Fréttablaðið - 20.12.2003, Qupperneq 58
Eyrarpúkinn er einhvers stað-ar á mörkum prósaljóðs og
frásagnar en það er mitt að
yrkja og annara að skilja,“ segir
Jóhann Árelíuz skáld um sitt
fyrsta verk í óbundnu máli en
hann hefur meðal annars sent
frá sér ljóðabækurnar Tehús
ágústmánans og Par avion.
„Þetta form er sprottið úr ára-
löngum pælingum um efnið og
reyndist að lokum það eina sem
hentaði mínum bernskubrekum.
Og ljóðið er þarna á flugferð
frásagnarhraðans.“
Leiðast merkimiðar
Jóhann sækir yrkisefni sitt í
barndóm sinn fyrir norðan.
„Einhverjir myndu kannski
vilja kalla þetta uppvaxtarsögu
en ég nenni ekki að setja ein-
hverja bókmenntafræðilega
merkimiða á Eyrarpúkann því
mér leiðast slíkir. Ég sat í bók-
menntadeildinni í Lundi nokkr-
ar annir fyrir sirka 20 árum og
geispaði stórum. Mundi ég frek-
ar vilja vitna í Matthías Johann-
essen og viðtal hans við Lesbók
Morgunblaðsins sem ég las í
Hrísey en þar segir Matthías:
Skáldleg tök eru alltaf ný og
nota ég tækifærið og þakka hon-
um fyrir þá fínu ljóðabók Fagur
er dalur. Auðvitað vakir formið
sí og æ fyrir manni og stundum
er Eyrarpúkinn það sem kallast
„call and response“ í söng og
stundum „a capella“ en vonandi
ætíð samhljómur síns tíðaranda.
Það tók Steve Winwood ár að
semja sína bestu músík (About
Time) frá því að Traffic var og
hét og einhver glöggur krítíker í
Stokkhólmi sagði um síðustu
skífu John Fogertys að það hefði
tekið kappann ellefu ár að spila
hana inn en hljómurinn væri svo
„spontant“ að það var eins og
platan hefði verið tekin upp fyr-
ir hádegi í helgarbyrjun.“
Ísland best í hillingum
Jóhann fluttist til Svíþjóðar
þegar hann var um tvítugt og
hefur búið þar í rúman aldar-
fjórðung. Hann hefur ort jöfn-
um höndum heima á Fróni og
ytra og segir ómögulegt að
segja til um hvort hann sé al-
kominn heim. „Ljóðin í bókun-
um mínum hafa ekkert frekar
komið út í tímaröð og þannig
getur þú til að mynda fundið
ljóð í Tehúsi ágústmánans sem
eru ort þegar ég var 19 ára en sú
bók kom ekki út fyrr en ég var
að nálgast fertugt. Ég hef nú
stundum sagt að Ísland sé best í
hillingum en verð hér löngum
stundum ef skaparinn lofar
enda vandi um slíkt að spá í
andrá aðventunnar og mér hug-
stæðast að tolla í deginum. En
víst er það fiskilegt vatn Tjörn-
in.“
Jólahraðlestin glepur
Jóhann gefur Eyrarpúkann út
sjálfur en útilokar ekki að hann
muni einhvern tíma leita til
stærri útgefenda með verk sín.
„Ég mun skoða það í ró og næði
en þykir svolítið leitt í þessu
flóði að menn skuli ekki vera
vakandi fyrir því þegar einhver
leggur allt undir í skriftum og
gefur út sjálfur á Akureyri. Ég
er gamall ritstjóri og eins og ég
lít á málið þá eru svoddan til-
brigði oft áhugaverðari en hin
árlega jólahraðlest. Við lifum á
tímum síðkapítalismans og líf-
erni sumra minnir á Rómverj-
ana forðum þá þeir stungu
páfuglsfjöðrinni í kokið og ældu
til að geta étið meira og byggist
vitaskuld á fjölda maura í
mauraþúfunni.“
Kúpan ekki tóm
Jóhann er ánægður með þær
viðtökur sem Eyrarpúkinn hef-
ur fengið, ekki síst fyrir norðan,
og segir sagnabrunn sinn síður
en svo tæmdan með bókinni án
þess að hann vilji lofa nokkru
um framhaldið.
„Ég myndi aldrei vilja grípa
fram í fyrir sjálfum mér og
óskrifuðum verkum en það er
augljóst að ég er bara 10 til 11
ára gamall þegar þessari bók
lýkur og vonandi er eitthvað eft-
ir í kollinum eða eins og Keith
heitinn Richards sagði: „The
skull is still left.“ Bókin hefur
fengið frábærar undirtektir fyr-
ir norðan og ég hef mjög gaman
af því. Það er nú stundum sagt
um Akureyringa að þeir séu
seinteknir en viðtökurnar hafa
verið prýðilegar og það hafa
margir spurt mig út í manna-
nöfn og önnur smáatriði sem
sýnir að menn hafa lúslesið bók-
ina. Og kannski ætti ég að
ljóstra því upp að marggefnu til-
efni að sá umtalaði Nonni í bók-
inni er enginn annar en
skallaknattspyrnubróðir minn
Þormóður Jón Einarsson.“
Fortíðarsaga fyrir hraðsoð-
inn nútímann
Þrátt fyrir að fortíðin sé yrk-
isefni Jóhanns segir hann form
bókarinnar, með sína misstuttu
kafla, „eins og sniðið fyrir þetta
hraða þjóðfélag sem við lifum í.
Þannig að það er gaman að
heyra fólk tala um að það hafi
dottið inn í bókina. Það er flétta
í þessu, þetta eru ljóð og saga
og einhverjir eru að tala
um kvikmyndir í þessu
sambandi því rennslið í
bókinni er filmískt. Það
sem vakti fyrir mér er
að menn geti lesið Eyr-
arpúkann aftur og aftur.
Fyrir mér er bara einn
mælikvarði á ekta bók-
menntir og hann er sá að
fólk lesi þær aftur, grípi
til þeirra sér til andlegrar upp-
lyftingar. Þess vegna er gaman
að heyra að fólk er farið að kíkja
aftur í hana á sjálfri jólavertíð-
inni. Púkinn er á mörgum nátt-
borðum og er engin einnota jóla-
bók því hann heldur áfram eins
og lífið sjálft.
Verkið vekur upp minninga-
þrá og með hæfilegri general-
íseríngu getum við sagt að allt
hafi verið betra í gamla daga.
Víst var tilveran einfaldari um
margt og bara eitt ríkisútvarp
og ekkert sjónvarp að glápa á.
Enda er bernskan flestum kær-
asti tíminn og umhverfið sem
við Eyrarpúkarnir á Akureyri
ólumst upp í var feikilega frjótt
og ég hef aldrei hitt Eyrarpúka
á mínu skeiði sem minnist ekki
þessara tíma með ánægju.“
thorarinn@frettabladid.is
Við lifum á tímum
síðkapítalismans
54 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Níðsterkir og liprir
KULDAGALLAR fyrir
börn og fullorðna
Hlýtt í
vetur
JÓHANN ÁRELÍUZ
„Fyrir mér er bara einn mælikvarði á ekta bókmenntir og hann er sá að fólk lesi þær aftur, grípi til þeirra sér til andlegrar upplyftingar.
Þess vegna er gaman að heyra að fólk er farið að kíkja aftur í hana á sjálfri jólavertíðinni. Púkinn er á mörgum náttborðum og er engin
einnota jólabók því hann heldur áfram eins og lífið sjálft.“Við lifum á tímum
síðkapítalismans
og líferni sumra minnir á
Rómverjana forðum þá
þeir stungu páfuglsfjöðr-
inni í kokið og ældu til að
geta étið meira og byggist
vitaskuld á fjölda maura í
mauraþúfunni.
,,
Einhverjir myndu
kannski vilja kalla
þetta uppvaxtarsögu en ég
nenni ekki að setja ein-
hverja bókmenntafræði-
lega merkimiða á Eyarpúk-
ann því mér leiðast slíkir.
Ég sat í bókmenntadeild-
inni í Lundi nokkrar annir
fyrir sirka 20 árum og
geispaði stórum.“
,,
Norðanskáldið Jóhann Árelíuz hefur sent frá
bernskusöguna Eyrarpúkann. Jóhann er einn af þeim
sem gefa út sjálfir og er forvitnilegt, nú þegar stóru
bókaforlögin eiga í hatrammri samkeppni í jólabóka-
flóðinu, að heyra hvað einyrkinn hefur fram að færa.
SNÝR BAKI
Þó svo Jóhann gefi út sjálfur
núna útilokar hann ekki að leita
á náðir forlaga síðar meir. „Ég
mun skoða það í ró og næði en
þykir svolítið leitt í þessu flóði að
menn skuli ekki vera vakandi fyrir
því þegar einhver leggur allt undir í
skriftum og gefur út sjálfur á Akur-
eyri. Ég er gamall ritstjóri og eins og
ég lít á málið þá eru svoddan til-
brigði oft áhugaverðari en hin árlega
jólahraðlest.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA