Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 66

Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 66
62 20. desember 2003 LAUGARDAGUR Exellence borðbúnaðurinn sígildi Bankastræti 6 – Sími: 551 8588 Úra og skartgripaverslun Kornelíus ehf Framsóknarfélag Mosfellsbæj-ar hefur afhent Ásdísi Jóns- dóttur og Birki Emil syni hennar ágóðan af jólabingóinu sem haldið var laugardaginn 13. des sl., 60.000 krónur. Opnaður var sér- stakur söfnunarreikningur Birkis Emils, sem er með Goldenhar- heilkenni, og er reikningsnúmerið 315-13-800175. ■ Ég fékk hugmyndina fyrirtveimur árum þegar ég fékk ítrekun frá innheimtufyrirtækivegna reiknings í vanskilum. Þeg- ar ég sá hvað var verið að rukka mig um varð ég alveg foxill því ég var búin að borga skuldina. Ég var svo reið að ég óskaði þess að ég ætti vúdúdúkku sem ég gæti pynt- að og fengið útrás á.“ Það er Anna Helgadóttir, skrif- stofustjóri hjá Internet á Íslandi, sem þannig útskýrir tilkomu galdradúkkunnar, sem hún hefur nú hannað í mörgum útgáfum. „Ég var fljót að ná mér,“ segir Anna og hlær, „en datt samt í hug að svona dúkkur gætu verið sniðugar, til dæmis fyrir fyrir- tæki að senda viðskiptavinum sín- um með jólakortinu. Þau gætu þá látið fylgja með að upplagt væri að fá útrás á dúkkunni frekar en að skeyta skapi sínu á sínum nán- ustu. Ég seldi fyrirtæki þessa hugmynd og þannig urðu galdra- dúkkurnar til.“ Anna segir að fyrsta dúkkan hafi verið afar illfyglisleg, en þar sem dúkkurnar voru fyrst og fremst hugsaðar sem grín reyndi hún að gera þær geðþekkari. „Þær urðu svo sætar að mig langaði sjálfa í eina. Þegar ég horfði á dúkkurnar datt mér í hug að það væri alveg eins hægt að nota þær til þess að einbeita sér að einhverju jákvæðu og góðu frekar en að fá útrás fyrir illsku út í fólk eða fyrirtæki. Þannig að dúkkurnar, eins og þær eru núna, eru mjög langt frá upprunalegu hugmyndinni og vúdúdúkkum al- mennt.“ Anna segir að það gæti jafnvel virkjað undirmeðvitundina að hafa þessa jákvæðu hluti fyrir framan sig á dúkkunni og velja einn, eða fleiri, með prjóni til þess að einbeita sér að. „Og hver veit. Kannski er það allt sem þarf til þess að öðlast þessa hluti? Mér finnst það í það minnsta skemmti- leg hugmynd. Ég bjó svo til einn karl til að hrella manninn minn og sagði að hann væri ómissandi fyrir „bitru konuna“, en auðvitað þurfa allar konur að eiga einn svoleiðis,“ seg- ir Anna og hlær. Galdradúkkurnar eru til sölu á anna.is/galdur, en Anna verður á handverksmarkaði á Garðatorgi í dag þar sem hún er með dúkkurn- ar til sölu. ■ Ég er ekki alveg búin að áttamig á því að það eru að koma jól enda eru núna stífar æfingar í Hafnarfjarðarleikhúsinu,“ segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona. „Ég vakna í myrkri, fer í leikhúsið og kem heim í myrkri. Við stefn- um á að frumsýna Meistarann og Margarítu þann 6. janúar, þannig að ég fæ þriggja daga jólafrí. Þetta er gaman og ákveðin stemn- ing en svo allt í einu eru jólin kom- in og það er svolítið skrítið.“ Elma Lísa segir misjafnt hversu mikið hún leggur upp úr jólaundirbúningi. „Í fyrra var ég ekki að vinna svona rétt fyrir jól- in og það var mjög gaman að hafa nógan tíma og upplifa jólin þannig. Við hjónin erum eitthvað búin að gera, fórum til dæmis í Byggt og búið um helgina og keyptum jólaseríur og skreyttum aðeins. Ég ætlaði líka að baka konfekt með vinkonu minni en við verðum bara að sjá hvort það verður einhver tími í það. Svo erum við í fríi á sunnudaginn og þá ætla ég að kaupa jólagjafir. En þegar við fórum í Kringluna um daginn var svo troðið og mér fannst einhver græðgi í loftinu. Þá ákvað ég að taka ekki þátt í því og detta ekki inn í eitthvert kaupæði. Ég ætla bara að einbeita mér að vinnunni og njóta þess, það er svo auðvelt að detta í eitt- hvað stress. Hins vegar er alltaf gaman að labba í bænum á Þor- láksmessu og upplifa þannig jóla- andann. Við röltum yfirleitt um og kaupum kannski eina gjöf sem eftir er. Þær verða þó ábyggilega fleiri núna.“ ■ SAFNAÐ FYRIR BIRKI Birkir sést hér í fanginu á móður sinni, Ásdísi Jónsdóttur. Bryndís Bjarnarson, formaður fé- lagsins (t.h.), og Sigríður Sigurðardóttir (t.v.) eru með þeim á myndinni. Bingó fyrir Birki Emil: Söfnuðu 60.000 GALDRADÚKKUR Virkja undirmeðvitundina til góðs, en karlinn er reyndar fyrir reiðar konur. Hamingjan höndluð með títuprjóni: Galdradúkka getur bjargað deginum ANNA HELGADÓTTIR Hefur hannað galdradúkkur, sem á fyrst og fremst að nota í góðum tilgangi. „Hamingja, ást og góð heilsa er það sem alla dreymir um og af hverju ekki að nota svona dúkku til að minna sig á það einfalda sem skiptir mestu máli.“ ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR Stífar æfingar fram yfir jól. Desembermánuður: Allt í einu eru jólin komin

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.