Fréttablaðið - 20.12.2003, Qupperneq 79
75LAUGARDAGUR 20. desember 2003
Rænt og sleppt með því að kvitta
Fyrirsætan Veruska Ramirez,sem var kjörin Ungfrú Venes-
úela árið 1997 og keppti ári seinna
í Ungfrú Alheimi, var rænt á dög-
unum. Ræningjarnir réðust inn í
bíl hennar í borginni Valencia,
hirtu allt lausadrasl, dágóða pen-
ingasummu úr veski hennar og
rifu hana svo á brott með sér.
Henni var svo haldið nauðugri í
þrjá tíma.
Á meðal hluta sem ræningjarn-
ir tóku úr bíl hennar var kassi
sem innihélt fimmtán dagatöl með
nektarmyndum af stúlkunni.
Eftir að hafa grandskoðað
myndirnar komu þeir til hennar
rjóðir í kinnum og báðu hana vin-
samlegast um að árita dagatölin
fimmtán. Eftir að hún gerði það
slepptu þeir henni út á götu og
hlupu á brott með dagatölin.
„Þeir voru mjög hissa þegar
þeir spurðu hana um nafn og
komust að því að þetta væri hin
fræga Ungfrú Venesúela,“ segir
umboðsmaður hennar Luigi
Ratino. „Þeir meiddu hana ekki,
þeir snertu hana meira að segja
ekki.“
Lögreglan í Valencia rannsak-
ar nú málið. ■
Umfjölluntónlist
Sálindansleikurgamlárskvöld
Húsið opnað
kl. 23:00
Miðasala alla
daga á Brodway
Sími 533 1100 - broadway@broadway.is
St
a
fr
æ
n
a
h
u
g
m
yn
d
a
sm
ið
ja
n
/
4
0
0
6
dansleikur
Tryggið ykkur
miða fyrir jól!
stór
laugardaginn 27. desember
Ég verð að viðurkenna að ég varnú ekkert sérstaklega spenntur
fyrir því að setja nýja breiðskífu
Blink 182 í tækið. En þessari vinnu
fylgja þungir hnífar, sem og annars
staðar, og ég renndi henni inn af
skyldunni einni saman.
Og viti menn, ég veit ekki hvort
það sé út af því að ég sé kominn í
jólaskap, eða að ég hafi fundið nýtt
jafnvægi í lífinu eða hvort það sé
vegna þess að vinur minn Robert
Smith úr The Cure syngur í einu
laginu... en ég hef bara þó nokkuð
gaman af þessari plötu.
Sveitin hefur gefið út yfirlýsing-
ar þess efnis að hún hafi fyllst nýj-
um metnaði og að platan sé alvar-
legri en þær eldri. Þó það sé vissu-
lega rétt, þá er þetta ansi langt frá
því að vera eitthvað þungmeti. Enn-
þá sama sveitin, leikur ennþá
keyrslurokk sem hentar eróbikk-
iðkendum vel á köflum, en nú er
bara búið að tóna niður fíflalætin
örlítið. Þannig eru flest lögin í svip-
uðum dúr og lagið Stay Together
for the Kids af síðustu plötu, sem
var að mínu mati þeirra besta fram
til þessa.
Til hamingju piltar, þið voruð að
gera ykkar bestu plötu.
Og gleðileg jól, elskurnar mínar.
Guð blessi ykkur!
Birgir Örn Steinarsson
UNGFRÚ VENESÚELA 1997
Var rænt, en sleppt eftir að hún áritaði
nektarmyndir af sér.
Skrýtnafréttin
UNGFRÚ VENESÚELA RÆNT
■ Mannræningjar ákváðu að sleppa
Ungfrú Venesúela gegn því að hún
áritaði nektarmyndir af sér.
KELSEY OG UMA
Uma Thurman var kampakát þegar henni var tilkynnt að hún hefði hlotið Golden Globe-
tilnefningu fyrir leik sinn í Kill Bill. Vol. 1. Sjónvarpsleikarinn Kelsey Grammer, úr Frasier,
var einnig ánægður með sína tilnefningu. Hann hefur oft unnið en þetta var fyrsta tilnefn-
ing Umu. Verðlaunin verða afhent 15. janúar.
Slíta barns-
skónum
BLINK 182
Blink 182
Tom Morello, gítarleikariAudioslave, og Serj Tankian úr
System of a Down komu nýverið
fram á styrktartónleikum fyrir
starfsmenn stórmarkaða í suður-
hluta Kalifoníu sem hafa verið í
verkfalli. Axis of Justice, sem eru
pólitísk samtök þeirra Morello og
Tankian, stóðu fyrir tónleikunum.
„Aðgangseyrir rennur til
starfsmannanna svo þeir geti
keypt jólagjafir handa börnunum
sínum um jólin,“ sagði Morello.
„Peningarnir munu líka hjálpa
þeim að halda verkfallinu
áfram.“
Starfsmennirnir fóru í verkfall
þann 11. október eftir að samn-
ingaviðræður um launakjör, eftir-
laun og heilsugæslu fóru í strand.
Að sögn Morello er þetta stærsta
verkfall í Kaliforníu í fimmtíu ár
en um 70 þúsund starfsmenn stór-
markaða taka þátt í því. ■
AUDIOSLAVE
Tom Morello úr Audioslave er einn þeirra sem standa fyrir styrktartónleikunum.
Morello og Tankian í jólaskapi