Fréttablaðið - 20.12.2003, Qupperneq 48
45 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Oft er það svo að þýðendur sitja úti í horni meðan kastljósið skín á rithöfunda. Þeir koma ekki til álita þegar bókmenntaverðlaunin eru
annars vegar. Sárabætur gætu verið að Fréttablaðið dregur nokkra þeirra fram í dagsljósið í léttum samkvæmisleik.
Þýðendurnir og
bækurnar þeirra
Hver þýddi hvaða bók?
Er ekki tími til kominn aðtengja?“ sungu Skriðjöklar um
árið og það er einmitt það sem á
að gera hér í þessum skemmtilega
samkvæmisleik sem Fréttablaðið
bryddar upp á að þessu sinni. Að
tengja bók við þýðanda. Bók-
menntagagnrýnandinn skeleggi,
Páll Baldvin, hefur látið þess svo
getið að furðu sæti að þýðendur
komi ekki til álita þegar tilnefn-
ingar til hinna íslensku bók-
menntaverðlauna eru annars veg-
ar. Þýðendur vinna sín verk, oft
hágöfug, í kyrrþey og njóta lítillar
sem engrar athygli. Eru þó ýmsir
í þeirra röðum sem mega heita
landsþekktir menn sem eru allrar
athygli verðir. Hér eru, sem sagt,
komnir valinkunnir einstaklingar
sem eru þekktir fyrir ýmislegt
annað en þýðingar en eiga þó
bækur í þessu jólabókaflóði.
Ósagt er látið hvort þær bækur
sem þeir þýða eru lýsandi fyrir þá
eða til marks um áhugamálin. En
hér á sem sagt að tengja: Hver
þýddi hvaða bók? Góða skemmt-
un.
jakob@frettabladid.is
Þýðendurnir:
Bækurnar:
Rétt svör:
Rétt svör: G-1, F-7, E-5, D-2, C-6, B-4, A-3
Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór er landskunnur
skemmtikraftur, annar Radíus-
bróðirinn og kallar ekki allt
ömmu sína þegar grínið er annars vegar. Radíusbræð-
urnir þóttu og þykja fulltrúar afar óheflaðs húmors.
Davíð Þór vakti einnig athygli fyrir störf sín sem rit-
stjóri erótíska tímarritsins Bleikt og blátt. En hann hef-
ur einnig fengist nokkuð við þýðingar, til dæmis þýddi
hann söngleikinn Hárið og þótti takast vel, enda Davíð
hagmæltur vel. Hver er bók Davíðs?
1.
Gísli Rúnar
Jónsson
er auðvitað þekktastur
sem einn helsti grín-
leikari þjóðarinnar og annar Kaffibrúsakarl-
anna. Hann mun láta til sín taka í Áramóta-
skaupinu nú sem oft áður. Gísli Rúnar
hefur einnig verið afkastamikill leikstjóri en
hefur verið að færa sig meira og meira frá
leiksviðinu í seinni tíð og á ritvöllinn. Hann
skrifaði bókina um Bó og svo hefur hann þýtt
nokkur leikrit og staðfært, sem og eina þeirra
bóka sem hér eru nefndar. Hver er sú?
2.
Guðni Kolbeinsson
Guðni er mikilvirkur þýðandi,
virtur vel á þeim vettvangi og
hefur verið árum saman. Guðni
er þó sennilega þekktari fyrir þátt í útvarpi fyrir
nokkrum árum, Málfarsmínútan. Og olli nokkrum usla.
Guðni er einnig þekktur þulur og las með eftirminni-
legum hætti inn á sjónvarpsþættina „Einu sinni var“.
Auk þess var hann með ógleymanlegan skemmtiþátt í
sjónvarpi með Trausta veðurfræðingi Jónssyni. Hvaða
bók þýðir Guðni?
3. Hallmar Sigurðssoner líklega með afkastamestuÍslendingum sem lesa inn á
auglýsingar og fleira í þeim
dúr. Hann er rödd Bíórásarinnar enda hefur hann
afskaplega djúpa og þýða rödd. Hallmar er leikari
og fyrrum leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur.
Hann á eitt áhugamál sem tengist leikhúsinu lítt,
gerði sér lítið fyrir, fór upp í sumarbústað og snar-
aði einu stykki bók. En hverri?
4.
Hávar Sigurjónsson
er maður sem kemur víða við. Hann hefur á
undanförnum árum verið að hasla sér völl
sem leikritaskáld og er nú um stundir verið
að sýna eitt verka hans í Þjóðleikhúsinu. Hann er jafnframt
menningarritstjóri Morgunblaðsins auk þess sem hann hefur lát-
ið til sín taka sem leikstjóri. Hávar kann greinilega að skipuleggja
tíma sinn því hann grípur í þýðingarstörf samhliða öllu þessu.
En hvaða bók vakti hina verðskulduðu athygli Hávars?
5.
Artemis Fowl
- læsti teningurinn
eftir Eoin Colfer
Glæpaheilinn Fowl er mættur til leiks og nú
hefur hann búið til tölvu sem býr yfir mikl-
um ofurkrafti. Komist hún í rangar hendur
er voðinn vís. Útgefendur lofa hörkuspennandi sögu og sjálfsagt
tekur þýðandinn í sama streng. En hver er þýðandinn?
A
Tommi togvagn
- Tommi og Gyrðir fara af sporinu
eftir W. Awdrey
„Nú getur yngsta kynslóðin skemmt sér betur en nokkru sinni fyrr,“ segir í Bókatíðindum. „Bækurnar um
Tomma togvagn, sem notið hafa gríðarlegra vinsælda víða um heim, eru nú komnar í íslenskri þýðingu.“ Það
var nefnilega það. Hver þýðenda er nú líklegastur til að leggja fyrir sig þýðingar á Tomma togvagni?
G
Sigurður Hróarsson
er enn einn leikhúsmaðurinn í hópnum
sem hefur gripið í þýðingarnar.
Sigurður er að sjálfsögðu kunnastur fyrir
störf sín sem leikhússtjóri, bæði fyrir norðan hjá Leikfélagi
Akureyrar og svo í Borgarleikhúsinu. En engin eru
leikhúsfræðin í þeim bókum sem hér eru til umræðu?
6.
Ævar Örn Jósepsson
hinn góðkunni fjölmiðlamaður, er heimspeking-
ur að mennt. Hann hefur látið til sín taka í út-
varpi og er ef til vill þekktastur á því sviði, þá
sem beittur spyrill í þjóðmálaþáttum Rásar 2. Ævari Erni skaut fyrst
fram á sjónarsviðið í poppmyndbandaþáttum Sjónvarpsins Poppkorni
en hefur á síðustu árum verið að hasla sér völl sem rithöfundur.
Ævar Örn lætur sig ekki muna um að þýða bækur samhliða öðrum
afrekum sínum. En hvaða bók á hann hér?
7.
Þýðandi:
Þýðandi:
David Beckham
- engum líkur
eftir Stefford Hildred
og Tim Ewbank
Þessi bók fjallar um fótboltagoðið
Beckham og er sjónarhorninu
ekki síst beint að einkalífi hans og eigin-
konunni Viktoríu. Hver er fótboltabullan í
hópi þýðenda?
B
Þýðandi:
Gleymið að þið
áttuð dóttur
eftir Michael Tierney
er reynslusaga Söndru Gregory.
Sandra lýsir atburðum sem leiddu til
handtöku hennar, hrollvekjandi að-
stæðum í Lard Yao-fangelsinu í Bangkok og þeirri
tilfinningu að vera dæmd til dauða.
Hver þýðenda leggur í svona átök?
C
Þýðandi:
Hvernig stendur á því að
karlar hlusta ekki og konur geta
ekki bakkað í stæði
eftir Allan og Barbara Pease
er sennilega með lengri titlum. Hér er enn ein bókin
sem fjallar um muninn á kynjunum.Hún byggir á
nýjustu rannsóknum á starfsemi heilans, hvorki
meira né minna. En hver þýðir?
D
Þýðandi:
Líkami fyrir lífið
- 12 vikur af andlegum og
líkamlegum styrk
eftir Bill Philips
Þessi bók samanstendur, samkvæmt Bóka-
tíðindum, af hvatningarorðum og lýsir því
hvernig hægt er að ná árangri í líkamsrækt og öðlast andlegan
styrk með því að fylgja einfaldri áætlun þar sem megrun er ekki
markmið heldur kærkominn ávinningur. Hver af þeim þýðendum
sem hér eru nefndir til sögunnar lætur sig þetta nokkru varða?
E
Þýðandi:
Supersex
- krassandi kynlíf
eftir Tracey Cox
Þessi bók er líklega sú um-
deildasta meðal þeirra sem hér
eru nefndar en nokkur styr stóð
um bókaauglýsingar sem forlagið JPV stóð að. En
þetta er kynlífshandbók sem fjallar um ýmsar
hliðar ástalífsins, ríkulega myndskreytt. En hver
þýðir?
F
Þýðandi: