Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 41
anum þurfa þó varla að örvænta
en klipptu atriðin munu örugglega
skila sér í DVD-útgáfunni á næsta
ári. Sérstakar DVD-útgáfur fyrri
myndanna bæta, hvor um sig, um
það bil 40 mínútum við myndirnar
eins og þær voru í bíó þannig að
Hringadróttinssaga á enn eftir að
lengjast og ævintýrið er síður en
svo úti þó sagan sé öll.
Íslenskir aðdáendur myndanna
hafa tekið þessum viðbótum
tveim höndum en The Fellowship
of the Ring hefur selst í rúmlega
20.000 eintökum og The Two
Towers í vel yfir 15.000 og mynd-
irnar eru fyrir vikið langmest
seldu DVD-myndirnar á Íslandi.
The Return of the King verður
frumsýnd í níu bíósölum í Reykja-
vík á öðrum degi jóla en hörðustu
aðdáendur sögunnar munu vænt-
anlega freista þess að sjá allar
myndirnar þrjár í einum rykk um
helgina í um það bil 10 klukku-
stunda maraþoni. Rúmlega
180.000 miðar hafa selst á fyrri
myndirnar tvær þannig að það
mun væntanlega allt keyra um
kolla þegar endataflið hefst um
jólin.
thorarinn@frettabladid.is
Molar úr
sögu
Hringsins
100.000.000 manns hafa lesið
Hringadróttinssögu frá því hún
kom fyrst út árið 1954.
3.000.000 fet af filmu voru
notuð við tökur þríleiksins.
48.000 sverð, axir, skildir og
önnur vopn voru búin til fyrir
myndirnar þrjár.
20.602 aukaleikarar tóku þátt
í gerð myndanna.
250 hestar voru notaðir í ein-
stökum atriðum, auk 70 sér-
þjálfaðra gæðinga.
Leikararnir í helstu hobbita-
hlutverkunum notuðu saman-
lagt 1600 gúmmíeyru og
hobbitafætur á meðan á tökum
stóð.
Fjölskylda Tolkiens fær
greidd 104.602 pund fyrir kvik-
myndaréttinn á sögunni. Laun
og hagnaðartengdar greiðslur
til leikstjórans Peters Jacksons
verða ríflega 60 milljónir
punda.
Tökur myndanna á Nýja-Sjá-
landi skiluðu sér í 110 milljón
punda innspýtingu í efnahagslíf
landsins.
Tónlistarmaðurinn David
Bowie kom á tímabili til greina í
hlutverk álfakonungsins Elrond
og Daniel Day-Lewis afþakkaði
hlutverk Aragorns sem féll því
Viggo Mortensen í skaut.
90.000 ljósmyndir voru tekn-
ar á tökustað.
Samkvæmt sögunni var Mið-
garður til fyrir 7.000 árum síðan.
2.400 manns komu að gerð
myndanna þegar mest gekk á.
Þegar mest var að gera í
mötuneytinu á tökustað voru
800 máltíðir framreiddar í einu
og þegar mest lét fékk tökuliðið
1.460 steikt egg í morgunmat.
Ferðalag föruneytis Hrings-
ins tekur 13 mánuði.
4 hobbitar fóru í teygjustökk
á Nýja-Sjálandi á meðan tökur
stóðu yfir.
The Return of the King er
lengsta myndin í þríleiknum; 3
klukkustundir, 20 mínútur og 44
sekúndur að lengd.
114 leikarar taka til máls í
þríleiknum.
The Two Towers er í 4. sæti
yfir aðsóknarmestu bíómyndir
allra tíma.
Þríleikurinn var tekinn á yfir
100 tökustöðum.
200 orkagrímur voru hand-
gerðar fyrir myndirnar og 180
manns unnu við tölvutækni-
brellur í myndunum.
Þríleikurinn hefur verð þýdd-
ur á yfir 40 tungumál.
Elijah Wood fékk að eiga
Hringinn eina sem minjagrip að
tökum loknum, Cate Blanchett
hélt eftir bronslitum álfaeyrum.
Viggo Mortensen keypti hest
Aragorns og fékk að taka sverð-
ið sitt með sér heim. Peter
Jackson, sem er síétandi, fékk
gulrót að gjöf.
Allir helstu leikararnir í föru-
neyti Hringsins létu húðflúra
sig með álfatákni að John Rhys-
Davies undanskildum sem sendi
áhættuleikara sinn í
tattúið.
Viggo Mortensen tá-
brotnaði í öllum látunum
á tökustað auk þess sem
hann var nærri drukkn-
aður. Orlando Bloom
brákaði rifbein og fékk
heilahristing nokkrum
sinnum. ■
LAUGARDAGUR 20. desember 2003
Rolex Explorer II.
Krónómeter í stáli.
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Við óskum
viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
GOLLRIR OG HOBBITARNIR
Hinn fláráði og slímugi Gollrir fylgir Fróða og Sámi síðasta
spölinn að Dómsdyngju og hefur vitaskuld illt eitt í huga.