Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 86
82 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
TRAUST VÖRN
Sanath Jayasuriya frá Sri Lanka verst sókn
Englendinga í landsleik í krikket í
Colombo.
Krikket
Spánska deildarkeppnin
Real keppir við Mallorca
FÓTBOLTI Síðasta umferðin í spæn-
sku deildakeppninni á þessu ári
verður leikin um helgina.
Valencia getur náð efsta sætinu af
Real Madrid í kvöld með heima-
sigri á Sevilla en meistarar Real
Madrid geta endurheimt efsta
sætið með sigri á Mallorca annað
kvöld. Deportivo La Coruna leikur
við botnlið Espnayol annað kvöld
og Barcelona leikur gegn Celta
Vigo á Nou Camp.
Real Madrid er efst og hefur
ekki tapað leik í deildinni síðan í
byrjun nóvember. Real lenti eins
og nokkur önnur stórlið í hremm-
ingum gegn smærri liðum í bikar-
keppninni í vikunni. Real vann 2.
deildarfélagið Leganes 4-3 eftir
framlengingu og bjargaði Santi-
ago Solari heiðri Madrídinga með
jöfnunarmarki í blálok venjulegs
leiktíma. Raúl skoraði sigurmark
þeirra í framlengingu. David
Beckham og Michel Salgado
meiddust í leiknum og er óvíst
hvort þeir verði heilir fyrir leik-
inn á morgun. Mallorca er í tíunda
sæti deildarinnar og er jafnan
erfitt heim að sækja en félagið
hefur fengið sautján af 23 stigum
sínum á heimavelli. ■
Úrslitaleikur Hópbílabikars kvenna í körfubolta fer fram í dag:
Stoppa þær Erlu og
Hildi í Smáranum?
KÖRFUBOLTI Líkt og oft áður eru það
lið Keflavíkur og KR sem leika til
úrslita í kvennakörfunni en liðin
mætast í dag í úrslitaleik Hópbíla-
bikars kvenna og hefst leikurinn
klukkan 14:15 í Smáranum í Kópa-
vogi. Þegar liðskipan liðanna er
borin saman kemur í ljós að Kefla-
vík telst vera mun sigurstrang-
legra á pappírnum en það telur
víst lítið þegar í úrslitaleikinn er
komið og þar þekkjast þessi lið vel.
Keflavík og KR hafa spilað flest
alla úrslitaleikina um titla kvenna-
körfunnar á síðustu árum. Liðin
unnu bæði undanúrslitaleikina á
heimavelli, Keflavík vann öruggan
27 stiga sigur á toppliði ÍS, 68-41,
og KR vann botnlið Grindavíkur
með 30 stigum, 88-58. Það félag
sem vinnur leikinn í dag verður
fyrsta félagið til að vinna fyrir-
tækjabikar kvenna í annað sinn.
Það ræður miklu í dag hvernig
liðunum gengur að ráða við lykil-
menn hinna liðanna, Erlu Þor-
steinsdóttur hjá Keflavík og Hildi
Sigurðardóttur hjá KR sem báðar
hafa gert útslagið í tveimur deild-
arleikjum liðanna í vetur.
Hildur Sigurðardóttir hefur
leikið frábærlega í vetur og er allt
í öllu í KR-liðinu. Hún hefur skorað
19,7 stig, tekið 14,1 fráköst og gef-
ið 5,4 stoðsendingar að meðaltali og
farið fyrir sínu liði. Það vekur líka
athygli að leikstjórnandi KR-liðs-
ins er langfrákastahæsti leikmaður
liðsins og í öðru sæti í deildinni.
Hildur var með 30 stig, 16 fráköst
og átta stoðsendingar í 79-69 sigri
KR í DHL-Höllinni í fyrri leiknum
og hitti þá úr fjögurra af fimm
þriggja stiga skotum sínum. Erla
Þorsteinsdóttir er lykilmaður
Keflavíkur og aðalskorari liðsins.
Erla er illviðráðanleg undir körf-
unni og fá lið geta ráðið við hana á
góðum degi. Erla hefur þrátt fyrir
meiðsli og veikindi skorað 16,6 stig
að meðaltali í leik í deildinni í vet-
ur en hún hefur þó aðeins leikið í
20,3 mínútur að meðaltali. Erla
varð með 32 stig og 7 fráköst á að-
eins 25 mínútum í 72-59 sigri
Keflavík á KR í Keflavík í seinni
leik liðanna og nýtti þar 65% skota
sinna og 86% vítanna.
Það er ljóst að þessar tvær
snjöllu körfuknattleikskonur geta
gert útslagið í dag en til þess að
titillinn komi í hús þurfa þær góða
hjálp frá félögum sínum. ■
KÖRFUBOLTI Ívar Ásgrímsson,
nýráðinn landsliðsþjálfari kven-
na í körfuknattleik, valdi í gær
22 stúlkur í fyrsta hóp sinn en
hann mun koma saman til æf-
inga á milli jóla og nýárs. Tvö
verkefni eru fyrirhuguð á næsta
ári, Promotion Cup í Andorra í
júlí og Norðurlandamótið í Sví-
þjóð í ágúst. Ívar valdi sex ný-
liða í hópinn að þessu sinni,
Bryndísi Guðmundsdóttur og
Maríu Ben Erlingsdóttur úr
Keflavík, Auði Jónsdóttur úr
Njarðvík, Petrúnellu Skúladótt-
ur úr Grindavík, Kristrúnu Sig-
urjónsdóttur úr ÍR og Pálínu
Gunnlaugsdóttur úr Haukum. ■
Íþróttamenn ársins hjá
Reuters:
Armstrong
og Sören-
stam valin
HJÓLREIÐAR Bandaríski hjólreiða-
kappinn Lance Armstrong og sæns-
ka golfstúlkan Annika Sörenstam
voru í gær valin íþróttamaður og
íþróttakona ársins af Reuters-
fréttastofunni. Armstrong vann erf-
iðustu hjólreiðakeppni heims,
Frakklandskeppnina, fimmta árið í
röð, en Sörenstam vann sex stóra
titla á árinu auk þess sem sem hún
stóð uppi í hárinu á körlum á einu
móti á PGA-mótaröðinni. alls tóku
31 blaðamaður frá 24 löndum þátt í
kjörinu. ■
RUBENS BARRICHELLO
Brasilíumaðurinn skilur ekkert í félaga sín-
um Michael Schumacher.
Formúla 1 kappaksturinn:
Hissa á
Schumacher
FORMÚLA 1 Brasilíski ökuþórinn
Rubens Barrichello hefur viður-
kennt að hann sé hissa á því að
félagi hans hjá Ferrari, Michael
Schumacher, hafi ekki hætt eftir
síðasta tímabil þegar hann vann
sjötta heimsmeistaratitil sinn.
„Ég veit ekki hvað gerist í hausn-
um á Schumacher en ef ég hefði
verið í hans sporum þá hefði ég
hætt. Það er hins vegar frábært
að hann skuli halda áfram ef hann
hefur enn sama metnað og sama
sigurvilja,“ sagði Barrichello. ■
MILAN BAROS
Byrjar brátt að æfa að nýju.
Liverpool:
Baros og
Carragher
æfa á ný
FÓTBOLTI „Milan Baros verður
byrjaður að æfa fyrir árslok og
þá snýst það um að koma honum
í leikform,“ sagði Gerald Houlli-
er, framkvæmdastjóri Liver-
pool. „Hann ætti að geta byrjað
að sparka bolta fyrir jól. Við
höfum góðan hóp leikmanna en
það geta ekki allir leikið í sókn-
inni. Milan sannaði ágæti sitt á
síðustu leiktíð.“
Jamie Carragher er einnig
byrjaður að æfa en hann og Baros
fótbrotnuðu báðir í dýrkeyptum 3-
1 sigri í Blackburn um miðjan
september. Svissneski varnar-
maðurinn Stephane Henchoz er
búinn að ná sér af meiðslum og
verður í leikmannahópnum sem
mætir Úlfunum í dag en Harry
Kewell og Michael Owen verða
ekki með. ■
LANDSLIÐSHÓPUR ÍVARS
Bakverðir:
Erla Reynisdóttir Keflavík
Marín Rós Karlsdóttir Keflavík
Rannveig Randversdóttir Keflavík
Alda Leif Jónsdóttir ÍS
Stella Rún Kristjánsdóttir ÍS
Petrúnella Skúladóttir Grindavík
Auður Jónsdóttir Njarðvík
Pálína Gunnlaugsdóttir Haukum
Hildur Sigurðardóttir KR
Framherjar:
Anna María Sveinsdóttir Keflavík
Birna Valgarðsdóttir Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
Sava Ósk Stefánsdóttir Keflavík
Lovísa Guðmundsdóttir ÍS
Svandís Sigurðardóttir ÍS
Sólveig Gunnlaugsdóttir Grindavík
Ingibjörg Vilbergsdóttir Njarðvík
Helena Sverrisdóttir Haukum
Kristrún Sigurjónsdóttir ÍR
Miðherjar:
Erla Þorsteinsdóttir Keflavík
María Ben Erlingsdóttir Keflavík
Signý Hermannsdóttir Tenerife
MARÍA BEN ERLINGSDÓTTIR
María Ben Erlingsdóttir er einn sex nýliða í
hópi Ívars og jafnframt sú yngsta.
Landslið kvenna í körfuknattleik valið:
Sex nýliðar hjá Ívari
SAMANBURÐUR Á TÖLFRÆÐI
KR OG KEFLAVÍK:
Stig skoruð að meðaltali:
1. sæti Keflavík 82,9
2. sæti KR 65,8
Stig fengin á sig að meðaltali:
2. sæti KR 64,4
3. sæti Keflavík 65,8
Hlutfall frákasta:
1. sæti Keflavík 56,8%
4. sæti KR 50,6%
Skotnýting:
1. sæti Keflavík 41,9%
4. sæti KR 34,9%
3ja stiga körfur í leik:
4. sæti Keflavík 3,6
5. sæti KR 3,5
Vítanýting:
1. sæti Keflavík 74,2%
4. sæti KR 64,0%
Skotnýting mótherja:
2. sæti KR 32,9%
4. sæti Keflavík 35,7%
Tapaðir boltar í leik:
3. sæti Keflavík 20,2
4. sæti KR 22,4
Þvingaðir tapaðir boltar í leik:
3. sæti Keflavík 21,5
5. sæti KR 19,3
Stig frá bekk í leik:
1. sæti Keflavík 30,0
4. sæti KR 13,0
ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR, KEFLAVÍK
Hefur skorað 16,6 stig á aðeins 20,3 mín-
útum með keflavík í vetur.
KEFLAVÍK VANN Í FYRRA
Keflavíkurkonur unnu 26 stiga sigur á KR í
úrslitaleiknum í Smáranum í fyrra.
SAMANBURÐUR Á TÖLFRÆÐI
LEIKMANNA KEFLAVÍKUR OG KR:
Flest stig í leik:
Katie Wolfe, KR 22,8
Hildur Sigurðadóttir, KR 19,7
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík 16,6
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 16,2
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík 12,4
Flest fráköst í leik:
Hildur Sigurðadóttir, KR 14,1
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík 9,4
Lilja Oddsdóttir, KR 8,5
Katie Wolfe, KR 8,3
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 7,1
Flestar stoðsendingar í leik:
Hildur Sigurðadóttir, KR 5,4
Erla Reynisdóttir, Keflavík 4,8
Kristín Blöndal, Keflavík 4,6
Svava Ósk Stefánsdóttir, Keflavík 3,4
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík 3,1
Hæsta framlag í leik:
Katie Wolfe, KR 25,3
Hildur Sigurðadóttir, KR 22,2
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík 19,3
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 17,8
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík 17,0
RAUL
Skoraði sigurmark Real gegn 2. deildar-
félaginu Leganes í bikarkeppninni.
LEIKIR Í DAG
Atlético Madrid - Santander
Valencia - Sevilla
LEIKIR Á MORGUN
Real Betis - Villarreal
Barcelona - Celta Vigo
Real Sociedad - Valladolid
Osasuna - Real Zaragoza
Albacete - Athletic Bilbao
Real Murcia - Málaga
Deportivo La Coruna - Espanyol
Real Mallorca - Real Madrid
STAÐAN
Real Madrid 16 11 3 2 33:17 36
Valencia 16 10 4 2 30:12 34
Deportivo 16 9 3 4 24:13 30
Osasuna 16 7 6 3 18:12 27
Atlético Madrid 16 8 2 6 21:20 26
Athletic Bilbao 16 7 3 6 21:19 24
Villarreal 16 6 6 4 17:16 24
Málaga 16 7 2 7 21:19 23
Barcelona 16 6 5 5 22:21 23