Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 53

Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 53
Ég átti fimm fugla í kistunni ogég ætla að borða þá sjálfur þessi jól, það er alveg á hreinu. Mér var boðið hátt verð fyrir fugl- inn, en vildi alls ekki selja þá,“ sagði skotveiðimaður norðan heiða, sem ekki hefur látið það eft- ir sér að fara til rjúpna að þessu sinni enda öll sund lokuð núna fyr- ir skotveiðimönnum. Verðið fyrir fuglinn sem veiði- menn eiga í kistunni er frá fimmt- án hundruð til tvö þúsund fyrir fuglinn og upp í tíu þúsund. Reyndar hefur verðið lækkað eitt- hvað síðan rjúpurnar voru keypt- ar á um tíu þúsund, enda er það verð allt of hátt fyrir fuglinn, þó svo að veiðimenn megi auðvitað fá eins hátt verð fyrir fuglinn og þeir geta. Flestir veiðimenn sem Frétta- blaðið ræddi við í vikunni ætluðu að borða annað en rjúpur, enda áttu þeir fáar til. Einn hafði keyrt á tvær og annar fundið eina dauða, nokkrir áttu fáa fugla í kistunni. „Við skulum vona að við fáum að skjóta á næsta ári, það verður kominn annar umhverfisráðherra, en það versta er að það er líka kona eins og Siv,“ sagði skotveiði- maðurinn. „Það eru bara tófan og minkurinn sem njóta góðs af rjúp- unni þetta árið. Ég fékk mér labbi- túr fyrir skömmu hérna fyrir vestan hjá mér og fann í einu greninu hræ af fimm rjúpum, þær verða fáar rjúpnaveislur þetta árið en góðar,“ sagði veiðimaður- inn vestur á fjörðum í lokin. Stuttar veiðifréttir Dorgveiðimenn eru byrjaðir að kíkja og kanna hvernig ísinn er þessa dagana en Íslandsmótið var ekki hægt að halda í fyrra, vegna ísleysis. Það verður vonandi breyting á núna, en einhverjir veiðimenn hafa reyndar veitt á stöng framá síðustu daga, eins og í Tangavatni í Landssveit. Veiðimenn ættu ekki að fara í jólaköttinn í ár því það eru margar góðar bækur fyrir veiðimenn eins og bók Péturs Steingrímssonar, Veldu flugu, Nokkrar fengsælar laxaflugur eftir Sigurð Héðin, Fiskar og menn eftir Ragnar Hólm Ragnarsson og síðan Stangveiði- árbókin, eftir Guðmund Guðjóns- son. „Ég hef verið að kynna bókina víða og ég fæ mjög góðar viðtökur við bókinni minni, en í henni eru uppskriftir að 83 flugum,“ sagði Sigurður Héðinn, leiðsögumaður og fluguhnýtari, er við könnuðum stöðuna í vikunni. En Sigurður Héðinn var á opnu húsi hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur að kynna bókina um síðustu helgi og þar var Pétur Steingrímsson líka. „Það er búið að dreifa bókinni víða og hún hefur fengið fínar undir- tektir, en bókin skiptist í fjóra meginkafla, Vetur, Vor, Sumar og Haust,“ sagði Sigurður. Skotveiðimenn fá líka sitt þessi jól , þó þeir fái ekki að skjóta rjúp- una í ár. Byssur og skotfimi eftir Egil J. Stardal er gefin út aftur. Sportveiðiblaðið var að koma út fyrir nokkrum dögum en þar er meðal annars viðtal við Siv Frið- leifsdóttur og Gunnar Örlygsson. Grein um Þverá í Fljótshlíð og við stórfiskabann í Þingvallavatni eftir Örn Þórhallsson. Veiðimaður sem Stefán Jón Hafstein ritstýrir, kom út í vikunni, en Heimur gefur blaðið út. Margt gott efni er í blað- inu, eins og viðtöl og fjölbreyttar greinar. Veiðifélagið Lax-á hefur tekið yfir sölu veiðileyfa í Hörðudalsá í Dölum en leikararnir snjöllu Sig- urður Sigurjónsson og Jóhann Sig- urðarson hafa núna í nokkur ár selt veiðileyfi í hana. En Lax-á hef- ur sem sagt tekið það yfir. Eyþór fær bikarinn í annað sinn Á aðalfundi Landssambands stangaveiðifélaga sem haldinn var á Selfossi fyrir skömmu síðan var veittur Hákonsbikarinn, sem Hákon Jóhannsson gaf, en hann er veittur fyrir stærsta laxinn sem veiðist á sumri. Það var Eyþór Sigmundsson sem fékk hann að þessu sinni, en hann veiddi 26,5 punda fisk á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal og var þetta stærsti fisk- ur sumarsins, 26 punda bolti í Presthólma á fluguna Snældu. „Þetta er annað sinn sem ég fæ þennan bikar og ég tók við honum á Selfossi og sagði eina veiði- sögu,“ sagði Eyþór Sigmundsson í samtali við Fréttablaðið. ■ LAUGARDAGUR 20. desember 2003 Sælla er að gefa en þiggja og hvert sem tilefnið er þá finnurðu réttu gjöfina hjá okkur á verði sem kemur þér skemmtilega á óvart. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 32 32 12 /2 00 3 gef›u og flú munt njóta BIKAR FYRIR STÆRSTA LAXINN Eyþór Sigmundsson með Hákonsbikarinn, sem hann fékk fyrir stærsta laxinn sem veiddist síðasta sumar. Á veiðum GUNNAR BENDER ■ skrifar um veiðiskap. M YN D :/ VA LD IM AR S VE R R IS SO N Margir verða að borða annað en rjúpur um jólin að þessu sinni. Einhverjir veiðimenn eiga þó rjúpur í frystinum sem ganga kaupum og sölum. Verðið á þeim hefur verið mjög flöktandi. Rjúpur seldar fyrir tíu þúsund krónur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.