið fyrir
flottum skóm. „Þær eru hrifnar af skóm.“
Fiskarnir
„Fiskar eru oft andlega
sinnaðir,“ segir Gunnlaug-
ur. „Eldri fiskar gætu viljað
góða tónlist, eins og heildarútgáfu af Bach.
Yngri fiskarnir gætu fengið Sigur Rós.“ En fisk-
arnir eru líka óttalegir sveimhugar upp til hópa
og því gæti bókin Að setja sér skýr markmið
gengið. Og til þess að ná betri fókus gæti digital
myndavél verið málið. „Konunum myndi ég
gefa dansnámskeið,“ segir Gunnlaugur. „Tónlist,
dans og allt sem tengist inn á ímyndaraflið er
sterkt í fiskum.“ Karlar í fiskamerki eru ákaflega
stórhuga, eins og til dæmis Björgúlfur Thor. Og
hvað gefur maður svoleiðis manni. Jah.. til
dæmis Búlgaríu. Spilið Matador gæti líka geng-
ið.
Það er ekki hlaupið að því að velja jólagjafir. Margir lenda í vandræðum. Getur stjörnuspekin hjálpað?
Fréttablaðið leitaði til Gunnlaugs Guðmundssonar stjörnuspekings eftir vísbendingum sem gætu komið að góðum notum.
Spurningin er: Hvaða jólagjafir henta hvaða stjörnumerki?
Stjörnumerki og jólagjafir
- hvað hentar hverjum?
Hvað vill hrúturinn í jólagjöf? Hvað vill sporðdrekinn?