Fréttablaðið - 20.12.2003, Síða 70
66 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
ÞORLÁKSMESSUSKATA
Hjá okkur færðu ekta vestfirska skötu !
Verið vandlát, það erum við.
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 9.00-18.00
FISKBÚÐIN HAFBERG
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686
HNOÐMÖR, HAMSAR, HANGIFLOT.
HÁKARL, HARÐFISKUR, STÓR RÆKJA, HÖRPUSKEL.
JÓLAHUMARINN KOMINN
SK
AT
A SKATA
Jólamaturinn:
Hreindýr í stað rjúpu
Það er auðvitað mjög mikið aðgera hjá mér í desember, en
það er alltaf mikið að gera,“ segir
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra. „Jólaundirbúningurinn
bætist auðvitað við en það er bara
ánægjuleg viðbót. Það eina sem er
óhefðbundið við jólin núna er að
við erum ekki með rjúpur. Við
verðum með humar í forrétt,
hreindýr í aðalrétt og ferska
ávexti í eftirrétt. Í fyrra vorum
við heldur ekki með rjúpur og
þetta er nú það helsta sem hefur
breyst hjá okkur.
Fjölskylda Sivjar er með
ákveðna fasta liði á aðventunni,
eins og svo margar aðrar. „Við
erum nýbúin að gera laufabrauð
með föðursystur minni. Svo
höldum við alltaf mar-
sípankeppni svokallaða hjá
mömmu. Þá erum við með
marsipan, brætt súkkulaði,
möndlur, kókosmjöl og allskon-
ar skraut. Við litum líka hluta af
marsípaninu. Svo komum við
systkinin saman, makar og börn
og mamma dæmir um það hver
gerir fallegasta marsipanið. Á
Þorláksmessu er orðið hefð-
bundið að fara í skötu hjá
tengdafólkinu mínu.
Á seinni árum höfum við tek-
ið upp þann sið að fara í Heið-
mörk að gera kertaskreytingar
og jólaskraut. Mamma hefur
safnað okkur saman, börnunum
og barnabörnum, í norska kof-
ann þarna í skóginum. Við erum
nýbúin að fara þangað og þar
var mikil jólastemning.“ ■
Nýverið komu í Vínbúðir hin vin-sælu styrktu vín Rivasaltes auk
vína frá héraðinu Roussillon. Þau
fást í gjafumbúðum í Vínbúðum, tvö
og þrjú í pakka. Frá framleiðandan-
um Pujol - Domaine La Rourède í
Roussillon koma þrjú vín undir heit-
inu Côtes du Roussillon. Vínin eru
kraftmikil með keim af svörtum
berjum, með skemmtilegt og langt
eftirbragð. Frábær kostur með villi-
bráð, lambakjöti og öllu grilluðu
kjöti. Þrúgurnar í þessum vínum
eru allt að fjórar og eru blandaðar í
mismunandi hlutföllum: grenache,
carignan, mourvèdre og syrah. Öll
vín frá Pujol eru lífrænt ræktuð og
eru þannig betri kostur fyrir þá sem
eiga til að fá hausverk af neyslu
rauðvína!
Rivesaltes er þorp í frönsku
Kataloníu. Rivesaltes-vínin eru
styrkt og gerð þeirra er sérstök.
Þau eru gerð úr rauðu eða hvítu
grenache-þrúgunni. Berin handtínd
eftir að þau hafa verið látin of-
þroskast og innihalda því mikinn
sykur. Þau eru síð-
an í flestum tilfell-
um kramin og lát-
in liggja í safa og
gerjast. Seinna
eru þau pressuð
og gerjunin stopp-
uð með vínberja-
alkóhóli. Vínið er
svo geymt annað-
hvort í tönkum
eða ámum í fjölda
ára eins og t.d.
fyrir Rivesaltes hors d’âge sem er
geymt meira en 10 ár í ámum. Vínin
eru öll með svipaðan styrkleika eða
í kringum 16 %. Eftir opnun geym-
ast vínin í að minnsta kosti átta vik-
ur.
Rivesaltes Vintage
Lykt af sykurhúðuðum ávöxtum
og kirsuberjum. Gott jafnvægi í
bragði, sveskjur og vel þroskuð
dökk ber, örlítið tannín en langt eft-
irbragð. Þetta vín er drukkið sem
fordrykkur en einnig með eftirrétt-
um úr rauðum ávöxtum eða mildu
súkkulaði.
Muscat de Rivesaltes
Mjög spennandi styrkt vín í
frábæru jafnvægi. Mikill fersk-
leiki og góð sýra á
móti sætum vín-
berjum. Sérstak-
lega langt og
mjúkt eftirbragð.
Vínið hentar mjög
vel sem fordrykk-
ur. Frábært með
gæsa- eða andalif-
ur, með Roquefort-
osti eða sem eftir-
réttavín með eplatertum, ávaxta-
kökum eða ávaxtasorbet. Passar
líka mjög vel með súkkulaði.
Rivesaltes Blanc
Þetta vín er flókið, meðalsætt
með keim af appelsínu, möndlum,
hunangi og eik, eftirbragðið er
langt. Mikið jafnvægi. Á sérlega
vel við með foie gras eða eftirrétt-
um úr súkkulaði og appelsínum.
Rivesaltes Hors d’âge
Þetta vín er mjög flókið, meðal-
sætt með keim af kaffibrennslu,
kakó, tóbaki og eik, eftirbragðið
er mjög langt. Tilvalið með eftir-
réttum úr súkkulaði eða sem eftir-
drykkur í stað koníaks, það er ein-
nig gott með góðum vindlum. ■
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Uppáhaldsjólaskrautið er engill sem yngsti sonurinn gerði sjálfur á leikskólanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
VÍNTVENNA
Í víntvennu eru í boði fordrykkur og
desertvín eða eftirdrykkur: Muscat de
Rivesaltes, Rivesaltes Hors d’âge. Fæst í
stærri Vínbúðum á 6.610 kr.
Bára Einarsdóttir
„Hamborgarhryggur og skyrkaka
í eftirmat. Ég elda.“
Hvað verður í
jólamatinn?
Frönsk styrkt vín í gjafaumbúðum:
Nýjungar frá frönsku Katalóníu
VÍNÞRENNA
Í vínþrennu eru boðin þrenn
vín fyrir alla rétti hátíðarmál-
tíða: Mâcon La Roche Vineu-
se 2000 frá Francois
d’Allaines, (hvítvín - chardon-
nay), Côtes du Roussillon
2001 (rauðvín - samsett af
syrah, grenache og carignan),
Rivesaltes Vintage (styrkt
rauðvín frá Roussillon-héraði
Frakklands). Fæst í stærri
Vínbúðum á 6.610 kr.