Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 42
Ég veit það ekki? Hvernig ámaður að telja? Stórar plötur
segirðu? Albúms? ... þá er þetta
númer sex. Kannski. Eitthvað svo-
leiðis. Það er nú ekki meira. Eða
það held ég,“ segir Dr. Gunni, sem
nýverið var að senda frá sér plöt-
una Stóri hvellur. Rétt er að taka
það fram áður en lengra er haldið
að Dr. Gunni er vog og hann á
erfitt með að ákveða sig. „Ég er
alltaf að skipta um skoðun. Minn
helsti veikleiki er óákveðnin. Er
það ekki annars?“
Losnar seint við prumpið
Þessi óákveðni kemur strax
fram við fyrstu spurningu sem
varðar heiti plötunnar: Stóri
hvellur. „Já, hún átti að heita Flat-
us lifir! eftir veggjakroti sem er á
malarnámu á Kjalarnesi. Áletrun
sem hefur valdið mörgum heila-
brotum. Mér þótti þetta mjög svo
dularfullt og ætlaði að kalla plöt-
una þetta. Svo komst ég að því að
flatus er læknisfræðilegt orð yfir
viðrekstur. Ég vildi að sjálfsögðu
þvo mig af öllu slíku. Búinn með
þann pakka þannig að ég breytti
þessu í Stóra hvell sem er eitt lag-
ið á plötunni.“
Árið 1997 sendi Dr. Gunni frá
sér lagið „Prumpufólkið“ sem
naut fádæma vinsælda og lifir
enn góðu lífi. Það sem verra er þá
gæti Stóri hvellur útlagst sem ein-
hvers konar útfærsla á prumpi.
„Jú, það er víst. Ég ætla seint að
losna undan þessu.“
Ekkert listrænt steitment
Í hljómsveit með Dr. Gunna
eru þrír hressir strákar, þeir
Gummi, Grímur og Kristján og
höfuðpaurinn segir tónlistina
svona „beisikk“ rokk og ról. „Þeg-
ar útgefandinn Smekkleysa
heyrði þetta – Ásmundur Jónsson
– sagði hann að þetta væri ekki
listrænt „steitment“ heldur væri
þetta skemmtilegt. Ég er ánægður
með það enda lagt upp með slíkan
pakka. Ég á enn eftir að koma með
eitthvað sem gæti kallast listrænt
steitmennt. Eða, er það ekki? Ég
verð vonandi aldrei svo leiðinleg-
ur að ég fari út í það.“
Dr. Gunni starfar nú sem út-
varpsmaður á útvarpsstöðinni
Skonrokk FM 90,9. Það er því til-
valið að spyrja hann hvort þetta
megi teljast útvarpsvæn plata.
„Jahh, það fer eftir því hvaða út-
varpsstöð maður er að tala um. Það
eru þá aðallega einhverjar
skemmtilegar stöðvar á borð við
Rás 2 og X-ið... já, og Skonrokk eft-
ir 10 ár. Þetta er ekki svo útvarps-
vænt að maður fari að neyða lögin
inn á fólkið á Létt FM eitthvað.“
Og Dr. Gunni skammast sín
ekkert fyrir að misnota aðstöðu
sína gróflega. Þrátt fyrir yfirlýsta
stefnu um að á Skonrokk sé ekki
leikin nýleg tónlist þá gildir öðru
máli þegar hann sjálfur á í hlut.
„Jájá...jújú, hún var plata vikunn-
ar í síðustu viku. Reglur eru bara
til að brjóta þær.“
Í sporum Braga Ásgeirssonar
Dr. Gunni hefur fengist við
ýmislegt og er meðal annars
þekktur sem tónlistargagnrýn-
andi. Var hann frægur fyrir að
skirrast ekki við að fara háðuleg-
um orðum um afurðir kollega
sinna í poppinu. Má þetta ekki
heita sérkennileg staða?
„Ég er bara eins og Bragi Ás-
geirsson listmálari og listgagn-
rýnandi á Mogganum. Þetta er nú
ekki sérkennilegra en svo. Þeir
sem fjalla um tónlist eru allir
meira og minna eitthvað að gutla í
músík. Kannski sérkennilegt hvað
ég hef þó náð langt miðað við það
að vera fyrrverandi gagnrýnandi.
Oftast eru gagnrýnendur svona
wannabe lið.“ Dr. Gunni hallast að
kenningunni um að þeir sem ekki
geta, gagnrýni. Og hann sé undan-
tekningin sem sannar regluna.
Eða hvað? Nei, ekki er það nú al-
veg því Dr. Gunni botnar þessa
hugleiðingu með orðunum:
„Neinei. Gagnrýnendur eru
frábærir! Ég ætla nú ekki að vera
eins og Mikki Torfa sem segir að
allir séu vangefnir. Ætla nú aldeil-
is ekki að byrja á því að kynna
plötuna með slíkum látum.“
„Næs“ gagnrýni
Vingulshátturinn ríður ekki við
einteyming þegar vogin Dr. Gunni
er annars vegar. „Það þykir ægi-
lega kúl að segja að manni sé al-
veg sama hvað gagnrýnendur
segja af því að maður er svo viss
um að þetta sé svo frábært. Það er
náttúrlega ekkert satt því maður
bíður skjálfandi eftir því að eitt-
hvað fólk sem maður kannast við
fari að krukka í plötuna og kveða
upp sinn dóm.“
Og Dr. Gunni er ægilega fúll
yfir því að platan hafi ekki verið
tilnefnd fyrir til íslensku tónlistar-
verðlaunanna. „Sem fagmaður á
mínu sviði tel ég það hneyksli. Svo
er platan hans Bó þarna! Dúetts til-
nefnd sem hljómplata ársins! Af
hverju er ekki Sjónvarpshandbók-
in tilnefnd til bókmenntaverðlauna
eins og platan hans Bó?“
Doktorinn segist gegnheill í
því að vera þátttakandi á tónlist-
arsviðinu og þurfi ekkert að
skipta sér milli þess að vera gagn-
rýnandi og tónlistarmaður. „Eða...
kannski. Ég er löngu hættur að
skrifa gagnrýni um plötur. Ætla
aldrei aftur í þann pakka. Frekar
leiðinlegur starfi. Maður á í eilífri
baráttu með sjálfan sig: Hvort
maður á að segja það sem manni
finnst? Eða á að vera „næs“? Ég
öfunda ekki þetta fólk sem þarf að
hlusta á allt þetta rusl sem verið
er að gefa út og þarf að vera næs.“
Erfið fæðing
Í hljómsveitinni með Dr.
Gunna, sem heitir einfaldlega Dr.
Gunni, verða meðlimirnir að
sætta sig við að lúta stjórn höfuð-
paursins sem ekki trúir á lýðræði
í hljómsveitum. „Nei, þeir fá ekki
einu sinni að heita hljómsveitar-
nafni og verða að sætta sig við að
vera undir þessu vörumerki.
Strákarnir fá nú samt aðeins að
setja sitt mark á þetta, mála í
númer, en það er ekki við þá að
sakast ef þetta er vont eða fólki
finnst þetta leiðinlegt.“
Allir grunnar voru teknir upp
helgi eina í apríl og svo var hamast
í bílskúr við Freyjugötu við að full-
vinna verkið. „Þetta var erfið fæð-
ing en við Bibbi Curver lentum í
leiðinlegu veseni. Tvisvar hrundi
harður diskur þannig að allt sem
við vorum búnir að gera strokaðist
út. En ég er gífurlega ánægður
með útkomuna og tel þetta eitt það
allra besta sem ég hef gert.“
Þegar útgefandinn
Smekkleysa heyrði
þetta – Ásmundur Jónsson
– sagði hann að þetta væri
ekki listrænt „steitment“
heldur væri þetta skemmti-
legt. Ég er ánægður með
það enda lagt upp með
slíkan pakka. Ég á enn eftir
að koma með eitthvað sem
gæti kallast listrænt steit-
mennt. Eða, er það ekki?
Ég verð vonandi aldrei
svo leiðinlegur að ég
fari út í það.
,,
38 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
DR. GUNNI OG HLJÓMSVEIT
Doktorinn er fúll yfir að hafa ekki fengið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna. „Svo er Bó þarna! Af hverju er ekki Sjónvarpshandbókin tilnefnd til bókmenntaverðlaunanna?“
Hann segist eiga betra með að taka neikvæðri gagnrýni en því sem hann kallar smjaður. „Erfitt að hlusta á það,“ segir hann. „Maður verður svo asnalegur eitthvað. En ég get svo sem
alveg tekið góðri gagnrýni...,“
Dr. Gunni er vog og
óákveðnin er hans stóri
ókostur. Eða það heldur
hann. Nú velkist hann
milli þess að henda
ónotum í gagnrýnendur
og að vilja hafa þá góða
því hann var að senda
frá sér nýja plötu.
Bíður skjálfandi
eftir gagnrýni