Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 37
halda mig frá því eins og ég get.
Ég er ekki gráðugur.“
Klæminn tenór
Endalaust er verið að kvabba í
Óskari um að syngja við hin og
þessi tækifæri og það hefur
versnað til muna í seinni tíð. Ósk-
ar vill ekki meina að hann sé að
færa sig úr klassíkinni yfir í
dægurlögin. Það ráðist og verði
spilað af fingrum fram.
Aðdáendur Óskars eru um
land allt. „Jájá, ekki síst dreifbýl-
isfólk. Ég finn að þar á ég marga
góða að. Enda dreifbýlislegur í
orði og æði og útliti.“
Og oft er hann kynntur sem
spéfugl þegar hann kemur fram.
Óskar segir það til komið vegna
þess að hann missi sig gjarnan í
kynningum milli laga. „Já, út í
einhverja vitleysu. Þá fer þetta
stundum að nálgast uppistand.
Það hefur verið kvabbað í mér að
vera meira í því, til dæmis við
veislustjórnun og slíkt, en ég hef
dregið lappirnar. Ég er svo
klæminn að ég yrði lögsóttur ef
ég legði það fyrir mig.“
Það orð fer af tenórum að þeir
séu kvensamari en góðu hófi
gegnir. Óskar segir það orð
blaðamannsins en ekki sín og
bendir á að hann sé þriggja barna
faðir og allt með sömu konunni.
„Nei, ég er ekki kvensamur. Mig
langar djöfullega en sleppi mér
ekki,“ fíflast hann og neitar ekki
að það komi stundum glampi í
kvenkyns áhorfendur. „Já,
kannski þegar ég fer upp í hæstu
tóna. Annars er það afar tvíbent,
sjáðu til, því þegar við tenórarnir
förum sem hæst upp þannig að
helst minnir á raddir geldinga...
þá fara menn sko að efast um
hversu vel vaxnir niður við
erum.“
jakob@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 20. desember 2003 33
ÓSKAR TÓNAR Á AKUREYRI
Tenórinn missir sig stundum í kynningum
milli laga og fer þá að jaðra við uppi-
standssýningu. Óskar vill þó fara varlega í
þeim efnum, hann sé svo klæminn að
hann gæti orðið fyrir lögsókn færi hann að
feta þá braut.
Jólaskákmót barna fer fram á morgun:
Teflt í jólastressinu
Við héldum glæsilegt barnaskák-mót á Broadway í september
og nú á að gera enn betur,“ segir
Kristjón Kormákur Guðjónsson
sem er allt í öllu í barnastarfi skák-
félagsins Hróksins sem blæs til
mikillar jólaskákveislu á Broad-
way á sunnudaginn.
„Þarna fer fram skákmót fyrir
börn í 1. til 6. bekk og síðan verður
dansað í kringum jólatréð og jóla-
sveinninn kíkir í heimsókn og fær-
ir krökkunum góðgæti og glaðning
frá vinum og velunnurum Hróks-
ins.
Skemmtiatriðin eru heldur ekki
af verri endanum en margir af vin-
sælustu tónlistarmönnum þjóðar-
innar taka lagið, þar á meðal KK og
Jakob Frímann. Sveppi úr Sjötíu
mínútum verður líka á staðnum og
les úr þjóðsögum Jóns Árnasonar.“
Allir krakkar sem tefla á mótinu
fá viðurkenningjarskjal fyrir þátt-
tökuna og þau sem lenda í 1.–3.
sæti fá medalíu og sigurvegari í
hverjum flokki hlýtur vandaðan
bikar frá Árna Höskuldssyni gull-
smiði. Þá verður dregið í happa-
drætti Hróksins þar sem hundruð-
ir vinninga frá fjölmörgum fyrir-
tækjum eru í pottinum.
„Hátíðin hefst klukkan 12 á há-
degi og stendur til fimm síðdegis.
Það eru allir velkomnir og Hrókur-
inn hvetur pabba og mömmur, afa
og ömmur til að taka sér smá frí frá
jólastressinu og mæta með börnun-
um á skákhátíðina. Það verður eng-
inn svikinn af því enda er Hrókur-
inn hrókur alls fagnaðar.“
Þátttaka í jólaskákmótinu er
ókeypis en fullorðnir greiða 500
krónur í aðgangseyri. Hægt er að
skrá sig með því að fara inn á
heimasíðu mótsins www.hrokur-
inn.is/jol2003 eða senda póst á
skakskoli@hotmail.com. ■
BÖRN AÐ TAFLI
Rúmlega 280 börn á grunnskólaaldri kepptu á Risa barnaskákmóti sem Hrókurinn og
Hagkaup héldu á Broadway í lok september. Fjörið verður ekki minna á morgun þegar
Hrókurinn blæs til jólaskákveislu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M